Morgunblaðið - 09.12.2005, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 09.12.2005, Qupperneq 35
kennarar starfa við skólann auk skólastjóra, sérkennara og starfs- liðs í mötuneyti og annarri stoð- þjónustu. Einstaklingsnám „Við erum ekki hverfisskóli heldur lítill einkaskóli og hingað koma börn af öllu höfuðborg- arsvæðinu,“ segir Margrét Pála. „Hér eru engin próf. Þess í stað meta kennarar reglulega árang- urinn og fylgjast vel með hverjum og einum enda er hver hópur ekki stór. Við leyfum okkur að fullyrða að samanburður við aðra skóla er okkur góður. Við notum hóptíma í umbúðalausa og skarpa kennslu í aðalnámsgreinum og sem dæmi get ég nefnt að um miðjan nóv- ember voru 22 af 26 fimm ára stúlkum læsar frá því þær hófu nám í september. Átta ára börn, sem hafa verið í ensku frá byrjun, geta haldið uppi einföldum sam- ræðum á ensku og sex ára piltar glímdu í nóvember hiklaust við hugarreikning og reiknilíkön með tveggja stafa talnagildum. Skólastarfið byggist annars veg- ar á miklu einstaklingsnámi í fá- mennum hópum og hins vegar á sköpun félagslegs skólasamfélags þar sem vellíðan, lífsgleði og sátt allra skipta mestu eða eins og seg- ir í skólasöngnum okkar, „Hér eiga allir að njóta og upplifa ham- ingju og sátt“. Leikur, sköpun og verkgreinar fá gríðalega mikið rými en þrátt fyrir það er náms- árangur hér mjög góður því að það er kennt umbúðalaust, hratt og örugglega þegar verið er að kenna og gerðar miklar kröfur.“ Skólagjaldið er 14.600 krónur fyrir hvert barn á mánuði fyrir utan mat og keypta aukatíma í frístundastarfi fyrir og eftir skóla. Foreldrar barna í Garðabæ greiða eingöngu fyrir mat og frí- stundastarf, þar sem Garðabær eitt sveitarfélaga velur að greiða sömu upphæð fyrir sín börn, hvort sem þau eru í einkaskóla eða hverfisskóla. Skólagjöld snúast um sveitarfélög „Málið er að skólagjöld segja ekkert um grunnskólann sem innheimtir gjöldin eða foreldrana, sem borga þau. Skólagjöld snúast um sveitarfélögin – hvort þau velja að greiða með hverju barni þann þekkta kostnað sem fylgir skólagöngunni, hvort sem barnið er í einkaskóla eða hverfisskóla. Garðabær er eina sveitarfélagið sem býður börnum sínum upp á jafnræði hvað þetta varðar,“ seg- ir Margrét Pála. „Önnur sveit- arfélög borga minna til einka- skólanna sem verða að rukka skólagjöld til að mæta þessu skerta framlagi til nemandans. Skólagjöldin valda síðan því að foreldrar hafa síður val og leita í hverfisskólana sem reknir eru af hinu opinbera – eru áskrifendur að nemendum ef svo mætti segja.“ er lokað Það getur verið vandasamt en gaman að þræða nál og sauma. Marteinn Guðmundsson, Hákon Hákonarson og Kristinn Ingi Gunnarsson spreyta sig á saumaskapnum. Á bak- við þá er Guðbjörn Atli Kristinsson sem fylgist spenntur með tilburðunum. krgu@mbl.is ’Hvað er betra engönguferð upp að Vífils- staðavatni og dengja sér um leið í nokkur orðadæmi, telja fuglana á vatninu eða bílana sem eiga leið hjá.‘ ’Þannig fá þau tækifæritil að skipuleggja starf sitt og líf á hverjum einasta degi.‘ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 35 Laugavegur 24, Reykjavík Skipagata 7, Akureyri Lagarás 8, Egilsstaðir „Afbragðskrimmi frá Frakklandi ... stendur skör hærra en norðlenski krimminn, bæði sá sænski og íslenski.“ Páll Baldvin Baldvinsson, DV Franskur verðlaunakrimmi LOKSINS Á ÍSLANDI! FRANSKI VERÐLAUNA- OG METSÖLUHÖFUNDURINN FRED VARGAS Glænýr Saab Við kynnum SAAB í sínu náttúrulega umhverfi. Komdu og skoðaðu nýjan og endurhannaðan Saab 95. Þessi kraftmikli og öruggi bíll er fullkominn í skíðaferðina eða í bústaðinn, enda þrífst hann best við erfiðar íslenskar aðstæður. Fágaðar línurnar og einstakt útlitið vekja athygli allra sem á hann líta. Rétti bíllinn fyrir veturinn í norðri. Verð frá 2.980.000,- Reynsluaktu nýjum SAAB 95. Hann er margverðlaunaður fyrir öryggi og hannaður fyrir akstur á norðurslóðum. Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00 DAGLEGT LÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.