Morgunblaðið - 09.12.2005, Síða 4

Morgunblaðið - 09.12.2005, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yndisleg bók handa stelpum Emma og Alice fæddust á sama deginum og hafa verið vinkonur alla tíð síðan. Þær hittast á hverjum degi og eru harðákveðnar í að vera vinkonur að eilífu. En dag nokkurn uppgötvar Emma að Alice býr yfir mögnuðu leyndarmáli … á aldrinum 9–13 ára www.jpv.is „Dásamleg barna- og unglingabók … full af húmor … afar áhrifamikil, bæði fyrir börn og fullorðna.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Mannlíf Eftir metsöluhöfund bókanna Stelpur í stressi, Stelpur í stuði, Stelpur í strákaleit, Stelpur í sárum og Lóla Rós. Á FUNDI utanríkisráðherra Atlants- hafsbandalagsins, NATO, í gær var samþykkt áætlun um að útvíkka starfsemi friðargæslunnar í Afganist- an. Geir H. Haarde, utanríkisráð- herra, sat fundinn fyrir hönd Íslands. Að sögn AFP-fréttastofunnar gerir áætlunin ráð fyrir því að sex þúsund menn verði sendir til Afganistan í maí til viðbótar við þá 9.500 sem starfa við friðargæslu á vegum bandalagsins í Alþjóðlega öryggisgæsluliðinu (ISAF). Að auki eru mörg þúsund bandarískir hermenn í sunnanverðu landinu þar sem þeir aðstoða stjórn- arherinn við að elta uppi talíbana. ISAF-menn munu nú einnig verða sendir til suðurhéraðanna. „Þessi út- víkkun mun að sjálfsögðu valda því að NATO-liðið mun halda inn á hættu- legri svæði en enginn þarf að velkjast í vafa um að liðsafli okkar mun hafa þann búnað og fá þá hjálp sem þarf til að gegna hlutverkinu,“ sagði Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO. Hann sagði að reglurnar um friðargæslustarfið, þar sem m.a. er tilgreint hversu langt skuli ganga og hvenær beita megi vopnum í sjálfs- vörn, myndu gera gæslumönnum kleift að tryggja fleiri Afgönum frið. Um sjö manna hópur íslenskra frið- argæsluliða er nú í vesturhluta Afg- anistan en búið er að kalla íslenska friðargæsluliða frá norðurhlutanum vegna aukinnar spennu og átaka á svæðinu. Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði að liðs- menn ISAF myndu hafa náið sam- starf við stjórnvöld í Afganistan og gefa sérstakan gaum baráttunni gegn fíkniefnasmygli sem á sinn þátt í að grafa undan friði í sumum héruðum. Rice ítrekaði fyrri yfirlýsingar sín- ar um að Bandaríkjamenn noti ekki pyntingar í stríðinu gegn hryðjuverk- um. En hún tók fram að aldrei yrði hægt að tryggja að einhvers staðar brytu menn einhvern tíma gegn stefnu stjórnvalda í þessum efnum. „Það er vegna þess að enda þótt menn búi við lýðræði merkir það ekki að þeir séu fullkomnir,“ sagði hún. Að sögn AFP virðist Rice hafa tekist að hreinsa nokkuð andrúmsloftið vegna frétta um leynileg fangelsi og fanga- flug. Lagði hún áherslu á að hvorki stæði til að brjóta bandarísk né al- þjóðleg lög gegn pyntingum. Fundur utanríkisráðherra NATO Samþykkt að efla friðargæsl- una í Afganistan HAMRAGARÐAR, nýbygging sem hýsa mun rannsóknasetur og nem- endagarða Viðskiptaháskólans á Bif- röst, voru vígðir í gær af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra. Í ávarpi Runólfs Ágústssonar, rektors Viðskiptahá- skólans, kom fram að nýbyggingin væri stór áfangi í uppbyggingu há- skólasamfélagsins á Bifröst. Á sama tíma var undirritaður samningur milli Bifrastar og menntamálaráð- herra um rekstur og starfsemi skól- ans næstu fimm árin. Sagði Run- ólfur þann samning ekki síður, heldur líklega miklu frekar, stóran áfanga í 87 ára sögu skólans. Með honum væri skapaður starfs- grundvöllur til næstu ára með um- talsverðri aukningu á fjárframlögum til kennslu og rannsókna. Þakkaði Runólfur menntamálaráðherra fyrir öflugan stuðning við Bifröst. Samn- ingurinn tryggi að Bifrastaræv- intýrið haldi áfram því það ævintýri sem hófst í hrauninu við Hreðavatn árið 1955 sé ótrúlegt. 105 milljónir til rannsókna á þessu ári Í rannsóknahúsinu verða Rann- sóknasetur húsnæðismála, Rann- sóknasetur vinnuréttar og jafnrétt- ismála, Evrópufræðasetur, Rannsóknasetur verslunarinnar og Rannsóknamiðstöð Viðskiptaháskól- ans á Bifröst. Þá er unnið að stofnun Rannsóknaseturs í skattarétti og Rannsóknaseturs í Asíufræðum sem taka mun til starfa á árinu 2006. Sagði Runólfur öll rannsóknasetrin fjármögnuð í samstarfi við atvinnulíf og einkaaðila. Þau væru liður í stór- eflingu rannsókna við háskólann en í ár myndi skólinn verja um 105 millj- ónum króna til rannsókna og rann- sóknatengdrar starfsemi. Á næsta ári yrði gert enn betur með stofnun tveggja nýrra rannsóknasetra. Sagðist Runólfur vonast til að í húsinu yrði blómleg starfsemi, að þar yrði fengist við ögrandi vís- indaleg verkefni og að þar komi til með að þróast gott samfélag fræði- manna með skýr tengsl við nem- endur, atvinnulíf og samfélag. Rannsóknasetrin og starfsfólk þeirra mun hafa aðstöðu á jarðhæð hússins auk þess sem þar verður að- staða fyrir meistaranema og lessalur með um 60 lesbásum fyrir nemendur skólans. Að auki eru í húsinu 51 íbúð fyrir nemendur á 2.–4. hæð og kennslurými í kjallara. Þarf að huga að enn frekari stækkun skólans Nú búa tæplega 800 manns í há- skólaþorpinu á Bifröst og skapar skólinn um 200 ársverk í Borg- arfirði. Í samtali við Morgunblaðið sagði Runólfur að hvergi annars staðar hefði svona þéttbýli myndast utan um háskólastarfsemi og þekk- ingu. Aðrir þéttbýliskjarnar á Ís- landi hafa yfirleitt byggst upp í kringum frumframleiðslu við iðnað en hér er að byggjast upp nýtt þorp sem byggir alla sína tilveru á þekk- ingarstarfsemi. Nýbyggingin er um 3.300 fer- metrar og er hún hönnuð af Steve Christer hjá Studio Granda og byggð af Loftorku í Borgarnesi. Eignarhald byggingarinnar er tví- skipt, Bifur ehf. er eigandi rann- sóknahússins en hluthafar í Bifur eru Vesturland hf. og sveitarfélög á svæðinu og nemendagarðarnir eru í eigu Vikrafells, eignarhaldsfélagsins Loftorku og Viðskiptaháskólans. Eftir áramótin hefst bygging 42 íbúða á Bifröst og sagði Runólfur að nemendafjöldi skólans sé að verða slíkur að huga þurfi að enn frekari stækkun skólans næstu árin. Rannsóknahús og nemendagarðar vígðir á Bifröst Ný aðstaða liður í eflingu rannsókna við skólann Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is Morgunblaðið/RAX Nýbygging Viðskiptaháskólans á Bifröst, Hamragarðar. Morgunblaðið/RAX Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vígði Hamragarða, nýja byggingu Viðskiptaháskólans á Bifröst, formlega í gær. Henni til að- stoðar var Runólfur Ágústsson, rektor viðskiptaháskólans. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær íslenska ríkið af 5 milljóna króna skaðabótakröfu sem hjón á Suðurlandi lögðu fram vegna tjóns sem hlaust af því að ali- gæsum og öndum á bæ þeirra var fargað eftir að salmonella greindist í afurðum. Í dómi héraðsdóms segir m.a. að málsaðila greini á um hvort héraðs- dýralæknirinn á Suðurlandi hafi fyrirskipað stefnendum að farga og eyða alifuglum þeirra. Það hvað sannað teljist í því efni hafi ekki þýðingu fyrir úrlausn málsins þar sem óumdeilt er í málinu, sbr. m.a. viðurkenningu annars bóndans á því við aðalmeðferð málsins, að þessar aðgerðir hafi verið eðlilegar og í raun óhjákvæmilegar svo og að hlé yrði á aligæsaeldi á jörðinni. Ríkið sýknað af kröfu alifuglabænda MENNTAMÁLARÁÐHERRA, Þor- gerður K. Gunnarsdóttir, mun ekki mæla fyrir frumvarpi um Rík- isútvarpið hf. á Alþingi fyrir jól. Samkomulag náðist um það milli stjórnar og stjórnarandstöðu í gær. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að Ríkisútvarpið verði gert að hlutafélagi. Ráðherra sagði þegar frumvarpið var kynnt að hún stefndi að því að mæla fyrir því á Alþingi fyrir jól, svo það kæmist til nefndar. Gert er ráð fyrir því að frumvarpið verði afgreitt á vorþingi. Ekki mælt fyrir RÚV fyrir jól REYKJAVÍK verður meðal vist- vænstu borga Evrópu ef markmið nýrrar skýrslu, um niðurstöður sam- ráðsfunda hagsmunahópa í Reykja- vík, gengur eftir. Þar segir að með íbúalýðræði verði borgarbúar virkir þátttakendur í umhverfismálum og tækifæri muni skapast fyrir Reykja- víkurborg og fyrirtæki í borginni til að vera öðrum þjóðum fyrirmynd í baráttunni gegn mengun. Skýrslan er liður í endurskoðun á Staðardag- skrá 21, sem er áætlun sem öllum sveitarstjórnum heimsins.er ætlað að gera í samræmi við ályktun SÞ. Reykjavík verði fyrirmynd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.