Fréttablaðið - 17.11.2005, Page 13

Fréttablaðið - 17.11.2005, Page 13
FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2005 13 M F Í K Undirrituð samtök vilja með sameiginlegri yfirlýsingu þessari vekja athygli ríkisstjórnar, sveitarstjórna, stofnana, fyrirtækja og almennings á mikilvægi og sérstöðu vatns fyrir land, þjóð og lífríki. Þótt enginn vatnsskortur sé á Íslandi þá er staðan önnur víðast hvar í heiminum. Gnótt vatns gefur því ekki tilefni til skeytingarleysis af okkar hálfu. Þvert á móti ber okkur að færa lagaumgjörð um vatn í þann búning að hún tryggi rétta forgangsröðun varðandi vatnsvernd og nýtingu og geti verið öðrum þjóðum til fyrirmyndar. Hugsa verður til framtíðar og hafa almannahagsmuni og náttúruvernd að leiðarljósi. Vatn er takmörkuð auðlind og almannagæði sem er undirstaða alls lífs og heilbrigðis. Vatn er frábrugðið öðrum efnum að því leyti að það finnst náttúrulega í föstu, fljótandi og loftkenndu formi og er aldrei kyrrt á einum stað eða einu eignarlandi heldur á stöðugri hringrás um heiminn. Undirrituð samtök telja að aðgangur að vatni sé grundvallarmannréttindi, eins og kveðið er á um í samþykktum Sameinuðu þjóðanna sem Ísland hefur undirgengist. Sérhver maður á því rétt á aðgengi að hreinu drykkjarvatni og vatni til hreinlætis og heimilishalds. Líta ber á vatn sem félagsleg, menningarleg og vistfræðileg gæði sem ekki má fara með eins og hverja aðra verslunarvöru. Nýting vatns skal vera sjálfbær og aðgengi að því tryggt með lögum fyrir núlifandi kynslóð og kyn- slóðir framtíðarinnar. Það er skylda stjórnvalda að tryggja þegnum sínum þennan rétt án mismununar. Það er hlutverk stjórnvalda að tryggja verndun vatns sem náttúruverðmæta sem og að tryggja hollustu og dreifingu vatns til allra þjóðfélagsþegna með fjárfestingu í mannvirkjum og mengunar- vörnum. Vatnsveitur verði því reknar á félagslegum grunni, taki mið af almannahagsmunum og tryggi rétt einstaklinga til nægilegs hreins vatns til drykkjar og hreinlætis á viðráðanlegu verði. Það er jafnframt hlutverk stjórnvalda að tryggja að við nýtingu vatns verði öðrum náttúruverðmætum ekki spillt. Stjórnvöldum ber að tryggja almenningi aðgengi að öllum upplýsingum er varða verndun og nýtingu vatns og stuðla að aukinni virkni almennings og meðvitund um mikilvægi vatns, náttúru og réttrar umgengni við landið. Vegna mikilvægis vatns fyrir íslenska þjóð og lífríki landsins telja undirrituð samtök nauðsynlegt að fest verði í stjórnarskrá Íslands ákvæði um skyldur og réttindi stjórnvalda og almennings hvað varðar réttindi, verndun og nýtingu vatns. Lög og reglugerðir um nýtingu vatns taki því mið af ákvæðum sem viðurkenna rétt einstaklinga til vatns sem og lögum er varða verndun vatns og náttúru. Til að tryggja skilvirka verndun og nýtingu vatns ber stjórnvöldum að skipuleggja stjórnsýslu þannig að eðlilegt jafnvægi sé á milli þessara þátta og réttar einstaklinga til aðgengis að vatni. WWW.BSRB.IS/VATNFYRIRALLA H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 4 4 4 8 FRAMKVÆMDIR „Hún kann sig kirkj- an og tekur ofan fyrir fólkinu,“ segir Páll Ágústsson, formaður sóknarnefndar, en turn Bíldudals- kirkju var tekinn niður í síðustu viku. Ástæðan er sú að timbrið í turninum er farið að fúna og verð- ur að endursmíða hann að mestu leyti. Stefnt er að því að þeim við- gerðum ljúki fyrir áramót. „En þetta er aðeins byrjunin því það á að taka alla kirkjuna í gegn bæði utanhúss og innan svo hún skarti sínu fegursta á aldarafmæli sínu sem er á næsta ári,“ segir Páll. Rögnvaldur Á. Ólafsson, sem oft er nefndur fyrsti arkitektinn, hannaði kirkjuna. - jse Bíldudalskirkja: Endurbætt og tekur ofan BÍLDUDALSKIRKJA Turninn er hér tekinn niður og markar það upphafið á allsherjar andlitslyftingu Bíldudalskirkju, sem á aldar- afmæli á næsta ári. MYND/PÁLL ÁGÚSTSSON DÝRALÍF „Ég er nú bara ósköp feg- inn að hafa hana, það veitir ekkert af smá hjálp við að halda músun- um í skefjum,“ segir Guðbrandur Sverrisson, bóndi á Bassastöðum á Ströndum, en þar hefur brandugla vanið komur sínar undanfarið. „Hún er ekki komin með neitt nafn ennþá en ég gæti nú kallað hana nöfnu,“ segir Guðbrandur um brandugluna. Ekki er óalgengt að branduglur sjáist á þessum slóðum og er þetta ekki í fyrsta sinn sem slíkur fugl heimsækir Bassastaði. - jse Dýralíf á Ströndum: Brandugla hjá Guðbrandi BRANDUGLA Á STAUR VIÐ BASSASTAÐI Bóndinn brá sér út með sterkan ljóskastara og náði þessari ágætu mynd af nöfnu sinni um helgina. MYND/GUÐBRANDUR SVERRISSON Lést eftir rafstuð Ungir menn fengu rafstuð þegar þeir voru að klifra upp á flutningavögnum á lestarteinum í Gautaborg um helgina og lést annar þeirra. Báðir fengu mennirnir sextán þúsund volta straum í sig en öðr- um þeirra tókst að halda sér uppi á þaki vagnsins, hinn féll niður á teinana. SVÍÞJÓÐ DÚFNAFÓÐRUN Í KÍEV Þessi vel búni útigangsmaður var greinilega aflögufær við dúfurnar á torgi í miðborg úkraínsku höfuðborgarinnar Kíev í gær. AP ALMANNAVARNIR Haldin verður æfing við viðbrögðum við alvar- legu slysi um borð í ferju á Seyðis- firði næstkomandi laugardag. Líkt verður eftir því að ferjan Sky Princess sé lögst að brygg- ju og afferming að hefjast þegar sprenging verður í gaseldavél í húsbíl á bílaþilfari. Látið verður sem eldur blossi upp og breiðist hratt út. „Farþegar fyllast skelfingu og reyna að ryðjast frá borði, marg- ir troðast undir auk þess sem all- margir sem á bílaþilfarinu voru eru slasaðir og í mikilli hættu vegna elds og reyks,“ segir í til- kynningu Ríkislögreglustjóra. Að æfingunni standa almanna- varnanefnd Seyðisfjarðar og viðbragðsaðilar á Austurlandi, slökkvilið, lögregla, björgunar- sveitir, Heilbrigðisstofnun Austur- lands, hafnaryfirvöld og Rauða- krossdeildir. Þá sjá um hana Landhelgisgæslan og almanna- varnadeild Ríkislögreglustjóra og að undirbúningi kemur samráðs- nefnd. „Undanfarin misseri hefur verið unnið að gerð viðbragðs- áætlunar vegna atburða af þessu tagi á Seyðisfirði eða á hafinu þar nálægt. Ætlunin er að láta reyna á virkni áætlunarinnar með þessari æfingu,“ segir í tilkynningu. - óká Æft fyrir alvarlegt slys og eldsvoða um borð í ferju í Seyðisfjarðarhöfn: Skelfdir farþegar flýja eld um helgina Á ÆFINGU Í HAUST Myndin er tekin á sameiginlegri æfingu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis- ins og Landhelgisgæslunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.