Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. „ÞETTA hefur gengið, á heildina litið, mjög vel. Ég er í mjög góðum skóla að mínu mati, skóla sem fylgir þeirri stefnu að vera skóli án aðgreiningar og það er ákaflega mikilvægt. Ég hef verið hjá kenn- urum sem líta ekki bara á mig sem fatlaða heldur sem manneskju og hafa treyst mér til að læra. Það er það sem hefur haldið mér gangandi,“ segir Freyja Haraldsdóttir, 19 ára stúlka sem útskrif- aðist frá Fjölbrautaskóla Garðabæjar með besta námsárangurinn af þeim 38 stúdentum sem út- skrifuðust í gær þrátt fyrir að þjást af sjaldgæfum sjúkdómi, osteogenesis imperfecta. Sjúkdómurinn veldur því að sjúklingurinn býr við stöðuga hættu á beinbrotum og er Freyja bundin við hjólastól. Hún hefur þó ekki látið það aftra sér frá því að ljúka námi á þremur og hálfu ári af félagsfræðibraut skólans. Hún segir að stuðningur skólans og aðstoð stuðningsfulltrúa sem hún naut meðan á skóla- göngunni stóð hafi skipt miklu máli. „Stuðningsfulltrúinn hefur eiginlega verið mínar hendur og fætur. Yfirleitt hefur það gengið mjög vel og þegar það er, þá á ég jafnauðvelt með þetta og allir aðrir,“ segir Freyja og bætir við að aðgengi fyrir fatlaða í FG sé til fyrirmyndar. Aðspurð um framtíðaráform sín segir Freyja að framundan sé hvíld frá námi en hún mun taka að sér sérkennslu á leikskóla fram á haust og segir óráðið hvað taki við þá. Það kom í hennar hlut að halda ræðu fyrir hönd stúdenta við útskriftarathöfnina. Þar þakkaði hún skólanum, fyrir hönd hópsins, og sagði frá reynslu sinni af náminu og hvernig afstaða hennar til náms hefði breyst eftir að hún byrjaði í skólanum. Þegar blaðamaður innti hana eftir því hver væri kjarni ræðunnar sagði Freyja að við ættum öll að velja rétt og gera það sem okkur langar að gera. „Ekki gera eitthvað fyrir aðra, heldur eitthvað sem lítur vel út fyrir okkur og í hjarta okkar,“ sagði Freyja. „Líta ekki bara á mig sem fatlaða heldur sem manneskju“ Morgunblaðið/Kristinn Freyja Haraldsdóttir útskrifaðist frá FG í gærmorgun ásamt 37 öðrum nemendum skólans. Freyja var með besta námsárangurinn af hópnum. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is DAGUR B. Eggertsson, lækn- ir og borgarfulltrúi, er þeirrar skoðunar að lengja eigi skóla- skyldu til átján ára aldurs þar sem það geti haft forvarnar- gildi gegn fíkniefnaneyslu ung- menna. „Frá sjónarhóli for- varnar blasir við að þegar framhaldsskólinn er brotalöm skiptir mjög litlu máli hvaða árangri við náum í forvörnum með börnunum meðan þau eru í grunnskóla ef þau eru síðan bara látin róa þegar þau eru sextán ára. Það er auðvitað vendipunktur í lífinu hjá mjög mörgum. Ég held að það sé fyllsta ástæða til að ræða það hvernig við eigum að axla þessa ábyrgð sem samfélag gangvart ungu fólki á fram- haldsskólaaldri,“ segir Dagur. Hann er formaður stýrihóps forvarnarverkefnisins Ung- menni í Evrópu – gegn fíkni- efnum sem nú er að hefjast í tíu evrópskum borg- um undir verndar- væng Íslendinga. Verkefnið er á vegum ECAD, samtaka evr- ópskra borga gegn fíkniefnum, og bygg- ist á niðurstöðum ís- lenskra rannsókna sem sýna m.a. að þau börn sem verja a.m.k. klukkustund með fjölskyldu sinni á dag eiga mun síður á hættu að verða fíkniefnum að bráð en börn sem verja litlum sem engum tíma með foreldr- um sínum. Einnig að skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf hef- ur mikið forvarnargildi. Aldrei hærra hlutfall í framhaldsskóla Fram hefur komið í máli Þorgerðar Katrínar Gunnars- dóttur, menntamálaráðherra, að 95% þeirra sem útskrifuð- ust úr grunnskóla sl. vor sóttu um nám í framhaldsskólum landsins, og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, er verndari verkefnisins, og var hann viðstaddur þeg- ar St. Pétursborg, fyrst borga, gerðist formlega aðili að verk- efninu með undirritun í vik- unni. Þar var Dagur einnig og hann segir að aðkoma forset- ans hafi haft mikla þýðingu fyrir verkefnið og ef hans hefði ekki notið við hefði undirritun- in ekki orðið að veruleika á þessum tíma og verkefnið ekki fengið þann meðbyr sem nauð- synlegur er til að hrinda því í framkvæmd. Vill lengja skólaskyldu til átján ára aldurs Dagur B. Eggertsson  Átján ára | 18 JÓLALJÓS og hangikjöt, jólatré með til- heyrandi pakkaflóði og fjölskyldan öll samankomin. Þetta eru myndirnar sem flest okkar tengja við þá hátíðisdaga sem framundan eru. Til eru þó þeir sem breyta út frá viðteknum hugmyndum um jólahald og í Tímariti Morgunblaðsins segja fimm þeirra frá óvenjulegum og eftirminnileg- um jólum sem þeir eiga að baki. „Ef ég man rétt byrjaði þögnin rétt fyrir jólin og varaði í níu til tíu daga,“ segir Ransu, sem gekk undir nafninu Jón Berg- mann Kjartansson áður en andlegur leið- beinandi hans gaf honum nýtt nafn. Jólin 2000 var Ransu staddur á samyrkjubúi í Costa Rica þar sem ákveðið var að hafa þagnarbindindi yfir hátíðirnar. Birgir Jónsson jógakennari var einnig á framandi slóðum jólin 1997 þegar hann ferðaðist um landbúnaðarhéruð Nepals ásamt hópi Íslendinga. Kristinn Einarsson dvaldi níu jól í skála Íslenska alpaklúbbsins í Botnssúlum í Hvalfirði. Fyrstu jólin, þ.e. árið 1985, voru þeirra eftirminnilegust. „Við gátum ekki hitað skálann upp því það var engin kamína í honum og við vorum þarna í tólf stiga frosti,“ segir hann. Þá segir Guðrún Þorkelsdóttir frá jól- unum 1988 þegar sonur hennar fæddist og Arna Björg Bjarnadóttir frá heldur fátæk- legum jólum árið 1996 þegar hún var au- pair stúlka í Bandaríkjunum. | Tímarit Jól af öðrum toga Morgunblaðið/Ásdís Ransu þagði öll jólin 2000 og naut þeirra. TVÆR flugvélar Icelandair sem voru að koma frá Bandaríkjunum hættu við lendingu á Keflavíkur- flugvelli um kl. 7 í gærmorgun og lentu þess í stað á Egilsstaða- flugvelli. Flugstjórar vélanna ákváðu að lenda ekki í Keflavík þar sem mjög misvindasamt var um þetta leyti og bremsuskilyrði slæm, samkvæmt upplýsingum frá Flugmálastjórn Íslands. Fraktflutningavél Icelandair á leið frá Belgíu sneri einnig frá Keflavík og lenti þess í stað á Ak- ureyrarflugvelli. Bremsuskilyrðin bötnuðu skömmu síðar og lentu aðrar vélar heilu og höldnu í Keflavík síðar um morguninn. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair flugu vélarnar frá Eg- ilsstöðum þegar veður hafði batn- að á Keflavíkurflugvelli, og lentu þær um kl. 9.30, tæpum þremur tímum eftir áætlaðan komutíma. Farþegum annarrar vélarinnar var hleypt frá borði á Egils- stöðum, og var lögreglan kölluð á staðinn til að tollskoða þá sem fóru frá borði. Sneru frá Kefla- vík vegna veðurs Ljósmynd/Baldur Sveinsson ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF- LIF, var kölluð út rétt fyrir kl. 10 í gærmorgun til þess að sækja sjó- mann sem hafði slasast þegar hann féll í lest íslensks skips sem statt var um 60 sjómílur norður af Horni. Veður var afar erfitt á staðnum, 15–18 m/s að austan, éljagangur og slæmt skyggni. Ókyrrð var í lofti, mikill sjógangur og hætta á ísingu. Þyrlan beið á Ísafirði eftir að veðr- ið gengi niður, en rétt fyrir hádegi var ákveðið að hætta við að ná manninum úr skipinu eftir að í ljós kom að hann var ekki lífshættulega slasaður. Skipið sigldi í kjölfarið með manninn til Ísafjarðar. Hætt við að sækja slasaðan sjómann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.