Morgunblaðið - 13.05.2005, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | MATARKISTAN
urferðir út á land.
Áður en haldið var á
vit sumarsins,
brugðu þær sér að
þessu sinni í Garða-
bæinn til Þorgerðar,
sem bauð vinkon-
unum upp á dýrind-
iskjúklingarétt, sem
vert er að veita öðr-
um hlutdeild í. Þor-
gerður sagðist hafa
fengið uppskriftina
hjá systur sinni Ás-
laugu, sem fékk svo
uppskriftina í öðrum
saumaklúbbi, en í
meðförum Þorgerð-
ar tók uppskriftin
nokkrum breytingum.
Ofnbakaður
kjúklingaréttur
(fyrir fjóra)
1 kjúklingur
½ poki gulrætur
1 meðalstór púrrulaukur
70 g valhnetukjarnar
15 steinlausar döðlur
½ bréf beikonstrimlar
6 sveppir
500 ml matreiðslurjómi
Kjúklingurinn steiktur, skinnið
tekið af og kjötið skorið í bita. Gul-
rætur, púrrulaukur, sveppir og
beikon léttsteikt í olíu á pönnu.
Döðlum og valhnetukjörnum bætt
út í. Rjómanum hellt yfir og látið
malla um stund.
Kjúklingabitarnir settir í eldfast
mót og grænmetisgumsinu hellt yfir.
Bakað í ofni í við 180°C í 20–30 mín-
útur. Borið fram með hrísgrjónum,
salati og brauðum.
SAUMAKLÚBBUR | Gómsætur kjúklingaréttur með beikoni, sveppum, döðlum og valhnetum
Kjúklingaréttur með salati, hrísgrjónum og brauði.
join@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorgerður Þráinsdóttir sem töfraði fram þennan dýrindiskjúklingarétt.
Kjúklingarétturinn er borinn fram með fersku salati að hætti Þorgerðar.
Þorgerður Þráinsdóttir, hjúkr-unarfræðingur, tilheyrir hópikvenna sem kallar sig sauma-
klúbburinn Samheldni. Fyrst hittust
þær fyrir 28 árum, þá sextán ára
gamlar, þegar þær hófu nám í Versl-
unarskóla Íslands, sem þá var til
húsa í Þingholtum. Bekkurinn var
lengst af kvennabekkur og hafa þær
haldið hópinn allar götur síðan. Að
meðaltali eru tólf „stelpur“ í hópn-
um, sem hittist í hverjum mánuði á
veturna eftir fyrirfram ákveðnu
skipulagi. Af og til er svo farið í dek-
Samheldni heilsar sumri
!
"
#
Rannsóknarþing 2005
Hátækni og háskólarannsóknir
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Rannís boðar til Rannóknarþings 2005 í
samstarfi við ráðuneyti menntamála og iðnaðar
miðvikudaginn 18. maí frá kl. 9-11:45 á Grand Hóteli
Dagskrá:
09:00 Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra.
Af líftæknirannsóknum
Sigríður Valgeirsdóttir Nimblegen,
Magnús Karl Magnússon, blóðmeinafræðideild LSH.
Um örtækni og rannsóknir
Bjarki A. Brynjarsson, forseti tækni- og verkfræðideildar
Háskólans í Reykjavík,
Kristinn Andersen, rannsóknastjóri Marels hf.
10:10 Hlé
Frá starfsnefndum Vísinda- og tækniráðs
Hafliði Pétur Gíslason, formaður vísindanefndar,
Hallgrímur Jónasson, formaður tækninefndar.
10:55 Hlé
Tónlist
Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Áslaug Helgadóttir, aðstoðarrektor rannsóknarmála Landbúnaðar-
háskólans og formaður dómnefndar, segir niðurstöðu nefndarinnar.
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, afhendir verðlaunin.
11:33 Veitingar
Fundarstjóri Hans Kr. Guðmundsson, forstöðumaður Rannís.
Rannsóknarþingið er öllum opið
Óskað er eftir að þátttaka sé tilkynnt á
netfangið rannis@rannis.is eða í síma 515 5800