Morgunblaðið - 23.04.2005, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Taktu höndum saman með öðrum til
þess að láta hjólin snúast. Notaðu dag-
inn til líkamlegrar áreynslu eða
íþróttaiðkunar. Allt sem þú gerir er til
bóta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Metnaður nautsins lætur á sér kræla og
það finnur sig knúið til þess að koma sér
áleiðis. Ræddu sparnaðarhugmyndir við
yfirmann eða foreldra, þú færð snjallar
hugmyndir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar sem starfa á sviði fjölmiðlunar,
menntunar, læknisfræði og lögfræði
koma svo sannarlega á óvart í dag. Hug-
myndir hans eru djarfar og hann hikar
ekki við að koma þeim áleiðis.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn sér ýmsar leiðir til umbóta í
eigin lífi og annarra um þessar mundir.
Fólk ætti að leggja við hlustirnar í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leggðu öðrum lið við að bæta kjör barna
í dag og stilltu þig um að reyna að breyta
makanum. Notaðu orkuna í að hjálpa
öðrum og endurnýja.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Staða himintunglanna gerir meyjunni
auðveldara en ella að bæta heilsufar sitt.
Gerðu allt sem þú getur, hreyfðu þig,
bættu mataræðið og stundaðu íþróttir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Skapandi og listrænar vogir ná árangri í
því sem þær taka sér fyrir hendur í dag.
Þær koma auga á nýjar leiðir til þess að
ná markmiðum sínum og þora að prófa.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Í dag er upplagt að sinna viðgerðum á
heimilinu, hvort sem um er að ræða stór
verkefni eða smá. Allt sem þú gerir
gengur vel og hratt fyrir sig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er einstaklega sannfær-
andi í dag og gæti selt ís á norð-
urpólnum, ef út í það væri farið. Þá er
ráð að bera sig eftir því sem maður vill.
Enginn stenst þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú er rétti tíminn til þess að auka tekj-
urnar, steingeitin er bæði kraftmikil og
kæn þessa dagana og hikar ekki við að
bregðast við með hraði og dirfsku.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Reyndu að hreyfa þig eitthvað í dag, ef
þú getur. Hvaðeina sem þú gerir færir
þér ávinning. Teygjuæfingar, jóga og
fimleikar koma sérstaklega að gagni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn kemst hugsanlega á snoðir
um forvitnileg leyndarmál í dag. Ein-
hver ljóstrar upp leyndardómi. Notaðu
upplýsingarnar af varfærni og virðingu.
Stjörnuspá
Frances Drake
Naut
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur góða leikræna hæfileika og
áttar þig á gildi réttrar tímasetningar.
Einnig skilur þú gangverk
mannskepnunnar. Þú ert samvinnufús
við vinnufélagana og leggur þig fram
við að tryggja eigið öryggi.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 skapstilltar,
8 sápulögur, 9 mannsnafn,
10 eldiviður, 11 steinn,
13 slota, 15 fáni, 18 éta,
21 kyn, 22 þrjót, 23 fífl,
24 pretta.
Lóðrétt | 2 stríðin, 3 nirfill,
4 skapvond, 5 aldan, 6 fæ í
minn hlut, 7 feiti,
12 kropp, 14 greinir,
15 sjávardýr, 16 stétt,
17 hamingjan, 18 verk,
19 hyggst, 20 leðju.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hnupl, 4 tæpur, 7 landi, 8 orkan, 9 ris, 11 röng,
13 kimi, 14 átuna, 15 meyr, 17 lögg, 20 sag, 22 náinn,
23 undur, 24 tunga, 25 torgi.
Lóðrétt | 1 hólar, 2 unnin, 3 leir, 4 tros, 5 pakki, 6 runni,
10 iðuna, 12 gár, 13 kal, 15 mennt, 16 ylinn, 18 öldur,
19 garri, 20 snúa, 21 gust.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Myndlist
101 gallery | Helgi Þorgils Friðjónsson – Ská-
halli tilverunnar (Theo van Doesburg, Goya
og aðrir).
Banananas | Davíð Örn Halldórsson sýnir
veggmyndir og málverk sem fást við hug-
myndina frummynd og eftirmynd.
Café Karólína | Myndlistarsýning Baldvins
Ringsted.
Eden, Hveragerði | Davíð Art Sigurðsson
sýnir olíumálverk.
Energia | Málverkasýning aprílmánaðar. Ólöf
Björg.
Gallerí Dvergur | Baldur Bragason sýnir
skúlptúra.
Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson – Afgang-
ar.
Gallerí Gyllinhæð | 17% Gullinsnið kl. 14–17.
Sýnendur eru Árni Þór Árnason, Maríó Músk-
at og Sindri Már Sigfússon.
Gallerí i8 | Hrafnkell Sigurðsson.
Gallerí Sævars Karls | Kristján Jónsson.
Gallery Terpentine | Odd Nerdrum og Stefán
Boulter.
Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gullþræðir.
Klippimyndir, verk úr muldu grjóti, olíu-
málverk og fleira í Boganum.
Grafíksafn Íslands | Sýning á vatns-
litamyndum eftir Daða Guðbjörnsson verður
opnuð kl. 15 í dag.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Í samvinnu við Sophienholm í
Kaupmannahöfn og Hafnarborg, hefur Jo-
hannes Larsen-safnið sett saman sýningu
um danska og íslenska listamenn og túlkun
þeirra á íslenskri náttúru á 150 ára tímabili.
Jóhannes Dagsson - einkasýning.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól-
stafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjaltalín
sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í Menning-
arsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Krús | Sýning Birgis Breiðdal er opin til
30. apríl.
Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal eitt verk, ekkert
upphaf né endir.
Listasafn ASÍ | Helgi Þorgils Friðjónsson.
Listasafnið á Akureyri | Erró.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930–
1945. Rúrí – Archive Endangered waters.
Síðasta sýningarhelgi.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fjórar
glerlistasýningar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur Jóns-
son og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían –
Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirsdóttir
– Myndheimur/Visual World.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Markmið XI. Hörður Ágústsson – Yfirlitssýn-
ing.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Norræna húsið | Farfuglarnir, sýning sex nor-
rænna myndarlistarmanna frá Finnlandi,
Danmörku og Íslandi.
Norska húsið í Stykkishólmi | Málverkasýn-
ing Péturs Péturssonar.
Saltfisksetur Íslands | Fríða Rögnvalds-
dóttir sýnir „Fiskar og fólk“. Allar myndirnar
eru unnar með steypu á striga.
Salurinn | Andi Manns er heiti á sýningu
Leifs Breiðfjörðs. Stórir steindir gluggar, svíf-
andi glerdrekar, eru uppistaða sýningar. 24.
apríl kl. 14 verður Leifur með leiðsögn um
sýninguna.
Salurinn | Frönsk 20. aldar píanótónlist fyrir
tvo kl. 13 - Tónleikar kennara Tónlistarskóla
Kópavogs. Nína Margrét Grímsdóttir, píanó,
Sólveig Anna Jónsdóttir, píanó. Verk eftir
Fauré, Debussy og Milhaud.
Salurinn | Píanótónleikar, kl. 16. Kristín Jón-
ína Taylor. Verk eftir Edvard Grieg, Alexander
Skrjabín, Claude Debussy, Þorkel Sigur-
björnsson og Samuel Barber.
Yzt – gallerí og listverslun | Vatnsheimar –
verk Mireyu Samper.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýning-
arnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir Guðna
Þórðarsonar og Íslendingar í Riccione – ljós-
myndir úr fórum Manfroni-bræðra.
Þrastalundur, Grímsnesi | Sveinn Sig-
urjónsson frá Galtalæk 2 í Rangárvallasýslu
sýnir olíumálverk í Þrastalundi.
Smáralind | Sýning Amnesty International,
„Dropar af regni“.
Tónlist
Akureyjakirkja | Kirkjulistaviku lýkur um
helgina með kantötuguðsþjónustu kl. 11 á
sunnudag. Fluttir verða þættir úr kantötunni:
„Es ist euch gut dass ich hingehe“ eftir
Bach. Í messunni prédikar sr. Jón A. Bald-
vinsson, vígslubiskup. Hátíðartónleikar kl. 16.
Flutt verða verk eftir Widor og Duruflé.
Æðruleysismessa kl. 20.30.
Bústaðakirkja | Tónleikar í Bústaðakirkju kl.
17. Flytjendur eru Craigclowan Senior Choir,
strengjasveit og sekkjapípuleikarar frá Perth
í Skotlandi og nemendur Tónlistarskóla
Bessastaðahrepps. Stjórnandi: Ástmar
Ólafsson. Aðgangur er ókeypis.
Félagsheimilið Goðaland | Kvennakórinn
Ljósbrá er með vortónleika á Goðalandi í
dag. Einsöngvari Gísli Stefánsson, tvísöngur
Guðríður Júlíusdóttir og Margrét Harpa Guð-
steinsdóttir. Undirleikarar Arnhildur Val-
garðsdóttir og Margrét Harpa Guðsteins-
dóttir. Stjórnandi Eyrún Jónasdóttir.
Gerðuberg | Íslandsdeild EPTA (Evrópusam-
band píanókennara) stendur fyrir námskeiði í
píanóleik (Masterclass) fyrir píanónemendur
í grunnstigi og miðstigi í Gerðubergi, kl. 13–
17. Fyrirhugað námskeið sunnudaginn 24.
apríl fellur niður. Kennari Anna Málfríður Sig-
urðardóttir. Allir velkomnir.
Hlégarður | Karlakórinn Stefnir og Karlakór
Eyjafjarðar syngja saman á vortónleikum í
Hlégarði kl. 16. Stjórnendur Atli Guðlaugsson
og Petra Björk Pálsdóttir.
Kaffi Hljómalind | Hljómsveitirnar Fut-
ureFuture og Days of our Lives halda tón-
leika í dag kl. 21. Frítt inn og staðurinn er
áfengis- og tóbakslaus.
Kaffi Hljómalind | Tónleikar kl. 17 með Lada
Sport og Kingstone. Hlynur Magnússon sýnir
teiknimyndir kl. 20. Uhu leikur kl. 21.
Langholtskirkja | Skagfirska söngsveitin
heldur tónleika í Langholtskirkju kl. 17–19.
Leikskálar | Hljómsveitartónleikar kl. 14, þar
sem Skólahljómsveit Kópavogs kemur fram.
Á efnisskránni er tónlist úr kvikmyndunum
o.fl. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Norræna húsið | Auður Agla Óladóttir víólu-
leikari heldur tónleika í Norræna húsinu 17.
Með henni spilar Kristinn Örn Kristinsson. Á
efnisskrá eru verk eftir J. S. Bach, Ernest
Bloch, Johannes Brahms og Áskel Másson.
Aðgangur ókeypis.
Seltjarnarneskirkja | Vortónleikar Lúðra-
sveitar verkalýðsins kl. 14 í Seltjarnar-
neskirkju. Tryggvi M. Baldvinsson stjórnar.
Þetta verða kveðjutónleikar Tryggva sem
stjórnanda. M.a. verða verk eftir Fucik, Grieg
og John Stanley.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð |
Hljómsveitirnar Bacon og Uhu troða upp í
Gallerí Humri eða frægð kl. 15. Bacon fagnaði
nýlega sinni annarri skífu, Jenny. Uhu spilar
ósungið fönk.
Ráðhúsið | Stórsveitamaraþon. 9 íslenskar
stórsveitir og ein færeysk. Sveitirnar sem
koma fram eru: Kl 13 Stórsveit Tónmennta-
skóla Reykjavíkur og Tónskóla Sigursveins D.
Krisinssonar. Kl. 13:30 Stórsveit Tónlist-
arkóla Hafnarfjarðar, yngri og eldri deild.
Kl.14 Stórsveit Tónlistarskólans í Þórshöfn í
Færeyjum. Kl 14:30 Stórsveit Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar, yngri deild. kl. 15:00 Stór-
sveit Tónlistarskóla FIH. Kl 15:30 Stórsveit
Tónlistarskóla Seltjarnarnes. Kl. 16 Stórsveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, eldri deild. Kl.
16:30 Stórsveit Reykjavíkur.
Listasýning
Suðsuðvestur | Birta Guðjónsdóttir sýnir í
Suðsuðvestri. Verkin á sýningunni eru unnin
útfrá vangaveltum um upplifun okkar á tím-
anum. Opið fimmtud. og föstud. frá 16–18,
um helgar frá 14–17.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning um
ævi skáldsins. Sími 5868066 netfang:
gljufrasteinn@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pétursson
(1614–1674) er skáld mánaðarins í Þjóð-
menningarhúsinu. Hallgrímur er eitt fremsta
skáld Íslendinga fyrr og síðar. Sýningin gefur
innsýn í verk hans og útgáfur á þeim hér á
landi og erlendis og þann innblástur sem þau
veita listamönnum, ekki síst í nútímanum.
Drepið er á æviatriði Hallgríms og staldrað
við atburði sem marka hvörf í hans ferli.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til – menning og
samfélag í 1.200 ár. Ómur – Landið og þjóðin í
íslenskri hönnun. Ljósmyndasýningarnar Í
vesturheimi 1955 ljósmyndir Guðna Þórð-
arsonar og Íslendingar í Riccione, ljósmyndir
úr fórum Manfroni-bræðra.
Fréttir
ITC samtökin á Íslandi | Landsþing ITC á Ís-
landi verður haldið dagana 29.–30. apríl, í
Oddfellow-húsinu, Vonarstræti 10 í Reykjavík
og er öllum opið. Uppl. fást: www.simnet.is/
itc, eða s: 698–7204/897–4439.
Mannfagnaður
Wesak-hátíðin | Helgasta hátíð ljóssins, We-
sak-hátíðin, verður haldin í Síðumúla 15, 3.
hæð, um helgina. Á hátíðinni verða flutt ýmis
erindi, tónlist, miðlun, hugleiðslur og fleira.
Dagskráin á laugardag og sunnudag er kl. 13–
17.
Breiðfirðingabúð | Kvennadeild Barðstrend-
ingafélagsins heldur sumarfagnaður fyrir
Barðstrendinga 65 ára og eldri, kl. 14, í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Hressó | Tilfinningatorg kl. 14–18. Elísabet
Jökulsdóttir tekur á móti gestum. Veitingar.
Réttó 1953 | Þeir sem fæddir eru 1953 og
voru í Breiðagerðis- eða Réttarholtsskóla
ætla að hittast í tilefni þess að í vor eru 35 ár
frá því að þeir hættu í skólanum. Þeir sem
ætla að mæta þurfa að bóka sig fyrir 27. apr-
íl. Nánari upplýsingar veita: Gústi, 898–
3950, Edda, 848–3890, Einar, 426–8137,
Gunnar J., 551–4925, Jónas, 894–6994 og
á edda@simnet.is.
Skemmtanir
Ari í Ögri | Dúettinn Acoustics skemmtir.
Broadway | Síðustu sýningar af söng-
kabarettinum „Með næstum allt á hreinu“.
Broadway | Hljómsveitin Hunang með Kalla
Örvars leikur. Frítt inn.
Cafe Amsterdam | Hljómsveitin Veðurguð-
irnir.
Glæsibær | Dansleikur Félags harm-
onikkuunnenda í Reykjavík kl. 21.30.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin
Kung Fú.
Kringlukráin | Hljómsveitin Logar frá Vest-
mannaeyjum.
Lukku-láki, Grindavík | Hljómsveitin Hraun
heldur tónleika og fylgir þeim eftir með
partýballi í kvöld kl. 22.30.
Players, Kópavogi | Hljómsveitin Bermuda.
Fundir
Kraftur | Aðalfundur Krafts, stuðningsfélag
ungs fólks sem hefur greinst með krabba-
mein og aðstandendur, verður haldinn þriðju-
daginn 26. apríl nk. að Skógarhlíð 8, 4. hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velkomnir.
Veitingar í boði Krafts.
ReykjavíkurAkademían | „Hvað segir mað-
ur eða gerir fyrir 32ja ára gamlan mann sem
missti konu sína og tvo unga syni?“ Þannig
skrifar Hildur Magnúsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur Rauða krossins frá Banda Aceh á
Indónesíu. Hildur, Hólmfríður Garðarsdóttir
og Birna Halldórsdóttir gefa innsýn í störf sín
á flóðasvæðum í Asíu í dag, kl. 12–14.
Spoex | Aðalfundur SPOEX, Samtaka psori-
asis- og exemsjúklinga, verður haldinn 27.
apríl kl. 20, á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni
38. Auk venjulegra aðalfundarstarfa fjallar
Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkrunardeild-
arstjóri um: Bláa lónið – Ný húðlækn-
ingastöð. Einnig verður fjallað um breytingar
á húsnæði félagsins.
Norræna húsið | Alþingismennirnir Jónína
Bjartmarz og Magnús Þór Hafsteinsson
segja frá ferð sinni til Palestínu á opnum
fundi sem Félagið Ísland-Palestína heldur 24.
apríl kl. 15. Systkinin Díana og Mohamad Ein-
ar Laham syngja nokkur lög í upphafi fundar.
Kynning
Heilunarsetrið | Opið hús kl. 12–16. Gestir
geta kynnt sér þjónustuna gegn vægu gjaldi
m.a nudd, heilun, spámiðlun, höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðferð o.fl. Te og spjall. Allir
velkomnir.
Skógræktarfélag Íslands | Skógrækt-
arfélögin kynna starfsemi sína í Smáralind
og Kringlunni um helgina, með það að mark-
miði að laða nýja félagsmenn til liðs við
hreyfinguna. Þetta er liður í dagskrá vegna
75 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands á
þessu ári.
Námskeið
MS-félag Íslands | Helgarnámskeið fyrir
landsbyggðarfólk um MS-sjúkdóminn verður
haldið 29.–30. apríl, fyrir fólk með nýlega
greiningu MS, upp að 2–3 árum. Tauga-
sérfræðingur, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræð-
ingur, iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari veita
fræðslu. Námskeiðið verður í húsi MS-félags
Íslands á Sléttuvegi 5, Reykjavík. Upplýs-
ingar veitir Margrét, félagsráðgjafi, í síma
5688620, 8970923.
www.ljosmyndari.is | Þriggja daga námskeið
(12 klst.) fyrir stafrænar myndavélar, 18., 20.
og 21. apríl og 25., 27. og 28. apríl kl. 18–22,
alla dagana. Verð 14.900 kr. Skráning á
www.ljosmyndari.is eða í síma 898–3911.
Ráðstefnur
Háskóli Íslands | Ráðstefna um vísindi og
trú verður í Háskóla Ísl., Lögbergi 101, kl. 10–
16.30. Fyrirlesarar: Atli Harðarson heimsp.,
Carlos Ferrer sóknarpr., Guðmundur Ingi
Markúss. trúarbragðafræð., Gunnjóna Una
félagsráðgj., Pétur Hauksson geðlækn.,
Steindór Erlingsson líf- og vísindasagnfræð-
ingur. Allir velkomnir.
Frístundir
Mýrdalshreppur | Gönguferð á Dyrhólaey í
dag. Safnast verður saman kl. 13 á bílastæð-
inu við Skorpunef, sem er á suð-austurhorni
Dyrhólaeyjar. Nánar á www.atvinnuferda.is.
Útivist
Hópferðamiðstöðin–Vestfjarðaleið ehf. |
Sumri heilsað á Snæfellsnesi 23.–24. apríl.
Útivera og söguskoðun með gönguferðum
Undir Jökli í fylgd heimamanns, Sæmundar
Kristjánssonar. Gist að Hofi. Pantanir hjá
Hópferðamamiðstöðinni–Vestfjarðaleið, s.
562 9950 og Ferðafélagi Íslands, s. 568
2533.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is