Morgunblaðið - 09.12.2005, Side 49

Morgunblaðið - 09.12.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 49 MINNINGAR ✝ Elín Sigurðar-dóttir fæddist í Lambhaga í Mos- fellssveit 5. apríl 1930. Hún lést á Droplaugarstöðum 4. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sig- urður Guðnason bóndi í Lambhaga, f. 15.5. 1888, d. 28.8. 1974, og Krist- ín Margrét Árna- dóttir húsfreyja, f. 23.6. 1893, d. 31.7. 1972. Systkini Elínar eru: Mar- grét, f. 1917, d. 1991; Engilbert, f. 1918; Sólveig, f. 1920, d. 2002; Guðni, f. 1921, d. 1971; Helga, f. 1922; Eggert, f. 1924, d. 2004; og Guðrún Erna, f. 1934, d. 1935. Vorið 1936 flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og bjó lengst af á Lilju og Sólveigu Júlíu. Áður hafði Kristján eignast dótturina Elínu með Sigrúnu Finnsdóttur. 2) Sigurð Karl Linnet, f. 14.1. 1959. Kona hans er Erla Einars- dóttir og eiga þau tvær dætur, Sigurlaugu og Stefaníu Elínu. Stjúpsonur Sigurðar er Einar Að- alsteinsson. Áður en Elín giftist Stefáni, hafði hún verið í sambúð með Júl- íusi Gestsyni og eignaðist með honum tvær dætur. Þær eru: 1) Sigríður S. Júlíusdóttir, f. 9.5. 1951. Hún var gift Mark Cohagen, en þau skildu. Eiga þau saman tvær dætur, Lailu Sif og Nínu. 2) Helga Júlíusdóttir, f. 5.6. 1952. Hún er í sambúð með Arnfinni R. Einarssyni. Áður hafði Helga eignast dótturina Ölbu með José Luis Solís. Elín og Stefán áttu lengst af heima í Skipasundi 43. Síðustu æviárin átti Elín við veikindi að stríða og dvaldi því á Droplaug- arstöðum þar sem hún andaðist. Útför Elínar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Bergþórugötunni. Elín gekk í Aust- urbæjarskólann og síðan Ingimarsskól- ann og lauk þaðan gagnfræðaprófi 1947. Um framhald á námi var ekki að ræða. Elín vann ýmis störf á sínum yngri árum, þar á meðal nokkur sumur á Varmalandi í Borg- arfirði við garð- yrkjustörf. Hinn 2. ágúst 1957 giftist Elín eftirlifandi eiginmanni sínum, Stefáni Karli Linnet, f. 19.11. 1922, og með honum eignaðist hún tvo drengi: 1) Kristján Karl Linnet, f. 1.11. 1957. Kona hans er Sigríður Anna Guðbrandsdóttir og eiga þau tvær dætur, Kristínu Ég er svo heppinn að hafa alist upp á þeim tíma þegar mæður þessa lands voru almennt heima. Unnu þar sína vinnu einar fjarri skarkala heimsins. Þar á meðal var mamma. Hún var heima er börnin hennar komu heim úr skóla, þegar þau komu aftur inn eftir að hafa verið úti að leika eða sátu inni og lásu á votviðrisdögum. Oft voru margir vinirnir í heimsókn og var vel hugsað um alla, franskbrauð ristað handa þeim og kakómalt með. Og gott var að koma inn þeg- ar eitthvað bjátaði á og fá hlýleg huggunarorð. Verk sín vann hún í hljóði af heimspekilegri yfirvegun, enginn asi eða hamagangur. Aldrei sá maður hana taka til, en alltaf var allt hreint og fágað, hvergi ryk eða ló. Á milli verka var setið við símann og spjallað í væna stund við vini eða vandamenn. Og lesið, mik- ið lesið. Þykkir doðrantar, oftast spennusögur, spændust upp á stuttum tíma. Mörg þúsund blað- síður í hverjum mánuði. Lengi vel var heitur matur tvisvar á dag, allt þar til mamma tók eftir því að kviðurinn á pabba var farinn að stækka of mikið. Þá breytti hún til. Maturinn var yndislegur, hvers- dags sem á helgum. Nætursöltuð ýsa, gellur, kálbögglar og lamba- læri í heimsins bestu sósu svo fátt eitt sé nefnt. Af mömmu lærði ég að elda góðan mat og passa kvið- inn. Nú þegar ég hugsa til baka á þessum tímamótum fyllist hjarta mitt þakklæti fyrir þá gæfu að hafa átt svona yndislega móður sem átti svo mikla hlýju að gefa öðrum. Og veit að börnin mín eru betri mann- eskjur eftir að hafa verið í umsjá hennar. Ég líka. Kristján. Látin er tengdamóðir mín Elín Sigurðardóttir. Ég kynntist henni fyrir fimmtán árum er leiðir mínar og sonar hennar Kristjáns lágu saman. Ég hreifst strax af fjölskyldu- bragnum í Skipasundinu. Þar bjó Elín ásamt manni sínum Stefáni Linnet, þremur uppkomnum börn- um og tveimur barnabörnum. Þótt húsrýmið væri ekki mikið á nú- tímamælikvarða var alltaf nægt pláss á heimilinu og allir bjuggu þar saman í sátt og samlyndi. Ella amma var kletturinn á heimilinu sem allir löðuðust að og sóttu styrk sinn til. Hún var glaðlynd kona, bókhneigð og einstaklega barngóð. Hún kom að uppeldi margra barna- barna sinna og oft nægði eitt orð frá henni til að börnin tileinkuðu sér það sem foreldrarnir höfðu predikað lengi án þess að á þá væri hlustað. Sem tengdamóðir var hún ein- stök og mér fannst að ég hefði unn- ið stóra vinninginn í tengda- mömmuhappdrættinu. Hún var alltaf til staðar þegar við þörfn- uðumst hennar, tilbúin að hlusta, ekki endilega að ráðleggja, en með því að tala við hana komst maður oft sjálfur að lausninni. Ekki var afskiptaseminni fyrir að fara hjá henni en enginn var betri en hún ef á bjátaði. Eftir að börnin fluttu að heiman hélt Skipasundið áfram að vera hjarta fjölskyldunnar. Þangað var gott að stinga sér inn til að rabba um daginn og veginn eða að fá að geyma börnin þar á meðan við sinntum erindagjörðum. Þar hitt- umst við líka í afmælum og á stórhátíðum og þótt fjölskyldan væri stór, tók Ella á móti okkur glöð og ánægð þótt vinna hennar ykist með stækkandi fjölskyldu. Ella var heilsuhraust, gekk flestra sinna ferða og eyddi ófáum stundum í garðinum sínum á sumr- in. Það varð því mikið áfall fyrir alla er hún fékk heilablóðfall fyrir fimm árum, stuttu eftir sjötugsaf- mæli sitt. Við það varð hún fangi í eigin líkama og gat lítið tjáð sig. Við þessi umskipti í lífi þeirra hjóna sást enn betur hve sterk bönd voru á milli þeirra Stefáns og Elínar, hann fór á hverjum einasta degi til hennar á Droplaugarstaði og sat hjá henni stóran hluta dags- ins. Hann hugsaði eins vel um hana og hægt var og dást allir að þeirri einstöku umhyggju sem hann sýndi konu sinni. Nú hefur Ella fengið hvíldina en eftir lifir minningin um yndislega konu. Sigríður Anna Guðbrandsdóttir. Þegar mamma hringdi í farsím- ann minn um tvöleytið aðfaranótt sunnudags 4. desember vissi ég að þessu var lokið. Amma var dáin. Ég grét því sorgin fyllti hjarta mitt. Eftir heilablóðfallið hafði sorg og sársauki litað tilfinningar mínar og hugsanir til ömmu en nú er sársaukatilfinningin ekki til staðar lengur. Ég veit að hún er komin á betri stað. Ég var rétt farin að kynnast ömmu sem fullorðinn einstaklingur þegar hún veiktist og hefði gefið margt fyrir fleiri stundir við eld- húsborðið í Skipasundi að spjalla um allt milli himins og jarðar. Ég gleðst samt, því ég á fulla kistu af yndislegum minningum um ömmu Ellu og um heimsóknir mínar til hennar og afa í Skipasundið. Að þeim mun ég búa alla mína ævi. Ég kveð ömmu með þakklæti í hjarta fyrir alla þá hlýju og ást sem hún veitti mér. Laila Sif Cohagen. Hlýja, einlægni og umburðar- lyndi eru orð sem koma strax upp í hugann þegar rifjuð eru upp sam- skipti við Elínu Sigurðardóttur sem lést eftir langvinn veikindi síð- astliðinn sunnudag. Við vorum tíðir gestir á heimili Elínar og Stefáns, eiginmanns hennar, á mennta- skólaárunum um miðjan áttunda áratuginn. Eins og títt er um skóla- fólk á þessum aldri var oft glatt á hjalla og gat gengið á ýmsu í litlu risherbergi þar sem vinur vor Kristján, sonur þeirra hjóna, var gestgjafinn. Glymjandi tónlistin og erillinn breyttu hins vegar ekki þeirri vináttu og umburðarlyndi sem ávallt mætti okkur í Skipa- sundinu. Elín var hreinskiptin þeg- ar henni þótti ástæða til að gera at- hugasemdir við bröltið í okkur en var fráleitt langrækin kona og bauð ósjaldan til stofu þar sem hún tók virkan þátt í umræðunni. Gilti einu hvort dægurþras, nístandi kaldastríð eða bókmenntir voru á dagskránni. Ósjaldan rak hún okk- ur á gat enda ágætlega lesin. Hún hafði ákveðnar skoðanir og beitt skopskyn sem féll í góðan jarðveg meðal okkar vinanna. Þegar frá leið urðu samskiptin stopulli, eins og gengur, en í hvert sinn sem við hittum Elínu var eins og við hefð- um hitt hana í gær. Nú, þegar komið er að kveðju- stund, minnumst við Elínar með hlýhug og virðingu og sendum Stefáni og fjölskyldunni allri sam- úðarkveðjur. Haukur Lárus Hauksson, Helgi Gunnlaugsson. ELÍN SIGURÐARDÓTTIR ✝ Guðrún BjörgMetúsalemsdótt- ir fæddist í Tungu- seli á Langanesi 16. júlí 1916. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 30. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Björg Ólafsdóttir og Metúsalem Gríms- son. Þau eignuðust auk Guðrúnar; Hólmfríði, f. 1917, d. 2003, og Ólöfu, f. 1923. Þegar Metúsalem lést árið 1924 flutti Björg með dæturnar í heimasveit sína,Vopnafjörð. Þar kynntist hún seinni manni sínum, Ragnari Sigurðssyni, og ólu þau upp fósturson, Guðjón Sigurðsson. Guðrún fór 8 ára gömul í fóstur til hjónanna í Fremri-Hlíð, þeirra Guðrúnar Sigurjónsdóttur og Sig- urðar Þorsteinssonar, og var hún þar til 18 ára aldurs. Minntist hún hjónanna og barna þeirra ætíð síð- an með miklum hlýhug. Næstu ár- in vann hún ýmis störf á Tangan- um en fluttist þá norður í Eyjafjörð og gerðist kaupakona hjá Valdi- Stefánsdóttur, f. 21.4. 1947. Börn þeirra eru: a) Stefán Viðar, f. 21.5. 1966, kvæntur Eydísi Einarsdótt- ur, f. 22.4. 1970. Börn þeirra eru Einar Rafn, f. 15.10. 1993, Viðar Örn, f. 16.4. 1996, og Eva Rún, f. 16.5. 2003. b) Björgvin Viðar, f. 5.11. 1967, d. 26.5. 1990. c) Einar Viðar, f. 11.7. 1972. Börn hans úr fyrri sambúð með Sigríði Björk Jónsdóttur eru Björgvin Viðar, f. 3.10. 1993 og Elísa Björk, f. 16.9. 1996. d) Anna Rós, f. 29.9. 1980, sambýlismaður Arnar Már Sverr- isson, f. 15.8. 1970, dóttir þeirra er Guðrún Brynja, f. 10.7. 2005. 3) Jó- hanna, f. 8.6. 1952, gift Arngrími Brynjólfssyni, f. 29.5. 1952. Börn þeirra eru: a) Arnar Már, f. 22.9. 1972, í sambúð með Hönnu Sigríði Smáradóttur, þau eiga Unni Lilju, f. 23.6. 2000 og Grím Má, f. 9.3. 2003. b) Örvar, f. 15.4. 1975, í sam- búð með Natalie Rham, þau eru búsett í Sviss. c) Guðrún, f. 2.11. 1982. d) Árni Freyr, f. 15.4. 1992. Guðrún og Magnús bjuggu lengst af í Norðurgötu 42, en Magnús byggði það hús í samvinnu við Jóhann Sigurðsson. Guðrún var að hætti síns tíma heimavinn- andi húsmóðir á stóru heimili og gestrisnu. Þess nutu Vopnfirðing- ar í ríkum mæli sem sóttu Akur- eyri heim. Guðrún missti mann sinn árið 2000 og eftir það bjó hún í Vestur-Hlíð, en áður höfðu þau hjón búið í þjónustuíbúð Hlíðar. Útför Guðrúnar fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. mar Pálssyni á Möðruvöllum fram. Þar kynntist hún mannsefni sínu, Magnúsi Stefánssyni frá Kambfelli í Djúpadal. Guðrún og Magnús gengu í hjónaband 11. maí 1940. Börn Magnúsar og Guðrúnar eru: 1) Ragna Björg, f. 18.3. 1941, gift Magnúsi Aðalbjörnssyni, f. 15.5. 1941. Börn þeirra eru: a) Magnús Már, f. 9.4. 1964. Sonur hans úr fyrri sambúð með Kristínu Hafsteinsdóttur er Bjarki Már, f. 31.1. 1996. Sambýlis- kona Magnúsar er Guðbjörg Odds- dóttir, f. 20.3. 1972. Börn hennar eru Karlotta Sigurðardóttir, f. 19.3. 1997 og Oddur Vilberg Sig- urðsson, f. 22.8. 1999. b) Hanna Guðrún, f. 30.11. 1965, gift Pétri Axel Valgeirssyni, f. 19.3. 1958. Börn þeirra eru Íris, f. 12.8. 1988, Magnús Valur, f. 9.8. 1991 og Heið- björt Ragna, f. 7.9. 2000. c) Birkir Már, f. 24.8. 1976. 2) Finnur Viðar, f. 16.4. 1944, kvæntur Guðrúnu Enn með sóma aldur ber ungur hljómar bragur. Alltaf ljómar yfir þér æskublóminn fagur. Þannig orti Magnús Stefánsson til konu sinnar sjötugrar og segja má að þessi hringhenda endur- spegli þá ást, virðingu og kærleika sem var ríkjandi í sambúð þeirra hjóna til hinstu stundar. Guðrún var einstök kona; hlý, nærgætin og þeirrar gerðar að öllum þótti vænt um hana. Öllum vildi hún vel og ávallt lagði hún gott til málanna. Það var mér mikil blessun að kynn- ast Guðrúnu, og betri tengdamóður hefði vart verið hægt að finna. Það var engin tilviljun að barnabörnin löðuðust að henni, enda var Guð- rún alltaf boðin og búin að hjálpa þegar þess var þörf. Hann leyndi sér ekki ánægjusvipurinn á börn- unum þegar heimsækja skyldi „ömmu Guð“ – eins og börnin sögðu gjarnan. Tengdamóðir mín unni mjög átt- högum sínum í Vopnafirði og talaði einkar hlýlega um allt sem vopn- firskt var. Frændgarður hennar var þar stór og vinafjöldinn mikill. Það var eins árvisst og koma far- fuglanna að fjölskyldan færi austur og ætti ánægjuríka daga hjá Ólöfu systur Guðrúnar og Bertila manni hennar, en þau voru höfðingjar heim að sækja og var mikill sam- gangur á milli heimilanna. Ein- hverju sinni er Magnús og Guðrún voru í heimsókn fyrir austan leit Magnús yfir farinn veg og ánægju- ríka daga, og laumaði hann þá þessari vísu að konu sinni: Ævin líður undrafljótt óskin rættist fína. Hingað austur hef ég sótt heilladísi mína. En Guðrún reyndist ekki ein- göngu Magnúsi heilladís. Hún hef- ur ennfremur reynst afkomendum sínum sannkölluð heilladís, og megi gæska og góðvild hennar verða afkomendum hennar, born- um sem óbornum, leiðarljós í harðnandi heimi. Að leiðarlokum þakka ég Guðrúnu samfylgdina og bið henni Guðs blessunar. Magnús Aðalbjörnsson. Halldór Laxness sagði eitt sinn um kunningja sinn: „Hann var aldrei í góðu skapi. Hann var ávallt í besta skapi.“ Þannig var amma. Reyndar var aðeins til ein bók eftir Laxness heima hjá afa og ömmu, Brekkukotsannáll. Afa þótti, að ég held, flest sem samið var síðar en á 14. öld heldur nútímalegt og hon- um nægði fullkomlega að lesa Ís- lendingasagnaútgáfu Guðna Jóns- sonar aftur og aftur Almanak hins íslenska þjóðvinafélags var samt uppáhaldsbókin hans. Amma hafði líka einfaldan smekk hvað bók- menntir varðar. Davíð var hennar maður. Okkar maður. Amma var gjafmild, en kunni að þiggja. Hún kunni þá list að velta sér upp úr gjöf eða minningum. Lét manni líða eins og höfðingja þegar ég bauð henni einhvern tím- ann í Eyjafjarðarhring sem endaði með kaffi í Vín. Í annað skipti fór- um við saman á ,,Svartar fjaðrir“, leikgerð byggða á ljóðum Davíðs í Samkomuhúsinu á Akureyri. Og hún talaði lengi um það á eftir. Hún kunni að gleðjast yfir litlu. Sú list virðist óðum vera að hverfa. ,,Too much is not enough“ eins og skáldið sagði. Amma var félagslynd og lifði fyrir gestagang. Á gullaldarárum Norðurgötu 42 sem spönnuðu tæp 50 ár var stöðug traffík. Opið hús. Kannski er verið að steikja kleinur eða laufabrauð og amma er mið- punktur alls. Ég minnist fólks í kringum eldhúsborð og hugsanlega er verið að reykja. Úti á hlaði eru skódar og wartbúrgar. Og líklega er verið að tala um verðbólgu- drauginn. Örugglega ekki verðbréf og eignamyndun. Það eru keðjur á bílum. Og enn eru menn sem ganga í skóhlífum. Sjálfur hef ég líklega verið á kafi í uppbyggileg- um barnabókum eða Sjóferðasögu Hrafns Valdimarssonar. Líklegt er að ,,Hildur“ hafi verið í sjónvarp- inu, jafnvel spænskukennsla. Amma kallaði mig oft Márus og ég var mikið hjá henni þegar ég var lítill. Ég minnist þess ekki að hún hafi nokkurn tímann gefið mér ráð, skammað mig eða kennt mér nokkurn skapaðan hlut. En þannig eru líklega áhrifamestu kennararn- ir; heilir og hlýir og ósparir á góð- vildina. Hún var líka óspör á sykur og rjóma... Arnar Már Arngrímsson. GUÐRÚN BJÖRG METÚSALEMS- DÓTTIR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.