Morgunblaðið - 24.11.2005, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 24.11.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 17 ERLENT BANDARÍSKI blaðamaðurinn Bob Woodward, sem fyrir rúmum þrem áratugum öðlaðist heimsfrægð fyrir þátt sinn í að fletta ofan af Water- gate-hneykslinu, segir að hvorki George W. Bush forseti, Dick Che- ney varaforseti né Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra hafi sagt sér frá því að Valerie Plame væri starfs- maður leyniþjónustunnar, CIA. Kom þetta fram í viðtali CNN-sjónvarps- stöðvarinnar við Woodward í vik- unni. Talið er að vitnisburður Wo- odwards geti komið sér vel fyrir I. Lewis Libby, fyrrverandi skrif- stofustjóra Cheneys, sem ákærður hefur verið vegna Plame-málsins. Nafn Plame var birt opinberlega í tímaritsgrein og sagt frá starfi henn- ar í lok júní 2003 en að sögn Woodw- ards fékk hann upplýsingar um hana þegar í byrjun júní sama ár. Virðist því ljóst að hann hafi verið fyrsti fréttamaðurinn sem heyrði um Plame og störf hennar fyrir CIA. Plame er eiginkona Joseph Wilsons, fyrrverandi sendiherra, sem fullyrt er að starfsmenn Hvíta hússins hafi reynt með leynd að grafa undan eftir að hann gagnrýndi í blaðagrein sum- arið 2003 harkalega stefnu þeirra í málum Íraks. Bannað er samkvæmt lögum að embættismenn segi frá nöfnum njósnara CIA þar sem upplýsingar af því tagi gætu stefnt lífi þeirra í voða. Nýlega varð I. Lewis Libby að segja af sér vegna Plame-málsins. Er hann m.a. ákærður fyrir mein- særi þegar hann bar vitni um málið fyrir kviðdómi en hann er auk þess sagður hafa lekið í fjölmiðlamenn upplýsingum um starf Plame. Sjálf- ur neitar hann allri sök og segist hafa heyrt um nafn hennar og starf hjá fjölmiðlamönnum löngu áður en þessar upplýsingar voru fyrst birtar í fjölmiðlum í byrjun júlí 2003. Libby ekki heimildarmaðurinn Þegar nafn Plame birtist sakaði Wilson sendiherra embættismenn Bush um að hafa afhjúpað konu sína til að hefna sín á honum. Mál Libbys er nú fyrir rétti og sérskipaður rann- sóknardómari, Patrick Fitzgerald, sem annast lekamálið, hefur ekki enn ákveðið hvort fleiri ákærur verða bornar fram, ef til vill gegn Cheney og Karl Rove, helsta stjórn- málaráðgjafa Bush forseta. Woodw- ard gaf í skyn í viðtalinu við CNN að Libby hefði ekki verið heimild- armaður sinn um starf og heiti Plame. Woodward hefur verið gagn- rýndur fyrir að gera opinberlega lít- ið úr rannsókn Fitzgeralds. Hefur Woodward nokkrum sinnum tjáð sig um lekarannsóknina og sagt að hún væri hlægileg, málið væri oftúlkað. Woodward upplýsti í viðtalinu við CNN að hann hefði borið vitni fyrir kviðdómi vegna rannsóknar Fitzger- alds. Þar kæmi fram að embætt- ismaður, nafnið hefur ekki verið gef- ið upp, hefði sagt sér þegar í byrjun júní árið 2003 að Plame starfaði hjá CIA. Deborah Howell, umboðsmaður lesenda hjá Washington Post sagði að trúverðugleiki blaðsins hefði beð- ið hnekki vega framgöngu Woodw- ards. Hvatti hún til þess að meira eftirlit yrði haft með starfi Woodw- ards í framtíðinni. „Jafnvel þótt hann sé ríkur og frægur“ „Hann verður að starfa sam- kvæmt sömu reglum og aðrir starfs- menn blaðsins – jafnvel þótt hann sé ríkur og frægur,“ segir Howell. Woodward er einn þekktasti blaða- maður heims og hefur haft mjög frjálsar hendur við greina- og bóka- skrif. Howell sagði að Woodward hefði gert sig sekan um að leyna Leonard Downie, aðalritstjóra blaðsins, því að hann byggi yfir vitneskju um leka- málið. Í yfirlýsingu sem Woodward sendi frá sér í síðustu viku, sagðist hann hafa með þessu ætlað að reyna að komast hjá því að verða kvaddur fyrir rannsóknarkviðdóm. Downie vísar algerlega á bug kröfum um að Woodward verði rekinn, segir að ein mistök vegi minna en ómetanlegt framlag Woodwards til blaðsins síð- ustu áratugi. Wilson, eiginmaður Plame, hefur krafist þess að Washington Post láti fara fram innanhússrannsókn á hegðun Woodwards og vísað í rann- sókn, sem blaðið The New York Tim- es lét gera á vinnubrögðum blaða- mannsins Judith Miller. Miller sat í fangelsi í 85 daga fyrir að neita að upplýsa um viðræður sínar við Libby en hún veitti Fitzgerald síðan upp- lýsingar um þær eftir að Libby leysti hana undan trúnaði. Starfaði ekki sem njósnari Plame starfaði ekki beinlínis sem njósnari á vettvangi þegar nafnið var gert opinbert og er ljóst að skilgrein- ing á starfi hennar kemur til með að skipta máli þegar málið gegn Libby verður til lykta leitt, líklega einhvern tíma á næsta ári. Framburður Woodwards gæti stutt þá vörn Libb- ys að upplýsingarnar um Plame hafi verið á vitorði fjölmargra og því fjarri því að hann hafi brotið lög þeg- ar hann staðfesti þær í samtali sínu við Miller á sínum tíma. Woodward, sem var mikið í Hvíta húsinu sumarið 2003 vegna bókar sem hann ritaði um stjórn Bush, var sagt að Plame ynni sem greinandi á sviði gereyðingarvopna hjá CIA. Að sögn hans benti ekkert til þess að um háleynilegar upplýsingar væri að ræða þegar minnst var á Plame. Málið var rætt fremur kæruleys- islega og styður það fullyrðingar liðsmanna Bush um að ekki hafi ver- ið um meðvitaðan leka að ræða. „Ég bar vitni [fyrir kviðdóminum] um að ég hefði skilið það svo að nöfn og störf greinenda hjá CIA væru að jafnaði ekki talin sérstaklega mikil leyndarmál,“ sagði Bob Woodward. Woodward fyrstur til að heyra um starf Plame? AP Blaðamaðurinn Bob Woodward. Hann átti ásamt félaga sínum hjá The Washington Post, Carl Bernstein, veigamikinn þátt í að koma Richard M. Nixon forseta frá völdum 1974 með skrifum um Watergate-hneykslið. Vitnisburður blaðamannsins heimsþekkta sagður geta kom- ið sér vel fyrir Lewis Libby ’Downie vísar alger-lega á bug kröfum um að Woodward verði rekinn, segir að ein mistök vegi minna en ómetanlegt framlag Woodwards til blaðsins síðustu áratugi.‘ kjon@mbl.is Washington. AFP. | Talsmaður Banda- ríkjaforseta hefur vísað á bug frétt breska dagblaðsins Daily Mirror þess efnis að George W. Bush hafi haft uppi áform um að gera sprengjuárás á höfuðstöðvar arab- ísku sjónvarpsstöðvarinnar al-Ja- zeera. Frétt þessa efnis var birt í Daily Mirror á þriðjudag og fullyrt þar að þessar upplýsingar kæmu fram í minnisblaði sem tekið hefði verið saman eftir fund Bush og Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, í Washington í fyrra. Hefði Blair talið Bandaríkjaforseta hughvarf í þessu efni en Bush hefði með þessu viljað stöðva fréttaflutning al-Jazeera af bardögum í Írak. Scott McClellan, talsmaður forset- ans, sagði í Hvíta húsinu í Wash- ington að þar á bæ ætluðu menn ekki að sýna þessari fregn þá virðingu að tjá sig efnislega um hana, svo „frá- leit“ og „óhugsandi“ væri hún. Nicolle Walker, yfirmaður fjöl- miðlasamskipta forsetaembættisins, sagði fréttina „hugarburð“. Kvaðst hún ekki vilja tjá sig um einkasamtöl forsetans og annarra leiðtoga. Á hinn bóginn væri óhugsandi með öllu að forseti Bandaríkjanna setti fram slíka hugmynd í fullri alvöru. „Fráleit“ frétt um Bush og al-Jazeera

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.