Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 76
[ TÓNLIST ]
UMSÖGN
Trúbadorinn Þórir, sem kallar
sig nú My Summer as a Salvation
Soldier, var óvæntasta uppgötv-
un síðasta árs.
Fyrsta plata hans, sem kom
út fyrir jólin, var mjög góð þar
sem brothætt rödd hans og
naumhyggjulegur gítarleikurinn
snertu streng í mörgum tónlist-
arunnendum.
Þórir er á svipuðum slóðum
á þessari annarri plötu sinni en
þó er aðeins meira kjöt komið
á beinin. Kassagítarinn er vita-
skuld enn til staðar en hér bætir
hann til að mynda við sig smáum
skammti af hljómborðsleik og
raddtöktum í anda síðustu plötu
Bjarkar.
Anarchists Are Hopeless
Romantics er fín til að hlusta á
í rólegheitum snemma á morgn-
ana eða á köldum vetrarkvöldum.
Textasmíðarnar eru raunsæjar
og hnyttnar og sýna Þóri í glímu
við hið daglega amstur, aðallega
þó samband hans við hitt kynið.
Önnur plata Þóris er virkilega
góð þar sem varla er veikan blett
að finna. Hérna festir hann sig í
sessi sem einn áhugaverðasti tón-
listarmaður þjóðarinnar af ungu
kynslóðinni. Freyr Bjarnason
Meira kjöt á beininu
ÞÓRIR
ANARCHISTS ARE HOPELESS ROMANTICS
Niðurstaða: Með annarri plötu sinni festir
Þórir sig í sessi sem einn áhugaverðasti tónlist-
armaður þjóðarinnar af ungu kynslóðinni.
Sagan endalausa heldur áfram að
vaxa og dafna í breskum slúður-
blöðum. Það er augljóst að Sienna
Miller og Jude Law eiga í einhvers
konar „haltu mér - slepptu mér“
sambandi. The Sun greinir frá
því að Miller hafi viðurkennt að
þau væru orðin par að nýju. „Er
það ekki nokkuð augljóst,“ lýsti
hún yfir við blaðamann og bætti
við að þau væru að vinna í sínum
málum en að hún álíti Jude sinn
besta vin. „Við áttum okkar erfiðu
tíma,“ útskýrði leikkonan.
Það er víst óhætt að taka undir
þau orð leikkonunnar. Eftir að
Law viðurkenndi opinberlega að
hafa haldið framhjá Miller með
barnföstrunni fleygði hún honum
út. Þau náðu síðan saman skömmu
síðar en Adam var ekki lengi í
paradís. Bresku blöðin komust
fljótlega á snoðir um funheitt
ástarsamband Miller og nýjasta
Bond-leikarans, Daniels Craig,
og þar með var ævintýrið úti. Nú
á að reyna blása lífi í ástarsam-
bandið í þriðja sinn. ■
Allt er þá þrennt er
LAW OG MILLER Ætla að reyna í þriðja sinn
á skömmum tíma að tolla saman.
Fyrsta sólóplata söngvarans Garðars
Thórs Cortes er komin út. Platan, sem
heitir Cortes, inniheldur íslenskar og
erlendar söngperlur ásamt nokkrum
nýjum lögum sem voru samin sér-
staklega fyrir Garðar.
Á meðal laganna eru Caruso,
Romanza, Nelle fantazia, Skýið,
Bláu augun, Love is a miracle,
Bæn og Lanterno. Þau tvö síðast-
nefndu eru eftir Einar Bárðarson
og Friðrik Karlsson. Hinn ítalsk-
ættaði Leone Tinganelli samdi
textann við Lanterno.
Garðar hefur sungið mikið
erlendis undanfarin ár. Meðal
annars hefur hann sungið í Royal
Albert Hall í London og Carneg-
ie Hall í New York. Á heimasíðu
Garðars, cortes.is, er hægt að
heyra brot úr nokkrum lögum af
plötunni.
Fyrsta sólóplata Garðars
GARÐAR CORTES Söngvarinn Garðar Cortes
gefur út sína fyrstu sólóplötu.
Reykvískur
skemmtanakóngur
í finnsku fangelsi
Sveik íslenska
tónlistarmenn
og smyglaði dópi
DV2x10 16.11.2005 20:22 Page 1
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára
Frá framleiðendum The Professional
og La Femme Nikita
Sýnd kl. 4 og 6
����
SV MBL
Ný íslensk
heimildarmynd sem
hefur farið sigurför
um heiminn“MEISTARASTYKKI” H.E. Málið
����
DV
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
���
“Frábær kvikmynd,
áhugaverðari og fyndnari en
flestar þær sem boðið hefur
verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára
Þetta var hið fullkomna frí þangað
til þau fundu fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd í Lúxus kl. 5.30, 8 og 10.20
TOPP MYNDIN Á ÍSLANDI
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Separate Lies • Sýnd kl. 6
Enskt tal/íslenskur texti
The Aristocrats • Sýnd kl. 6
Enskt tal
Adams Æble • Sýnd kl. 8
Danskt tal/ótextuð
Lie With Me • Sýnd kl. 8
Enskt tal/íslenskur texti
My Summer of Love • Sýnd kl. 10
Enskt tal
Kung Fu Hustle • Sýnd kl. 10
Enskt texti
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30 og 8
Þetta var hið fullkomna frí þangað
til þau fundu fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.