Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 30
17. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR30
TAKTU NÆSTA SKREF
ALLT A‹
LÁNS
HLUTFALL
75%LÆGRILÁNTÖKU
KOSTNA‹UR
fiEKKING &
fiJÓNUSTA
Frjálsi fjárfestingarbankinn lánar fyrirtækjum og einstaklingum til kaupa á atvinnuhúsnæ›i.
Lánin eru ver›trygg› og geta numi› allt a› 75% af kaupver›i fasteignar. fiú velur hús-
næ›i› sem hentar flér – okkar markmi› er a› veita framúrskarandi fljónustu á sann-
gjörnum kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu í 540 5000 e›a sendu okkur póst
á frjalsi@frjalsi.is. fiú vinnur betur í eigin húsnæ›i!
ATVINNUHÚSNÆ‹ISLÁN
Á nýliðnu þingi Norðurlanda-
ráðs voru samþykktar grund-
vallarbreytingar á norrænu
menningarsamstarfi. Ákveðið
var að leggja niður á einu bretti
miðstöðvar á sviði tónlistar, bók-
mennta, sviðslista og myndlistar
sem um árabil hafa gegnt marg-
víslegum hlutverkum í norrænu
menningarlífi. Þær hafa m.a.
verið tengiliður norrænna lista-
manna og samstarfsvettvangur
þeirra, auk þess að halda utan
um stóran hluta norræna sjóða-
kerfisins. Þær hafa hver með
sínum hætti verið nokkurs konar
útverðir norræns menningar-
samstarfs þar sem listamenn og
fagmenn innan listheimsins geta
treyst því að tungumál þeirra
skiljist og jafnframt að unnið sé
út frá þeim veruleika sem menn-
ingin er sprottin úr. Ekki út frá
tilskipunum að ofan heldur líf-
rænu samspili menningar og
samfélags á hverjum tíma.
Vissulega hefur misvel tekist
til í starfinu hingað til og margt
sem þarfnast endurskipulagning-
ar eigi miðstöðvarnar að standa
undir nafni. En hugmyndin er
góð og hreint engin tilviljun: Með
því að stofna slíkar miðstöðvar
og setja þær í hendur fagmanna
úr viðkomandi listgreinum hvarf
fyrirgreiðslupólitík nánast úr
sögunni og hægt var að byggja
upp samfellu í starfi óháð duttl-
ungum ráðamanna. Þar með
var sömuleiðis hægt að byggja
upp marktækan gagnabanka og
aðgengileg tengslanet, byggð
á virkum samskiptum og þeim
veruleika sem menningin er sam-
ofin. Það hefði því verið ögrandi
og jafnframt sjálfsagt verkefni
fyrir Norrænu ráðherranefndina
að endurskipuleggja þessar mið-
stöðvar í þeim tilgangi að gera
góða hugmynd ennþá betri. Nýta
það sem vel var gert í samhengi
við nýjar vinnuaðferðir og breytt
viðhorf.
Sýndarsamvinna
Undirritaður hefur, ásamt
fulltrúum norrænna listbanda-
laga, fylgst með þessu ferli und-
anfarna mánuði, eða allt frá því
Per Voetman, talsmaður nefnd-
arinnar sem skipuð var til að
endurskoða norrænt menningar-
samstarf, kallaði okkur til fund-
ar við sig í Kaupmannahöfn í júní
síðastliðnum. Áður hafði hann
heimsótt Norðurlöndin öll, kynnt
tillögur nefndarinnar og kallað
eftir ábendingum fagaðila. Og
það vantaði ekki ábendingarnar.
Á fundinum í Menningarráðu-
neytinu í Kaupmannahöfn var
komið inn á ótal gagnrýniverða
þætti í tillögunum. Ekki síst
hvernig hið svokalla „armslengd-
ar“ prinsipp, sem gengur út á að
stjórnmálamenn séu ekki með
puttana í faglegum úthlutunum,
var þar þverbrotið. Í framhaldi
af fundinum var skilað inn end-
anlegri greinargerð sem undir-
ritað var af tugum fagfélaga og
regnhlífasamtaka listamanna á
Norðurlöndunum, þar sem allt
kapp var lagt á málefnalega
gagnrýni og raunhæfar tillögur
til úrbóta svo hér yrði ekki til
enn eitt menningarslysið vegna
vanhugsaðra aðgerða yfirvalda.
Það er skemmst frá því að
segja að þegar málið var lagt
fyrir í sinni endanlegu mynd á
þingi Norðurlandaráðs á dögun-
um, hafði ekkert breyst frá upp-
haflegum tillögum. Ekki hafði
verið gerð ein einasta breyting
byggð á ábendingum, gagnrýni
og tillögum þeirra sem best til
þekkja. Það hafði m.ö.o. ekki
verið tekið tillit til eins einasta
orðs af því sem norrænir fag-
menn höfðu um málið að segja.
Í stað þess að byggja upp var
ákveðið að leggja niður. Það var,
líkt og margt annað um þessar
mundir, gert í nafni skilvirkni og
einföldunar. Einföldun er það svo
sannarlega, því samkvæmt nýju
fyrirkomulagi mun einn sameig-
inlegur sjóður koma í stað allra
miðstöðva og í hann munu lista-
menn og menningarstofnanir
geta sótt, hafandi fyllt út viðeig-
andi eyðublöð. Úthlutanir verða
í höndum stjórnmála- og emb-
ættismanna í sýndarsamvinnu
við fagmenn í listum sem nýttir
verða til friðþægingar eftir hent-
ugleikum. Allt sem heitir upplýs-
ingamiðlun um norræna menn-
ingu, gagnabankar, tengslanet
og samstarfsvettvangur mun
jafnframt heyra sögunni til og
uppsafnaðri þekkingu gefið
langt nef.
Aftur til fortíðar
Með hreinni og klárri vald-
beitingu hafa stjórnmálamenn
hér með tryggt sér beinan aðgang
að öllu því fjármagni sem veitt
verður til norrænna verkefna á
sviði tónlistar, bókmennta, sviðs-
lista og myndlistar um ókomna
tíð. Í því felst hin raunverulega
„hagræðing“. Í stað þess að láta
fagfólk og einstaklinga með
reynslu af listsköpun í samtím-
anum um að vega og meta hvar fé
nýtist best hverju sinni, hafa pól-
itíkusar ákveðið að taka málin í
sínar hendur og hverfa þannig,
ásamt embættismönnum sínum,
áratugi aftur í tímann. Til fyrir-
komulags þar sem listamenn og
listnjótendur búa við geðþótta-
ákvarðanir einstaklinga sem
virðast upplifa lista- og menn-
ingarstarfsemi sem illa nauðsyn
og í besta falli sem nothæft kok-
teilboð í hinum eilífa kosninga-
undirbúningi sem líf þeirra er.
Sú aðferð sem hér er beitt til
að tryggja valdhöfum „rétta“
útkomu, er á góðri leið með að
yfirtaka alla stjórnsýslu. Stjórn-
mála- og embættismenn taka
æ oftar einhliða ákvarðanir í
málum sem þeir hafa litla sem
enga reynslu af en setja síðan
á svið eitthvert sjónarspil sem
kennt er við samráð. Listamenn
hafa ítrekað fengið að kynnst
þessum leikaraskap að undan-
förnu og er skemmst að minn-
ast forkastanlegra vinnubragða
í kringum ráðstefnuhöllina sem
kennd er við Tónlistarhús og
nú síðast lokun Listdansskóla
Íslands þar sem menn eru í
báðum tilvikum að horfa upp á
meingallaðar framkvæmdir. Þá
fyrri litaða af sýndarsamráði
við tónlistarmenn, þá seinni af
yfirgangi ráðherra og síðan inn-
antómum loforðum um samráð
– eftir á.
Smákóngar í ráðuneytum
Blekkingarleikur stjórnmála-
og embættismanna í nafni hins
svokallaða lýðræðis sem heita á
ríkjandi á Norðurlöndunum er
orðinn ákaflega leiðgjarn svo
ekki sé meira sagt. Það heyrir
orðið til fágætra undantekninga
að valdhafar telji sig í þjónustu
þjóðar og hlusti eftir því sem þar
er að finna, hvort sem er í formi
málefnalegrar gagnrýni eða fag-
legra ábendinga þeirra sem best
þekkja til. Það er líkast því að sú
bylting sem orðið hefur í valda-
hlutföllum á sviði efnahagsmála
á undanförnum árum hafi vegið
svo að áhrifamætti stjórnmála-
manna að þeir leiti nú allra
mögulegra og ómögulegra leiða
til að gera sig gildandi.
Þetta nýjasta útspil; að opna
fyrir bein afskipti yfirvalda af
norrænni sköpun og liststarf-
semi, ætti að gefa smákóngun-
um innan ráðuneytanna auknar
vonir. Vísast kominn tími fyrir
þá að setja teinóttu fötin í hreins-
un, því framundan eru ótal flug-
eldasýningar og opnunarhátíðir
stjórnskipaðra uppákoma sem
menningardindlar stjórnsýslunn-
ar geta baðað sig í sem persónu-
legir velgjörðarmenn og hálfguð-
ir. Rétt eins og þeir væru sjálfur
hundraðkallinn Björgólfur í ham.
Verði þeim að góðu.
Höfundur er forseti Bandalags
íslenskra listamanna.
Lige som den Bjorgolfur, altso!
UMRÆÐAN
NORRÆNT MENN-
INGARSAMSTARF
ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON
Í stað þess að láta fag-
fólk og einstaklinga með
reynslu af listsköpun í
samtímanum um að vega
og meta hvar fé nýtist
best hverju sinni, hafa
pólitíkusar ákveðið að
taka málin í sínar hendur
og hverfa þannig, ásamt
embættismönnum sínum,
áratugi aftur í tímann.