Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 2

Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 2
2 SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Antony Horowitz „Spennandi frá upphafi til enda… bráðskemmtileg… hrífur lesendur með sér hvort sem þeir eru níu ára eða níræðir.“ Hildur Heimisdóttir / DV „Illyrmislega snjöll.“ Independent „Hröð, fyndin ogmjög spennandi.“ Daily Mail „Stórkostlegt sköpunarverk!“ www.jpv. is LENGRI SKÓLASKYLDU Lengja ætti skólaskyldu hér á landi til 18 ára aldurs, að mati Dags B. Eggertssonar, læknis og borg- arfulltrúa. Hann segir það geta haft forvarnagildi gegn fíkniefnaneyslu ungmenna, en hann er formaður stýrihóps forvarnaverkefnisins Ungmenni í Evrópu – gegn fíkniefn- um. Fötluð stúlka dúx í FG Freyja Haraldsdóttir, 19 ára stúlka sem bundin er við hjólastól og þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi, náði besta námsárangri útskrift- arnema í Fjölbrautaskóla Garða- bæjar en útskrift var í gærmorgun. Hún segir að aðstoð stuðningsfull- trúa og viðmót skólans hafi skipt miklu máli. Samið um fjárhag ESB Leiðtogar ríkja Evrópusam- bandsins fögnuðu í gær málamiðl- unarsamkomulagi um fjárhags- áætlun sambandsins fyrir árin 2007–2013. Samkvæmt sam- komulaginu gefa Bretar eftir hluta af afslætti sem þeir hafa notið af gjöldum til ESB frá árinu 1984. Á móti kemur að Evrópusambandið á að taka öll útgjöld sín til endurskoð- unar á árunum 2008–2009, meðal annars til sameiginlegu landbún- aðarstefnunnar. Breytingar framundan Búast má við hröðum gróð- urbreytingum hér á landi í kjölfar mikilla loftslagsbreytinga, sem vís- indamenn segja mestu loftslags- breytingarnar í 5.000 ár í Evrópu. Benda rannsóknir þeirra til þess að ef hlýni verulega hér á landi megi búast við hröðum gróðurbreytingum á svæðum þar sem lyngmóa er að finna, en hægfara breytingum þar sem mosaþemba er allsráðandi. Erf- itt er að segja fyrir hvaða áhrif hlýn- unin hefur á hafið í kringum landið. Deilt um útflutningsstyrki Í fyrstu drögum að samkomulagi á ráðherrafundi Heimsvið- skiptastofnunarinnar (WTO) í Hong Kong er ekki tímasett nákvæmlega hvenær afnema eigi útflutnings- styrki til bænda í auðugum ríkjum heims. Útflutningsstyrkirnir eru á meðal helstu deilumálanna á ráð- herrafundinum. Búist er við að sam- ið verði um breytingar á drögunum áður en fundinum lýkur í dag, sunnudag. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Myndasögur 58 Menning 43, 62/63 Dagbók 58/61 Sjónspegill 39 Víkverji 58 Forystugrein 36 Staður og stund 60 Reykjavíkurbréf 36 Leikhús 62 Umræðan 44/51 Bíó 66/69 Bréf 47 Sjónvarp 70 Minningar 52/54 Staksteinar 71 Hugvekja 55 Veður 71 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is EIGENDUR sumarhúsa í Skála- brekku, rétt utan þjóðgarðsins á Þingvöllum, eru afar ósáttir við nýtt aðalskipulag á svæðinu, og hafa skor- að á umhverfisráðherra að sam- þykkja ekki skipulagið. Í deiliskipu- lagstillögum fyrir svæðið er gert ráð fyrir að sumarhús í Skálabrekku verði þrefalt fleiri en nú er. Í bréfi hagsmunasamtaka íbúa Skálabrekku til umhverfisráðherra kemur fram að það skjóti skökku við að samþykkja aðalskipulag óbreytt þegar nýbúið er að samþykkja vatns- verndarfrumvarp fyrir Þingvelli. Í aðalskipulaginu er gert ráð fyrir um 30% fjölgun sumarhúsa á því svæði sem fellur undir skipulagið. Í Skála- brekku einni bætast 26 hús við þau 13 sem fyrir eru, og verður heimilt að reisa allt að 200 fermetra hús með 25 fermetra geymslu, en húsin sem nú standa á aðalskipulagssvæðinu við Þingvallavatn eru um 50 fermetrar að meðaltali. „Þetta er ekki í þeim anda sem hin húsin eru, þetta er alveg út úr kort- inu,“ segir Axel Helgason, einn sum- arhúsaeigendanna í Skálabrekku. Hann segir að sé einhver alvara á bak við hugmyndir um að stækka þjóð- garðinn sé óeðlilegt að samþykkja að- alskipulagið. Heimilt að setja reglur Í vatnsverndarfrumvarpi sem sam- þykkt var á Alþingi fyrr á árinu segir að innan vatnsverndarsvæðisins megi ekki gera neitt það sem spillt geti vatni eða mengað það. Ennfremur að umhverfisráðherra setji nánari regl- ur um framkvæmd vatnsverndarinn- ar, en í því felst að heimilt verður að setja reglur m.a. um jarðrask, bygg- ingu mannvirkja, borun eftir vatni, töku jarðefna o.fl., eins og fram kem- ur í frumvarpinu. Axel segir það tímaskekkju að samþykkja nýtt aðalskipulag þegar eftir sé að semja reglugerðina um mannvirkjagerð sem falli undir vatns- verndarlögin. Hagsmunasamtök íbúanna benda í bréfi sínu á að við 30% fjölgun húsa, eins og gert er ráð fyrir í aðalskipu- lagi, sem að meðaltali verði 150 fer- metrar að stærð yrði aukningin á byggingarmagni á skipulagssvæðinu um 85%, enda húsin sem fyrir eru að meðaltali einungis um 50 fermetrar. „Það hlýtur að skarast á við tilgang vatnsverndarfrumvarpsins og skor- um við því á ráðherra að staðfesta ekki aðalskipulagið óbreytt,“ segir í bréfinu til umhverfisráðherra, en undir það skrifar um tugur eigenda sumarhúsa í Skálabrekku við Þing- velli. Ef umhverfisráðherra staðfestir aðalskipulagið, og Bláskógabyggð samþykkir deiliskipulag á svæðinu sem sumarhúsaeigendur hafa þegar gert athugasemd við, segir Axel mikl- ar líkur á því að sumarhúsaeigend- urnir muni leita til úrskurðarnefndar. Á að falla að byggð Skýrt sé að viðbótarbyggð eigi að falla að þeirri byggð sem fyrir er, og ekki sé með nokkru móti hægt að sjá að 26 hús sem geta orðið allt að 225 fermetrar að stærð falli að 13 húsum sem séu mun minni. Axel segir ekkert benda til annars en að húsin verði nálægt hámarks- stærð, búið sé að byggja tvo bústaði á svæðinu sem eru hvor um 170 fer- metrar, og teikningar liggi fyrir að þeim þriðja sem verði um 178 fer- metrar. Eigendur sumarhúsa við Þingvelli ósáttir við skipulag sumarhúsabyggðar Skora á ráðherra að staðfesta ekki nýtt skipulag svæðisins Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is ÞEGAR skólahaldi lýkur vinna þær Snæfríður Jóhann- esdóttir, Hildur Kristín og Hrefna Hallgrímsdætur sér inn aukapening fyrir jólin með því að tína túlípana í gróðrarstöð Dalsgarðs í Mosfellsbæ. Í Dalsgarði eru ræktaðir um fimmtíu þúsund túlípanar fyrir jólahátíð- ina en þeir hafa orðið æ vinsælli á undanförnum árum og þykir mörgum jólatúlípaninn orðinn fastur liður í jólahaldi Íslendinga. Morgunblaðið/RAX Túlípanar tíndir fyrir jólahátíðina STJÓRN kauphallarinnar í Ósló ákvað í fyrradag að sekta Kaup- thing ASA, dótturfélag Kaupþings banka, um 500 þúsund norskar krónur, eða 4,7 milljónir íslenskra króna, fyrir ítrekuð brot á starfs- reglum kauphallarinnar í tengslum við tilboð í hlutabréf. Segir í tilkynn- ingu kauphallarinnar að brotin hafi haldið áfram þrátt fyrir viðvaranir. Norska blaðið Dagens Næringsliv hefur eftir Jan Petter Sissener, for- stjóra Kaupthings ASA, að hann hafi ekki vitað af þessu fyrr en kaup- höllin lét hann vita fyrir tæpum mánuði en segir að nú hafi verið komist fyrir þessi vandamál sem séu tæknilegs eðlis. Blaðið hefur eftir Sissener, að Kaupthing sé nú eins og pylsuvagn sem verið sé að breyta í alvöru verðbréfafyrirtæki. Kaupþing í Noregi sektað af kauphöllinni LÖGREGLAN í Keflavík gerði hús- leit á föstudagskvöld á heimili í Keflavík vegna gruns um fíkniefna- misferli. Við leitina fundust um 40 grömm af amfetamíni og um 10 grömm af hassi. Sex voru hand- teknir en sleppt að loknum yf- irheyrslum og telst málið upplýst. Fundu fíkniefni við húsleit GUNNAR Egilsson bílasmiður, sem nýverið setti glæsilegt heims- met, þegar hann og föruneyti komst á suðurpólinn á landfarartæki á að- eins 70 klukkustundum, er lagður af stað frá suðurpólnum eftir nokk- urra daga dvöl. Ferðin til baka hófst að kvöldi dags hinn 15. des- ember og keyrt er til Patriot Hills en þaðan var lagt af stað í upphafi. Áætlað var að leggja af stað tveimur dögum fyrr, en vandræði urðu með að endurnýja eldsneyt- isbirgðir og þurfti að senda eftir flugvél með olíu. Þrír af fimm mönnum úr föruneyti Gunnars ákváðu að fljúga með vélinni til Pat- riot Hills og voru því aðeins tveir eftir til að keyra bílinn til baka. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gengur ferðin með ágætum, er ferðahraði mun meiri og olíu- eyðslan tvöföld á við leiðina að pólnum en færið er jafnframt nokk- uð þungt. Áætlað er að Gunnar verði kominn til Patriot Hills seinni partinn í dag eða snemma á morg- un. Lagður af stað heim frá suðurpólnum Keyra aðeins tveir til baka Gunnar Egilsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.