Morgunblaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðablað Morgunblaðsins,
Sumarferðir 2005, fylgir
blaðinu föstudaginn 27. maí.
Vertu með í
Sumarferðum 2005 -
blaðinu sem verður á ferðinni
í allt sumar!
Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16
mánudaginn 23. maí
Allar nánari upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Sumarferðir 2005
Vertu með í ferðahandbók sumarsins!
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa gulli betri
ÞAÐ var hressilegur hópur knatt-
spyrnuáhugamanna sem hélt utan 8.
apríl síðastliðinn á vegum Actavis til
að fylgjast með leik Chelsea og
Birmingham í ensku úrvalsdeildinni.
Hópurinn samanstóð af fimm hörð-
um Chelsea-stuðningsmönnum, sem
hafa dvalist um helgar og sumur í
Reykjadal á vegum Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra (SLF) og aðstoð-
arfólki.
Þegar spáð var í hvernig leikurinn
myndi fara voru skoðanir skiptar.
Vinsælasta spáin var 3-0 fyrir
Chelsea og átti Eiður Smári að skora
eitt markanna þriggja. Einhver spáði
Chelsea 18-0 sigri á meðan annar
sveik lit og spáði Birmingham 0-2
sigri.
Í Chelsea Football Club beið hóps-
ins hátíðarmálsverður í einkasvítu en
áður en sest var til borðs var litið inn
í „Chelsea-búðina“. Keyptar voru
treyjur, peysur, húfur og treflar
enda voru allir staðráðnir í að vera
vel merktir sínu liði.
Mikil eftirvænting ríkti í hópnum
eftir að sjá hetjuna sjálfa, Eið Smára,
spila af sinni alkunnu snilld og brut-
ust út mikil fagnaðarlæti þegar Eið-
ur kom inn á í seinni hálfleik.
Ferðin tókst í alla staði mjög vel,
að sögn Heiðar Hrundar Jónsdóttur,
sem var í hópi aðstoðarfólks ferða-
langanna. Ánægja ferðalanganna
hafi verið mikil og einlæg. Þarna hafi
verið um hóp að ræða sem eigi erf-
iðara með að ferðast en margir aðrir
en upplifunin og spennan hafi verið
mikil. Þá hafi aðstoðarfólkið ekki síð-
ur verið ánægt með ferðina, sem hafi
verið einstaklega vel skipulögð.
Knattspyrna | Boðsferð Actavis á heimavöll Chelsea
Stuð á Stamford
Hópurinn samanstóð af fimm dyggum stuðningsmönnum Eiðs Smára og félaga hans í Chelsea.
HEIMILDARMYNDIN Gargandi
snilld verður tekin til sýninga í dag.
Leikstjóri og handritshöfundur
myndarinnar er Ari Alexander Erg-
is Magnússon en hún er framleidd af
Sigurjóni Sighvatssyni auk Ergis
kvikmyndaframleiðslu og Zik Zak
kvikmyndum.
Þetta er mynd í fullri lengd um
uppgang íslenskrar popptónlistar í
samtímanum. Grunnur myndarinnar
er byggður á spurningunni hvað
valdi því að fámenn íslensk þjóð hafi
getið af sér listafólk sem nær að
skapa sér athygli og aðdáun á
heimsgrundvelli, með tónlist sem þó
sker sig úr og hefur að sumra mati
séríslensk einkenni.
Í myndinni er sýnt frá yfir fimm-
tíu tónlistarviðburðum sem tengdir
eru saman með viðtölum við Björk,
Hilmar Örn og fjölda annarra lista-
manna. Segja þeir skoðun sína á
þróun íslenskrar popptónlistar.
Myndin var frumsýnd á Kvik-
myndahátíðinni í Gautaborg þar sem
hún var eina heimildarmyndin í
keppni um bestu myndina. Gargandi
snilld var frumsýnd hérlendis við
góðar viðtökur á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni á Íslandi, IIFF
2005, þar sem hún var lokamynd há-
tíðarinnar.
Frumsýning | Gargandi snilld
Dúndrandi íslensk tónlist
Pétur Þór og Mugison taka lagið í Gargandi snilld.
H.L. Morgunblaðinu
GAMANMYNDIN The Wedding
Date er með Debru Messing í aðal-
hlutverki, en hún hefur getið sér
frægðar fyrir leik sinn í hinum vin-
sælu þáttum Will & Grace.
Myndin er rómantísk gamanmynd
af klassíska skólanum ef svo má
segja. Á móti Messing leikur
Dermot Mulroney en hann er orðinn
býsna sjóaður í þessum tegundum
kvikmynda, en hann fór með aðal-
hlutverkið á móti Juliu Roberts í My
Best Friend’s Wedding.
Hér segir af Kat nokkurri Ellis
(Messing) sem ei er gengin út og er
hún bara býsna ánægð með það.
Hún bregður á það ráð að leigja til
sín fylgdarsvein (Mulroney) er henni
er boðið í brúðkaup systur sinnar
sem fram fer í Englandi. Megin-
ástæðan fyrir ráðningu fylgdar-
sveinsins er hins vegar sú að gera
fyrrum unnusta afbrýðisaman. Sá
sagði henni upp tveimur árum fyrr
og verður á meðal gesta í brúðkaup-
inu – ásamt nýrri kærustu.
Margt fer þó á annan veg en ætlað
er og veislan verður eiginlega hálf-
gert „Mess“.
Debra Messing og Dermot Mulroney fara með aðalhlutverkin.
Frumsýning | The Wedding Date
Hnotið um
hnapphelduna
Metacritic.com 32/100
Variety 40/100 (skv. metacritic)
New York Times 40/100 (skv.
metacritic)
Roger Ebert 1/2 (af fjórum)
MYNDIN Diary of a
Mad Black Woman
er byggð á geysi-
vinsælu samnefndu
leikriti Tylers Perr-
ys.
Hún fjallar um
Helen McCarter
(Kimberly Elise),
sem lifir að því er
virðist fullkomnu lífi
með eiginmanni sín-
um, Charles Carter
(Steve Harris). Hel-
en hefur verið trú
eiginmanni sínum í
gegnum árin og
elskað hann heitt, á
meðan hann hefur
byggt upp farsælan
starfsferil sem einn
af þekktustu lögmönnum Atlanta.
Hjónin klæðast nýjustu tískuföt-
unum og aka um í flottustu bíl-
unum; búa á fokdýru sveitasetri
með sundlaug, tennisvelli og öllum
þægindum sem hægt er að hugsa
sér.
Þau eiga allt sem hugurinn girn-
ist. Daginn fyrir 18 ára brúðkaups-
afmæli þeirra hrynur þessi full-
komna veröld Helenar, þegar
Charles biður um skilnað. Hann
rekur hana á dyr og býður annarri
konu að búa á setrinu.
Helen tekst þá á við það verkefni
að púsla saman lífi sínu á ný og
með aðstoð fjölskyldunnar, trú-
arinnar og örlaganna finnur hún
styrk til að ná tökum á aðstæð-
unum.
Hún sér líka kómíska hlið á
þessum sorglegu atburðum.
Frumsýning | Diary of a Mad Black Woman
Veröld Helenar hrynur daginn fyrir 18 ára brúð-
kaupsafmælið.
Reið svört kona
Metacritic.com 36/100
Variety 50/100 (skv. metacritic)
New York Times 40/100 (skv.
metacritic)
Roger Ebert (af fjórum)