Morgunblaðið - 13.05.2005, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LANDSMENN heimsóttu Fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, að meðaltali 4,6 sinnum í viku hverri í apríl-
mánuði, að því er fram kemur í nýrri fjölmiðlakönn-
un Gallup. Hefur heimsóknum á mbl.is fjölgað frá
því í október í fyrra en þá heimsótti hver notandi
Netsins síðuna fjórum sinnum í viku hverri að með-
altali.
Aðrir netmiðlar sem niðurstöður voru birtar fyrir
voru ruv.is og textavarp.is. Reyndist hver netnot-
andi heimsækja vef Ríkisútvarpsins, ruv.is, að með-
altali 0,9 sinnum í viku og vef Ríkissjónvarpsins,
textavarp.is, að meðaltali 0,7 sinnum. Notkunartölur
fyrir vefinn visir.is eru ekki birtar. Þær upplýsingar
fengust hjá IMG Gallup að 365 miðlar hefðu óskað
eftir því að heimsóknir á vefinn visir.is yrðu ekki
mældar og birtar, en fjölmiðlar geta valið um hvaða
miðla þeir láta mæla og ekki.
1.540 einstaklingar voru í úrtaki Gallup vegna
fjölmiðlakönnunarinnar. Fólkið, sem var á aldrinum
12–80 ára, var valið með tilviljunaraðferð úr þjóð-
skrá. Hringt var í þátttakendur 1–3 sinnum yfir
könnunartímabilið.
Vefur mbl.is heimsóttur að meðaltali 4,6 sinnum í viku
SAMKVÆMT gæðamati nýrrar
fjölmiðlakönnunar IMG Gallup er
Morgunblaðið sá fjölmiðill sem
veitir fólki mikilvægar upplýsingar,
en Morgunblaðið fær einkunnina
4,1. Næst á eftir kemur Fréttablað-
ið með einkunnina 4 og svo eru
fréttavefur Morgunblaðsins, mbl.is,
og Sjónvarpið jöfn með einkunnina
3,6.
Samkvæmt gæðamatinu er
fréttaflutningi Morgunblaðsins og
fréttavefjarins mbl.is einna best
treyst meðal þeirra fjölmiðla sem
könnunin tók til. Báðir miðlarnir fá
einkunnina 4,2 en aðeins Sjón-
varpið og Rás 1 fá betri einkunn
eða 4,4 og 4,3. Rás 2 fær sömuleið-
is 4,2. Næst á eftir koma Stöð 2 og
ruv.is með 4 og fær Fréttablaðið
einkunnina 3,8.
Morgunblaðið og mbl.is fá sömu-
leiðis háar einkunnir í öðrum liðum
gæðamatsins. Morgunblaðið fær
hæstu einkunnina af öllum fjöl-
miðlum, eða 4,1, þegar spurt er um
miðil sem hægt sé að læra af. Sjón-
varpið kemur næst á eftir með 4,
þá Rás 1 með einkunnina 3,9 og þá
fréttavefurinn mbl.is með ein-
kunnina 3,8.
Þegar spurt er um „fjölmiðil að
mínu skapi“ deila Morgunblaðið og
Skjár 1 efsta sætinu með ein-
kunnina 4,1. Næst kemur Frétta-
blaðið með einkunnina 4 og mbl.is
og Stöð 2 fá einkunnina 3,9.
Alls svöruðu 807 manns á aldr-
inum 12–80 dagbókarkönnun sem
framkvæmd var vikuna 7.–13 apríl,
og var svarhlutfallið 55,5%.
Mikilvæg-
ustu upplýs-
ingarnar
!
" !#
#
$%
$&'$ #
( )$$ !
!"
#
$%&'
($)(*+
,%''
$
"
"
*
'-.
$
"
'%
)+
+%
/$
(
0
,%+$
)+
1
'..
(
$
"
'%
+%(*$
)$
-1/+$
*..2'+$
!
*
( )$$ !
" !#
$%
!
" !#
( )$$ !
*
!
( )$$ !
$%
!
( )$$ !
" !#
+&"!,-
. !!
/!
Morgunblaðið og fréttavefur blaðsins, mbl.is, koma vel út úr nýrri fjölmiðlakönnun IMG Gallup
Taílands nema um 1% af milli-
ríkjaviðskiptum Taílendinga. Jir-
apaet segir að svigrúm ætti að
vera fyrir aukin viðskipti milli
landanna ef samkomulag næst um
fríverslunarsamning. „Ef þú lítur
til uppbyggingar hagkerfa Taí-
lands og EFTA-ríkjanna þá er
margt líkt sem við getum samein-
ast um og nýtt okkur. Ég held að
það sé aðeins hægt að hagnast á
samkomulagi,“ sagði hann.
Útflutningur frá Íslandi til Taí-
lands er óverulegur en hefur auk-
ist jafnt og þétt frá árinu 2000 og
nam 182,5 milljónum króna árið
2003. Íslendingar fluttu á móti inn
vörur frá Taílandi fyrir tæpar 800
milljónir árið 2003.
FYRSTU lotu fríverslunarvið-
ræðna EFTA-ríkjanna og Taílands
lauk í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
Sendinefndir ríkjanna hafa fundað
stíft síðustu daga en næsti fundur
er áformaður S-Taílandi í sept-
ember.
Krirk-krai Jirapaet, vararáð-
herra Taílands, sagði í samtali við
Morgunblaðið að fundurinn á Ís-
landi hefði verið nýttur til að
skiptast á upplýsingum og skoð-
unum um hin ýmsu málefni sem
snerta hagsmuni ríkjanna. Fram
undan væru stíf fundahöld áður en
mögulega hillti í samkomulag.
Raunhæft væri að áætla að það
gæti legið fyrir eftir 12–18 mánuði.
Viðskipti EFTA-ríkjanna og
Morgunblaðið/Eyþór
Taílenski vararáðherrann, Krirk-krai Jirapaet, er hér meðal samstarfs-
manna sinna í viðskiptaviðræðunum sem lokið er í bili.
Svigrúm fyrir
aukin viðskipti
ÞAÐ hefur gefist mætavel að beita
svonefndri sáttamiðlun, bæði í
einkamálum og sakamálum, fyrir
dómstólum í Noregi á þeim áratug
sem slíkt fyrirkomulag hefur verið
við lýði þar í landi. Skilvirkni hefur
aukist, afgreiðsla mála tekur minni
tíma fyrir dómstólum og málsaðilar
standa sáttari upp frá borðum en
ella. Þetta segir héraðsdómarinn
Knut Petterson sem undanfarnar
vikur hefur verið að kynna fyrir-
komulag að norskri fyrirmynd fyrir
íslensku fagfólki. Hann mun í dag
kynna norsku aðferðina á málþingi
hjá Félagi fagfólks í fjölskyldumeð-
ferð og mun einnig kynna það á mál-
þingi Lögmannafélags Íslands,
Dómarafélags Íslands og HR sem
haldið er í samstarfi við dómsmála-
ráðuneytið 20. maí nk. Petterson er í
stjórn Norrænu sáttameðferðar-
nefndarinnar (Nordisk Forum for
Mekling og Konflikthandtering).
Oft hægt að leysa málin
á einfaldan hátt
Á þeim aldarfjórðungi sem Pett-
erson hefur starfað innan sviðs lög-
fræðinnar, þar af 15 ár sem dómari,
segist hann hafa séð það sífellt betur
hversu hefðbundin dómsmeðferð
dugar skammt í sumum málum sem
leysa mætti með miklu einfaldari og
hagkvæmari hætti. „Oft magnast
deilurnar í einkamálum þegar þær
eru orðnar að dómsmálum,“ segir
hann. „Í dómsferlinu eru gjarnan
dregnir fram hinir neikvæðu þættir
hjá deiluaðilum og það er ekki gott
veganesti inn í framtíðina fyrir fólk
sem tengist með einum eða öðrum
hætti hvort sem það eru fjölskyldu-
tengsl eða viðskiptatengsl, að ekki
sé talað um nágranna sem eiga í erj-
um,“ segir Petterson. „Það getur fal-
ið í sér æði háan fórnarkostnað að
vinna dómsmál. Þess vegna tel ég
mikilvægt að hægt sé að beita öðr-
um aðferðum við að leysa úr ágrein-
ingi en að fara hina hefðbundnu
dómstólaleið.“
Frá árinu 1997 hefur verið boðið
upp á sáttamiðlun í einkamálum hjá
Héraðsdómi Óslóar og í bígerð er að
allir norskir dómstólar taki upp fyr-
irkomulagið á næstu misserum.
„Þegar tveir deila og fara með
málið fyrir dómstóla er vaninn sá að
leggja fram kröfur aðila sem byggj-
ast á lagagrunni. En það þarf ekki
endilega að endurspegla kjarna deil-
unnar. Með sáttamiðlun er gefinn
gaumur að raunverulegum þörfum
og hagsmunum deiluaðila í stað þess
að einblína á lagalegan rétt þeirra.“
Systurnar og appelsínan
Petterson tekur einfalt dæmi af
tveimur systrum sem gera tilkall til
appelsínu. Væri málið sett fyrir
dómstól hefði dómari spurt hvor
systranna gæti sannað tilkall sitt til
ávaxtarins og sýnt kvittun. Það gæti
líka komið til greina að dómari skipti
appelsínunni í tvo helminga og jafn-
aði ágreininginn. „En undir sátta-
miðlun yrðu systurnar spurðar
hvers vegna þær þyrftu appelsín-
una. Þá kæmi í ljós að önnur þeirra
vildi eingöngu safann en hin börkinn
í kökubakstur. Það eru því tvær app-
elsínur í spilinu og málið leysist með
því að önnur systirin fær börkinn og
hin appelsínubátana.
Þetta er einfalt dæmi en í grunn-
inn endurspeglar þetta hina nýju
hugsun.“
Hvað varðar sakamálin hefur orð-
ið til vísir að sáttamiðlun hér á landi
með verkefninu Hringurinn á vegum
Miðgarðs í Grafarvogi sem felst í
sáttafundi ungs afbrotamanns og
þess sem misgjört er við, þ.e. ef báð-
ir samþykkja það auk lögreglunnar.
Í Noregi gefa dómstólar möguleika
á sáttamiðlun, bæði í tilvikum ungra
afbrotamanna og hinna eldri.
Í alvarlegri málum geta dómstólar
vísað hluta málanna til sáttanefndar
til umsagnar. Bæði þolandi og ger-
andi ásamt lögreglu þurfa þó að gefa
samþykki sitt fyrir sáttaleiðinni til
að hún nái fram að ganga og verður
þá sakborningurinn hvorki ákærður
né fer brotið á sakaskrá. „Sáttamiðl-
un er notuð í mörgum löndum sem
viðbótarúrræði í alvarlegum mál-
um,“ segir Petterson. „Í morðmálum
og nauðgunarmálum eða alvarlegum
ofbeldismálum kemur þetta til álita
og þá einkum með tilliti til þarfa
fórnarlambsins eða fjölskyldu þess.
Í Noregi og á Íslandi hafa fórnar-
lömb í alvarlegri málum harla lítið
vægi utan að bera vitni. En að sjálf-
sögðu hafa fórnarlömb sína hags-
muni og þarfir, bæði af niðurstöðu
málanna og meðan þau eru til með-
ferðar.“
Sáttamiðlanir hafa gefist vel hjá norskum dómstólum
Litið á þarfir deilenda
fremur en rétt þeirra
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Í NÝRRI fjölmiðlakönnun IMG Gall-
up stendur meðallestur Morgun-
blaðsins í stað, eða í 51,9%, frá síðustu
könnun sem var framkvæmd í febr-
úar. Lestur á Fréttablaðinu lækkar
hinsvegar úr 67,1% í 65,8% og lestur
á DV lækkar einnig eða úr 20,1% í
19,3%.
Framkvæmd var dagbókarkönnun
vikuna 7.–13. apríl og var úrtakið Ís-
lendingar á aldrinum 12–80 sem vald-
ir voru með tilviljunarúrtaki úr þjóð-
skrá. Endanlegt úrtak var 1.453
einstaklingar og af þeim svöruðu 807
eða 55,5%.
Samkvæmt könnuninni sögðust
90,8% lesenda hafa lesið eitthvað í
Fréttablaðinu umrædda viku, 74,5%
lásu Morgunblaðið og 43,6% lásu eitt-
hvað í DV.
Þá kemur í ljós að flestir lesa
Morgunblaðið á laugardögum eða
55,2% og eykst það frá síðustu könn-
un um 3,3%. Næst kemur lestur á
föstudagsblaðinu eða 54,9%.
Flestir lesa Fréttablaðið á fimmtu-
dögum eða 74,8% og eykst það um
6,4% frá síðustu könnun. Næst á eftir
kemur föstudagur með 69%.
Flestir lesa laugardagsblað DV eða
24,8%. Fimmtudagar koma næst á
eftir með 20,8%.
Þegar litið er til búsetu lesa flestir
Morgunblaðið á suðvesturhorni Ís-
lands eða 55,4%. Næst á eftir kemur
höfuðborgarsvæðið með 55,3% og þá
landsbyggðin með 46,2%.
Flestir lesa Fréttablaðið á höfuð-
borgarsvæðinu eða 74%. Næst kem-
ur suðvesturhornið með 71,5% og
landsbyggðin með 51,9%.
Flestir lesa DV á suðvesturhorn-
inu eða 20,8%. Þá kemur höfuðborg-
arsvæðið rétt á eftir með 20,6%. Á
landsbyggðinni lesa 17,2% DV sam-
kvæmt könnuninni.
Lestur á Viðskiptablaði eykst
Meðallestur Tímarits Morgun-
blaðsins eykst lítillega milli kannana
eða úr 40,2% í október 2004 í 40,4%
nú. Þá eykst lestur á Viðskiptablaði
Morgunblaðsins um 3% frá síðustu
könnun og er nú 23,2%.
Nærri 52% lesa
Morgunblaðið
3
4
5
6
3
7
!"
#
$
8
%
%