Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 31

Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 31 FRÉTTIR Ármúla 10 • Sími: 5689950 Jólatilboð Með hverri sæng fylgir 50x70 gæsadúnskoddi frítt með að verðmæti kr. 11.800 Duxiana Royal Gæsadúnssængur 140x200 kr. 34.980 140x220 kr. 39.360 150x210 kr. 39.360 220x220 kr. 58.880 260x220 kr. 68.640 fiegar íslensku ostarnir eru bornir fram, einir sér, á ostabakka e›a til a› kóróna matarger›ina – flá er hátí›! Engin jól án fleirra! Dala-Yrja Sígildur veisluostur sem fer vel á ostabakka. Höf›ingi Brag›mildur hvítmygluostur sem hefur slegi› í gegn. Jóla-Brie Á ostabakkann og me› kexi og ávöxtum. Jóla-Yrja Brag›mild og gó› eins og hún kemur fyrir e›a í matarger›. Camembert Einn og sér, á ostabakkann og í matarger›. Blár kastali Me› ferskum ávöxtum e›a einn og sér. Stóri-Dímon Ómissandi flegar vanda á til veislunnar. Gullostur Brag›mikill hvítmygluostur, glæsilegur á veislubor›i›. Jólaostakaka með skógarberjafyllingu Kætir bragðlaukana svo um munar. Jólaosturinn 2005 Sérframleiddur ostur í ætt við Gouda. Mjúkur og mildur. Grá›aostur Tilvalinn til matarger›ar. Gó›ur einn og sér. Rjómaostur Á kexi›, brau›i›, í sósur og íd‡fur. Hrókur Ljúffengur hvítmygluostur með gati í miðjunni. Nýtt Nýtt Nýtt Nýtt Þegar líður að jólum ogveiðimenn láta sigdreyma um veiði-ævintýri komandi sum- ars birtast ýmiskonar afþreying- arefni og vænlegar gjafir fyrir veiðimenn í hillum verslana; kvikmyndir og bækur sem fræða og skemmta veiðimönnum heima í stofu. Að þessu sinni lítur út fyrir að einungis ein bók um stangveiði komi út, Vötn og veiði – Stang- veiði á Íslandi 2005. Höfundur hennar, Guðmundur Guðjónsson, hefur um árabil skrifað Stanga- veiðiárbókina en hún birtist nú í nýju og endurbættu formi, þar sem meiri áhersla er lögð á að kynna tiltekin veiðisvæði en að þessu sinni eru það Kjarrá, Brenna, Hrolleifsdalsá og Tungu- lækur. Þá er bókin ríkulega myndskreytt fjölbreytilegum myndum frá bökkum vatnanna. Á þriðja tug veiðisvæða í Veiðilandinu Eggert Skúlason og Börkur Bragi Baldvinsson hafa gefið út DVD-diskinn Veiðilandið sem hef- ur að geyma 75 mínútur af úrvals- efni um stangveiði, m.a. nokkur helstu augnablikin úr stang- veiðiþáttunum Sporðaköstum. Verulegur hluti myndefnisins hef- ur þó ekki sést áður auk þess sem það hefur verið klippt saman á nýjan hátt; þannig kom aðeins fátt af efninu blaðamanni kunnuglega fyrir sjónir þótt hann hafi séð alla Sporðakastaþættina, suma oftar en einu sinni. Á þriðja tug veiði- svæða kemur við sögu og fjallað er um bæði lax- og silungsveiði, veiði með flugu, spæni og maðki. Margar eftirminnilegar tökur er að finna í Veiðilandinu, ekki síst undir vatnsborðinu, en þegar Eggert er spurður hvaða taka honum sé eftirminnilegust segir hann það hafa verið þegar laxinn í Dönustaðagrjótum hafi tekið maðkinn og tekist hafi að mynda það. „Við vorum búnir að reyna ár eftir ár að mynda þetta. Friðrik Guðmundsson kvikmyndatöku- maður fór þarna út í hylinn með búnaðinn og við skildum hann bara eftir. Svo komum við aftur töluvert seinna en Árni Bald- ursson sagði að þetta þýddi ekk- ert – að vera svona alveg ofan í þessu. En ljúfmenni sem hann er fékkst hann til að reyna. Það gekk bara í hvelli og sem betur fer heyrist ekki upprunalega hljóðið vegna þess að menn öskr- uðu upp yfir sig og létu öllum ill- um látum.“ Eggert segir að framleiddar hafi verið um 900 mínútur í Sporðaköstum af útsendu efni, talað sé um að klippihlutfallið sé um 10% eða jafnvel lægra og því liggi óhemju vinna að baki þáttunum og Veiðilandinu með tilheyrandi ferðalögum vítt og breitt um landið. Veiðilandið er til sölu í öllum verslunum Hag- kaupa. Mortensen kennir að hitsa Henrik Mortensen er danskur kastkennari, leiðsögumaður og veiðarfærahönnuður með meiru. Hann hefur veitt á Íslandi um árabil og hér gerði hann sína fyrstu kennslumynd, The Perfect Cast, en hún vakti mikla athygli. Nú er komin út þriðja kennslu- mynd Mortensen, Cracking the Code, en hún var einnig tekin upp hér á landi síðasta sumar. Í Cracking the Code veiðir Mortensen í Eystri-Rangá, Blöndu og Miðfjarðará. Áherslan er lögð á tilsögn í hitsi, eða Port- landsbragðinu. Mortensen er af- burða kastari og veiðimaður og á þessum diski fræðir hann áhorf- endur um það hvernig á að bera sig að við laxveiðar í ólíku straumvatni í mismunandi að- stæðum. Kvikmyndatakan er af- bragðsgóð og eftirminnilegt er að sjá Mortensen fá stórlaxa ítrekað í hitsið í Blöndu, og negla að lok- um. Þá eru hitstökurnar ekki síð- ur glæsilegar í hvítfyssinu í Hlaupunum í Austurá. Mortensen segir menn oft hafa vanmetið möguleikana í þessari veiðitækni, sem að hans mati er sú æsilegasta, þar sem flugan blasir alltaf við veiðimanninum. Í myndinni veiðir hann þannig á hits í Eystri-Rangá, þar sem fluguveiðimenn freistast yfirleitt til að treysta á þungar túpur. Cracking the Code er seld í verslunum Veiðihornsins. STANGVEIÐI Sófaveiðar heima í stofu efi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.