Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 22

Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 22
 17. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR22 Frásagnir ítalska ríkisútvarpsins af notk- un bandarískra hersveita á hvítum fosfór í sprengjuárásum í umsátrinu um írösku borgina Falluja hafa vakið athygli og óhug. Hvað er hvítur fosfór? Fosfór er frumefni sem notað er við ýmiss konar efnaiðnað, til dæmis áburðarframleiðslu og sprengefnagerð. Hvítur fosfór er eitt þeirra forma sem fosfór tekur á sig og er notkun hans nær eingöngu bundin við hernað. Algengast er að hvítur fosfór sé notaður til að framkalla þykkan reyk sem hermenn geta falið sig í í átökum en efnið binst vatnsgufu í andrúmsloftinu mjög auðveldlega og því er skýið sem myndast hnausþykkt. Hvers vegna er notkun efnisins svona umdeild? Notkun hvíts fosfór til reykframleiðslu er í sjálfu sér ekki svo skaðleg heldur þegar efnið er notað í sprengjur. Enda þótt eldfimi efnisins sé ekki eins mikil og napalms og skyldra efna brennur það nánast af sjálfsdáðum og er brun- inn sérstaklega þrálátur og erfiður viðureignar. Hann étur sig í gegnum húðina á afar sársauka- fullan hátt og lýkur brunanum ekki fyrr en súr- efni er uppurið, til dæmis þegar komið er inn að beini. Hvítur fosfór var notaður í þessu skyni í báðum heimsstyrjöldunum og á tímum kalda stríðsins var þessu rokgjarna efni margoft beitt. Bandaríkjamenn notuðu fosfórsprengjur í ríkum mæli í Víetnam og Saddam Hussein beitti þeim gegn Kúrdum á níunda áratugnum. Er notkun hvíts fosfórs bönnuð? Alþjóða- sáttmálar banna ekki notkun hvíts fosfórs sér- staklega. Hins vegar leggur alþjóðlegur vopna- sáttmáli (CCW) frá árinu 1980 blátt bann við notkun eldsprengja og annarra rokgjarna efna gegn óbreyttum borgurum og í árásum á her- lið sem er innan um borgara. Bandaríkin eru á meðal aðildarríkja sáttmálans en þau hafa ekki staðfest þann hluta sem fjallar um þessa tegund vopna. FBL GREINING: HVÍTUR FOSFÓR Brunasárin éta sig inn að beini Aðgangur að upplýsinga- hraðbrautinni er viðfangs- efni ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú fer fram í Túnis. Í gær tókst Banda- ríkjamönnum að tryggja sér áframhaldandi yfirráð yfir mikilvægasta stjórn- tæki netsins, úthlutun léna, eftir þrýsting nokkurra ríkja um að SÞ færu með þau völd. Heimsfundur upplýsingasam- félagsins (WSIS) hófst í Túnis í gær en á ráðstefnunni sitja yfir tíu þúsund fulltrúar, þar af fjöru- tíu þjóðarleiðtogar. Viðfangsefni hennar er að benda á leiðir til að bæta aðgang fátækari ríkja að internetinu en minnstu munaði að deilur um yfirráð yfir netinu yfirskyggðu þær umræður. Í gær náðist aftur á móti samkomulag um óbreytt ástand. Þrátt fyrir vaxandi þrýsting á undanförnum árum hefur internetið, að minnsta kosti enn sem komið er, fengið að vaxa og dafna óhindrað. Frelsi hefur einkennt netið öðru fremur í stað reglugerða og tálmana sem annars setja svip sinn á samfélag þjóðanna í sívaxandi mæli. Deilurnar í tengslum við fund SÞ í Túnis snúast hins vegar ekki um hvort koma eigi upp einhvers konar netritstjórn heldur hvernig útdeilingu léna eigi að vera háttað og hverjir eigi að fara með það vald. Með lénin í hendi sér Í dag er þetta hlutverka á hendi bandarískrar stofnunar sem nefnist því þjála nafni Internet Corporation for Assigned Names and Numbers, eða ICANN. Hún hefur höfuðstöðvar sínar í Kaliforníu og er stýrt af málsmetandi mönnum úr netsamfélaginu af ýmsum þjóðernum. ICANN er ekki rekin í hagnaðarskyni heldur sér hún, í umboði Bandaríkjastjórnar, um að útdeila IP-tölum og lénum og halda skrá yfir þau, bæði landslén á borð við is og dk og alþjóðalén eins og com og org. Þannig áformaði stofnunin til skamms tíma við að setja klám- efni netsins undir lénið xxx en þeim fyrirætlunum hefur reyndað verið frestað um sinn. Enda þótt verkefni ICANN séu einkum tæknilegs eðlis veita þau stofnuninni umtalsverð völd. Hún gæti til dæmis ákveðið að loka fyrir aðgang að tilteknum landslénum en vitaskuld hefur slíkt aldrei gerst. Þótt stofnunin hafi fengið sinn skerf af gagnrýni þykir hún samt almennt hafa farið með völd sín af ábyrgð og því hafa bandarísk stjórnvöld leyft henni að starfa óáreittri. Barist um netið Sú staðreynd að Bandaríkjamenn ráða yfir eina eiginlega stjórn- tæki internetsins hefur sætt talsverðri gagnrýni og hafa rík- isstjórnir ýmissa landa bent á að eðlilegra sé að slík völd séu í höndum alþjóðasamtaka á borð við SÞ eða annarrar óháðrar stofnunar. Nú þegar starfsleyfi ICANN sé við það að renna út sé rétt að endurskoða þessi mál. Um þetta hafa staðið linnulausar deil- ur í tvö ár og í september bættist Evrópusambandið í hóp gagnrýn- endanna. Bandaríkjamenn hafa aftur á móti staðið fast á þeirri skoðun sinni að breytingar á fyr- irkomulaginu myndu draga úr tækniþróun og færa þeim ríkjum sem berjast gegn tjáningarfrels- inu ritskoðunarvopn í hendurnar. Þessar áhyggjur Bandaríkja- manna eru réttmætar. Þau ríki sem andsnúnust eru áframhald- andi bandarískri stjórn á netinu eru lönd á borð við Íran og Kína en þarlend stjórnvöld reyna leynt og ljóst að koma í veg fyrir óhindraða netnotkun hjá þegnum sínum, auk þess að ritskoða aðra miðla miskunnarlítið. Kínverj- ar hafa, með hjálp fyrirtækja eins og Google og Yahoo, lokað á milljónir vefsíðna sem innihalda efni sem þeim er ekki þóknan- legt og yfirvöld í Teheran fylgj- ast grannt með netnotkun sinna þegna, allt í nafni íslam. Það skýtur hins vegar skökku við að mun auðveldara er að nálgast klámsíður í Íran en heimasíður þar sem ríkisstjórnin er gagn- rýnd, að því er dagblaðið Indep- endent hermir. Sættir náðust Í gær tókst loks að miðla málum á þann veg að umboð ICANN verður endurnýjað og því verður stjórn netsins áfram um sinn í höndum Bandaríkjamanna. Til að róa óánægðu ríkin verður hins vegar settur á fót alþjóðlegur samráðsvettvangur þar sem ýmis mál sem snúa að netinu verða til umræðu, svo sem ruslpóstur, vírusar og tölvuglæpir. Ályktanir hans verða aftur á móti ekki bindandi. Þar með er fulltrúunum 10.000 á WSIS-fundinum ekkert til fyrir- stöðu að einbeita sér að því sem máli skiptir, að efla netnotkun í þróunarlöndunum en eins og sakir standa hefur aðeins brot af íbúum þeirra aðgang að netinu. Þinginu lýkur hins vegar í dag og því ríður á að nota tímann vel. Átök um framtíð internetsins VAFRAÐ Á VEFNUM Ýmis ríki hafa gagnrýnt að stjórn netsins skuli vera í höndum Bandaríkjanna. Þau ríki sem haldið hafa fram hörðustu gagnrýninni eru hins vegar þau sem helst beita þegna sína ritskoðun. NORDICPHOTOS/AFP RÁÐSTEFNAN ÁVÖRPUÐ Zine El Abidine Ben Ali, forseti Túnis, var á meðal þeirra sem ávörpuðu gesti WSIS-ráðstefnunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FRÉTTASKÝRING SVEINN GUÐMARSSON sveinng@frettabladid.is Menntamálaráðherra lofaði auknu fé til íslenskrar kvikmyndagerðar í ræðu sinni er Edduverðlaunin voru veitt á sunnudagskvöldið. Laufey Guðjónsdóttir er forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Hvernig viltu sjá útfærsluna á auknu fé til íslenskrar kvikmyndagerðar? Við þurfum að tryggja að féð nýtist sem best inn í framleiðslu kvikmynda. Leiknar myndir eru kannski þær sem hafa setið lengst á hakanum með að fá aukin framlög úr kvikmyndasjóðnum. Vissir þú að til stæði að auka fjárframlög ríkisins til kvikmynda? Ég vissi að búið væri að vinna heilshugar að því. Verður staðið við þetta loforð? Alveg örugglega. Þorgerður Katrín færi ekki að segja svona nema til að standa við það. Orðin munu standa LAUFEY GUÐJÓNSDÓTTIR Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands SPURT & SVARAÐ KVIKMYNDAGERÐ > Breytingar á afla íslenskra skipa í október milli áranna 2004 og 2005 Svona erum við U FS I K A R FI ÞO R SK U R ÝS A fréttir og fróðleikur -2.369 277 -3.133 -197 Allar tölur eru í tonnum Heimild: Hagstofa Íslands
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.