Morgunblaðið - 09.12.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 41
MENNING
STEFÁN Jón Bernharðsson horn-
leikari bar þriðju verðlaun úr být-
um í keppni hornleikara á Ítalíu
fyrir skemmstu. Er þetta í þriðja
skiptið á þessu ári sem Stefán Jón
hlýtur verðlaun í alþjóðlegri tón-
listarkeppni fyrir hornleik sinn.
Keppnin heitir „Cittá di Porcia“
og er haldin í 16. sinn á þessu ári í
Pordenone-héraði sem er skammt
fyrir norðan Feneyjar. Milli ára er
skipst á að keppa í horn-, trompet-
eða básúnuleik og er markmið
keppninnar að leiða saman unga
málmblásturshljóðfæraleikara frá
ólíkum löndum og uppgötva nýtt
hæfileikafólk á því sviði. Á heima-
síðu keppninnar er tekið fram að
allir sigurvegarar undanfarinna
keppna leiki nú með virtum hljóm-
sveitum.
Minna búinn undir úrslitin
Alls tóku 33 keppendur þátt í ár
og voru þeir allir undir þrítugu, en
það er aldurstakmark keppninnar.
Hún fer fram sem útsláttarkeppni,
þar sem hópurinn minnkar jafnt
og þétt í fjórum umferðum, og
keppa þrír í lokin sem koma þá
fram sem einleikarar með sinfón-
íuhljómsveit. Var Stefán Jón
þeirra á meðal, ásamt Zoltán
Szõke frá Ungverjalandi sem
hreppti fyrsta sætið, og Maria del
Carmen Rubio Navarro frá Spáni
sem varð í öðru sæti.
„Það var auðvitað mjög gaman,
og við lékum í nýju tónlistarhúsi í
bænum. Eini gallinn fyrir mig per-
sónulega var að sökum anna var ég
verst búinn undir úrslitin, má
segja. Ég einbeitti mér að fyrstu
umferðunum, en svo gafst ekki
tími til að undirbúa seinni umferð-
irnar að fullu. Það má kannski
segja að ég hafi ekki búist við að
komast svona langt en það var
gaman samt, þó að tilfinningin hafi
verið svolítið undarleg; að vera
kominn í úrslitin og að spila kons-
ert hálfpartinn af blaði með heila
hljómsveit á bak við sig. Það var
svolítið óþægilegt, en það var bara
eitthvað sem ég varð að gera í að-
stæðunum,“ segir Stefán Jón í
samtali við Morgunblaðið, en bætir
við að tækifærið hafi engu að síður
verið mjög skemmtilegt og með
þessu eigi hann ekki við að hann
hafi verið alveg óundirbúinn –
enda að keppa við mjög fært fólk
og standard keppninnar hár.
Verðlaunafé Stefáns Jóns nam
3.000 evrum, sem hann segir duga
fyrir kostnaði af ferðinni. „Ég kom
út í plús, sem er alltaf jákvætt, en
það mikilvægasta er reynslan og
sambönd sem maður skapar sér.
Maður reynir að hugsa ekki um
fjárhagslegu hliðina, sérstaklega í
fyrstu umferðunum. Að vera ekki
að velta sér upp úr tímanum og
peningunum sem maður eyðir í
þetta, því það er auðvitað mjög
svekkjandi að detta út í fyrstu um-
ferð og vera búinn að kosta miklu
til. Það getur orðið alltof mikil
pressa,“ segir hann og hlær.
Óvenjumargar
hornkeppnir í ár
Keppnin á Ítalíu er þess eðlis að
hljóðfæraleikaranir sækja einfald-
lega sjálfir um að vera með og seg-
ir Stefán Jón það algengasta fyr-
irkomulagið í keppnum af þessu
tagi, þó sumar geri kröfu um að
heyra upptöku með leik fyrir fram
og velji síðan úr. Hann segir að
hljóðfæraleikarar fylgist nokkuð
vel með hvaða keppnir eru í gangi
hvar á hverjum tíma. „Þessar
hornkeppnir hafa verið óvenju-
margar í ár,“ segir hann, en þetta
er sem fyrr segir þriðja keppnin
sem hann hlýtur verðlaun í á
árinu, og önnur sem er fyrir horn-
leikara eingöngu. „Að meðaltali er
ekki nema ein keppni á ári fyrir
hornleikara. Við sem erum í þessu
vitum alveg af planinu fyrir næstu
árin, enda eru þær ekki svo marg-
ar eða mismunandi. Þess vegna
hittir maður mikið til sama fólkið í
þessum keppnum.“
Hann segir ákvörðun sína um
þátttöku hverju sinni ráðast af
tíma og aðstæðum. „Það er rosa-
lega mikill tími sem fer í að und-
irbúa keppni af þessu tagi – allt í
allt þarf maður að spila tíu stykki
ef maður fer alla leið, allt frá kons-
ertum til sónata og í mjög mis-
munandi stíl. Það er auðveldara að
koma þessu í kring þegar maður er
nemandi, en þegar maður er byrj-
aður að vinna fyrir sér í hljóm-
sveitum er erfiðara að finna tíma.
En ég er mjög ánægður að hafa
gert það, í það minnsta í ár. Að
nota formið sem maður er í núna
til að halda boltanum rúllandi.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Stefán Jón Bernharðsson hlaut 3. verðlaun í hornkeppni á Ítalíu.
Tónlist | Stefán Jón Bernharðsson
hornleikari hlýtur enn verðlaun
Formið heldur
boltanum rúllandi
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
http://www.musicaporcia.it/
concorso.htm