Morgunblaðið - 09.12.2005, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Netverð frá
Su
marsól
Takmarkað sætaframboð
á þessu verði!
Flugáætlun
Flug fram og til baka með flugvallarsköttum.
Verð miðast við að bókað sé á Netinu, ef bókað er í síma eða
á skrifstofu bætast 2.000 kr. við hverja bókun.
7.,19. og 29. apríl,
17. maí
og síðan alla miðvikudaga í sumar.
16.900kr.
Sumarhúsaeigendur
og a›rir farflegar til Spánar!
Alicante
Beint leiguflug me›
Icelandair í allt sumar!
skýrslunnar Ungt fólk 2004. Skýrsl-
an var unnin af Rannsóknum og
greiningu fyrir menntamálaráðu-
neytið og er sambærileg við rann-
sókn sem gerð var árið 2000, en
ráðuneytið hefur staðið fyrir rann-
sóknum af þessu tagi frá árinu 1992.
Aukið framboð háskólanáms
„Ein skýring sem mætti nefna er
aukið framboð á háskólanámi á Ís-
landi. Á sama tíma og þetta er að
gerast eru færri sem stefna að því að
fara beint í háskólanám erlendis, það
er eins og það sé meira traust á há-
skólum hér á Íslandi. En auðvitað er
líka meiri áhersla á menntun yf-
irleitt og samkeppni atvinnulífsins
sem tengist því þá hvað þú kannt og
hvað þú getur,“ segir Álfgeir.
Í rannsókninni var kannað viðhorf
nemenda í framhaldsskólum til m.a.
menntunar, menningar, tómstunda,
íþrótta og framtíðarsýn þeirra könn-
uð. Rannsókninni er ætlað að vera
fræðilegur grunnur sem stefnumót-
unarvinna í málefnum ungs fólks
NEMAR í framhaldsskólum lands-
ins telja mun líklegra að þeir fari í
háskólanám hér á landi að loknu
námi í framhaldsskóla nú en árið
2000, að því er fram kemur í rann-
sókn á viðhorfum og væntingum
framhaldsskólanema árið 2004, en
viðamikil rannsóknaskýrsla með nið-
urstöðunum var gerð opinber í gær.
Árið 2000 taldi meirihluti fram-
haldsskólanema það ólíklegt að þeir
færu í háskólanám að loknum fram-
haldsskóla, en árið 2004 er þessu öf-
ugt farið, og nú segja 63,3% stelpna
og 58,4% stráka mjög eða frekar lík-
legt að þau fari í háskólanám. Árið
2000 sögðu 39,5% stelpna líklegt að
þær færu í háskóla, en 34,1% stráka,
og hefur því hlutfallið hækkað um
u.þ.b. 24 prósentustig á fjórum ár-
um.
Á þessu er engin ein skýring,
heldur er líklegt að margar sam-
þættar ástæður liggi að baki, segir
Álfgeir Logi Kristjánsson, fé-
lagsfræðingur hjá Rannsóknum og
greiningu og einn af höfundum
getur byggst á, segir Álfgeir.
Þrátt fyrir þessar sterku vænt-
ingar framhaldsskólanema til há-
skólanáms kemur fram að 48,5%
framhaldsskólanema á höfuðborg-
arsvæðinu telji mjög eða frekar lík-
legt að þeir fari að vinna að loknu
námi í framhaldsskóla. Hlutfallið var
mun hærra, 61,9%, meðal fram-
haldsskólanema á landsbyggðinni.
Telja skýrsluhöfundar að líklegt sé
að margir þátttakendur ætli sér
annað hvort að vinna með skóla að
loknum framhaldsskóla, eða taka sér
frí frá námi áður en þeir snúi sér að
háskólanámi.
Fjórðungur fær aðallega
peninga frá foreldrum
Talsverður munur reyndist vera
milli kynjana þegar kannað var hvar
framhaldsskólanemar fá peninga, og
reyndust strákar helst fá peninga til
daglegra nota með sumarvinnu en
stelpur með því að vinna með skóla.
Tæplega 54% stelpna sögðust vinna
með skóla, sem er svipað hlutfall og
árið 2000, samanborið við 36%
stráka. Strákar virðast heldur hafa
dregið úr vinnu með skóla, en árið
2000 sögðust 43% vinna með skóla.
Um fjórðungur stráka og stelpna
sagðist aðallega fá peninga til dag-
legra nota frá foreldrum.
Álfgeir segir ekki ljóst hvernig
standi á þessu. Ein kenning sé sú að
strákar komist frekar í betur launuð
störf yfir sumartímann og launin
nýtist þeim því betur. Önnur kenn-
ing sé svo að neysluvenjur stráka og
stelpna séu mismunandi, stelpur
telji sig einfaldlega þurfa meiri pen-
inga til daglegra nota.
Þegar vinna með skóla var skoðuð
nánar má sjá að um 10% framhalds-
skólanema á höfuðborgarsvæðinu
vinna 20 stundir eða meira á viku
með náminu, en hlutfallið er um
tveimur prósentustigum hærra hjá
stelpum á landsbyggðinni. Rúmlega
19% stráka og tæp 27% stelpna á
höfuðborgarsvæðinu vinna 10-19
stundir á viku, en hlutfallið var ívið
lægra á landsbyggðinni.
Í niðurstöðum rannsóknarinnar
má sjá tengsl á milli mikillar vinnu
og lélegs námsárangurs, en vinna í
1-9 klukkustundir á viku virðist ekki
hafa áhrif á námsárangur. Þeir sem
vinna 10 klukkustundir á viku eða
meira voru mun líklegri til að segja
að nám þeirra gengi frekar eða mjög
illa en þeir sem unnu minna.
Athygli vekur að strákum finnst
mun oftar að nám þeirra sé of létt en
stelpum, þrátt fyrir að námsárangur
þeirra sé mun lakari en hjá stelpum.
Strákar segja námið
létt en standa sig verr
Um 33,4% stráka sögðu það
stundum eiga við að þeim fyndist
námið of létt, en 21,6% stelpna.
Tæpur þriðjungur stelpna, 29,2%,
sagði að sér þætti nær aldrei að
námið væri of létt, og 14,5% stráka
tóku í sama streng. Skýrsluhöfundar
segja ekki ljóst hver skýringin á
þessum mun er, en ekki ólíklegt að
strákar og stelpur hafi almennt ólík
viðhorf til námsins.
Rannsóknin byggist á könnunum
Rannsókna og greininga sem lagðar
voru fyrir nemendur í 29 framhalds-
skólum í október 2004, en sambæri-
legar kannanir voru lagðar fyrir í
október 2000. Könnun var lögð fyrir
alla nemendur í framhaldsskólum
landsins til þess að ná sem mestum
fjölda þátttakenda. Svör fengust hjá
rúmlega 11 þúsund nemendum, sem
er um 81% svarhlutfall.
Ný rannsókn á högum framhaldsskólanema leiðir í ljós aukinn áhuga á háskólanámi
Meirihlutinn segir háskólanám á döfinni
! "
# $"
%!
& &
& &
Morgunblaðið/Ásdís
Aðeins 2% framhaldsskólanemenda sögðust í dag ekki eiga farsíma sam-
kvæmt rannsókninni, samanborið við 11% árið 2000.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
JÓLAGLEÐI Kramhússins verður
haldin á morgun, laugardaginn 10.
desember kl. 20, í Borgarleikhúsinu.
Þetta er í 23. sinn sem nemendur
Kramhússins koma saman fyrir jól og
sýna listir sínar. Jólagleðin er sýning
með dansi og skemmtiatriðum um
160 þátttakenda, fjölbreytt og al-
þjóðleg undir stjórn kennara frá
Jamaica, Spáni, Danmörku, Gineu,
Búlgaríu, Perú, Mexico, Bandaríkj-
unum, Austurríki, Svíþjóð og Íslandi.
Heiðursgestir í ár eru rússneskir
harmonikkuleikarar ásamt félögum
úr Hljómsveit harmonikkuunnenda
undir stjórn Reynis Jónassonar. For-
sala aðgöngumiða fer fram í Kram-
húsinu, Skólavörðustíg 12 og Borg-
arleikhúsinu, Kringlunni. Frekari
uppl. á www.kramhusid.is.
Jólagleði Kramhússins
Fleiri tangóböll
Missagt var í grein um nýja bók
Kristínar Bjarnadóttur á þriðju-
dag að síðasta tangóballið fyrir jól
yrði haldið þriðjudagskvöldið 6.
desember.
Hið rétta er að þá var síðasta
tangóballið í Iðnó fyrir jól.
Tangóböll eru haldin á hverju
miðvikudagskvöldi á Café Cultura
í Alþjóðahúsinu.
www.tango.is
Íslensku tónlist-
arverðlaunin
Þau mistök voru gerð við
vinnslu á lista yfir tilnefningar til
Íslensku tónlistarverðlaunanna að
í flokknum Sígild og samtíma-
tónlist, urðu tvær tilnefningar að
fjórum.
Rétt er að plata Sigrúnar
Hjálmtýsdóttur Monologues - Dia-
logues er tilnefnd til verðlauna
sem hljómplata ársins og að Vík-
ingur Heiðar Ólafsson píanóleikari
er tilnefndur til verðlauna sem
flytjandi ársins fyrir glæsilega de-
bút-tónleika á árinu og frábæran
píanóleik með Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins og Blásarakvintett
Reykjavíkur.
LEIÐRÉTT
Gjaldþrotaúrskurðum hjá fólki á
aldrinum 20 til 29 ára hefur hins
vegar fækkað frá árinu 2000. Þá
voru slíkir úrskurðir 82 en í ár
hafa þeir verið þrettán.
ÁRANGURSLAUSUM fjárnámum
hjá fólki yngra en 30 ára hefur
fjölgað um tæp 30% á árunum
2001 til 2005. Þetta kemur m.a.
fram í skriflegu svari dóms-
málaráðherra, Björns Bjarnason-
ar, við fyrirspurn Valdimars Leós
Friðrikssonar, þingmanns Sam-
fylkingarinnar um árangurslaus
fjárnám hjá ungu fólki.
Í svarinu kemur fram að gerð
hafi verið alls 1.106 árangurslaus
fjárnám hjá fólki á aldrinum
fimmtán til 30 ára, það sem af er
þessu ári. Til samanburðar voru
gerð alls 864 árangurslaus fjár-
nám hjá fólki í þessum aldurshópi
á árinu 2001.
!""#$!""%
!
Fjárnámum
fjölgar um 30%