Morgunblaðið - 09.12.2005, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRJÁTÍU manns týndu lífi
þegar maður sprengdi sjálfan
sig í loft upp um borð í rútu-
bifreið í Bagdad-borg í Írak í
gærmorgun. Hinir látnu voru
einkum konur, börn og ung-
menni af kvísl sjía-múslíma.
Tilræðið þykir til marks um
að uppreisnarmenn í Írak vilji
setja strik í reikninginn varð-
andi þingkosningar sem fara
fram í landinu í næstu viku en
hátt í hundrað manns hafa dáið í árásum í Írak í
þessari viku.
„Það var viðbúið að ódæðum fjölgaði í aðdrag-
anda kosninganna,“ segir Börkur Gunnarsson,
sem starfar sem upplýsingafulltrúi hjá Atlants-
hafsbandalaginu, NATO, í Bagdad, í samtali við
Morgunblaðið í gær. „En ég held samt að öllum
hafi brugðið við sprengjutilræðið í lögregluskól-
anum á þriðjudag,“ bætti hann við en grunur
leikur á að þar hafi tvær lögreglukonur verið að
verki. Ekki færri en 36 týndu lífi í árásinni.
Börkur sagði á hinn bóginn að ástand hefði al-
mennt verið skárra í landinu undanfarið, þrátt
fyrir blóðbað þessarar viku. „Og það er nú frekar
búist við því að dagarnir í kringum kosningarnar
sjálfar verði friðsælir. Ekki af því að hryðju-
verkamennirnir beri svo mikla virðingu fyrir
kosningunum að þeir hætti að sprengja sprengj-
ur sínar, heldur af því að öryggisráðstafanir
verða miklar.“
Segir Börkur að kjördagur verði til að mynda
frídagur, þannig að fólk geti almennt haldið sig
heima. Engir bílar verði leyfðir nálægt kjör-
stöðum, engin bílaumferð leyfð yfirhöfuð á kjör-
daginn. „Dagarnir í kringum þjóðaratkvæða-
greiðsluna í október voru þeir friðsælustu sem ég
hef upplifað hérna einmitt vegna svona ráðstaf-
ana,“ sagði Börkur en hann kom til starfa í
Bagdad í febrúar.
Rætt hefur verið um, að minni áhugi sé á þess-
um kosningum meðal Íraka en hinum fyrri enda
ganga þeir nú að kjörborðinu í þriðja skipti á ell-
efu mánuðum. Börkur sagði Bandaríkjamenn
sem hann umgengst inni á „græna svæðinu“ svo-
kallaða og sem sinna störfum er tengjast stjórn-
málum Íraks hins vegar ekki hafa fundið sér-
staklega fyrir þessu.
„Raunar finnst mönnum útlitið nú betra í hér-
uðum súnní-múslíma. Þátttakan þar var léleg í
þingkosningunum í janúar en jókst hins vegar í
þjóðaratkvæðagreiðslunni um stjórnarskrána nú
í október.“
Segir Börkur að menn líti svo á að aukin þátt-
taka súnníta í stjórnmálunum gæti hjálpað til við
að kæfa uppreisnina í landinu, en talið er að
flestir uppreisnarmenn komi úr röðum súnníta.
Margir um hituna
Alls 327 flokkar eru í framboði en Börkur segir
fyrst og fremst þrjá flokka berjast í kosning-
unum. Sjítabandalagið sem nú sé við völd sé talið
líklegt til að fá 100–120 þingmenn kjörna, Kúrda-
bandalagið 50–60 og svo flokkur súnníta „sem
vonandi nær breiðu fylgi, en það ríkir samt
óvissa um það hvort hann fær 30 þingsæti eða
hugsanlega allt að sextíu þingmenn kjörna“.
Börkur segir að ef súnnítaflokkurinn nái góðu
fylgi þá hafi sjítabandalagið kannski möguleika á
að velja sér samstarfsaðila í ríkisstjórn að kosn-
ingum loknum. „Þeir höfðu engan valkost sein-
ast, þeir urðu að fara með Kúrdunum,“ segir
hann. „En ríkisstjórn þessara aðila sem nú situr
er nánast óstarfhæf, menn forsetans [Kúrdans
Jalal Talabani] og forsætisráðherrans [sjítans
Ibrahim al-Jaafari] eiga í daglegum illdeilum.“
Iyad Allawi, sem var forsætisráðherra í bráða-
birgðastjórn Íraks þar til í janúar, eigi hins vegar
enga möguleika. „En [Ahmed] Chalabi hefur
komið á óvart,“ segir Börkur. Chalabi hefur nú
stofnað eigin flokk, eftir að hafa verið hluti af
sjítabandalaginu í síðustu kosningum. „Þessi
fyrrverandi besti vinur Bandaríkjanna, síðan
versti óvinur þeirra, virðist eiga níu líf í íröskum
stjórnmálum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig
honum reiðir af,“ sagði Börkur Gunnarsson.
„Viðbúið að ódæðum fjölgaði“
Reuters
Kosningabaráttan í Írak setur nú svip sinn á
Bagdad en auglýsingar frá stjórnmálaflokk-
unum sjást víða um borgina.
Börkur
Gunnarsson
Þingkosningar í Írak verða haldnar í skugga ofbeldis, en 30
týndu lífi í árás í Bagdad í gær. Börkur Gunnarsson segir
öryggisviðbúnað hins vegar verða mjög mikinn á kjördag.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
New York. AFP. | Þess var minnst víða
um heim í gær, að þá voru liðin 25 ár
síðan tónlistarmaðurinn John Lenn-
on var myrtur. Mest var um að vera í
New York þar sem morðið var fram-
ið. Fyrir marga er það einn af eft-
irminnilegustu atburðum aldarinnar.
Fyrsta minningarathöfnin um
Lennon var haldin í Liverpool, fæð-
ingarborg hans, en búist var við, að
þúsundir manna myndu sækja fund í
Miðgarði eða Central Park í New
York til minningar um höfund „Imag-
ine“ og fjölda annarra Bítlasöngva.
Borgaryfirvöld bönnuðu hins vegar
fólki að hafast við næturlangt í
Strawberry Fields, einum hluta
garðsins.
Aðfaranótt 8. desember 1980 beið
Mark Chapman, banamaður Lenn-
ons og sjúkur á geði, við anddyri
blokkarinnar þar sem Lennon bjó.
Þegar hann sneri heim úr hljóðveri,
hrópaði Chapman upp: „Herra Lenn-
on,“ og skaut hann síðan fimm skot-
um.
„Ég hef verið skotinn,“ var það síð-
asta, sem Lennon sagði.
Lennons var víða minnst. Í Havana
á Kúbu voru tónleikar í minningu
hans, í París og öðrum borgum sýn-
ingar um ævi hans og starf og í Japan
var hans minnst með útvarpsþætti og
tónleikum í safni, sem Yoko Ono,
ekkja Lennons, átti hlut að.
Deilt um arfleifðina
Enn stendur mikill styr um arfleifð
Lennons og hver skuli vera málsvari
og túlkandi hennar. Nú er það Yoko
Ono en ættingjar, vinir og aðdáendur
Lennons eru margir mjög óánægðir
með það. Hefur sumt af því, sem hún
hefur látið frá sér fara um Lennon,
vakið gremju og jafnvel reiði og henni
er oft um það kennt, að upp úr sam-
starfi Bítlanna slitnaði.
Yoko Ono er sökuð um að lýsa
Lennon sem eins konar hálfguð en
margir vilja minnast hans sem
mannsins Johns Lennons með kost-
um og göllum. Í minningum sínum,
„John“, segir Cynthia, fyrri kona
Lennons, frá „kvölinni og niðurlæg-
ingunni“, sem hún mátti þola í hjóna-
bandi þeirra en Lennon gat verið
grimmur. Í tilefni af 25. ártíð Len-
nons segir Julian, sonur þeirra, að
hann hafi „mjög blendnar tilfinn-
ingar“ í garð föður síns.
„Ég elskaði föður minn en hann
brást mér á margan hátt,“ segir hann.
Chapman, banamaður Lennons,
var dæmdur í fangelsi í 20 ár til lífs-
tíðar og situr enn inni. Í viðtali fyrir
10 árum sagði hann leitina að sínum
eigin persónuleika hafa leitt sig til að
myrða Lennon. „Ég var eins og lest,
sem hefur farið af sporinu. Það var
ekki hægt að stöðva mig.“
Lennons minnst
víða um heim
25 ár síðan bítillinn var myrtur
Reuters
Japönsk kona með börn sín við
veggmynd af John Lennon á safni
um tónlistarmanninn í Saitama,
norðan við Tókýó, í gær.