Morgunblaðið - 09.12.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 334. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Nú er vinsælt
að sauma
Óvenjulegir kennsluhættir í Barna-
skóla Hjallastefnunnar | 34
Bílar, Íþróttir og Lifun
Bílar | Fágun, afl og fjórhjóladrif Nýr Toyota Yaris Íþróttir |
Jakob Jóhann setti met Madeira lagði Keflavík Lifun | Hand-
lagnir húsráðendur Aðventa fyrir sælkera Jólaborðið skreytt
Brussel. AFP. | Forystumenn Evrópu-
sambandsins og Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) fögnuðu í gær hand-
töku Ante
Gotovina, fyrr-
verandi hershöfð-
ingja í Króatíu.
Gotovina hefur
verið ákærður
fyrir stríðsglæpi í
átökunum á Balk-
anskaga 1991–95
og var handtek-
inn á Spáni í
fyrrakvöld.
Evrópusambandið hafði sakað
ráðamenn í Króatíu um að hafa ekki
gert nóg til að hafa hendur í hári
Gotovina. Ivo Sanader, forsætisráð-
herra Króatíu, lagði áherslu á að
handtakan sýndi að þarlend stjórn-
völd hefðu sagt satt þegar þau sögðu
að Gotovina væri ekki í felum í Kró-
atíu.
Gotovina hefur notið mikillar lýð-
hylli í Króatíu og margir samlanda
hans líta á hann sem stríðshetju.
„Það er sorglegt að stjórn Króatíu
skuli hafa komið fram við Ante Goto-
vina með svo huglausum hætti,“
sagði forystumaður samtaka Króata
sem börðust fyrir sjálfstæði lands-
ins.
Handtöku
Gotovina
fagnað
Gotovina handtekinn | 22
Ante Gotovina
Teheran. AFP. | Ráðamenn vestrænna
ríkja fordæmdu í gær ummæli
Mahmouds Ahmadinejads, forseta
Írans, um að flytja bæri „æxlið“ Ísr-
aelsríki til Evrópu.
Forsetinn sagði að ef Þjóðverjar
og Austurríkismenn teldu að nasist-
ar hefðu myrt milljónir gyðinga í síð-
ari heimsstyrjöldinni ætti að færa
Ísraelsríki til Þýskalands eða Aust-
urríkis.
„Hvers vegna ættu Palestínu-
menn að gjalda þess að þið trúið því
að gyðingar hafi verið kúgaðir?“
spurði Ahmadinejad. „Þið kúguðuð
þá og ættuð þess vegna að láta síon-
istastjórninni í té landsvæði í Evr-
ópu.“
Stjórnvöld í Þýskalandi, Austur-
ríki og Ísrael fordæmdu ummælin og
talsmaður Bandaríkjaforseta sagði
þau staðfesta hversu mikilvægt það
væri að koma í veg fyrir að Íranar
gætu framleitt kjarnavopn.
Ahmadinejad forseti hvatti nýlega
til þess að Ísraelsríki yrði „þurrkað
út“.
Leggur til að Ísraelsríki
verði fært til Evrópu
SVO til allir framhaldsskólanemar,
98%, segjast eiga GSM farsíma. Hef-
ur hlutfallið hækkað úr 89% í sam-
bærilegri könnun árið 2000. Hlut-
fallslega fleiri framhaldsskólanemar
eiga algeng tæki eins og sjónvörp,
myndbandstæki og tölvu í dag en ár-
ið 2000. Þrátt fyrir þetta er bóklest-
ur á uppleið.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
rannsóknar á högum framhalds-
skólanema sem unnin var af Rann-
Hins vegar hefur þróunin verið sú
að heldur dregur úr lestri á dagblöð-
um hjá strákum en stelpur bæta ör-
lítið við dagblaðalesturinn. Strákar
lesa þó eftir sem áður frekar dagblöð
en stelpur. Um 40,4% stráka sögðust
lesa dagblöð í tvær klukkustundir á
viku eða meira árið 2004, samanbor-
ið við 45,7% fjórum árum áður. Um
33,6% stelpna lásu hins vegar blöðin
í tvær klukkustundir eða lengur á
viku árið 2004, en 30,6% árið 2000.
rannsóknin í ljós að bóklestur er að
aukast. Árið 2000 sögðust 26,7%
stráka nota meira en tvær klukku-
stundir á viku til að lesa bækur aðrar
en skólabækur, en hlutfallið hafði
hækkað í 31,2% árið 2004. Sambæri-
legt hlutfall hjá stelpum var 30,5%
árið 2000 en 38,3% árið 2004.
Stelpur auka dagblaðalestur
Þessi mikla aukning á lestri bóka
annarra en skólabóka er áhugaverð
þegar litið er til þess að Netið og ým-
is annar afþreyingarbúnaður hefur
verið í mikilli sókn frá árinu 2004.
sóknum og greiningu fyrir mennta-
málaráðuneytið síðla árs 2004, en
niðurstöðurnar voru kynntar í gær.
Alls sögðust tæplega 78% fram-
haldsskólanema eiga eigið sjónvarp,
sem er aukning um 16 prósentustig
frá árinu 2000. Um helmingur sagð-
ist eiga eigið myndbandstæki, sam-
anborið við 37% árið 2000, og 48%
sína eigin leikjatölvu eða tölvuspil.
Um 35% sögðust eiga fartölvu, en
40% heimilistölvu, og var þriðjungur
með eigin nettengingu.
Þrátt fyrir aukna sjónvarps- og
tölvueign framhaldsskólanema leiðir
Ný rannsókn á högum íslenskra framhaldsskólanema
Aukin tækjaeign en
bókalestur á uppleið
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Meirihlutinn | 14
ÞÚSUNDIR aðdáenda Bítilsins Johns Lennons söfn-
uðust saman í almenningsgarðinum Central Park í New
York í gær til að minnast þess að 25 ár eru liðin frá því að
hann var myrtur. Fólkið kom með blóm, skilaboð og
kerti í Strawberry Fields, sem er hluti garðsins og
skammt frá staðnum þar sem morðið var framið.
Yoko Ono, ekkja Lennons, leggur hér blóm á mósaík-
mynd til minningar um hann í Strawberry Fields. | 20
Reuters
Ártíðar Lennons minnst í New York
www.postur.is
13.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum til Evrópu!
Moskvu. AFP. | Eitt af djásnum Sov-
étríkjanna sálugu er á leið á sorp-
hauga sögunnar því að ákveðið hefur
verið að hætta framleiðslu á Volgu,
bifreið sovéskra kerfiskarla og yf-
irstéttarfólks, að sögn rússneskra
fjölmiðla í gær.
Þetta var ákveðið þótt lágt verð á
bifreiðinni hefði orðið til þess að
50.000 Volgur voru seldar á síðasta
ári einu, 9,4% fleiri en árið áður.
Rússneski auðkýfingurinn Oleg Deri-
paska, eigandi Volgu-verksmiðjanna,
sagði að framleiðslunni yrði hætt
smám saman á tveimur eða þremur
árum til að fyrirtækið gæti einbeitt
sér að framleiðslu arðvænlegri bíla.
Vladímír Pútín er á meðal þeirra
sem leggja mikið ástfóstur við bif-
reiðina. Eftir að hann var kjörinn for-
seti Rússlands komst hann við þegar
hann lýsti því þegar hann eignaðist
fyrstu Volguna. George W. Bush
Bandaríkjaforseti fékk að aka Volgu
Pútíns þegar hann heimsótti Rússa í
maí.
Volgan
að kveðja