Fréttablaðið - 17.11.2005, Page 74

Fréttablaðið - 17.11.2005, Page 74
 17. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR50 Það hefur varla farið fram-hjá neinum að Jónsbók kom út nú á þriðjudaginn. Það er Einar Kárason sem skráir lífsfer- il þessa athafnamanns og hvergi er skafið utan af hlutunum. Það sveif þó léttur andi yfir Iðuhúsinu þegar vinir og velunnarar Jóns samglöddust honum á þessum tímamótum; líf hans væri nú skrá- sett heimild. Útkomu Jónsbókar fagnað ROKKARINN OG ATHAFNAMAÐURINN Rúni Júl er einnig að gefa út ævisögu og því hafa hann og Jón væntanlega haft margt að ræða um. Kannski þeir gefi sameiginlega út næst? EIGINKONAN OG POPPDROTTNINGIN Ragn- hildur Gísladóttir mætti til að samgleðjast Jóni og er hér með eiginkonu hans, Helgu Hilmarsdóttur. VORUÐ ÞIÐ BÚNIR AÐ HEYRA... Björgólfur Guðmundsson deilir hér góðum brandara með þeim feðgum Jóni og Kristjáni. HÖFÐINGJARNIR RÆÐA MÁLIN Þeir Hallgrímur Helgason og Einar Kárason eru vafalaust að ræða hér ritsmíðar. Kannski Stefán Jón hafi í hyggju að láta annan hvorn þeirra skrá sína sögu. SJÁLFSTÆTT FÓLK? Jón Ársæll Þórðarson var að vonum kampakátur með spúsu sinni, Steinunni Þórarinsdóttur, og Bjarna Degi enda var sjónvarpsþáttur hans Sjálfstætt fólk sigursæll á Edduhátíðinni. SPEKINGSLEG OG FLOTT Popparinn Helgi Björns var glaðbeittur ásamt ljósmyndaranum Páli Stefánssyni og Þóru Guðmundsdóttur. KANNSKI VAR ÞETTA HÖND GUÐS Hvort þeir Jafet Ólafsson, Þröstur Ólafsson og Páll Magnússon hafi verið að gantast með tæknilega örðugleika Kastljóssins skal ósagt látið. GÓÐUR ÞESSI...Brandarinn sem Björólfur sagði var augljóslega svo góður að Jón gat ekki stillt sig um að skella uppúr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.