Morgunblaðið - 09.12.2005, Page 54

Morgunblaðið - 09.12.2005, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ GREINARGERÐ Félagslíf Í kvöld kl. 20.30 heldur Herdís Þorvaldsdóttir erindi: „Um ævi og störf H.P. Blavatsky, V. hluti“ í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjá Herdísar Þor- valdsdóttur sem fjallar áfram Um ævi og störf H.P. Blavatsky, VI. hluti. Á fimmtudögum kl. 16.30- 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Á sunnudögum kl. 10.00 er hugleiðing með leiðbeiningum. Starfsemi félagsins er öllum opin. http:/gudspekifelagid.is I.O.O.F. 1  1861298  Fl. I.O.O.F. 12  1861298½  Styrkir til framhaldsnáms við háskóla í Bandaríkjunum Stofnun Leifs Eiríkssonar auglýsir eftir um- sóknum um styrki til framhaldsnáms við há- skóla í Bandaríkjunum fyrir skólaárið 2006- 2007. Styrkupphæð getur orðið að hámarki 25.000 US$. Nánari upplýsingar um styrkina og umsóknar- eyðublað er að finna á heimasíðu stofnunar- innar www.leifureirikssonfoundation.org. Umsóknum skal skilað á Alþjóðaskrifstofu há- skólastigsins, Neshaga 16, 107 Reykjavík, fyrir 16. janúar 2006. Umsóknarfrestur er til 16. janúar 2006. Styrkir Raðauglýsingar sími 569 1100 Raðauglýsingar 569 1100 HÉR fara á eftir svör Stefáns Ólafs- sonar við athugasemdum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og fjár- málaráðuneytis við skýrsluna „Örorka og velferð á Íslandi og í öðr- um vestrænum löndum“ en athuga- semdir þeirra birtust í blaðinu í gær. Tvö ráðuneyti hafa farið ítarlega yfir skýrslu mína um örorku og vel- ferð á Íslandi og gert við hana nokkr- ar athugasemdir, einkum við umfjöll- un um afkomu öryrkja í kafla IX. Ráðuneytin draga niðurstöðu rann- sóknarinnar í efa og reyna í staðinn að draga upp þá mynd, að þróun kjara öryrkja frá 1995 til 2004 sé mun hag- stæðari en fram kemur í rannsókn- inni. Einnig vefengja þau samanburð á kjörum öryrkja á Íslandi og í öðrum vestrænum löndum og draga upp betri mynd af útkomu Íslands. Ég tel að tilraun ráðuneytanna til að vefengja niðurstöður rannsóknar- innar sé skiljanleg því niðurstöðurnar eru stjórnvöldum óþægilegar. Hins vegar mistekst þeim að grafa undan niðurstöðunum, eins og sýnt verður hér á eftir með svörum við helstu at- hugasemdum. Stærstur hluti athuga- semda ráðuneytanna eru útúrsnún- ingar, langlokur um aukaatriði og tilraunir til að fegra útkomu með vafasamri framsetningu gagna. Þá sleppa ráðuneytin með öllu að fjalla um hina gríðarlegu aukningu á skattbyrði hjá öryrkjum, sem sýnd er í bókinni, en hún hefur meðal annars gert að litlu sumar af þeim annars ágætu úrbótum sem stjórnvöld hafa gert á allra síðustu árum á örorkulíf- eyriskerfinu, meðal annars með upp- töku aldurstengdu uppbótarinnar 2004. Sem dæmi má nefna að einstak- lingur sem orðið hefur öryrki við 18 ára aldur eða fyrr og á rétt á há- markslífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins fær að hámarki kr. 127.497 (miðað við nóvember 2005). Hann fær alla bótaflokka og aldurstengdu upp- bótina upp í topp (hún er kr. 21.993). Af þessari upphæð greiðir viðkom- andi nú kr. 19.784 í skatta. Munur ald- urstengdu uppbótarinnar og skatt- greiðslunnar er um 2.000 krónur, eða nálægt 10% af aldurstengdu uppbót- inni sjálfri. Ráðstöfunartekjur við- komandi eru 107.713. Þetta er „stjarna“ örorkulífeyriskerfisins, sá sem fær hæstu mögulegu lífeyris- greiðsluna frá TR af einhleypum ör- yrkjum. Við upptöku staðgreiðslu- kerfis skatta árið 1988 hefði hann verið nálægt skattleysismörkunum með sömu rauntekjur án aldursupp- bótarinnar. Án beggja „umbótanna“ (aldurstengdu uppbótarinnar og skattlagningarinnar) væri hann litlu verr settur en hann er nú, þ.e. hann hefur nú um 3000 krónum meira í ráð- stöfunartekjur. Eru þetta miklar framfarir? Aukin skattbyrði rýrir þannig verulega slíkar umbætur almennt og étur þær upp með öllu í sumum til- vikum þannig að viðkomandi verður verr settur en hann var við upphaf tímabilsins sem fjallað er um. Einar Árnason, hagfræðingur Samtaka eldri borgara, hefur sýnt með athygl- isverðum útreikningum hvernig skattbyrði lífeyrisþega almennt hefur aukist í þessum lágu tekjuþrepum, sem margir öryrkjar (og sumir eldri borgarar) lenda í. Það á bæði við um þá sem hafa búið við sömu raunlaun á síðustu tíu árum og þá sem hafa feng- ið einhverja hækkun rauntekna (sjá gögn Einars Árnasonar á heimasíðu Félags eldri borgara – www.feb.is). Allt tal stjórnmálamanna um að eðli- legt sé að skattar hækki vegna þess að tekjur lífeyrisþega hækki er því mjög villandi. Aukin skattbyrði þýðir að stjórnvöld hafa ákveðið að taka stærri hluta af tekjum viðkomandi tekjuþega, þó einhverra áhrifa af tekjuhækkun gæti líka. Skattbyrði einhleypra öryrkja var 7,4% af heild- artekjum þeirra að jafnaði árið 1995 en var komin í 17,1% árið 2004. Það er mikið á alla mælikvarða. Það er sjálfsagt fyrir stjórnvöld að halda til haga þeim úrbótum sem þrátt fyrir allt hafa verið gerðar, og þakka má fyrir, en óneitanlega verða athugasemdirnar hjáróma og létt- vægar þegar horft er framhjá svo gríðarlegri skerðingu á kjörum ör- yrkja sem hin aukna skattbyrði felur í sér. Þannig ættu skattleysismörk nú að vera rúmlega 102 þúsund krónur ef þau hefðu fylgt verðlagi frá 1988, en þau eru rúmlega 75 þús. krónur í dag. Mér er til efs að hægt hefði verið nokkurs staðar í grannríkjunum að framkvæma slíka hækkun á skatt- byrði hjá láglaunahópi eins og öryrkj- ar hér á landi eru, án þess að til víð- tækra uppþota hefði komið. Víðast hefðu stjórnvöld þurft að bæta við- komandi láglaunahópi það með sam- svarandi hækkun lífeyrisgreiðslna. Svona aðgerðir hafa þó verið fram- kvæmdar í Bandaríkjunum. Hér á landi hefur verið gengið fram með af- ar óvenjulegum hætti gagnvart bæði öryrkjum og eldri borgurum á tíma- bilinu frá 1995. Svör við einstökum athugasemdum 1. Í kafla IX í ritinu Örorka og vel- ferð þar sem fjallað er um hagi ör- yrkja er þróun tekna öryrkja sýnd á 8 mismunandi vegu, til að draga fram ýmsar hliðar þróunarinnar. Fyrstu tvær athugasemdir ráðuneytanna lúta að fyrstu tveimur myndunum í kaflanum (9.1 og 9.2). Í báðum tilvik- um er um sömu umkvörtun að ræða. Sagt er að höfundur sleppi algerlega að taka tillit til tekjutryggingarauk- ans (frá 2001) og aldurstengdu upp- bótarinnar (frá 2004). Þetta er alveg rétt, enda er markmiðið þarna að sýna hvernig sá hluti lífeyris al- mannatrygginga sem flestir fá óskertan hefur þróast, í samanburði við kaupmátt ráðstöfunartekna á mann, launavísitölu og lágmarkslaun verkafólks. Það skiptir vissulega máli hvernig þær stærðir sem flestir fá hafa þróast. 2. Það er hins vegar alveg rétt hjá ráðuneytunum að ósanngjarnt og vill- andi væri að sleppa að reikna með tekjutryggingaraukann og aldurs- tengdu uppbótina. Enda er þetta allt tekið með á næstu mynd á eftir, þ.e. mynd 9.3. Einungis þurfti að fletta við einni blaðsíðu í bókinni og þá blasti hún við. Það er ótrúlegt undrunarefni að bæði ráðherrar og aðrir stjórn- málamenn skuli hafa eytt svo miklu púðri í að kvarta yfir fjarveru þessara atriða sem voru einfaldlega til um- fjöllunar á næstu blaðsíðu og í öllum þeim 6 mælingum á kjaraþróun frá 1995 til 2004 sem á eftir fylgja í kafl- anum. Á mynd 1. (sem er samsvarandi við mynd 9.3 í bókinni) er sýnt hvernig aldurstengda uppbótin kemur inn að hámarki árið 2004 (súla 2000a). Einn- ig er þar sýnt hvernig staðan væri ef hún hefði ekki komið til (súla 2004b). Í texta með myndinni er sagt að útkom- an sé sú að flestir öryrkjar séu með hámarkslífeyri á bilinu 45–50% af meðaltekjum framteljenda í landinu (16 ára og eldri). Hér hefur verið bætt við einni súlu á grundvelli nýrra gagna um „raungreiðslur (greiðslur eftir skerðingar) Tryggingastofnunar á öryrkja með öllum bótaflokkum“. Eins og sjá má á myndinni er talan 48,9%. Þarna er því staðfest að rétt er farið með þegar ég segi að flestir ör- orkulífeyrisþegar sem einungis hafa bætur frá TR séu með á bilinu 45– 50% af meðaltekjum framteljenda, að aldurstengdu uppbótinni meðtaldri. 3. Í allri greiningu á afkomuþróun öryrkja í samanburði við aðra þjóð- félagshópa sem á eftir fylgja í kafl- anum, þ.e. í 6 af 8 mælingum á þróun- inni, er miðað annaðhvort við hámarkslífeyrisgreiðslur frá TR eða heildartekjur öryrkja, sem voru unn- ar sérstaklega upp úr skattframtöl- um. Þar er allt talið: allar lífeyris- greiðslur frá TR, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnutekjur og aðr- ar tekjur. Út frá þessum gögnum eru svo reiknaðar ráðstöfunartekjur og þróun þeirra á tímabilinu. Allt tal um að ég sleppi tekjutryggingaraukanum og aldurstengdu uppbótinni úr sam- anburðinum, eða misskilji aldurs- tengdu uppbótina, er því vægast sagt fráleitt og raunar með ólíkindum. Í samanburði milli landa er sömuleiðis byggt á þessum gögnum og þar vant- ar því ekki heldur þessa þætti sem ráðherrar hafa sagt í fjölmiðla að geri mynd Íslands of laka. Tilefni þessara miklu umkvartana um skakka mynd er því ekkert. Þetta atriði er annað af tveimur megin gagnrýniþáttum ráðu- neytanna. 4. Ég er hins vegar sammála því Svar Stefáns Ólafssonar vegna skýrslu um örorku  #2 (42 !D0> !& 0 -! =O  0 $0>#!  >  !02 F  20- 0 2    2 0 0)  4  & 0) G /0- & 4 ) ! 0&) ##+   E & +G & 20- & 0 -! =O 0& ) ! 0&) ##+   E G G  H /0- $42 ) ! 0&) ##+   P  +H Q ) ! 0&) ##+   P  H / --  - & 0 -! =O E& 0 -! 0 ! 0 - &G %0 0 !2 $R  2  &   & 02  2 4 D  4 =O 4 2>)  D  $&!02)2 4-0>   &' ( )*+,*- ./    -          +  F  0  0! ! 0  0           !2 78! 4-  >  & 0 ) 0 )  .  3  $ $$ $ $ $ $ $ $% $ $$ $ $ $ $ $ $% $ $$ $ $ $ $ $ $% $ $$ $ $ $ $ $ $%  32 S & ) 0&   +  4 D+: 4 7 - )2 D @ 2 20- #24  0 - A & Q   &   1 , 2   3   45 ( 678-/ T T T T T T T T T T     Bridsfélag Suðurnesja Hafinn er þriggja kvölda jólatví- menningur þar sem tvö bestu kvöld- in skila verðlaunum. Staðan eftir fyrsta kvöldið: Karl G. Karlss. – Gunnl. Sævarsson 104 Arnór Ragnarss. – Svala Pálsdóttir 98 Garðar Garðarsson – Jóhannes Sigurðss. 86 Dagur Ingimundars. – Sigfús Yngvason 86 Enn er hægt að vera með á mótinu en nýta verður skorina í bæði kvöld- in til verðlauna. Sveit Jóhannesar Sigurðssonar sigraði í þriggja kvölda sveitakeppni sem lauk 30. nóv. Með Jóhannesi spiluðu Guðjón Svavar Jensen, Heið- ar Sigurjónsson, Karl G. Karlsson og Gunnlaugur Sævarsson. Sveitin fékk 105 stig en sveit Svölu Pálsdóttur varð önnur með 97 stig og sveit Æv- ars Jónassonar þriðja með 90 stig. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Nú er lokið hjá okkur þriggja kvölda keppni í tvímenningi. Þátt- takan hefur verið mög jöfn og góð. Sunnudaginn 4.12. var spilað á 12 borðum. Lokastaðan eftir þrjú kvöld í N/S Þorleifur Þórarins. – Brynja Dýrborgard. 727 Unnar A. Guðmss. – Jóhannes Guðmarss. 717 Árni Guðbjörnss. – Friðbjörn Guðmss. 672 Austur – Vestur Garðar Jónson – Guttormur Vík 752 Sturlaugur Eyjólfsson – Birna Lárusd. 695 Sigrún Andrews – Ólöf Ingvarsd. 687 Hæstu skor kvöldsins voru eftir- farandi í Norður – Suður. Þorleifur Þórarins. – Brynja Dýrborgard. 63 Unnar Guðmss. – Jóhannes Guðmarss. 252 Árni Guðbjörnss. – Friðbjörn Guðmss. 230 Austur – Vestur Garðar Jónsson. – Guttormur Vík 260 Jón Jóhannsson – Jón Bergþórss. 245 Sturlaugur Eyjólfsson – Birna Lárusd. 243 Síðasta spilakvöld fyrir jól er sunnudaginn 11.12. Við byrjum aftur sunnudaginn 15.1. 2006. Spilað er í Breiðfirðingabúð Faxa- feni 14 á sunnudögum kl. 19. Erla Sigvaldadóttir Í myndatexta í þættinum sl. fimmtudag var rangt farið með föð- urnafn Erlu Sigvaldadóttur sem var sögð Sigurjónsdóttir. Beðist er af- sökunar á þessum mistökum. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.