Morgunblaðið - 24.11.2005, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.11.2005, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÚSNÆÐI BUGL við Dalbraut hefur nánast ekki verið breytt frá stofnun deildarinnar árið 1970. Fyrirhuguð viðbygging mun vera byggð í þremur áföngum en 90 milljónir vantar enn til að hægt verði að hefjast handa við fyrsta áfanga. Einstaklingar, félagasamtök og fyrir- tæki hafa staðið fyrir ýmiskonar fjáröflunum til að safna fyrir viðbyggingunni og að sögn Ólafs Ó. Guðmundssonar, yfirlæknis á BUGL, eru 180 milljónir tiltækar nú þegar með sölu eignar BUGL og fjármunum sem safnast hafa en fyrirhuguð viðbygging er ekki inni í fjár- lögum ársins 2006. Segir Ólafur húsnæðismál BUGL ekki hafa verið forsvaranleg lengi og vorið 2003 hafi hús- næðisvandinn mikið verið til umfjöllunar í fjöl- miðlum. Þá hafi ríkisstjórnin ákveðið að veita 45 milljónum til stækkunar BUGL og Land- spítalinn svo ákveðið að þá fjármuni ætti að nýta til að byggja við það húsnæði sem fyrir var. Í ár sendi Landspítalinn fjárlaganefnd lista yfir óskir sínar varðandi fjárlagafrumvarpið 2006 og var viðbyggingin á þeim lista. „Síðan gerist það að heilbrigðisráðuneytið hefur við- bygginguna ekki á sínum lista til fjárlaga,“ segir Ólafur og því sé málið komið í uppnám. Að sögn Ólafs er ekki hægt að hefjast handa fyrr en formlegt samþykki liggi fyrir um fjár- magn fyrir allri framkvæmdinni. „Þetta hefur tekið langan tíma, þessi brýna stækkun sem allir voru sammála um. Við lifum samt í voninni að það verði hægt að byrja framkvæmdir í byrjun næsta árs því þetta má ekki dragast,“ segir Ólafur Ó. Guðmundsson að lokum. Langir biðlistar eru eftir greiningu og meðferð hjá barna- og unglingageðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss (BUGL) m.a. vegna þess að húsnæði deildarinnar er of lítið. Lýsing stendur fyrir fjáröflunartónleikum til styrktar viðbyggingunni í næstu viku. Morgunblaðið kynnti sér vandann og ræddi við aðila sem hafa reynslu af starfsemi deildarinnar. Húsnæðismálin ekki forsvaranleg Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is GUÐMUNDUR Erlingsson á 16 ára pilt sem greindur hefur verið með athyglisbrest og þunglyndi. Piltur- inn hefur búið hjá móður sinni, Mar- gréti Ómarsdóttur, síðan þau hjónin skildu árið 1991 og segir Guð- mundur að á ýmsu hafi gengið en samband sitt og piltsins hafi alltaf verið mjög gott. „Hann einhvern veginn náði að setja sig í allt annan gír þegar hann kom til mín,“ segir Guðmundur. Segist hann í raun ekki hafa upplifað hlutina eins og móðir stráksins gerði því hann gekk miklu lengra á hennar heimili en hans. Guðmundur segir að farið hafi að bera á einhverjum vandamálum þegar pilturinn var 7–8 ára og þeg- ar hann var 10 ára var hann lagður inn á BUGL og var hann þar tvo vet- ur. „Þegar hann útskrifast af barna- deildinni þá var engin eftirmeðferð sem ég vil þó meina að sé hreinlega lykillinn að því að menn fari ekki í sama horfið aftur.“ Var lagður inn á fullorðinsdeild Guðmundur segir að toppnum hafi verið náð þegar pilturinn var lagður inn á fullorðinsdeild geð- deildar Landspítalans fyrir um einu og hálfu ári en þá var ekki hægt að koma honum inn á BUGL sökum plássleysis. Þá var pilturinn í afar slæmum málum og var alveg stjórn- laus. „Það hefur ekki verið hægt að leggja hann inn á BUGL þegar á reynir og það er mjög slæmt að það skuli ekki vera hægt að koma hon- um inn og veita honum hjálp. Við vorum stöðugt í símanum til að reyna að útvega pláss, á endanum fórum ég og núverandi maður Mar- grétar niður á BUGL og þar var ekkert hægt að gera fyrir okkur, okkur var í raun vísað á burt. Við enduðum því með hann inni á full- orðinsdeild. Þar reyndi starfsfólkið sitt besta en það sagði jafnframt að þarna ætti drengurinn ekki að vera. Það var svo greinilegt að barnið var fárveikt og hann hefði getað skaðað sig og hann reyndi það. Honum leið virkilega illa.“ Kerfið ekki tilbúið Guðmundur segist þó skilja starfsfólk BUGL vel því aðstæður þar séu skelfilegar. „Ég upplifði oft að það bjó við skelfilegar aðstæður og mér fannst eins og kerfið væri ekki tilbúið. Ég gæti ekki unnið við þessar aðstæður. Það var svo oft sagt „þetta er ekki hægt“.“ Segist Guðmundur sannfærður um að ef starfsemi BUGL yrði stækkuð og efld þá væri hægt að bjarga svo mörgum börnum. Segir hann marga foreldra vera búna að upplifa það sama og þau hafi gert en séu búnir að gefast upp því þeir fái enga að- stoð. „Það eru kannski allt of mörg ráð í boði fyrir þá sem eru komnir á ystu nöf en það er engin aðstoð fyrr í ferlinu. Þetta er svo stórt mál, af hverju þarf sárið endilega að vera galopið og sýnilegt til að eitthvað sé gert? Beinbrot er lagað strax en ekki sálarbrot,“ segir Guðmundur. „Mér finnst vanta einhvers konar stefnumótun í þessum málefnum, ég skynjaði það að starfsfólk BUGL hafði ekkert til að vinna eftir. Mér fannst allar ákvarðanir svo fálm- kenndar. En svo veltir maður líka fyrir sér hvort of mikið sé sett á BUGL,“ segir Guðmundur. Hann spyr hvor ekki væri dásamlegt ef BUGL væri eins og slysavarðstofa, ef eitthvað væri að þá væri hægt að hringja eitt símtal og dyrnar stæðu opnar svo hægt væri að greina börn snemma. Sér hann einnig fyrir sér að skólarnir komi fyrr inn og geti þannig bent foreldrum á ef eitthvað virðist ekki í lagi. Guðmundur segir að eftir að pilt- urinn var lagður á fullorðinsdeild- ina hafi þeim verið sagt að ekkert væri hægt að gera fyrir hann. Segir hann að í raun hafi þau verið orðin knöpp á tíma til þess að fá þjónustu hjá BUGL vegna þess að pilturinn var orðinn of gamall og það sé afar slæmt. Segir hann að þau foreldr- arnir hafi margoft stungið upp á því að pilturinn færi á Hvítárbakka en vegna þess að hann var ekki í eitur- lyfjaneyslu fékk hann ekki að fara þangað. Eina stofnunin fyrir hann var BUGL sem gat að lokum ekkert gert fyrir hann. Félagsmálayfirvöld í Kópavogi tóku þá yfir og var hann sendur í fóstur norður í land en það gekk ekki og endaði með ósköpum. Grátlegt að ekki var hægt að grípa fyrr inn í Segir Guðmundur að í dag búi pilturinn hjá móður sinni. „Ég er bjartsýnn fyrir hans hönd, þetta er strákur sem á eftir að standa sig, hann hefur allt til þess að bera. Það sem er grátlegast er það að þarna er efni í góðan mann og ef hefði verið hægt að vinna með hann fyrr þá væri hann í góðum málum í dag. Maður er svo hræddur um að þetta muni hafa áhrif á framtíð hans,“ segir Guðmundur. Beinbrot er lagað strax en ekki brot á sálinni Morgunblaðið/Golli Guðmundur Erlingsson: Engin eft- irmeðferð og aðstæður skelfilegar. DAGANA 29. og 30. nóvember mun Lýsing standa fyrir fjáröflunartónleikum í Grafarvogskirkju svo hægt verði að hefja fyrsta áfanga viðbyggingar við húsnæði BUGL. Verður þannig stuðlað að því að eyða biðlistum sem eru eftir þjónustu deildarinnar. Hjörleifur Valsson fiðluleik- ari mun á tónleikunum leiða hóp 12 hljóðfæraleikara í flutningi Árstíðanna eftir Antonio Vivaldi. Hver einasta króna sem greidd verður í aðgangseyri mun renna óskipt til BUGL. Mun Lýsing greiða listamönnum, húsaleigu og leigu á hljóðkerfi, auk annars tilfallandi kostnaðar. Gott starf við erfiðar aðstæður Ólafur Helgi Ólafsson, forstjóri Lýsingar, segir að Lýsing vilji styðja góð málefni og í þetta sinn hafi BUGL orðið fyrir valinu vegna þess að þörfin sé þar mjög knýj- andi. „Við vitum að starfslið þarna vinnur alveg gífurlega gott starf við erfiðar aðstæður og þarna er mikið verk að vinna. Við ræddum við Ólaf [yfirmann BUGL] og hans starfsfólk þar sem hann kynnti fyrir okkur sína framtíð- arsýn og leiddi í ljós þennan vanda og hversu grípandi hann er. Því er heldur ekki að leyna að þetta hefur snert starfsfólk hér hjá Lýsingu eins og ég reikna með að hafi gerst annars staðar,“ segir Ólafur Helgi. Segir hann að hugmynd að tónleikum með þessu sniði hafi fæðst í framhaldi af umræðum sem fram fóru um styrktartónleika fyrir ári síðan þar sem stór hluti að- gangseyris fór í að greiða listamönnum. „Það er alveg á hreinu að allur kostnaður er greiddur af styrktaraðila og þeir sem koma á tónleikana geta verið þess fullvissir að allur aðgangseyrir sem greiddur er fyrir miðana rennur til verkefnisins,“ segir Ólafur Helgi. Mikil barátta eftir Ólafur Helgi bætir við að það megi velta því fyrir sér hversu mikið fyrirtæki eigi að koma að því sem snýr frek- ar að ríkinu og síðan sé spurning hvernig eigi að tryggja rekstur BUGL þegar búið er að klára viðbygginguna. „Við erum að hjálpa til við að ýta þessu úr vör en björninn er svo sem ekki unninn þó svo að það fáist fjármunir til að byggja þá aðstöðu sem nauðsynleg er fyrir BUGL. Það er heilmikil barátta eftir við að tryggja reksturinn og að starfsfólk hafi viðunandi aðstöðu. En verkefnið er svo sannarlega verðugt,“ segir Ólafur Helgi og bætir við að á tónleikunum muni verða óvæntar uppákomur. Forsala aðgöngumiða er á midi.is og einnig í versl- unum Skífunnar. Miðaverð er 2.000 kr. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Lýsing efnir til fjáröflunar- tónleika fyrir BUGL „ÉG var tvö sumur tímabundið á barnadeild BUGL, fyrst þegar ég var 9 ára og svo sumarið eftir,“ segir ung stúlka sem ekki vill koma fram undir nafni. Hún var greind ofvirk með athyglisbrest og segir hún að sér hafi fundist innlögn á deildina hjálpa sér en hún hefði kannski viljað fara fyrr því ástand- ið hafi verið orðið slæmt. Einhver bið var eftir plássi, um 5–6 mánuð- ir, sem líklega sé ekki mikið miðað við ástandið í dag. Segir stúlkan að öll samskipti við starfsfólk BUGL hafi verið mjög góð og þar hafi fjölskyldan fengið mikinn stuðning. Þegar hún kom út af deildinni var hún svo heppin að fá að fara í sérdeild í skólanum og þar hafi henni tekist að vinna sig upp í námi en hún var ári á eftir í flestu. Í 7. bekk var hún látin í al- mennan bekk og hefur gengið vel síðan og er hún nú í menntaskóla. Móðir hennar segir að það hafi skipt sköpum að í sérdeildinni hafi hún verið með einkar góða kenn- ara og segja megi að það hafi bjargað hennar málum. „Hún gat hlaupið til þeirra og fengið hjálp ef eitthvað bjátaði á,“ segir móðirin. „Svo fékk ég stuðning frá BUGL samhliða því og hef meðal annars hitt sálfræðing reglulega sem hef- ur hjálpað mér mikið,“ segir stúlk- an. Fjölskyldan alltaf mikilvæg „Í sérdeildinni var ekki eins mik- ið áreiti, t.d. í frímínútunum, þar sem var einelti og ýmislegt annað. Ég varð fyrir einelti í skólanum en þarna vorum við út af fyrir okkur,“ segir stúlkan. „Ég hef ekki sagt frá þessu og hef ekki viljað það vegna fordóma,“ segir stúlkan spurð um hvort hún hafi orðið fyrir fordóm- um. Í dag er hún búin að segja tveimur vinkonum sínum frá því að hún hafi verið í þessum aðstæðum og segist hún vera mjög heppin því hún eigi góðan vinahóp. „Ég er búin að vinna mig út úr þessu og mig langar að segja frá því hvernig þetta var hjá mér og hjálpa öðrum. Ég er frekar gott dæmi, held ég. Fjölskyldan er líka alltaf mikilvæg. Þegar ég var á deildinni þá þoldi ég ekki fólkið og deildina. Svo þegar ég lít til baka eru tilfinningarnar miklu hlýrri, þá veit maður hvað maður lærði og kann að meta það öðruvísi. Þegar ég hugsa um framtíðina þá finnst mér ég hafa haft góða reynslu af BUGL og mig langar sjálf að vinna með börnum eins og fólkið á BUGL hjálpaði mér,“ segir stúlkan að lok- um. Langar að hjálpa börnum eins og henni var hjálpað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.