Morgunblaðið - 09.12.2005, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GOTOVINA HANDTEKINN
Forystumenn Evrópusambands-
ins og Atlantshafsbandalagsins
(NATO) fögnuðu í gær handtöku
Ante Gotovina, fyrrverandi hers-
höfðingja í Króatíu. Gotovina hefur
verið ákærður fyrir stríðsglæpi í
átökunum á Balkanskaga 1991–95
og var handtekinn á hóteli á Kanarí-
eyjum í fyrrakvöld. Hann er einn
þriggja manna sem saksóknarar
stríðsglæpadómstólsins í Haag hafa
lagt mesta áherslu á að lögsækja.
Johns Lennons minnst
Þess var minnst víða um heim í
gær að þá voru liðin 25 ár síðan tón-
listarmaðurinn John Lennon var
myrtur. Mest var um að vera í New
York þar sem morðið var framið.
Fyrir marga er það einn af eft-
irminnilegustu atburðum ald-
arinnar.
Ríkið skaðabótaskylt
Hæstiréttur dæmdi í gær íslenska
ríkið til að greiða Valgerði H.
Bjarnadóttur, fyrrum fram-
kvæmdastjóra Jafnréttisstofu, 6
milljónir króna í bætur vegna starfs-
loka hennar. Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra segist ekki draga
dul á að þessi niðurstaða Hæsta-
réttar valdi honum vonbrigðum.
Bifröst stækkar
Viðskiptaháskólinn á Bifröst tók í
notkun í gær nýbyggingu sem hýsa
mun rannsóknasetur og nem-
endagarða. Mun háskólinn verja um
105 milljónum króna til rannsókna
og rannsóknatengdrar starfsemi á
þessu ári. Lektor skólans segir að
huga þurfi að stækkun vegna aukins
fjölda nemenda í skólanum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Viðhorf 38
Viðskipti 18 Minningar 49/54
Erlent 20/22 Myndasögur 58
Minn staður 24 Brids 60
Höfuðborgin 25 Dagbók 58/61
Akureyri 26 Staður og stund 61
Suðurnes 26 Af listum 63
Landið 27 Leikhús 62
Menning 38/41 Bíó 66/69
Umræðan 42/48 Ljósvakamiðlar 70
Bréf 48 Veður 71
Forystugrein 36 Staksteinar 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
www.jpv.is
BÓKIN SEM UNGA
FÓLKIÐ ER AÐ TALA UM
„Ekki á hverjum degi sem
unglingar senda frá sér svo vel
heppnaðar metsölubækur.“
Árni Matthíasson / MORGUNBLAÐIÐ
„Algjörlega frábær bók.“
Hugi.is
Metsölulisti Eymundsson
Barnabækur 7. des.
FJÓRIR menn voru í gær dæmdir
til að greiða eina milljón krónur í
sekt hver fyrir ólöglega dreifingu á
sjónvarpsefni sem Norðurljós, nú
365-ljósvakamiðlar, hefur einkarétt
á hér á landi. Mennirnir dreifðu efn-
inu um kapalkerfi í Reykjanesbæ og
voru áskrifendur ríflega 1.600 þegar
lögregla stöðvaði útsendingar á efn-
inu í janúar 2004.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
reynir á þetta efni fyrir dómstólum
hér á landi.
Málið komst upp eftir að þjónustu-
stjóri Norðurljósa fór að grennslast
fyrir um hvers vegna svo fáir áskrif-
endur væru í Reykjanesbæ og hvers
vegna Sýn seldist svo illa þar í bæ.
Eftir rannsókn efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra voru
mennirnir ákærðir fyrir brot á út-
varpslögum með því að hafa frá nóv-
ember 2002 til janúar 2004 tekið á
móti læstum útsendingum 8 sjón-
varpsstöðva, opnað þær með mynd-
lyklum og veitt áskrifendum aðgang
að þeim gegn greiðslu. Sjónvarps-
stöðvarnar sem mennirnir voru
ákærðir fyrir að dreifa án heimildar
a.m.k. frá og með árinu 2001 voru
eftirfarandi: TV-1000, Sky One, Sky
Movies, Sky Sport 1 og 2, Cartoon
Network. Þá hófust útsendingar á
Comedy Channel og Fox Kids árið
2003.
Athugun á bókhaldi leiddi í ljós að
mánaðaráskrift kostaði 2.125 krónur
árið 2003 og að áskriftartekjur frá
2000–2004 námu samtals um 78,6
milljónum króna. Mennirnir kröfð-
ust sýknu, m.a. á þeirri forsendu að
til að hægt væri að refsa þeim yrðu
þeir að hafa brotið gegn höfundalög-
un en þau giltu ekki um útsendingar
erlendra sjónvarpsstöðva. Á þetta
féllst dómurinn ekki.
Búnaður gerður upptækur
Í niðurstöðum dómsins segir að
mönnunum hafi hlotið að vera ljóst
að til þess að mega opna stöðvarnar
og senda útsendingarnar áfram til
áskrifenda Kapalvæðingar, þurftu
þeir að afla sérstakrar heimildar
stöðvanna.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að mennirnir öfluðu fyrirtæk-
inu tekna með ólögmætum hætti en
einnig til þess að ekki væri nákvæm-
lega ljóst hversu stór hluti teknanna
var vegna ólöglegra útsendinga.
Auk sektanna var gerður upptæk-
ur búnaður sem notaður var við
brotastarfsemina. Þá þurftu þeir að
greiða samtals 1,3 milljónir í máls-
varnarlaun. Bótakröfu Norðurljósa
upp á 290 milljónir var vísað frá dómi
en hún byggðist á því að allir áskrif-
endur Kapalvæðingar hefðu ella
gerst viðskiptavinir Norðurljósa.
Finnbogi H. Alexandersson kvað
upp dóminn. Björn Þorvaldsson,
fulltrúi í efnahagsbrotadeild ríkis-
lögreglustjóra, sótti málið. Verjend-
ur mannanna voru Guðmundur Óli
Björgvinsson hdl. og Friðjón Örn
Friðjónsson hrl.
Sektaðir um milljónir fyrir ólöglegar sjónvarpsútsendingar í Reykjanesbæ
Dreifðu átta sjónvarpsstöðv-
um ólöglega um kapalkerfi
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Segir athuga-
semdir ráðuneyta
útúrsnúninga
STEFÁN Ólafs-
son telur að til-
raun fjár-
málaráðuneytis
og heilbrigð-
isráðuneytis til að
vefengja nið-
urstöður rann-
sóknar sinnar um
örorku séu skilj-
anlegar því nið-
urstöðurnar séu stjórnvöldum
óþægilegar. Segir hann stærstan
hluta athugasemda ráðuneytanna
útúrsnúninga, langlokur um auka-
atriði og tilraunir til að fegra út-
komu með vafasamri framsetningu
gagna. Þá sleppi ráðuneytin með
öllu að fjalla um hina gríðarlegu
aukningu á skattbyrði hjá öryrkjum.
Ein umkvörtun ráðuneytanna sé sú
að höfundur sleppi algerlega að taka
tillit til tekjutryggingaraukans og
aldurstengdrar uppbótar á myndum
9.1 og 9.2 í skýrslunni. Segir Stefán
þetta alveg rétt enda séu þessir
þættir teknir með á næstu mynd á
eftir, þ.e. mynd 9.3. Einungis hafi
þurft að fletta við einni blaðsíðu í
bókinni til að sjá þetta. Segir Stefán
í svari sínu að ótrúlegt undrunarefni
sé að bæði ráðherrar og stjórn-
málamenn skuli hafa eytt miklu
púðri í að kvarta yfir fjarveru þess-
ara atriða sem voru einfaldlega á
næstu blaðsíðu. | 54
Stefán Ólafsson
SAS Braathens flýgur milli Íslands og Noregs
NORSKA flugfélagið SAS Braath-
ens ætlar að fljúga þrisvar í viku
milli Ósló og Keflavíkur frá og með
26. mars á næsta ári, og verður
lægsta fargjaldið um 6.500 krónur
aðra leiðina með flugvallasköttum.
SAS Brathens er dótturfélag flug-
félagsins SAS, og hefur félagið bætt
við 18 alþjóðlegum flugleiðum frá
því í apríl 2004. Fram kemur á vef
félagsins að flogið verði frá Ósló til
Keflavíkur með Boeing 737-þotu, og
að miðasala hefjist 13. desember.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir Icelandair
starfa í samkeppnisumhverfi og
vera tilbúið til að mæta samkeppni á
þessari flugleið. Markaðurinn hafi
vaxið á undanförnum árum, og því
komi ekki á óvart þegar fleiri reyni
að komast inn á markaðinn.
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir um-
hverfisráðherra tók á miðvikudag við
viðurkenningu fyrir Íslands hönd,
sem var veitt fyrir árangur við að
draga úr útstreymi gróðurhúsaloft-
tegunda og fyrir leiðsögn í loftslags-
málum. Ísland var eitt af þremur ríkj-
um sem hlaut slíka viðurkenningu,
Low Carbon Leader Award, sem gef-
in eru af samtökunum The Climate
Group í samvinnu við tímaritið Bus-
iness Week. Viðurkenningin var veitt
í Montréal í Kanada á hátíðarsam-
komu sem haldin var í tengslum við
loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna, sem þar stendur yfir.
Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í
umhverfisráðuneytinu, segir að þrjú
atriði hafi verið tiltekin í rökstuðningi
sérfræðinganefndar samtakanna
vegna viðurkenningarinnar sem Ís-
land hlaut. Í fyrsta lagi verkefni á
sviði vetnis og sú stefna Íslendinga að
notkun jarðefnaeldsneytis verði
óveruleg árið 2030. Í öðru lagi sér-
stakt fjögurra ára átak til að binda
kolefni úr andrúmsloftinu með land-
græðslu og skógrækt, en að sögn
Huga stóð þetta verkefni frá 1997 til
2001. Þriðja atriðið sem nefnt var í
rökstuðningi sérfræðinganefndarinn-
ar var hið háa hlutfall endurnýjan-
legra orkugjafa í orkubúskap þjóðar-
innar, sem er mjög hátt eða um 70%.
Þýskaland og Bretland fengu einnig
viðurkenningu fyrir leiðsögn á sviði
loftslagsmála. Þessi tvö ríki hafa náð
að draga verulega úr útstreymi gróð-
urhúsalofttegunda og hafa gripið til
ýmissa aðgerða til að efla endurnýj-
anlega orku og loftslagsvæna tækni,
að því er segir í tilkynningu umhverf-
isráðuneytisins. Einnig fengu samtök
43 smáeyjaríkja, AOSIS, viðurkenn-
ingu fyrir baráttu sína á alþjóðlegum
vettvangi gegn loftslagsbreytingum.
Viðurkenning fyrir leið-
sögn í loftslagsmálum
BÖRN frá leikskólanum Seljaborg í Seljahverfi héldu í
fylgd jólasveinanna Stúfs og Askasleikis í Heiðmörk í
gær og völdu þar jólatré fyrir leiksólann. Nutu börnin
samvistanna við jólasveinana, sem komu í fyrra fallinu
til byggða og óku rútum. Aðstoðuðu nokkur þeirra Stúf
við að draga tréð út úr skóginum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Völdu jólatré með jólasveinum