Morgunblaðið - 09.12.2005, Qupperneq 66
66 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
kl. 10.30 B.i. 14
Þetta var hið fullkomna frí
þangað til þau fundu
fjársjóðinn!
kl. 5.20 og 8 B.i. 12
MBL
TOPP5.IS
400 KR Í BÍÓ*
Sýnd kl. 5.20
-M.M.J. Kvikmyndir.com
-H.J. Mbl.
-L.I.B. Topp5.is
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
Sýnd kl. 5.45 B.i. 16 ára
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
Alls ekki fyrir viðkvæma
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE
ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ
SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
Alls ekki fyrir viðkvæma
Áætlunin er
margbrotnari,
útfærslan er
flóknari og
leikurinn
skelfilegri en
nokkru sinni
fyrr
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
Alls ekki fyrir viðkvæma
Áætlunin er
margbrotnari,
útfærslan er
flóknari og
leikurinn skelfilegri
en nokkru sinni
fyrr
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
Alls ekki fyrir viðkvæma
kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Miða sala opn ar kl. 15.30
Sími 564 0000
...ÞAÐ GERÐIST Á
AÐFANGADAGSKVÖLD
HÆTTULEGIR ÞJÓFAR Á HÁLUM ÍS!
JÓLAMYNDIN 2005
FRÁ LEIKSTJÓRA GROUNDHOG DAY
OG ANALYZE THIS
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
...ÞAÐ GERÐIST Á
AÐFANGADAGSKVÖLD
HÆTTULEGIR ÞJÓFAR Á HÁLUM ÍS!
JÓLAMYNDIN 2005
...ÞAÐ GERÐIST Á
AÐFANGADAGSKVÖLD
HÆTTULEGIR ÞJÓFAR Á HÁLUM ÍS!
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
FRÁ LEIKSTJÓRA GROUNDHOG DAY
OG ANALYZE THIS
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
HLJÓMSVEITINA Kungfú skipa
söngvarinn Steinarr Logi Nesheim,
trommuleikarinn Ari Þorgeir Stein-
arsson, gítarleikarinn Kristinn Sig-
urpáll Sturluson, bassaleikarinn
Bæring Árni Logason og hljómborðs-
leikarinn Albert Guðmann Jónsson.
Lífaldur sveitarinnar er hálft
þriðja ár og á dögunum leit fyrsta
breiðskífa þeirra félaga dagsins ljós.
Útgáfu plötunnar, sem ber heitið Í
sannleika sagt, verður fagnað í kvöld í
verslun Skífunnar við Laugarveg
milli klukkan 21.20 og 22.30.
Steinarr sagði í samtali við Morg-
unblaðið það hafa verið mikinn létti
að koma fyrstu plötunni frá sér.
„Þetta eru bestu lögin sem við höf-
um samið frá því að sveitin var stofn-
uð og því nauðsynlegt að koma þessu
frá sér svo við getum byrjað á nýju
efni,“ segir Steinarr en stefnan er að
leggja í hljóðver strax í byrjun nýs
árs.
Viljum miðla til annarra
Steinarr segir undanfarið ár hafa
verið annasamt hjá hljómsveitinni en
þeir hafi verið að spila um nær hverja
helgi allt árið. Ekkert lát verður á því
um helgina en auk útgáfutónleikanna
í kvöld leikur sveitin á Rás 2 í dag og
heldur miðnæturtónleika á Akranesi
annað kvöld. Útgáfutónleikarnir eru
öllum ætlaðir og verður aðgangur
ókeypis.
„Við höfum tekið eftir því að fólkið
sem hlustar á okkur er á öllum aldri.
Við vildum því að sem flestir ættu
möguleika á að koma í kvöld,“ segir
hann.
Þegar litið er til bakgrunns hljóm-
sveitarmeðlima er óhætt að fullyrða
að þeir komi úr ýmsum áttum tónlist-
arstefna. Steinarr tekur undir það.
„Við Ari og Bjarni komum úr rokk-
inu en hinir voru kannski meira í
poppi og danstónlist,“ segir hann.
Steinarr segist skilgreina tónlist-
arstefnu Kungfú sem gæðapopp.
„Við vöndum okkur mikið við það
sem við erum að gera. Við teljum
okkur hafa eitthvað að segja og vilj-
um gjarnan miðla því til annarra,“
sagði hann að lokum.
Tónlist | Kungfú sendir frá sér plötu
Það verður nóg að gera hjá Kungfú-liðum um helgina.
Aðdáendur á
öllum aldri
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Kungfú leika á Rás 2 klukkan
14.30 í dag. Útgáfutónleikar sveit-
arinnar fara fram í kvöld milli
klukkan 21.30 og 22.30 í Skífunni
við Laugaveg. Sveitin verður svo
með miðnæturdansleik í Breiðinni
á Akranesi annað kvöld.
HROLLVEKJUKVIKMYNDIR
hafa farið marga hringi í tímans
rás, enda tilheyra þær kvikmynda-
grein sem lýtur fastmótaðri lög-
málum en margar aðrar. Þannig
felst stór hluti skemmtigildis hroll-
vekjuáhorfs í því að fylgjast með
hvernig farið er eftir settum frá-
sagnarreglum, og um leið reynt að
snúa út úr þeim, koma með óvænt
útspil eða leika á væntingar áhorf-
andans. Áskorunin felst sem sagt í
því að ná að láta áhorfandanum
bregða og hrella hann þrátt fyrir að
hann setjist í bíósætið vel brynj-
aður fyrir þeim leik sem fer í hönd.
Eftir að Wes Craven sneri hroll-
vekjugreininni upp í sjálfsvísandi
póstmódernisma með Scream-
syrpunni, hefur hún verið í hálf-
gerðum vanda. Hvernig er hægt að
gera eitthvað nýtt og frumlegt þeg-
ar sjálfar söguhetjur hrollvekj-
unnar eru farnar að stafa lögmál
greinarinnar ofan í áhorfendur
jafnóðum og morðinginn lætur til
skarar skríða? Þar með hefur
áhorfandinn verið færður í vits-
munalega fjarlægð frá hryllingnum,
settur á háan hest andspænis kunn-
uglegri formúlunni sem farin er að
snúast um sjálfa sig og það að skil-
greina frekar en að láta hræða sig.
Svo virðist sem þeir sem glíma
við hið lífseiga hrollvekjuform hafi
snúið vörn upp í sókn og reyni nú
sem mest þeir mega að rífa áhorf-
andann niður úr dómarasætinu með
því að höfða beint til líkamlegra
kúgunarviðbragða. Nú er mál að
hafa hrollvekjurnar nógu blóðugar,
sargandi sadískar og sláturhúss-
kenndar til þess að tryggja áþreif-
anleg viðbrögð áhorfandans.
Raðmorðinga-kviðristumyndin Sarg
(Saw) gerði þetta með stæl er hún
sló óvænt í gegn í fyrra og er ljóst
að Íslandsvinurinn Eli Roth er að
leika þann leik með slátur-
hrollvekjunni Hostel. Í þessum
myndum ræður nokkurs konar
sadó-níhílismi ríkjum, spillt og úr-
kynjuð mannskepnan er sett í eins
andstyggilegar og örvæntingafullar
aðstæður og hægt er að hugsa sér,
og áhorfandanum boðið að fylgjast
með glaðhlakkalegri slátrun morð-
ingjans á fórnarlambinu með til-
heyrandi kjöttætlum, beinabrestum
og síðast en ekki síst langvinnum
skelfingarópum.
Í Sarg-myndunum er það illi
strengjabrúðumeistarinn Jigsaw
sem ræður för, og gerir sér að leik
að kanna hversu langt mann-
skepnan geti gengið í sjálfsbjarg-
arviðleitninni við að losa sig út úr
prísund morðingjans, jafnvel þótt
það kosti að saga af sér útlimi eða
drepa samherja sína. Aðstandendur
Sargs voru ekki lengi að svala blóð-
þorsta áhorfenda eftir velgengni
fyrri myndarinnar, og í Sargi 2 er
hið sama uppi á teningnum. Mynd-
in hefst á sérlega kvikindislegu
morðatriði, sem tekur af allan vafa
um að framhaldsmyndin geti bætt
um betur þegar kemur að frum-
legum sadískum dauðagildrum.
Þeir sem nutu Sargs 1 munu ef-
laust ekki verða fyrir vonbrigðum
með framhaldið. En hafi maður
ekki nógu gaman af því að fylgjast
með dauðastríði örvæntingarfullra
fórnarlamba er hins vegar lítið upp
úr myndinni að hafa, því viðleitnin
við að byggja upp sálfræðilega
drifnar sögupersónur og myrka
undirheimastemmningu er aðeins
að nafninu til. Þegar á líður verður
myndin lítið annað en endurspilun á
Hannibal Lecters og kattar-músar
klisjum með aðaláherslu á að upp-
fylla væntingar áhorfenda um
últra-sadisma og búa í haginn fyrir
fleiri framhaldsmyndir. Sarg 2 er í
raun bara næsti bær við kvalalost-
afulla veruleikasjónvarpsþætti á
borð við Mörk óttans (Fear Factor)
nema hér er notað talsvert meira af
latexi og gerviblóði.
Sláturtíð í bíóhúsum
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn,
Laugarásbíó og Borgarbíó
Sarg 2 (Saw 2) Leikstjórn: Darren Lynn Bousman. Aðal-
hlutverk: Donnie Wahlberg, Tobin Bell og
Dina Meyer. Bandaríkin, 91 mín.
Heiða Jóhannsdóttir
„Sarg 2 er í raun bara næsti bær við kvalalostafulla veruleikasjónvarps-
þætti á borð við Mörk óttans, nema að hér er notað talsvert meira af latexi
og gerviblóði,“ segir meðal annars í umsögn gagnrýnanda.