Morgunblaðið - 09.12.2005, Síða 28
daglegtlíf
ídesember
HJALLA-
STEFNAN
JÓLAKÚLUR Í
ÖLLUM LITUM
JÓLIN
KOMA
Kornflögurnar innihalda glúten
NÝJAR rannsóknir sýna að
Kelloggs-kornflögur innihalda
glúten og henta því ekki þeim sem
þjást af glútenóþoli. Í Göteborgs
Posten er greint frá nýrri tegund
mælinga, svokallaðri Mendezaðferð,
til að mæla glútenmagn í matvörum
sem leiðir í ljós of mikið glúten í
morgunkorni frá Kelloggs, en áður
var talið að það væri ekkert.
Um er að ræða Cornflakes og
Frosties morgunkornið sem sam-
kvæmt sænskum stöðlum má að há-
marki innihalda 200
mg glúten á hvert
kg. Mælingarnar
leiddu í ljós að
glútenmagnið var hins vegar á bilinu
344 til 562 mg/kg. Glúten er prótein
sem er í ýmsum korntegundum, t.d.
hveiti. Talið er að einn af hverjum
hundrað þjáist af glútenóþoli þar
sem einkennin geta verið ýmiss
konar, t.d. meltingartruflanir,
uppköst eða niðurgangur, þyngd-
araukning, þreyta og blóðleysi.
Kellogs cornflakes er unnið úr
maís sem t.d. inniheldur minna
glúten en hveiti, en hækkað glúten-
innihald morgunkornsins er talið til
komið vegna vinnsluaðferðarinnar.
Mendezaðferðin var þróuð til að
finna glúten í unnum matvörum en
eldri mælingar hafa ekki sýnt fram á
þetta morgunkorn innihaldi glúten.
Sænska matvælaeftirlitið, Livsmed-
elsverket, hefur því ráðið þeim sem
þjást af glútenóþoli frá því að neyta
morgunkornsins. Ekki hefur hins
vegar frést af neinum sem hefur
skaddast af því að neyta morgun-
kornsins, að því er fram kemur í
Göteborgs Posten.
NEYTENDUR
„VIÐ fengum kisuna úr Kattholti,
starfsmaður hjá sorphirðu fann
hana í gámi í Sorpu, einhver hafði
ætlað að henda henni. Afturhlutinn
á henni var allur brotinn svo hún
þurfti að vera í gifsi til að byrja
með,“ segir Guðrún Heimisdóttir
um kisuna sína hana Sorpu. Guð-
rúnu þekkja margir úr Stundinni
okkar þar sem hún er með innslög
um dýr undir nafninu Gæludýra-
Guðrún.
Sorpa er orðin um tólf ára en
Guðrún og fjölskylda eru búnar að
eiga hana í um tíu ár. „Ég og Sigga
systir mín völdum hana og annan
kött sem hét Posi en hann strauk
síðan að heiman og kom aldrei aft-
ur. Sorpa hefur átt einn kettling
sem hét Jeldsín og bróðir minn fékk
að eiga.“
Guðrún segir Sorpu orðna nokk-
uð ellilega, með siginn maga og
stirðan skrokk. „Hún er svo mikið
yndi að maður getur ekki sagt nei
við hana og því fær hún kannski of
mikið að borða.“
Sorpa er þrílit; hvít, svört og
brún, en Guðrún segir aðeins læður
geta orðið þrílitar og ef það fæðist
þrílitur fress er hann að öllum lík-
indum ófrjór.
Komst í smákökudeigið
Guðrún hefur átt nokkuð af gælu-
dýrum áður en Sorpa kom til sög-
unnar. „Þegar ég fæddist, árið 1981,
var íslenska tíkin Perla á heimilinu,
þegar hún dó fékk ég tvo páfa-
gauka, síðan átti ég fiska og svo
kom Sorpa. Það hefur aldrei komið
tími sem ég hef ekki átt gæludýr,“
segir Guðrún.
Um jólin snattast Sorpa í kring-
um fjölskylduna þangað til þau fara
að opna pakkana, þá eru svo mikil
læti að Sorpa lætur sig hverfa.
Guðrún segist vera hætt að gefa
Sorpu jólasokka fulla af nammi og
leikföngum. „Hún á orðið nóg af
dóti, svo vill hún alltaf leika sér með
annað en hún á að leika sér með, til
dæmis finnst henni skemmtilegast
að komast í nælonsokkabuxur. Hún
fær yfirleitt þurrfóður að éta en á
jólunum fær hún rjóma til að lepja í
tilefni hátíðanna.“ Guðrún segir
Sorpu hrifna af ótrúlegasta mat.
„Hún er ofboðslega hrifin af papr-
iku og svo finnst henni voðalega
gott að sleikja súkkulaðið utan af
Nóakroppskúlum. Einu sinni komst
hún í smákökudeig og fékk mjög illt
í magann og hef ég passað síðan að
hún stelist ekki í jólabaksturinn.“
Nú um jólin er Gæludýra-Guðrún
að gefa út bók um gæludýr og var
sagan um Sorpu hugmynd að einni
sögunni. „Í bókinni eru ráð um með-
höndlun gæludýra og svo er saga
um hvert dýr, til dæmis er saga um
kisuna Ruslu sem Þrándur rusla-
karl finnur í ruslinu og er það eig-
inlega sagan hennar Sorpu.“
Kynntist líka dýrunum í sveitinni
Guðrún hefur alltaf haft áhuga á
dýrum. Hún hefur ekki eingöngu
verið í gæludýrunum því hún fór í
sveit þegar hún var lítil og kynntist
þar dýrunum í sveitinni. „Ég þrosk-
aðist mikið sem manneskja á að fara
í sveit og fannst gaman að vera þar.
Það kenndi mér líka að umgangast
dýrin. Mér finnst mikilvægt að börn
læri að umgangast dýr og séu ekki
hrædd við þau þó auðvitað sé alltaf
gott að vera varkár.
Svo fékk ég líka að fara á reið-
námskeið og ég fer ekki til útlanda
án þess að koma við í dýragarði.“
Aðspurð út í uppáhaldsdýrið þá
finnst Guðrúnu hundarnir vera
skemmtilegastir. „Mér finnst þeir
hafa mesta persónuleikann þó öll
dýrin séu frábær.“
Nú er annar veturinn sem Guð-
rún er með gæludýrainnslög í
Stundinni okkar og segir hún það
skemmtilega vinnu, enda fái hún
þar að kynnast mörgum dýrateg-
undum.
Guðrún vill beina því til gælu-
dýraeigenda að breyta ekki mat-
aræði dýranna of mikið um jólin og
passa þau á gamlárskvöld þegar
flugeldalætin eru. „Svo eiga allir að
vera góðir við dýrin, eins og alltaf,
og leyfa þeim að vera með í jóla-
haldinu,“ segir Gæludýra-Guðrún
að lokum og gefur lesendum upp-
skrift að uppáhaldssmákökunum
sínum.
DÝR | Gæludýra-Guðrún á kisuna Sorpu
Kisan sem fannst í ruslinu
fær rjóma um jólin
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Guðrún með kisuna Sorpu sem er hrifin af paprikum og súkkulaði.
Múrsteinar
500 g hveiti
375 g smjör
250 g sykur
2 eggjarauður
1⁄2 tsk. salt
Hnoða allt saman, fletja svo
út og nota t.d. piparkökuform
til að búa til
kökurnar.
Ofan á hverja köku, áður en
hún er bökuð, er svo eftirfar-
andi sett:
2 eggjarauður
250 g flórsykur
60 möndlur
Stífþeytið eggjarauðurnar
og flórsykurinn og bætið svo
möndlunum út í. Setjið ca eina
teskeið á hverja köku.
Bakið við 180°C í ca 8–10 mín
eða þar til kökurnar eru orðnar
ljósbrúnar. Það er ekki gott að
baka neitt of lengi.
Hanna eigin jólakort
Íslandspóstur hefur opnað jóla-
kortavef á vefsvæði sínu,
www.postur.is. Vefurinn gerir al-
menningi kleift að hanna sín eigin
jólakort á netinu sem Íslandspóstur
sér síðan um að láta prenta og
senda til viðtakenda. Notendum
vefjarins er gert kleift að útbúa
sinn eigin heimilisfangalista og
vista á vefnum sínum. Þar safnar
viðkomandi saman á einn stað
heimilisföngum vina og vanda-
manna sem hver og einn vill
geyma. Listinn uppfærist sjálfkrafa
og hafa notendur því alltaf aðgang
að réttum upplýsingum um heim-
ilisföngin.
Íslandspóstur lætur prenta jóla-
kortin í miklum gæðum, setja þau í
umslög, árita þau samkvæmt
nafna- og heimilislista viðkomandi
á vefnum og bera út til viðtakenda
innanlands og erlendis.
Morgunblaðið/Sverrir
NÝTT
Í PÚERTÓ Ríkó er haldin jóla-
veisla sem fer þannig fram að
fólk gengur á milli húsa og
syngur til að kalla fram anda
vináttu og gleði.
Veislan hefst á því að fólk
birtist fyrir framan hús vina
sinna án þess að gera boð á
undan sér og byrjar að syngja
og dansa. Fólkinu er boðið inn í
húsið til að syngja, dansa,
drekka og borða þar til tími er
kominn til að gestirnir taki
gestgjafana með sér í næsta
hús. Gleðin færist þannig milli
húsa fram á morgun.
Söngveisla í
Púertó Ríkó
JÓL