Morgunblaðið - 09.12.2005, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 09.12.2005, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING H vað gerir þú á að- ventunni? Þetta er spurning sem vinsælt er að spyrja í dæg- urmáladálkum blaðanna og spjallþáttum ljósvakamiðla um þessar mundir. Enda er desem- ber runninn upp með tilheyr- andi smákökum, kertaljósi og miðbæjarrölti svo vinsæl klisja um jólarómantík sé höfð að leið- arljósi. Og viðmælendur fjöl- miðlafólks keppast yfirleitt við að lýsa því hvað þeir slaki nú vel á í desember og reyni að forðast að taka þátt í hinu al- ræmda jólastressi. Það er auð- velt að sjá fyrir sér blaða- ljósmyndir af brosandi fjölskyldufólki baka smákökur í eldhúsum bæjarins í fallegu skini marglitra ljósasería í jóla- mánuðinum. Kannski er þetta myndin sem við viljum draga upp af okkur sjálfum í desem- ber, við viljum trúa því að ein- hvern veginn svona sé þetta hjá okkur. En desember er ekki bara mánuður huggulegheita að ís- lenskum hætti. Fleiri karakter- einkenni þjóðarinnar koma hvað best í ljós á þessum árstíma. Þannig er desember sennilega mesti vinnumánuður ársins. Margt fólk, ekki síst versl- unarfólk, stritar myrkranna á milli og dottar svo yfir jólasteik- inni á aðfangadagskvöld. Þeir sem ekki vinna í búðunum sjá svo um að verslunarfólkið hafi nú eitthvað að gera. Nú er góð- æri og helstu verslunarmið- stöðvar því troðfullar af kaup- glöðum Íslendingum frá morgni til kvölds. Og ef marka má aug- lýsingar er rétti tíminn í ár til að fara með gamla sjónvarpið á haugana og fá sér glænýtt plasmatæki sem vart kostar undir hundrað þúsund krónum. Kannski verður jólanna árið 2005 minnst sem plasmahátíð- arinnar miklu. Fótanuddtæki hvað! segjum við og mundum greiðslukortin. Þeir sem eiga heimangengt af Fróni bregða sér til Ameríku og heimsækja þarlendar verslunarmiðstöðvar. Er afrakstur þessara ferða slík- ur að á undanförnum vikum hef- ur það ítrekað komið fyrir að þotur Flugleiða hafi verið fylltar svo rækilega að vélarnar hafa ekki getað flutt allan farang- urinn heim, líkt og Morg- unblaðið skýrði frá nýlega. Ef til vill mætti lýsa íslensku jólunum sem allsherjar uppskeruhátíð vinnudýrkandi þjóðar. Það hefur oft komið fram þegar Ísland er borið sam- an við grannþjóðirnar, að við vinnum mun lengri vinnudag en fólk gerir þar. Langur vinnu- dagur hefur löngum þótt dyggð hér á landi, jafnt hjá ungum sem öldnum. Ekki er að sjá að breyting sé að verða á þessu og hefur dýrkun á vinnu og neyslu- hyggja meðal annars komið í ljós í þeirri umræðu sem fram hefur farið undanfarið um stytt- ingu framhaldsskólans. Í viðtali sem birtist við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra hér í blaðinu fyrir nokkrum vikum var hún spurð hvort fyrirhuguð stytting fram- haldsskólans myndi ekki leiða til þess að nemendur hefðu minni tíma til að stunda vinnu með námi. Ráðherrann svaraði á þá lund að hún þekkti sitt fólk. Ís- lensk ungmenni myndu alltaf vinna með skólanum sama hversu mikið yrði að gera hjá þeim. „Að því leyti skerum við okkur úr frændþjóðum okkar. Sumir segja að þetta sé nei- kvætt, en mér finnst þetta frek- ar vera jákvætt merki um al- mennan dugnað í íslensku samfélagi og almenna löngun til þess að vinna,“ sagði hún. Hér má benda á að í skýrslu sem menntamálaráðuneytið lét gera vegna framhaldsskólans kemur fram að kennarar og stjórn- endur í framhaldsskólum telja vinnu nemenda spilla námi þeirra. Eðlilegt er í framhaldinu að spyrja hvernig það komi ís- lensku samfélagi til góða að ís- lenskir unglingar standi vaktina í sjoppum landsins meðan norskir, sænskir og danskir jafnaldrar þeirra lesa náms- bækur? Annað dæmi um íslenska vinnudýrkun í ljósi styttingar framhaldsskólans sá ég í grein á vefritinu Tíkinni á dögunum. Fram kom hjá greinarhöfundi að margar stúlkur í framhalds- skólum ynnu með skólanum til þess að eiga fyrir fötum. Nú hefðu sumar þeirra lýst and- stöðu við styttingu hans og þeim þyrfti einfaldlega að kenna dá- lítið í reikningi. Yrðu þær látnar reikna út ímyndaðar tekjur af því að ljúka stúdentsprófi og há- skólaprófi ári fyrr en nú er yrði niðurstaðan „töluvert meira af fötum“. Þá vakti athygli mína frétt í Morgunblaðinu í síðustu viku um ráðstefnu karla um jafnrétt- ismál sem haldin var í Kópavogi. Þar var Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, meðal mælenda. Fram kom í máli hans að í fjárfestingabankastarfsemi væri gríðarlega hörð samkeppni um vel launuð störf. „Fólk verð- ur því að vera tilbúið að færa gríðarlegar fórnir. Í þau störf veljast því gjarnan ungir karl- menn sem eru til í að fórna öllu á altari Mammons. Það eina sem spurt er um er árangur sem felst í fjárhagslegum ávinn- ingi.“ Ætti það að verða keppikefli kvenna sem vilja jafnrétti að færa meiri fórnir en þær gera nú í þágu peninga? Við þurfum að spyrja okkur að því hvernig lífi við viljum lifa. Viljum við eyða eins miklum tíma og mögulegt er í vinnu til að geta keypt fleiri föt og stærri sjónvörp? Eða er mikilvægara að gefa sér tíma til þess að þroskast sem manneskja? Plasmajól í ár? Yrðu þær látnar reikna út ímyndaðar tekjur af því að ljúka stúdentsprófi og háskólaprófi ári fyrr en nú er yrði nið- urstaðan „töluvert meira af fötum“. VIÐHORF Elva Björk Sverrisdóttir elva@mbl.is H afi orðið sjarmatröll einhvern tíma haft sanna merkingu, þá á hún örugglega við um stórsöngvarann Bryn Terfel, sem söng á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í gærkvöldi. Hann er hávaxinn og sterklegur; röddin djúp og hljómmikil. Þegar hann brosir, brosa augun mest, og hann er sérdeilis alþýðlegur og vin- gjarnlegur í fasi; – manneskja sem maður finnur að gott er að vera ná- lægt. Það er sennilega þetta sem kall- ast útgeislun, og hana hefur Bryn Terfel mikla. „Ég var var alveg undrandi þegar ég var lentur og sá að það var átta stiga hiti og enginn snjór,“ segir kappinn skellihlæjandi þegar hann tekur á móti rok- og regnbitnum blaðamanni baksviðs í Háskólabíói eftir æfingu í gær. Bryn Terfel er einn mesti bari- tonsöngvari dagsins í dag, en um 15 ár eru frá því hann sló í gegn og tók óperuheiminn með trompi í hlut- verkum Guiglelmos í Cosi fan tutti og Fígarós í Brúðkaupi Fígarós. Sjálfur segir hann þó að þetta hafi ekki verið alveg svona einfalt – hann hafi þurft að hafa fyrir hlutunum. Terfel tók á sínum tíma þátt í söngvarakeppninni kunnu í Cardiff í Wales og fékk þar verðlaun fyrir ljóðasöng, en lenti í öðru sæti í heild- areinkunn, þegar „hinn“ stóri bariton dagsins í dag, Rússinn Dimitri Hvorostovskíj, hirti gullið. Eins og hver annar „Ég er bóndasonur frá Wales, og kom inn í fagið án þess að hafa nokkra þekkingu á klassískri tónlist. Ég þurfti að leggja mikið á mig til þess að bæta mér það upp, – ekki síst þegar ég var í söngnámi í Guildhall skólanum. Fyrir þann tíma var ég bara eins og hver annar gaur, – á kafi í fótbolta og rokkmúsík. Þegar ég kom í skólann, þurfti ég allt í einu að spenna beltin og fara að vinna. Mér var gefinn þessi hæfileiki; söng- röddin; og þegar þannig er verður maður að vera trúr sjálfum sér og láta á hæfileikann reyna eins og hægt er. Fimm ár í háskólanámi í tónlist, fannst mér tækifæri sem gæti ráðið úrslitum um það hvort ég ætti eitt- hvað í þetta eða ekki. Þar hófst auð- vitað mikil raddþjálfun, og maður var kynntur fyrir öllum tegundum tón- listar: djassi, blús, óratoríum, óp- erum, ljóðasöng … Það gerðist strax, að einn kvistur á þessum meiði hitti mig í hjartastað, og það var óperan. Ég verð að segja þér frá fyrsta skiptinu sem ég sá óperu. Það var þegar útvarpið í Wales bað mig að fara sem gagnrýnandi í Konunglegu óperuna í Covent Garden, á Otello eftir Verdi. Ég hafði aldrei komið inn í óperuhús áður hvað þá meir. En hví- líkur eldur sem kviknaði innra með mér. Á sviðinu voru Placido Domingo og Katia Ricciarelli, Sir Colin Davis stjórnaði og Franco Zeffirelli var leikstjóri. Þetta var skömmu eftir að myndin hans um Otello var frum- sýnd. Ég var bara átján ára hvolpur,“ segir Terfel og hlær, og tekur fram að þótt frumraun hans í tónlistinni hafi í raun og veru verið í gagnrýni, hafi þetta jafnframt verið síðasta skiptið sem hann gaf sig út fyrir að vera gagnrýnandi. Það þurfti ekki meira til, til að kveikja í honum. „Það var nóg fyrir mig að vera gagnrýn- andi í einn dag, þegar ég komst í svona magnaðan söng. Ég gaf þeim auðvitað fínan dóm!“ segir hann og hlær enn meira, því í dag er þetta fólk bæði kollegar hans og kunningjar. „Þetta var rosaleg upplifun fyrir mig; þarna kviknaði ljósið á óp- erukertinu mínu, og það skíðlogar enn. Mig grunaði þó aldrei að ég ætti eftir að njóta velgengni á heimsvísu, og eftir námið í Guildhall settist ég að í Suður-Wales og taldi feril minn sem óperusöngvara verða þar í bráð og síð. Innan tveggja ára var það fyrir bí og ég var kominn á flug í orðsins Bryn Terfel á Íslandi. „Ég er búinn að heyra allt um nýja tónlistarhúsið og lofa að koma aftur þegar það er komið í gagnið.“ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Ég var eins og hver Tónlist | Bryn Terfel komst á toppinn í óperuheiminum án HEFÐIN er sterk – og jólahefðir vekja sennilega sterkari og íhalds- samari kenndir hjá mörgum en flest- ar aðrar hefðir. Þegar öll bestu uppá- haldsjólalögin manns eru tekin úr sínu „hefðbundna“ samhengi og sett í nýtt, leitar maður ósjálfrátt að rétt- lætingu. Til hvers að taka lag eins og gamla þjóðlagið Með gleðiraust og helgum hljóm –og útsetja upp á nýtt – með saxófóni? Eða Nóttin var sú ágæt ein? Eru þau ekki prýðileg og kannski best eins og maður hefur vanist að hafa þau? Auðvitað eru þau best þannig – meðan maður þekkir ekki annað. Á aðventutónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju, var Sigurður Flosa- son saxófónleikari í stóru hlutverki, sem spunameistari og meðleikari, en einnig Björn Steinar Sólbergsson organisti og einsöngvarinn, Ísak Ríkharðsson. Hafi einhver haldið að jólahefðinni yrði komið fyrir kattarnef með nýmælunum á þessum tónleikum – þá var svo ekki. Tónleik- arnir voru frábærir. Þeir voru það fyrst og fremst vegna þess að allt sem þar kann að hafa hljómað nýtt og jafnvel skrýtið í eyrum einhverra, var svo listi- lega vel og smekklega gert. Samspil saxó- fónsins, kórsins og einsöngvarans var vissulega „öðruvísi“ – stundum kyrr- látt í anda laganna sjálfra og text- anna, stundum ögrandi, en alltaf í fullkomnum samhljómi við stemn- ingu og andrúm tónlistarinnar. Það réttlætti tilbrigðin við hefðina. Sumt fengum við líka að heyra í sínum „orginal“ útgáfum, og það var að sjálfsögðu fínt. Niðurstaðan er sú að við eigum ótrúlega mörg falleg jólalög, bæði gömul og ný. Lagið hennar Jór- unnar Viðar, Jól, lag Jóns Ásgeirssonar, Á jólanótt, og Betlehems- stjarnan hans Áskels Jónssonar hafa öll áunn- ið sér sess meðal okkar bestu jólalaga, og lag stjórnandans, Harðar Áskelssonar, Jólagjöfin, mun líka gera það þegar fram í sækir: skínandi lag – hljótt og fullt stemningar þegar sung- ið er um vetrardaginn dimman, en rýkur upp í fjörugan 7/8 rytma og austurlenskan blæ þegar sungið er um undrin sem gerast allt í einu í austurvegi. Mótettukórinn er magnað hljóð- færi, og Ísak Ríkharðsson söng eins og engill. Hljóðfæraleikurinn var firnagóður og allt lék þetta ljúflega í höndum stjórnandans Harðar Ás- kelssonar. Tilbrigði við hefð TÓNLIST Hallgrímskirkja Mótettukór Hallgrímskirkju söng íslensk og erlend jólalög. Einsöngvari var Ísak Ríkharðsson, meðleikari á saxófón var Sigurður Flosason, organisti var Björn Steinar Sólbergsson en Hörður Áskels- son stjórnaði. Kórtónleikar Bergþóra Jónsdóttir Sigurður Flosason saxófónleikari
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.