Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 58

Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 58
 17. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR34 Umsjón: nánar á visir.is Kögun hagnaðist um 211 milljónir á þriðja ársfjórðungi sem er langt umfram spár viðskiptabankanna sem reiknuðu með 84 milljóna króna hagnaði. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi, sem er að jafnaði slakastur á árinu, er hærri en á bæði þeim fyrsta og öðrum. Frá áramótum hefur samstæðan hagn- ast um 434 milljónir. Að hluta til skýrist afkoman af því að fjármagnsliðir eru jákvæð- ir vegna mikillar gengisstyrking- ar krónunnar. Þeir voru jákvæðir um tæpar fjörutíu milljónir króna á þriðja ársfjórðungi en neikvæð- ir um samtals 265 milljónir á fyrri hluta ársins. Rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) lækkar milli annars og þriðja fjórðungs. Framlegðarhlut- fallið er um 7,9 prósent sem er svipað og á fyrri hluta ársins. Sem fyrr skilar hugbúnaðar- hlutinn mestum hluta hagnaðar- ins, og er vel umfram áætlanir stjórnendanna, en vélbúnaðarhlut- inn er undir áætlunum þótt hann skili ekki tapi. Enn eru töluverðir erfiðleikar í rekstri samstæðunn- ar á Norðurlöndum, einkum í Sví- þjóð þar sem 55 milljóna króna tap varð á rekstri félagsins fyrstu níu mánuði ársins. ■ Íslenska fyrirtækið Industria ehf. hefur gert samning um upp- byggingu á stafrænu dreifikerfi á Írlandi. Industria hefur gert samning við Magnet Networks um að byg- gja upp dreifikerfi fyrir síma og sjónvarp og netsamskipti sem byggist á nýrri tækni. Samningur- inn er metinn á um 3,6 milljarða króna eða um 50 milljónir evra eftir því sem fram kemur í frétt á heimasíðu Industria. Magnet Networks er dóttur- félag CVC á Íslandi ehf., félags í eigu Kenneths Petersonar, fyrrum forstjóra Norðuráls en Industria er meðal annars í eigu Guðjóns Más Guðjónssonar. Báðir komu þeir að starfsemi Íslandssíma. - hb KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 4.986 +3,83% Fjöldi viðskipta: 784 Velta: 33.685 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: ACTAVIS 45,30 +1,30% ... Bakkavör 45,40 +0,70% ... FL Group 15,10 +2,00% ... Flaga 4,25 +1,20% ... HB Grandi 9,30 -0,50% ... Íslandsbanki 15,90 +1,30% ... Jarðboranir 22,60 +2,30% ... KB banki 650,00 +8,30% ... Kögun 55,20 +0,00% ... Landsbank- inn 24,00 +2,10% ... Marel 64,00 +0,00% ... SÍF 4,22 -2,50% ... Straumur-Burðarás 15,60 +0,70% ... Össur 99,50 +0,50% MESTA HÆKKUN KB banki 8,33% Atorka 7,21% Jarðboranir 2,26% MESTA LÆKKUN SÍF -2,54% Dagsbrún -0,59% HB Grandi -0,54% > Markaðspunktar Jarðboranir hafa gert samning við ítalska fyrirtækið Drillmec S.p.A. um kaup á bor af félaginu. Heildarkaupverð borsins er um 800 milljónir íslenskra króna og ætla forsvarsmenn Jarðborana að hann verði kominn til landsins í maí 2006. Jóhannes Kristinsson hefur tekið sæti í stjórn sænska lággjalda- flugfélagsins FlyMe. Félagið er meðal annars í eigu Fons og Burðaráss. Hlutur Novators, fjárfestingarfé- lags Björgólfs Thors Björgólfsson- ar, í finnska fjarskiptafyrirtækinu Elisa er nú um 10,1 prósent. Elisa er næststærsta fjarskiptafyrirtæki Finnlands. GUNNLAUGUR SIGMUNDSSON Forstjóri Kögunar. Kögun umfram væntingar HAGNAÐUR á þriðja ársfjórðungi millj. kr. Hagnaður 211 Spá Íslandsbanka 119 Spá KB banka 76 Spá Landsbankans 56 Meðaltalsspá 84 GUÐJÓN MÁR GUÐJÓNSSON Industria semur á Írlandi Mogginn skúbbaður Frétt Markaðarins um fyrirhugaðar breytingar á hluthafahópi Árvakurs vakti ekki mikla athygli í gær. Morgunblaðið hafði seinni partinn ekki séð neina ástæðu til að grennslast fyrir um málið enda voru engar fréttir um málið á vefriti Morgunblaðsins. Þykir það sæta nokkrum tíðindum að svo stór viðskipti séu ekki ástæða til umfjöllunar á vefritinu en þegar skortur er á upplýsingum, hefur það verið látið nægja að vísa í aðra fjölmiðla. Annað er um hljóðvarp Ríkisútvarpsins að segja sem sagði frétt um málið en án þess að ræða við fulltrúa Árvakurs og án þess að vísa í aðra fjölmiðla. Margir furðuðu sig á litlum áhuga á þessum stórviðskiptum en aðrir sögðu skýringarnar þær að vænta mætti stærri tilkynningar í Morgunblað- inu í dag. Líflegir markaðir Líflegt var á hlutabréfamarkaði innanlands í gær en það er ekki á hverjum degi sem viðskipti í einu og sama félaginu eiga sér stað fyrir rúma 20 milljarða sem raunin varð með bréf í KB banka í gær. Verðbréfamiðlarar leituðu skýringa á viðskiptunum og sitt sýndist hverjum. Einhverjir töldu að tilkynning frá bankanum hefði óvart lekið út en aðrir sögðu að Jón Helgi Guðmundsson í Byko væri augljóslega að bæta við sig hlut í bankanum. Engar innherjatilkynningar höfðu borist í Kauphöllina þegar markaðir lokuðu og fylgjast m i ð l a r a r n i r spenntir með markaðnum í dag. Peningaskápurinn Atorka Group keypti í gær 12,4 prósenta hlut í Jarðborunum og á eftir kaupin 56,25 prósenta hluta- fé í félaginu. Atorka hyggst gera öðrum hluthöfum í Jarðborunum yfirtökutilboð og afskrá félagið úr Kauphöllinni. Viðskiptin með bréf í Jarðborun- um fóru fram á genginu 25 og var greitt fyrir hlutina með hlutabréf- um í Atorku á genginu 6. Samhliða viðskiptunum var tilkynnt um sölu á eigin bréfum Atorku til að greiða fyrir hluta af kaupunum á hlutnum í Jarðborunum. Þau viðskipti fóru fram á genginu 6 en Atorka keypti eigin bréf á markaði daginn áður á genginu 5,65 og nemur gengishagn- aður af þeim viðskiptum rúmlega 10 milljónum króna á einum degi. Rétt áður en viðskipti voru stöðvuð með hlutabréf í Atorku og Jarðborunum sópaði MP verðbréf upp öll bréf sem til voru í báðum félögum. Fjórtán viðskipti voru gerð með bréf í Atorku kl. 12.11 fyrir 20,3 milljónir og fjögur við- skipti með bréf í Jarðborunum kl. 12.12 fyrir 7,6 milljónir. Í öllum til- fellum voru það MP verðbréf sem keyptu bréfin. Lokað var svo fyrir viðskipti með bréf í Atorku kl. 12.23 og í Jarðborunum kl. 12.24. Hækk- uðu bréf í Atorku um 4,51prósent frá opnun og í Jarðborunum um 1,81 prósent. Stjórnarformaður MP verðbréfa er Margeir Péturs- son sem var áður stjórnarformað- ur Jarðborana. Hann er erlendis og svaraði ekki skilaboðum Frétta- blaðsins. Guðmundur Karl Guð- mundsson, forstöðumaður hjá MP fjárfestingarbanka, vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið. Þegar markaðir opnuðu svo aftur hækkuðu bréf Atorku enn og nam hækkunin 6,31 prósent frá opnun markaða um morguninn. Þórður Friðjónsson, fram- kvæmdastjóri Kauphallar Íslands, segir að viðskiptin séu til athugun- ar hjá Kauphöllinni. „Hlutir eins og þessir fara eftir ákveðnu verklagi og við skoðum þetta og leitum eftir skýringum,“ segir hann. Þá var tilkynnt að Magnús Jóns- son, starfandi stjórnarformaður Atorku, tæki við sem forstjóri félagsins og viki tímabundið úr stj- órn. Þorsteinn Vilhelmsson tekur við sem starfandi stjórnarformað- ur Atorku. - hb Eignast meirhluta í Jarðborunum MP verðbréf sópuðu upp bréfum rétt fyrir tilkynningu og skoðar Kauphöllin viðskiptin eins og ávallt þegar óvenjuleg breyting verður. JARÐBORANIR KEYPTAR Atorka jók við hlut sinn í Jarðborunum og þar með myndaðist yfirtökuskylda í félaginu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.