Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 34
34 SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sigurður Bjarnason frá Vigur,fyrrum ritstjóri Morgun-blaðsins, alþingismaður ogsendiherra er níræður í dag.
Hann starfaði á ritstjórn Morgun-
blaðsins um nær 30 ára skeið, fyrst
sem blaðamaður, síðan stjórnmála-
ritstjóri og loks ritstjóri frá 1956 til
1970. Hann er eini maðurinn í sögu
Morgunblaðsins, sem hefur borið
titilinn stjórnmálaritstjóri. Tvisvar
sinnum eftir að hann hætti á blaðinu
kom til umræðu að taka þann titil
upp á ný. Í bæði skiptin var horfið
frá því m.a. vegna þess að ritstjórar
blaðsins töldu að einhverjir gætu
skilið það starfsheiti á þann veg, að
þeir sjálfir hefðu ekkert með stjórn-
málaskrif blaðsins að gera.
Í hinni yfirgripsmiklu sögu Valtýs
Stefánssonar, ritstjóra Morgun-
blaðsins um nær fjögurra áratuga
skeið, sem Jakob F. Ásgeirsson
skrifaði, segir svo um upphaf starfa
Sigurðar Bjarnasonar á blaðinu:
„Fljótlega eftir að Jón Kjartans-
son lét af stjórnmálaritstjórn Morg-
unblaðsins fór Sigurður Bjarnason
frá Vigur, alþingismaður og síðar
sendiherra að skrifa reglulega um
stjórnmál í blaðið. Sigurður hafði
starfað á blaðinu í ígripum meðfram
námi. Um stjórnmálaskrif Sigurðar
fórust Valtý þessi orð á 40 ára af-
mæli blaðsins:
„Væri óskandi að Morgunblaðið
og Sjálfstæðisflokkurinn fengi að
njóta starfskrafta Sigurðar sem
lengst í þessari stöðu hans.“ En Sig-
urður var ekki skráður í „haus“
blaðsins, sem stjórnmálaritstjóri
fyrr en á afmælisárinu 1953.“
Ekki veit ég um tildrög þess, að
Sigurður Bjarnason var ráðinn til
starfa á Morgunblaðið en hugsan-
lega má finna hluta af skýringunni í
bók Jóns Þ. Þór um dr. Valtý Guð-
mundsson, en þar segir:
„Heimildir geta hvorki framgöngu
Valtýs Guðmundssonar í þessu máli
(innskot: deilur í Bandamannafélagi
Reykjavíkurskóla) en afar líklegt
verður að telja að hann hafi fylgt
Sigurði Stefánssyni og samherjum
hans að máli. Sigurður, sem síðar
varð prestur og alþingismaður og er
tíðast kenndur við Vigur í Ísafjarð-
ardjúp, var frá Heiði í Gönguskörð-
um og bróðir Stefáns Stefánssonar,
bernskuvinar Valtýs.“
Séra Sigurður Stefánsson í Vigur
var afi Sigurðar Bjarnasonar og föð-
urbróðir Valtýs Stefánssonar, rit-
stjóra.
Ég hafði fylgzt með stjórnmála-
baráttu Sigurðar Bjarnasonar á
menntaskólaárum mínum og las
reglulega leiðara Morgunblaðsins á
þeim árum. Okkur vinum Jóns Bald-
vins Hannibalssonar líkaði heldur
illa hinn vestfirzki bragur, sem var á
málflutningi Sigurðar frá Vigur í
garð Hannibals Valdemarssonar en
þar féllu stóryrði á báða bóga. Í leið-
urum Morgunblaðsins var Hannibal
jafnan kallaður „vitlausi maðurinn í
skutnum“ á þeim árum. Ég taldi
víst, að þá leiðara hefði Sigurður
Bjarnason skrifað.
Löngu seinna, eftir að ég kynntist
þeim báðum persónulega, Sigurði og
Hannibal, varð mér ljóst, að það
ríkti góður hugur hjá báðum, hvor í
annars garð.
Við sem störfuðum í Heimdalli
undir lok sjötta áratugarins og í
upphafi þess sjöunda gerðum okkur
gjarnan erindi á ritstjórnarskrifstof-
ur Morgunblaðsins. Þar var gaman
að koma fyrir unga áhugamenn um
stjórnmál. Að því kom að Sigurður
frá Vigur fór að gefa mér auga. Svo
kyrrsetti hann mig stöku sinnum og
bauð mér að skrifa Staksteina fyrir
fimm hundruð kall, sem ég þáði.
Við Heimdellingar þeirra ára töld-
um hins vegar ekki að þingmenn
landsbyggðarkjördæma væru alvöru
stjórnmálamenn. Við litum svo á, að
þeir væru fyrst og fremst í hags-
munabaráttu fyrir kjördæmi sín,
sem hefði lítið með stórpólitíkina að
gera.
Sigurður tók mér vel, þegar ég
hóf störf á ritstjórn Morgunblaðsins
í byrjun júní árið 1965 og enn betur
þegar hann áttaði sig á, að ég var
með vestfirzkt blóð í æðum og að
móðuramma mín, Sigríður Auðuns-
dóttir frá Svarthamri í Álftafirði við
Djúp, hefði verið sóknarbarn séra
Sigurðar Stefánssonar afa hans.
Þessi tengsl urðu til þess að á milli
okkar varð vinátta, sem hefur staðið
alla tíð síðan.
Ég tók samt meira mark á Matth-
íasi Johannessen og Eyjólfi Konráð
Jónssyni þegar til kom að meta póli-
tíska atburði og þróun mála. Svo
kom að því að á það reyndi, hvorir
hefðu traustari pólitíska dómgreind,
ungu ritstjórarnir tveir eða Sigurð-
ur frá Vigur og snerti hagsmuni
mína töluvert. Það varð úr snemma
á Viðreisnarárunum að ég byði mig
fram til miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins á landsfundi, sem fulltrúi
ungra manna. Eykon og Matthías
töldu nokkuð víst að ég myndi ná
kosningu en andstæðingurinn var
Matthías Á. Mathiesen, sem hafði
unnið glæstan sigur í þingkosning-
unum 1959 í Hafnarfirði og fellt
sjálfan forsætisráðherra minnihluta-
stjórnar Alþýðuflokksins, Emil
Jónsson.
Sigurður sagði: Styrmir minn,
þetta er ágætt hjá þér að fara fram
en þú fellur. Af hverju segir þú það,
sagði ég. Af því að ég er gamall og
vitur lappi, sagði hann. Hvað meinar
þú með því, spurði ég.
Þingmennirnir styðja hver annan
og þeir hafa svo mikil áhrif á á full-
trúa kjördæma sinna að þú hefur
enga möguleika, sagði hann.
Þetta reyndist rétt hjá Sigurði
Bjarnasyni. Pólitísk dómgreind hans
reyndist traustari en vina minna,
Eykons og Matthíasar. Ég féll.
Það er svo önnur saga, að fallið
leiddi til ævarandi vináttu okkar
Matthíasar Á. Mathiesen, sem með
nokkrum hætti endurspeglaði djúpa
vináttu afa míns, Árna Eiríkssonar,
kaupmanns og leikara og afa hans,
Einars Þorgilssonar, útgerðar-
manns snemma á síðustu öld.
En eftir stóð ungur maður, sem
bar mikla virðingu fyrir Sigurði
Bjarnasyni og pólitískri dómgreind
hans og samræðufundir okkar um
stjórnmál urðu tíðari en áður.
Á þessum árum fór það ekki fram
hjá okkur, sem störfuðum á ritstjórn
Morgunblaðsins, að Matthías sá um
daglegan rekstur ritstjórnarinnar.
Hann stjórnaði daglegum fundum
ritstjórnarinnar fjóra daga vikunnar
en Eykon á miðvikudögum og laug-
ardagsmorgnum. Sigurður frá Vigur
tók þessa fundi stöku sinnum, þegar
hinir yngri samstarfsmenn hans
voru fjarverandi.
Verkefnaval hans var gjörólíkt
hinna tveggja. Hann lagði mikla
áherzlu á að aflað yrði frétta af
landsbyggðinni almennt en frá Vest-
fjörðum sérstaklega og frá Bolung-
arvík umfram aðra staði á Vestfjörð-
um. Þetta þótti okkur
blaðamönnunum skondið en hlýdd-
um að sjálfsögðu.
Á þeim árum, sem við Sigurður
frá Vigur störfuðum saman á Morg-
unblaðinu varð mér einu sinni alvar-
lega á í messunni. Vigur stendur í
mynni Skötufjarðar við Djúp.
Tveimur árum áður hafði ég farið
inn í Skötufjörð að heimsækja konu-
efni mitt, sem hafði á æskuárum
verið í sveit á afskekktum bæ innst í
Skötufirði. Þar sem ég hafði sjálfur
verið í sveit kynnti ég mér búskap-
arhætti í Skötufirði og leizt ekki á
blikuna. Svo kom að því eitt sumar
að ritstjórarnir þrír voru allir fjar-
verandi á sama tíma, sem aldrei hef-
ur þótt góð latína á Morgunblaðinu.
Mér var falið að skrifa Reykjavík-
urbréf í fyrsta sinn og gerði það. Og
datt í hug að skrifa um búskapar-
hætti í Skötufirði og lýsti þeim á
þann veg, að þar væri ekki búandi.
Þetta urðu afdrifarík skrif enda
var mér ekki treyst fyrir Reykjavík-
urbréfum aftur fyrr en löngu seinna.
Skötufjörðurinn var fæðingarsveit
Sigurðar frá Vigur. Íbúarnir þar
voru bæði sveitungar hans og kjós-
endur. Mér hafði tekizt að gera gíf-
urlegan usla í kjósendahópi ritstjór-
ans og þingmannsins.
Sigurður kallaði mig á sinn fund
og tók mig rækilega í gegn með
þeim vestfirzka brag, sem mér hafði
áður þótt einkenna skrif hans um
Hannibal Valdemarsson, en – vin-
átta okkar varð sterkari en áður.
Honum var í aðra röndina skemmt.
Ég varð aldrei var við annað en
þeim kæmi vel saman, Sigurði,
Matthíasi og Eykon. Um samstarf
þeirra sagði Matthías í afmælisgrein
um Sigurð sjötugan:
„Aldrei var óþykkt með okkur rit-
stjórum Morgunblaðsins. Samt get-
ur gustað með köflum eins og oft,
þegar stórlyndir menn eiga í hlut en
öll slík veður falla fyrr en varir. Ég
minnist þess ekki að ritstjóri hafi
nokkru sinni verið borinn ráðum á
blaðinu … En menn hafa gengið til
leiks misjafnlega glaðir eins og oft
er. Það var þó fremur fyrr á árum,
þegar afskipti forystumanna Sjálf-
stæðisflokksins af stefnumótun voru
meiri en síðar varð. Nú eru þau eng-
in.“
Fyrir rúmum áratug var ég á ferð
í litlu þorpi, Hesteyri við Hestareyr-
arfjörð í Jökulfjörðum. Þegar geng-
ið var yfir í Aðalvík kom í ljós veg-
arspotti, sem byrjað hafði verið að
byggja upp á milli þessara byggða.
Ég fór að kynna mér sögu þessa
vegarspotta. Þá kom í ljós, að tveir
ungir þingmenn höfðu tekið höndum
saman um að reyna að bjarga þess-
um byggðum með því að efla tengsl-
in á milli þeirra. Það voru þeir Sig-
urður Bjarnason frá Vigur og
Hannibal Valdemarsson, sem þar
voru að verki.
Fundum okkar Sigurðar bar síð-
ast saman snemma á síðasta ári.
Þegar ég kom horfði hann á mig og
sagði: Sjaldséðir hvítir hrafnar!
Skammaði mig svolítið fyrir að hafa
ekki komið fyrr og síðan hófust líf-
legar umræður okkar í milli um póli-
tíkina fyrr og nú.
Við gamlir samstarfsmenn Sig-
urðar Bjarnasonar á ritstjórn Morg-
unblaðsins sendum honum, Ólöfu
Pálsdóttur, eiginkonu hans, börnum
og öðrum afkomendum innilegar
hamingjuóskir á þessum merka af-
mælisdegi mikils Vestfjarðagoða.
Styrmir Gunnarsson
Sigurður Bjarnason
frá Vigur níræður
Sigurður Bjarnason frá Vigur við ritvélina.
Sigurður Bjarnason og Ólöf Pálsdóttir með Chou En Lai, forsætisráðherra Kína.
Í garðinum við sendiherrabústaðinn í London, f.v.: Ólöf Pálsdóttir, Ólafur Páll, Hildur Helga og Sigurður. Fyrrverandi forsetar Norðurlandaráðs.