Morgunblaðið - 12.04.2005, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
FRAMHALDSSKÓLANEMAR sem
Morgunblaðið ræddi við í gær eru ekki sátt-
ir við hugmyndir um styttingu náms til
stúdentsprófs. Finnst þeim fram hjá sér
gengið í allri vinnu og umræðu og hlusta
mætti meir á raddir þeirra sem hafa hags-
muna að gæta.
Segja nemendurnir framhaldsskólatím-
ann vera afar mikilvægan tíma í fé-
lagsþroska ungs fólks, þann tíma sem fólk
eignast vini fyrir lífstíð. Ennfremur bitni
styttingin á frjálsu vali og fjölbreytni í
skólastarfi. Þá segja nemendurnir kappnóg
af valkostum vilji nemendur taka styttri leið
að stúdentsprófi, m.a. að hraða ferð sinni
gegnum grunnskóla og fara síðan í hrað-
brautarframhaldsskóla.
„Félagslífið dettur örugglega niður og
verður meira brottfall á nemendum,“ segir
Hafdís Svava Níelsdóttir, nemandi við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti, um styttinguna.
„Það verður líka minna af námi sem við
fáum að velja sjálf. Fólk nennir ekki að
hanga bara í kjarnafögum. Fólk vill fá að
ráða hvað það fer að læra,“ segir Hafdís
sem stundar nám á fjölmiðlabraut í FB.
Framhalds-
skólanemar
vilja að á þá
sé hlustað
Mikilvægt tímabil/Miðopna
STJÓRN FL Group, sem hét áður
Flugleiðir, samþykkti á fundi sínum
í gær að undirrita samning við
Boeing flugvélaverksmiðjurnar í
Bandaríkjunum um kaup á fimm
Boeing 737-800-flugvélum til við-
bótar við þær 10 sem samið var um í
febrúar.
Félagið fékk kauprétt á þessum
fimm viðbótarflugvélum sem hluta
af samningnum sem undirritaður
var í febrúar og hefur nú ákveðið að
nýta þennan rétt. Heildarverðmæti
leiðslu sína á næsta ári og því sé
samningur um vélarnar mjög verð-
mætur.
Félagið telur sig eiga kost á að
innleysa verulega dulda eign í þess-
um flugvélum í gegnum fjármögnun
þeirra og útleigu. Nú sé ljóst að
þessi eign aukist verulega frá því
sem áður var kynnt, en hagstætt
kaupverð hafi fyrst og fremst ráðist
af tímasetningu kaupanna og löngu
og traustu sambandi félagsins við
Boeing-verksmiðjurnar.
nýta sér kaupréttinn á 5 flugvélum
til viðbótar en vélarnar koma til af-
hendingar á árinu 2007.
Innleyst dulda eign
Í tilkynningunni kemur fram að
markaðssetning Boeing 737-800-
flugvéla hafi gengið mun hraðar en
áætlað var og horfur á útleigu og
sölu annarra flugvéla, sem félagið
hafi fest kaup á, séu mjög góðar því
eftirspurn hafi farið vaxandi.
Boeing hafi þegar selt alla fram-
þessara flugvéla samkvæmt
verðskrá er um 20 milljarðar króna.
Fram kemur í tilkynningu frá FL
Group að markmið félagsins sé að
byggja upp flugvélaleigu og hafi fé-
lagið samið við Boeing á grundvelli
mjög hagstæðs kaupverðs um 10
flugvélar í febrúar. Samningar um
útleigu fyrstu fimm flugvélanna,
sem koma til félagsins á árinu 2006,
séu á lokastigi. Sé það í ljósi þess
hve vel hafi gengið við útleigu flug-
véla að FL Group hafi ákveðið að
FL Group kaupir fimm nýjar Boeing 737-800-flugvélar til viðbótar
Heildarverðmæti um
20 milljarðar króna
BÚIÐ er að jafna stóran hluta af gömlu
Bæjarútgerðinni í Hafnarfirði við Norð-
urbakka við jörðu, og reiknar verktakinn
sem vinnur að niðurrifinu með að búið
að vinna ef vélin verður olíulaus. Allur úr-
gangur sem til fellur við niðurbrotið er
flokkaður, steypuúrgangur mulinn, timbur
kurlað og járnið fer í endurvinnslu.
verði að rífa öll húsin um næstu mán-
aðamót. Gröfumaðurinn gerði hlé á vinnu
sinni til að bæta olíu á gröfuna þegar ljós-
myndari átti leið framhjá, enda lítið hægt
Morgunblaðið/RAX
Bæjarútgerðin jöfnuð við jörðu
EIGENDUR Flúðasveppa, þau
Ragnar Kristinn Kristjánsson og
kona hans Mildrid Steinberg, hafa
gengið frá sölu fyrirtækisins til
Georgs Ottóssonar, garðyrkjubónda
á Flúðum og stjórnarformanns Sölu-
félags garðyrkjumanna. Söluverð er
trúnaðarmál en Ragnar segir rekst-
ur Flúðasveppa alltaf hafa gengið
ágætlega en nú starfi að jafnaði um
25 manns hjá fyrirtækinu.
„Það má eiginlega segja það að ég
hafi lítið hugsað um annað en
svepparækt allt frá árinu 1981 þegar
ég hóf að vinna að undirbúningi að
stofnun Flúðasveppa. Nú erum við
sem sagt búin að selja Flúðasveppi
og allar eignir sem tengjast fyrir-
tækinu.“
Ragnar segir Georg reka stóra
garðyrkjustöð rétt hjá Flúðasvepp-
um. Hann segist treysta Georg afar
vel fyrir rekstrinum og fyrst sam-
komulag hafi tekist um verð sé eðli-
legt að selja.
Eigenda-
skipti að
Flúða-
sveppum
Flúðasveppir/14
ÁRNI Þór Sigtryggsson, landsliðsmaður í
handknattleik, heldur í dag til Þýskalands en
þýska meistaraliðið Flensburg bauð honum
að koma út til reynslu með samning í huga.
Árni, sem er tvítug vinstrihandarskytta, hef-
ur spilað með Þór á Akureyri þar sem hann
hefur slegið í gegn í vetur. Hann er einn af
lykilmönnum í 21 árs landsliðinu, sem tryggt
hefur sér keppnisréttinn á HM í Ungverja-
landi í sumar og þá lék hann sinn fyrsta
landsleik gegn Pólverjum á dögunum./C2
Árni Þór til
skoðunar hjá
Flensburg
PÓST- og fjarskiptastofnun (PFS)
kvað í gær upp þann úrskurð að Og
fjarskipti hf. (Og Vodafone) hefðu
ekki gætt jafnræðis í verðlagningu
inn á farsímanet fyrirtækisins
gagnvart Símanum. Um er að ræða
verðlagningu á samtengingum, svo-
nefndri fastanetsþjónustu á heild-
sölustigi og er fyrirtækinu gefinn
30 daga frestur til að sýna fram á
með fullnægjandi gögnum að fyr-
irtækið hafi látið af þessari mis-
munun í verðlagningu. Að öðrum
kosti muni stofnunin grípa til við-
eigandi ráðstafana.
Sama gjald óháð því úr hvaða
neti símtal er upprunnið
Síminn kvartaði til stofnunarinn-
ar í október 2003 og taldi Og fjar-
skipti brotleg við fjarskiptalög þar
sem fyrirtækið byði símtöl úr fasta-
netssímum viðskiptamanna sinna í
smásölu yfir í eigið farsímanet á
lægra verði en Símanum stæði til
boða.
Að mati forsvarsmanna Símans
er hér um tímamótaúrskurð að
ræða, sem varði verulega hags-
muni, skv. upplýsingum fyrirtæk-
isins í gærkvöldi.
Póst- og fjarskiptastofnun kemst
að þeirri niðurstöðu að Og fjar-
skipti hafi umtalsverða markaðs-
hlutdeild á markaði fyrir farsíma-
þjónustu og á því hvíli því sú skylda
að gæta jafnræðis við svonefnda
lúkningu símtala inn í farsímanet
fyrirtækisins. Því sé skylt að taka
sama gjald, óháð því úr hvaða neti
símtalið er upprunnið.
„Vodafone ber samkvæmt því að
selja sínum eigin deildum lúkningu
símtala í farsímaneti á sama verði
og óskyldum aðilum,“ segir m.a. í
ákvörðunarorðum PFS.
Kemur spánskt fyrir sjónir
Dóra Sif Tynes, lögfræðingur Og
fjarskipta, segir að fyrirtækið sé að
kynna sér niðurstöðu Póst- og fjar-
skiptastofnunar og fara yfir hvert
framhaldið verður. Hún bendir á að
sú ákvörðun hafi verið tekin á sín-
um tíma að Og Vodafone hefði um-
talsverða markaðshlutdeild í far-
símaþjónustu fyrirtækisins. Þessi
ákvörðun hafi verið tekin í tíð eldri
laga sem féllu úr gildi í júlí 2003 en
skv. þeim var miðað við 25% mark-
aðshlutdeild. „Þarna er því byggt á
gamalli aðferðafræði sem felst ekki
í nýju fjarskiptalögunum. Það kem-
ur okkur því nokkuð spánskt fyrir
sjónir að lagðar séu á okkur kvaðir
samkvæmt þessum eldri lögum, þó-
nokkuð löngu eftir að ný lög tóku
gildi,“ segir hún.
Dóra Sif bendir einnig á að skv.
núgildandi lögum beri Póst- og fjar-
skiptastofnun að framkvæma
markaðsgreiningu sem eigi að
leggja til grundvallar ef kvaðir eru
lagðar á fyrirtæki. „Það er ekki að
sjá neinn afrakstur af henni enn þá.
Það hefði e.t.v. verið heppilegra að
menn einbeittu sér að því að vinna
eftir núgildandi lögum í stað þess
að úrskurða samkvæmt eldri lög-
um.“
Póst- og fjarskiptastofnun úrskurðar um verð samtengigjalda Og Vodafone
Gert að láta af mismunun
í verðlagningu til Símans
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
♦♦♦