Morgunblaðið - 09.12.2005, Page 39

Morgunblaðið - 09.12.2005, Page 39
fyllstu merkingu, út um allan heim. Nú er ég búinn að vera í þessum bransa í fimmtán ár, og það hefur verið stanslaus gleði að fá að kynnast söngvurum, hljómsveitarstjórum, áheyrendum, löndum, óperuhúsum. Fyrstu árin var ég eins og krakki á nammidegi. En svo kom að því fyrir nokkrum árum, að ég hægði aðeins á ferðinni, til þess að geta litið yfir far- inn veg, horft á framtíðina í rólegheit- um og andað djúpt og til þess að finna, að það er margt annað mik- ilvægt í lífinu.“ „Dívu-isminn“ á undanhaldi Bryn Terfel segir að það sé gott að vera óperusöngvari í dag. Sú kynslóð söngvara sem hann vinni mest með sé bæði afslöppuð og þægileg. „Óp- erusöngvarar í dag vinna vinnuna sína og vinna saman. Stjörnudýrk- unin eða „dívu-imsinn“ eins og ég kalla það, er á undanhaldi.“ Það er hreint ekki sönglaust í Wal- es, og Bryn Terfel segir að þótt hann hafi vantað bakgrunn í klassískri tón- list, hafi hann verið alinn upp við mik- inn söng. „Walesbúar eru að uppistöðu til bændur og verkamenn, starfa við landbúnað, kolanámur, flögubergs- námur – þetta er okkar grunnur sem þjóðar. Tónlistin varð mótvægið sem fólkið þurfti, og kórastarf, – bæði karlakóra og blandaðra kóra, hefur þrifist vel í Wales. Aðrir stofnuðu hljómsveitir eða sungu í kirkjum. Þetta fólk hafði hvorki sjónvarp né útvarp en naut samvista í tónlistinni. Í þessu liggur styrkur þjóðar minnar, en líka í tungumálinu, sem er mjög fallegt. Enn í dag halda kirkjur það sem heitir „eisteddfod“. Þá safnast fólk saman í kirkjunni og keppir í ein- söng, kórsöng, upplestri og þvíum- líku. Ungt fólk gleðst, ef kemur í ljós að það hefur söngrödd, en fer ekki al- veg í baklás, eins og sums staðar ann- ars staðar. Það er engin skömm að því að geta sungið.“ Það kemur því varla á óvart að söngvarakeppnin í Cardiff skuli ein- mitt sprottin úr þvílíku umhverfi, en nokkrir Íslendingar hafa tekið þátt í henni, og um tíma sýndi sjónvarpið jafnan frá keppninni. „Þessi keppni gerði ungum söngvurum gott, vegna þess að – jú, ungir söngvarar þurfa auðvitað peninga til að koma sér af stað, – en þeir þurfa ekki síður at- hygli umheimsins, og BBC á lof skilið fyrir að hafa gert keppnina að við- burði sem fólk um allan heim langaði að fylgjast með.“ Bryn Terfel gerir lítið úr því að hann hafi fengið ljóðasöng- sverðlaunin árið sem hann keppti í Cardiff; – þau hafi bara verið sára- bótarverðlaun fyrir annað sætið. „Di- mitri Hvorostovskíj er auðvitað stór- kostlegur söngvari, – hann komst í sviðsljósið eftir keppnina þetta ár. Hann var umsvifalaust kominn í stór hlutverk út um allt. Samt er þetta ekki svona einfalt. Það þurfa allir að hafa fyrir þessu á sinn hátt. Ég, aftur á móti varð ekki jafn hvell-frægur, og fékk eftir þetta lítil, en mjög góð hlut- verk. Ég líki þeim við jaðarinn í púsluspilinu. Þegar maður er búinn að púsla hann, er miklu auðveldara að fylla inn í myndina og ljúka púslu- spilinu, og þannig hef ég unnið minn feril, þótt sumum kunni að þykja hann hafa gengið hratt fyrir sig.“ Ég spyr Terfel nánar út í dívu- ismann. Fyrir um tíu árum eða svo var óperustjörnum eins og ungað út á færibandi. Angela Georghiou, Ro- berto Alagna, Vesselina Kasarova, José Cura … eru bara nokkur þeirra nafna sem skaut upp á stjörnuhim- ininn þá. Nú heyrist sjaldnar af nýj- um „sjóðheitum“ stjörnum, og Bryn Terfel kann skýringu á því. Vissi ekki að óperu- tónlist væri svona flott „Bransinn hefur lag á því að læsa klónum fast í þá sem þeir telja sig geta grætt á. Þannig er það nú bara. Síðustu árin hafa það verið söngvarar eins og Andrea Bocelli, Charlotte Church, Russell Watson, sem hafa stokkið um borð í hraðlest plötu- bransans, og selt plötur í milljónavís. Þetta eru söngvarar sem aldrei myndu komast á óperusvið, en geta þó sungið. Þau syngja óperutónlist, en líka dægurmúsík, og hafa vissu- lega laðað marga að óperunni. Það er hreint ekki skrýtið að söngvarar á borð við þau taki gylliboðum brans- ans. Sjáðu til dæmis Il divo, – fjóra myndarlega menn sem syngja lög eftir Tony Braxton á ítölsku. Fólk hlustar og segir: „Ó, ég vissi ekki að óperutónlist væri svona flott!“ Þetta getur verið ágætt í sjálfu sér, en hef- ur ekkert með lífið á óperusviðinu að gera. Sjálfur hef ég tekið þátt í þess- um leik, og gert plötur með vinsælli tónlist sem hafa selst gríðarlega vel. En ég hef líka gert plötu með ekkert síðri músík, sem hafa selst lítið á sama mælikvarða. Það er ekki í tísku í bransanum í dag að kynna lista- menn og raddir, það sem er kynnt, er það sem selst og höfðar til sem flestra í einu, og ef þeir finna bónda sem get- ur sungið eða löggu sem getur sung- ið, þá er það bónus í auglýsinga- mennskunni. Kannski á þetta eftir að breytast, og gerir það örugglega ein- hvern tíma.“ Bryn Terfel segist kunna ákaflega vel við sig þegar hann syngur á tón- leikum og umgjörðin er lágstemmd, og návistin við áheyrendur mikil, eins og á ljóðatónleikum. En saltið í graut- inn kemur þó úr óperunni, segir hann. „Það er orðið þannig að maður verður eiginlega að vera orðinn vel þekktur á alþjóðavettvangi sem óp- erusöngvari, til að eiga möguleika á frama sem ljóðasöngvari. En ég hef verið heppinn og syng ljóðatónlist jöfnum höndum. Nú er ég meir að segja kominn með mína eigin tónlist- arhátíð í Wales, og þangað get ég boðið þeim sem ég hef unnið með eða langar að vinna með, og gert hvað sem er. Þangað hafa komið Alison Moyet, Jools Holland, Van Morrison, Jamie Cullum, og fleiri og fleiri.“ Fyrirtæki verða að geta stutt listina Bryn Terfel hefur skoðanir á mörgu í músíklífinu, og eitt af því er skattlagning. Honum sárnar það að bresk fyrirtæki skuli ekki njóta skattafrádráttar fyrir styrki til menningarmála, eins og tíðkast í Bandaríkjunum. Þetta geri listunum erfiðara fyrir þegar opinberar styrk- veitingar dragist saman. En samt eru fyrirtæki að styðja listina, og hann nefnir dæmi frá heimaslóðum. „Þegar nýja óperan í Wales var vígð í fyrra var Wozzeck fyrsta verk- efnið, og margir höfðu áhyggjur af því að það myndi ekki ganga að sýna svo erfitt stykki í byrjun. En óperan ákvað að selja miðann á aðeins fimm pund (um 570 krónur), og aðsóknin var auðvitað mjög góð. En þetta var auðvitað ekki hægt nema vegna þess að þessi framkvæmd var styrkt af einkafyrirtæki.“ Ég spyr Terfel um samstarfið við ítölsku mezzósópransöngkonuna Ceciliu Bartoli, en það vakti heims- athygli. Það þótti líka sérstakt að baritón og mezzósópran skyldu skína svo skært, því venjulega eru það ten- orarnir og sópranarnir sem mest láta að sér kveða á vinsældalistum óp- eruunnenda. „Hún er frábær, alveg ótrúlega kraftmikill orkubolti á sviði, og mjög snjall tónvísindamaður fyrir utan það að syngja svona rosalega vel, og vera svona tæknilega full- komin. En nú er hún hætt að syngja í stóru húsunum, vill bara syngja þar sem hún er í betra sambandi við áheyrendur. Það hefur verið ótrúlega gaman að vinna með henni.“ Það líður að því að ég verð að hætta spjallinu við þennan geðþekka óp- erusöngvara, en kemst ekki hjá því að spyrja hann hvort hann komi ekki fljótt aftur til að syngja fyrir þá sem misstu af tónleikum hans í gærkvöldi, en vildu svo gjarnan heyra í honum. „Þegar ég kem á staði sem mér lík- ar vel á, – ef hljómsveitin og salurinn eru góð, eru að sjálfsögðu miklar lík- ur á því að ég komi aftur. Það er bara eins og með góð veitingahús; – maður vill fara aftur á staði þar sem mat- urinn er góður, og vínið gott. Ég er búinn að heyra allt um nýja tónlistar- húsið ykkar sem á að fara að reisa og lofa að koma aftur þegar það er komið í gagnið.“ annar gaur – í fótbolta og rokki þess að hafa vitað nokkuð um klassíska tónlist áður en hann fór að syngja Morgunblaðið/Þorkell MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 39 MENNING Stórhöfða 25 • 110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is Við leggjum þér lið Farðu allra þinna ferða á auðveldan hátt allan ársins hring! Rafskutlur sem nota má jafnt innan- sem utandyra. Verð frá 118.500 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.