Morgunblaðið - 21.12.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 29
DAGLEGT LÍF
Konur sem gengið hafa ígegnum fóstureyðingugeta liðið sálarkvalir í
mörg ár á eftir, að því er norsk
rannsókn leiðir í ljós. Á vefnum
forskning.no er greint frá því að
fimm árum eftir fóstureyðingu eru
konurnar kvíðnari en annað fólk.
Fjörutíu konum sem farið höfðu
skyndilega í fóstureyðingu var
fylgt eftir sem og áttatíu konum
sem ákveðið höfðu fóstureyðinguna
með fyrirvara. Tekið var viðtal við
þær og þær gengust undir sál-
fræðipróf og svöruðu spurn-
ingalistum á fjórum mismunandi
tímapunktum, þ.e. tíu dögum eftir
fóstureyðinguna, sex vikum eftir
hana, tveimur og fimm árum.
Anne Nordal Broen stjórnaði
rannsókninni og segir hana sér-
staka á þann hátt að konunum er
fylgt svo lengi eftir. Markmiðið
með rannsókninni var að kanna líð-
an kvennanna og hvernig þær upp-
lifðu fóstureyðinguna eftir á.
Spurningalistarnir mældu t.d. til-
finningar tengdar fóstureyðing-
unni, þunglyndi, kvíða og lífsgæði
almennt.
Spurningarnar eru t.d. um í hve
miklum mæli konurnar hafi bælt
hugsanir og tilfinningar um fóstur-
eyðinguna og einnig um lífsgæði,
ekki tengt atburðinum sem slíkum.
Sektarkenndin
Niðurstöðurnar voru þær að
konur sem farið höfðu í óundirbúna
fóstureyðingu þjáðust mest fyrstu
sex mánuðina og á þeim tíma
meira en þær sem valið höfðu fóst-
ureyðingu sjálfar. Því lengra sem
leið frá fóstureyðingunni voru það
þær sem sjálfar höfðu valið þann
kost sem þjáðust mest. Rann-
sóknin leiddi í ljós að það voru þær
sem helst þjáðust af sektarkennd.
Broen leggur áherslu á að ekki
sé hægt að draga þá ályktun að
kvíði og þunglyndi sem þessar kon-
ur þjást í meira mæli af en aðrar,
séu bein afleiðing af fóstureyðing-
unni. Andleg vanheilsa orsakist
einnig af öðrum þáttum og verið
geti að þær sem valið hafi fóstur-
eyðingu hafi átt við andleg vanda-
mál að stríða fyrir fóstureyð-
inguna. Frekari rannsóknir eru
fyrirhugaðar á þessu sviði.
HEILSA
Kvíði eftir
fóstureyðingu
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar
Fréttir í tölvupósti
! "#$%& '( ' )*+%&
,-& ./ 0'' 111!23+22!&
4
4
5