Morgunblaðið - 24.11.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 11
FRÉTTIR 20% afsláttur
af ýmsum vörum
Laugavegi 84 ● sími 551 0756
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
20% afsláttur
af öllum peysum og blússum
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
T
O
FA
S
K
A
PA
R
A
N
S
E
H
F.
Aðalfundur
Evrópusamtakanna
Aðalfundur Evrópusamtakanna verður haldinn
í Kornhlöðunni v. Lækarbrekku
fimmtudaginn 24. nóvember kl.17.00.
Dagskrá:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf
2. Evrópumaður ársins, kjöri lýst
3. Ofursterk örmynt-hver er framtíð hennar?
Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka
4. Önnur mál.
S í m i : 5 6 8 - 1 6 2 6
Stærðir 36-56
20% afsláttur
af öllum bolum
fimmtud. til sunnud.
w w w . s t a s i a . i s
Bola
dagar
15% afsláttur
af öllum vörum
tískuvöruverslun,
Laugavegi 82
Við opnum
Laugaveginn
Tax Free helgi fimmtudag
til laugardags
Dömu síðbuxur
Ullarpeysur/bolir
20% afsláttur
24.-26. nóv.
Ásnum – Hraunbæ 119 – Sími 567 7776
Opið virka daga kl. 11:00-18:00 – laugardaga kl. 11:00-14:00
Heimsferðir bjóða einstakt tækifæri. 15 nátta dvöl á Kanarí við frá-
bærar aðstæður á ótrúlegum kjörum. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir
aðeins fyrir 1. Fjölbreyttir gistimöguleikar í boði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Kanarí
5. desember
frá kr. 19.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Gisting frá kr.1.290
Netverð á mann nóttin, m.v. 2 í íbúð á Paraiso.
Verð frá kr.19.900
Flugsæti með sköttum. Tveir fyrir einn tilboð,
5. desember. Netverð á mann.
Allra síðustu sætin
VELFERÐARRÁÐ Reykjavík-
urborgar samþykkti á fundi sínum
í gær að veita fé til Rauða kross
Íslands til þess að Konukot, at-
hvarf fyrir heimilislausar konur,
verði opið allan sólarhringinn. Fel-
ur ráðið Velferðarsviði útfærslu
þessa. Ekki liggur fyrir hvað þessi
aðgerð mun kosta borgina, en í
dag er Konukot opið frá kl. 19–10
á morgnana. Björk Vilhelmsdóttir,
formaður velferðarráðs, segir að
vonandi verði hægt að lengja opn-
unartímann strax á næstu dögum.
Þar sem ekki sé búið að útfæra
ákvörðunina sé ekki hægt að segja
til um hversu mörgum starfs-
mönnum þarf að bæta við, ekki sé
búið að reikna út hver heild-
arkostnaðurinn verði og hvernig
þetta verður fjármagnað.
Heildarendurskoðun á
þjónustunni að fara í hönd
„Við í velferðarráði fólum Vel-
ferðarsviði að útfæra þetta í sam-
ráði við Rauða krossinn,“ segir
Björk. „Ég vona að við getum öll
brett upp ermar og farið að vinna
hratt og örugglega að þessu.“
Á næstunni á að sögn Bjarkar að
fara í heildarendurskoðun á þjón-
ustu borgarinnar við utangarðsfólk.
Í starfsáætlun velferðarráðs kemur
fram að fara eigi í nokkur verkefni
sem eiga að auka og bæta þjónustu
við utangarðsfólk. Eitt er að flytja
Gistiskýlið sem borgin rekur og
opið er allan sólarhringinn, í nýtt
og betra húsnæði og auka á þjón-
ustu og stuðning við þann hóp ein-
staklinga sem dvelur langdvölum í
Gistiskýlinu, annars vegar með því
að bjóða upp á ráðgjöf á staðnum
og hins vegar dagdvöl þar sem
hverjum einstaklingi verður hjálp-
að að auka sín lífsgæði. Þá á að
móta stefnu um málefni utangarðs-
fólks af báðum kynjum og síðan
verður gerð tilraun í samvinnu við
þjónustumiðstöð miðbæjar að setja
á laggirnar rýnihópa með utan-
garðsfólki af báðum kynjum til að
greina möguleg úrræði fyrir hóp-
inn.
Aðspurð hvort búið væri að taka
ákvörðun um að borgin taki alfarið
að sér rekstur Konukots á næsta
ári þegar tilraunaverkefni Rauða
krossins og borgarinnar rennur út,
segir Björk ekki hægt að segja til
um hvað verður fyrr en búið er að
fara í stefnumótunarvinnuna og
meta þörfina, m.a. í samráði við ut-
angarðsfólkið sjálft.
Konukot verði opið
allan sólarhringinn
Leitað til utangarðsfólksins sjálfs við
stefnumótun í málefnum þess
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
ÍSLENSKIR friðargæslulið-
ar sinna eingöngu borgara-
legum verkefnum þótt þeir
þurfi að bera tignarheiti og
klæðast einkennisbúningum,
sagði Geir H. Haarde utan-
ríkisráðherra á Alþingi í gær.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs og Össur
Skarphéðinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, spurðu
hins vegar hvernig hægt væri
að komast að annarri niður-
stöðu en þeirri að íslenskir
friðargæsluliðar í Afganistan
væru að minnsta kosti vísir
að her.
Steingrímur, málshefjandi
umræðunnar, vitnaði m.a. í
grein Davíðs Loga Sigurðs-
sonar, blaðamanns á Morg-
unblaðinu, og sagði að í henni
hefði verið vitnað í ofursta í
Afganistan sem hefði undir-
strikað hið hernaðarlega hlut-
verk svokallaðra athugunar-
sveita, sem íslensku friðar-
gæsluliðarnir hafa verið
aðilar að í Afganistan.
Steingrímur spurði ráð-
herra m.a. að því hvort til
stæði að móta stefnu eða
setja lög um starfsemi ís-
lensku friðargæslunnar. Geir
ítrekaði að íslenskir friðar-
gæsluliðar sinntu eingöngu
borgaralegum verkefnum.
Hann sagði jafnframt að legið
hefði fyrir að nauðsynlegt
væri að skilgreina betur mörg
atriði í kringum friðargæsl-
una. „Sennilega verður það
best gert með því að setja lög
um þá starfsemi, þótt það sé
ekki komið á ákvörðunar-
stig,“ sagði hann.
Friðargæsl-
an verði
skilgreind
betur
ÞINGFUNDUR hefst kl. 10.30 í
dag. Á dagskrá eru atkvæða-
greiðslur. Að því búnu verður önn-
ur umræða um fjárlagafrumvarp
næsta árs.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111