Morgunblaðið - 09.12.2005, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 53
MINNINGAR
við þakka ykkur það. Guð styrki
ykkur á þessum erfiðu stundum.
Kæri mágur, hvíl í friði.
Guðmundur A. Gunnarsson.
„Hmm, krakkar mínir“ eru orð
sem oft hljómuðu hjá frænda okkar
sem við kveðjum núna.
Hummið var það fyrsta sem við
sögðum þegar við ákváðum að setj-
ast niður og heiðra minningu þína
með nokkrum orðum. Hummið þitt
mun alltaf lifa innst með okkur og
vekur alltaf bros á vörum okkar þeg-
ar við minnumst þess.
Nú ertu farinn frá okkur elsku
Kalli, allt of snemma, en samt sem
áður ertu mjög svo lifandi í huga
okkar vegna sérstöðu þinnar og bæt-
ir það til muna tilveru okkar þeirra
sem á eftir þér sjáum.
Við minnumst alltaf þess hvernig
var að koma heim til þín, niður í
Markland, hvort sem var í heimsókn
eða til þess að læra. Matseðillinn var
ávallt svipaður og líkaði okkur hann
vel ásamt því að fá að fikta í stólnum
þínum. Garðurinn þinn var nú aldrei
vel hirtur en segja má með sanni að
þú hafir frekar ræktað hugann held-
ur en gróðurinn. Vindlalyktin sveip-
aði vinalegum blæ yfir námsefnið,
yfirleitt stærðfræði. Þú kenndir okk-
ur ekki einungis fræði úr bókum
heldur sýndir okkur einnig marga
góða kosti í þínu fari, sem við mun-
um ávallt hafa að leiðarljósi.
Við munum alltaf eftir því hversu
gaman var að koma í vinnuna hjá þér
niðri við Austurvöll. Eftir töluverða
göngu í gegnum völundarhús, fund-
um við þig yfirleitt á skrifstofunni
sem var þakin allskonar bókum og
blöðum. Inn á milli sast þú upptek-
inn við þína iðju. Oft var okkur svo
boðið á Kökuhúsið við hliðina á, þar
sem þú bauðst upp á veitingar.
Kynni þín við Hrafnhildi og fjöl-
skyldu hennar var mikið lán, en þar
kom til sögunnar einstaklega
hjartahlý kona og gott fólk. Við er-
um mjög ánægð með hlutskipti þitt í
þeim málum og erum við Hrafnhildi
að eilífu þakklát fyrir þann stuðning,
styrk og ástúð sem hún hefur veitt
þér. Ómetanlegt, takk Habba.
Orð sem lýstu þér sem best –
hjartagóður, göfugur, yfirvegaður,
þrautseigur, áræðinn og kíminn.
Við munum ávallt minnast þín í
huga okkar og hugsa til þeirra góðu
stunda sem þú gafst okkur með nær-
veru þinni. Vonum við að þú munir
fylgjast með okkur öllum og halda
áfram að veita styrk í gegnum líf
okkar.
Takk fyrir okkur, takk fyrir allt,
við söknum þín,
Friðrik Örn, Eva Dögg
og Brynjar Freyr.
Karl Markús Bender lauk prófi í
rafmagnsverkfræði við Háskóla Ís-
lands árið 1974 og framhaldsnámi
við Tækniháskólann í Kaupmanna-
höfn árið 1977. Að því loknu hóf hann
störf hjá Pósti og síma, fyrst sem
verkfræðingur á radíóleiðadeild.
Framundan voru tímar mikilla
breytinga og framfara á fjarskipta-
sviðinu. Karl fylgdist afar vel með
tækninýjungum og gerðist forystu-
maður við uppbyggingu gagnaflutn-
ingsþjónustu fyrirtækisins. Undir
hans stjórn voru byggðar þrjár kyn-
slóðir gagnaflutningsneta sem voru
háhraðanetið á árunum upp úr 1990,
ATM og ADSL netin þar sem upp-
bygging hófst 1998. Öll hafa þessi
net þjónað landsmönnum dyggilega
og orðið ómissandi þáttur í lífi stórs
hluta þjóðarinnar þó að fæstir geri
sér grein fyrir því. Þannig háttaði
einmitt um störf Karls, hann var
hljóður maður og barst ekki á. Það
var hins vegar einstaklega gott að
leita til hans um úrlausn hvers kyns
mála. Gilti þá einu hvort þau voru
tæknilegs, stjórnunarlegs eða mann-
legs eðlis. Karl hafði margvísleg
áhugamál þar sem tækni og vísindi
fóru fremst í flokki. Hann gat hrifist
af mjög af snjöllum tæknilausnum
og átti auðvelt með að miðla hrifn-
ingu sinni. Hann fylgdist afar vel
með, enda koma það í hans hlut að
vera í forystu við innleiðingu margra
tækninýjunga. Undir lokin starfaði
Karl á Talsímsviði þar sem viðfangs-
efnin voru á sviði næstu kynslóðar
neta og nýrra aðferða við flutning
símtala.
Karl var dulur maður en góður og
traustur vinur og samstarfsmaður.
Öll umgengni við hann var auðveld
og jákvæð og grunnt var á fáguðu
skopskyni. Veikindi hans hófust að
vori 2004. Hann mætti þeim af æðru-
leysi, kvartaði aldrei, og breyttu þau
engu um viðmót hans á vinnustað
eða gagnvart samstarfsmönnum.
Jafnframt komu þau lengst af ekki
niður á störfum hans. Hann féll frá
þann 30. nóvember sl. Við fráfall
hans er stórt skarð höggvið í raðir
fjarskiptasérfræðinga Símans sem
vandfyllt er. Tæknileg yfirsýn og
reynsla Karls var ómetanleg ásamt
þekkingu hans á öllum innviðum
fjarskiptakerfa Símans. Karl hafði
einnig djúpa þekkingu á tölvutækni
sem kom honum til góða við þann
samruna tölvu- og fjarskiptatækni
sem nú er efst á baugi.
Á Símanum ríkir sár eftirsjá eftir
Karli. Við sendum Hrafnhildi og fjöl-
skyldunni innilegar samúðarkveðjur
og biðjum þeim blessunar á sorgar-
stund. Minningin lifir um góðan
dreng.
Samstarfsmenn á Símanum.
Okkur langar í örfáum orðum að
minnast vinar okkar Kalla, miðviku-
daginn 30. nóv. sl. lauk 20 mánaða
baráttu hans við þennan illvíga sjúk-
dóm krabbamein. Hann barðist
hetjulega og kvartaði ekki, með
Höbbu sína sér við hlið. Kalli var
yndislegur maður, hæglátur, vel gef-
inn og vildi allt fyrir alla gera, frá-
bær vinur sem við kynntumst
kannski best í Heiðarseli í Grímsnes-
inu þar sem Habba og Kalli tóku allt-
af hlýlega á móti ættingjum og vin-
um. Þar var gjarnan boðið til matar,
Kalli var einstaklega góður á grill-
inu, allt smakkaðist betur ef hann
grillaði, hundarnir voru líka ánægðir
með sína sérrétti.
Heimili Höbbu og Kalla á Freyju-
götunni var alltaf opið fyrir okkur
eins og fjölmarga aðra vini þeirra.
Við eigum eftir að sakna Kalla um
ókomin ár og geymum allar minn-
ingarnar, góðu stundirnar og þökk-
um fyrir að hafa fengið að kynnast
honum og eiga fyrir vin. Elsku
Habba, þú ert enn og aftur búin að
sýna okkur hvað þú ert yndisleg
manneskja. Megi Guð hjálpa þér í
gegnum þessa miklu sorg.
Elsku Habba, Agnes, Sigmundur,
Sigurjón og Sara, Hrafnhildur
Svala, Hekla Sif, fjölskylda Karls
Markúsar Bender, og aðrir aðstand-
endur.
Guð geymi ykkur öll.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
Jóna og Guðmundur.
Karl Markús Bender var hluti af
góðu samfélagi íbúa á Freyjugötu
34. Á sinn hljóðláta hátt var honum
umhugað um að allt væri með góðu
lagi og rétt staðið að hlutunum,
reiðubúinn að leggja lið þegar á
þurfti að halda. Þetta fundum við að
var undirtónninn á heimili hans,
enda bæði Hrafnhildur og Karl sam-
hent um að gera það sem notalegast.
Þegar váleg tíðindi bárust af heilsu-
bresti hans héldu þau sínu striki,
nutu dvalar í sumarbústað sínum í
lengstu lög og nýttu hvern dag. Karl
stundaði vinnu meðan stætt var og
hann neytti síðustu krafta til að
ganga frá sínum hlut í ákveðnum
málefnum hússins sem tvísýnt var
um að tækist að ljúka. Það er sökn-
uður að slíkum nágranna og við von-
um að við njótum nærveru Hrafn-
hildar áfram og þess góða fólks sem
jafnan var í kringum þau Karl. Hug-
ur okkar er hjá henni í sorg og minn-
ingum.
Guðlaug og Þorsteinn,
Alma og Óskar.
Elsku kallinn hann Kalli. Mér er
það mikill heiður að hafa þekkt þá
góðu sál. Alltaf með þægilega nær-
veru og tilbúinn að hjálpa ef þörf var
á. Og „herre gud“ hvað hann reddaði
mér oft út úr einhverri endalausri
tölvubaráttunni. Þau voru ófá sím-
tölin okkar á milli þegar frúin var að
setja upp eitthvert prógrammið í
nýju tölvunni. Í dag bý ég vel að
þessu öllu saman og tölvan mín
elskuleg vogar sér ekki einu sinni að
frjósa lengur. Og ég er sannfærð um
að himnafaðirinn verður orðinn
tölvuvæddur innan tíðar og hver veit
nema Kalli komi á beinu sambandi
milli okkar jarðálfanna og englask-
arans. Allt getur gerst í þessari ver-
öld og þegar stórmenni eins og Kalli
eru annars vegar, þá veit maður jú
aldrei.
Og svo var hann svo assskoti góð-
ur við Höbbuna mína. Mikið hrika-
lega áttu þau vel saman. Bæði jafn
mátulega klikkuð og dásamleg í til-
verunni. Kalli bókaði oft hótelin fyrir
sína konu í gegnum netið og þau
voru sko ekkert af verri endanum.
Ekkert nema það flottasta fyrir
frúna, og þar vorum við öll sammála.
Habba mín elskuleg, þú stóðst
eins og klettur með honum í þessari
orrustu og fyrir það áttu heiður skil-
inn. Nú votta ég þér mína dýpstu
samúð, elsku kerlingin mín, og hve-
nær sem að þig vantar Pollýönnu á
svæðið, þá erum við báðar til þjón-
ustu reiðubúnar. Og svo heimta ég
Frokost í mínu boði innan tíðar.
Ég sit hér í Kaupmannahöfn núna
og pakka niður því helsta fyrir Ís-
landsför. Auðvitað er jólabjórinn í
glasi og mér er skapi næst að kveikja
í vindlingi Kalla til heiðurs.
En allavega, SKÁL, elsku Kalli.
Habba mín og allur herskarinn,
ykkur knúsa ég og votta virðingu
mína þegar ég kem.
Kær kveðja
Hera Björk og fjölskylda
í Köben.
Elsku afi.
Það hefur verið svo margt
gaman hjá okkur. Ég vildi að
þú værir ennþá hjá okkur.
Þú varst alltaf svo góður,
blíður og ljúfur við mig. Það
var svo gaman að vera með
þér uppí sumarbústað. Ég
mun aldrei gleyma þér og ég
skal passa ömmu Höbbu,
Sölku og Grím fyrir þig.
Ég elska þig. Þín
Hrafnhildur Svala.
Elsku afi.
Takk fyrir hvað þú varst
góður við mig, Hrafnhildi
Svölu og Skellibjöllu. Ég
mun sakna þín.
Hekla Sif.
HINSTA KVEÐJA
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUNNAR BERGMANN ÞORBERGSSON
bifreiðastjóri,
Fjarðargötu 19,
Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 29. nóvember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans við Hring-
braut.
Guð blessi ykkur öll.
Unnur Bjarnadóttir,
Anna Gunnarsdóttir, Jón Þór Hjaltason,
Bjarni Gunnarsson, Kristín Björk Hjaltadóttir,
Gunnar Bergmann Gunnarsson, Agla Hreiðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar,
tengdamóður, ömmu og langömmu okkar,
PETRU MOGENSEN,
Miðleiti 5.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Ellen M. Thors, Jón Thors,
Hulda G. Mogensen,
Elsa Mogensen, Páll Guðmundsson,
Edda Thors, Sigurður Guðjónsson,
Hildur Thors, Helgi Sigurðsson,
Mogens Gunnar Mogensen, Margrét Steinþórsdóttir,
Guðrún Þóra Mogensen, Árni Sigurjónsson,
Petra Björk Mogensen, Sveinbjörn Sveinbjörnsson
og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ELÍAS ÍVARSSON,
Suðurengi 7,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn
10. desember kl. 11:00.
Guðrún Sveinsdóttir,
Elín Jóhanna Elíasdóttir, Örn Jónsson,
Ívar Hjálmar Elíasson, Ólafía Illugadóttir,
Elsebeth Elena Elíasdóttir, Erwin Thomsen,
Guðlaug Elíasdóttir, Sigurjón Valdimarsson,
Linda Elíasdóttir, Christofer R. Bowen,
Eva Elíasdóttir,
Ingibjörg Halla Elíasdóttir,
Auðbjörg Lilja Lindberg, Karl H. Cooper,
Sveinn Elíasson, Kolbrún Björnsdóttir,
Elías Rúnar Elíasson, Bryndís Jónsdóttir,
afa- og langafabörn.
Minningarathöfn um manninn minn, föður minn,
tengdaföður, fósturföður og afa,
PÁL HALLGRÍMSSON
fyrrv. sýslumann
á Selfossi,
verður haldin í Selfosskirkju laugardaginn
10. desember kl. 13.30.
Jarðsett verður að Grund í Eyjafirði þriðjudaginn
13. desember kl. 13.30.
Svava Steingrímsdóttir,
Drífa Pálsdóttir, Gestur Steinþórsson,
Kristinn Ingvarsson, Anna Hjartardóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og bróðir,
HELGI LOFTSSON,
Krummahólum 57,
Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 7. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ólöf Waage,
Ingólfur Örn Helgason, Edda Bryndís Örlygsdóttir,
Ævar Páll Helgason, Maribeth Ycot,
Guðbjörg Helgadóttir,
barnabörn
og systkini hins látna.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
BJÖRNS KJARTANSSONAR,
Fitjakoti,
Kjalarnesi.
Svala Árnadóttir
og aðstandendur.