Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 78

Fréttablaðið - 17.11.2005, Síða 78
54 17. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is 23 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 14 15 16 17 18 19 20 Fimmtudagur NÓVEMBER MIÐVIKUDAGUR 5. október 2005 � � LEIKIR � 19.15 Þór Ak. og Fylkir mætast í DHL-deild karla í handbolta á Aukureyri. � 19.15 Haukar og Pays Diaix mætast í Evrópukeppni kvenna í körfubolta á Ásvöllum. � 19.15 Keflavík og BK Riga mætast í Evrópukeppni karla í körfubolta í Keflavík. � � SJÓNVARP � 07.00 Olíssport á Sýn. Sýnt fjórum sinnum til 09.00 og svo aftur kl. 15.25. � 15.55 Undankeppni HM 2006 á Sýn. Leikur Tékklands og Noregs frá því í gærkvöldi. � 18.05 NFL-tilþrif á Sýn. � 18.05 Fifth Gear á Sýn. � 19.05 X-Games á Sýn. � 20.00 Sýn 10 ára á Sýn. Afmælisveisla í sjónvarpssal þar sem margir bestu íþróttamenn landsins koma í heimsókn. � 21.15 Strákarnir í Celtic á Sýn. Þáttur um íslensku leikmennina hjá Celtic í Skotlandi, þá Theódór Elmar Bjarnason og Kristján Henry Finnbogason. � 22.00 Olíssport á Sýn. 22-23 sport 16.11.2005 12:23 Page 3 FÓTBOLTI Það vakti athygli í síðustu viku þegar greint var frá því að Bolton hefði boðið sjö ára undra- barni í fótbolta, hinum grískætt- aða Ástrala Panos Armenakas, að koma til sín og vera við æfingar í nokkrar vikur á næstunni, en Armenakas þykir búa yfir ótrú- legri tækni og leikskilningi miðað við aldur. Það er ekki aðeins Bolt- on sem hefur áhuga á strák því að yfirmenn unglingastarfs Barce- lona halda ekki vatni yfir honum og hafa boðið föður hans gull og græna skóga fari svo að hann bindi sig spænska stórveldinu til framtíðar. „Við sáum það eiginlega um leið og hann snerti fótbolta í fyrsta sinn, þá ekki orðinn eins árs, að hann hefði óvenjulega hæfileika. Þegar hann var sex ára ákváðum við að gera DVD- disk sem við sendum til nokkurra félaga og þá fór boltinn að rúlla,“ segir faðir hans, John Armenak- as, sem sér um öll þau mál sem koma á borð sonar síns, enda er Panos sjálfur rétt byrjaður að læra að lesa. Umrædd myndbandsupptaka hefur verið í umferð á netinu í nokkurn tíma og hefur það verið til umræðu á nokkrum af helstu spjallsíðum ástralskrar knattspyrnu. Flestir netverj- anna gapa yfir því sem þeir sjá á myndbandinu, enda sýnir Panos knatttækni sem þykir með ólík- indum og efast einhverjir um að upptakan sé ósvikin. „Ég hef séð myndband af Maradona að leika sér með bolta þegar hann var tíu ára. Panos toppar hann,“ segir á einum spjallþræðinum. Faðirinn hefur legið undir nokkurri gagnrýni fyrir að vera strax byrjaður að huga að ferli fyrir son sinn þar sem hann ætti að geta hugsað um það eitt að þrosk- ast og dafnast, svo ekki sé minnst á að leika sér eðlilega og í friði, eins og jafnaldrar hans í Ástral- íu og víðar gera. „Að sjálfsögðu ætti hann að fá að gera það og hann gerir það. Hann verður ekk- ert var við áhuga þessara félaga heldur fær að stunda sinn skóla í friði og fer síðan út að leika með vinum sínum. En hann býr yfir eiginleikum sem gera hann ein- stakan og sem föður hans er mér skylt að gera sem mest úr þessum hæfileikum hans,“ segir John og ver sig með kjafti og klóm. John segir þar að auki að möguleikar Panos til að rækta hæfileika sína séu af skorn- um skammti í Ástralíu þar sem knattspyrnuhefðin sé lítil. „Ég vil ekki þurfa að fara með son minn til Evrópu í framtíðinni en eins og staðan er í dag eru allir bestu þjálfararnir þar. Hér í Ástralíu er lítil sem engin aðstaða fyrir undrabörn eins og Panos.“ Hvað sem verður er ljóst að Panos Armenakas er nafn sem fótboltaáhugamenn ættu að leggja á minnið, því eins og segir á einum spjallþræðinum: „Eftir fimmtíu ár verður þessi strákur löngu orðinn goðsögn.“ vignir@frettabladid.is Sjö ára undrabarni boðið til Bolton og Barcelona Ástralar hafa eignast sína stærstu framtíðarstjörnu í knattspyrnunni. Þrátt fyrir ungan aldur eru stórlið Evrópu farin að bera víurnar í hann. UNDRABARN Panos Armenakas hefur vakið mikla athygli í heimalandi sínu Ástralíu og hafa allir stærstu fjölmiðlarnir þar í landi fjallað um hæfileika hans og getu að undanförnu. FÓTBOLTI Svo virðist sem þolin- mæði stjórnenda enskra félags- liða sé að verða meiri en áður. Það eru um 100 dagar frá því tímabilið hófst á Englandi og enn hefur eng- inn stjóri fengið að fjúka í úrvals- deildinni. Slíkt hefur ekki gerst í tíu ár en á leiktíðinni 1996-97 liðu 86 dagar þar til fyrsti stjórinn fékk að fjúka. Á síðustu tíu árum hafa liðið minnst tíu dagar og mest 52 dagar þar til fyrsti stjórinn í úrvalsdeildinni fékk að fjúka. Leiktíðina 2001-02 voru Leic- ester, Derby og Southampton búin að skipta um stjóra á þessum tímapunkti. Nýtt viðmið var síðan sett í fyrra þegar Southampton rak Paul Sturrock eftir aðeins tíu daga af tímabilinu. Sir Bobby Robson fékk að fjúka viku síðar. Samtök framkvæmdastjóra á Englandi hafa fagnað þessari auknu þolinmæði félagsliðanna sem kristallast í hegðun stjórnar Birmingham í garð Steve Bruce, stjóra liðsins. Birmingham hefur byrjað leik- tíðina afleitlega en stjórnarfor- maðurinn neitar að reka Bruce. „Það er frábært að sjá stuðning- inn sem Bruce fær og hann á það skilið eftir að hafa unnið frábært starf hjá félaginu. Liðin verða að sýna biðlund og það er engin tilvilj- un að tveir sigursælustu stjórar deildarinnar - Sir Alex Ferguson og Arsene Wenger - hafa verið lengst í starfi,“ sagði Frank Clark hjá Samtökum framkvæmda- stjóra. Engu að síður kemur alltaf af því að einhver verður rekinn og á töflunni sem fylgir fréttinni sést hvaða stjórar eru líklegastir til að missa starfið samkvæmt breskum veðbönkum. - hbg Þolinmæði enskra félagsliða farinn að aukast verulega með árunum: Enginn rekinn á fyrstu 100 dögunum TVEIR Í HÆTTU Graeme Souness og David O´Leary eiga báðir á hættu að missa vinnuna í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Hver verður rekinn fyrstur? 1. David O´Leary Aston Villa 2. Alain Perrin Portsmouth 3. Steve Bruce Birmingham 4. Mick McCarthy Sunderland 5. David Moyes Everton 6. Sir Alex Ferguson Man. Utd. 7. Bryan Robson WBA 8. Graeme Souness Newcastle 9. Chris Coleman Fulham HANDBOLTI Í gær var dregið í átta liða úrslit í SS-bikarkeppninni. Karlarnir leika sína leiki 6. og 7. desember en kvennaleikirnir fara fram 17. og 18. janúar. Hjá körl- unum vekur mesta athygli viður- eign Fram og Fylkis í Safamýri en stórleikur átta liða úrslitanna hjá stelpunum er Hafnarfjarðarslag- ur FH og Hauka. SS-BIKAR KARLA: HK-HAUKAR ÞÓR-STJARNAN FH-ÍBV FRAM-FYLKIR SS-BIKAR KVENNA: VALUR-FRAM FH-HAUKAR HK-ÍBV STJARNAN-GRÓTTA SS-bikarkeppnin: Fylkir sækir Fram heim AFTUR Í SAFAMÝRINA Ingólfur Axelsson sækir sína gömlu félaga í Fram heim í átta liða úrslitum SS-bikarsins. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. ÍÞRÓTTIR Sjónvarpsstöðin Sýn fagn- ar tíu ára afmæli. Sýn er fyrsta og eina alhliða íþróttastöð Íslands og margt skemmtilegt hefur gerst í íþróttaheiminum á þessum tíu árum. Í tilefni afmælisins verður í kvöld sendur út veglegur afmæl- isþáttur þar sem litið verður yfir farinn veg. Arnar Björnsson íþróttastjóri mun taka á móti góðum gestum í sjónvarpssal og hann mun renna yfir eftirminnilegustu atriðin síð- ustu tíu árin ásamt gestunum. ■ Tímamót hjá Sýn: Fagnar tíu ára afmæli > Döpur byrjun Golfkonan Ragnhildur Sigurðardóttir byrjaði ekki vel á úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina sem hófst á Spáni í gær. Ragnhildur lék fyrsta hringinn á áttatíu höggum, sjö höggum yfir pari. Ragnhildur fékk engan fugl á hringnum en nældi aftur á móti í fimm skolla og einn tvöfaldan skolla. Ragnhildur er einn 118 kylfinga sem leika tvo hringi í forkeppni mótsins en 44 komast áfram á lokastigið. Þá mætir Ólöf María Jónsdóttir til leiks en hún þurf- ti ekki að fara í forkeppn- ina. FÓTBOLTI Franz Beckenbauer, ein helsta goðsögn þýskrar knatt- spyrnu, segir að það yrði afturför fyrir Michael Ballack að yfirgefa Bayern München til að ganga til liðs við AC Milan eða Manchester United. Ballack er sem kunnugt er samningslaus eftir tímabilið í ár og þykir afar líklegur til að róa á önnur mið. „Þó ég vilji að hann verði áfram hjá Bayern býst ég við því að hann yfirgefi félagið,“ segir Becken- bauer. „En ef hann fer er það eina rétta í stöðunni hjá honum að fara til Real Madrid. Það er eini stað- urinn sem túlka má sem skref upp á við. Með því að fara til Milan eða Manchester United væri hann að taka skref niður á við.“ - vig Franz Beckenbauer: Ballack ætti að fara til Real MICHAEL BALLACK Hefur hug á því að reyna fyrir sér utan Þýskalands. Það ræðst í kvöld hvort framhald verður á þátttöku Keflvíkinga í Áskorenda- keppni Evrópu í körfubolta þegar liðið mætir BK Riga í Lettlandi í Sláturhúsinu í Keflavík. Heimamenn þurfa á 20 stiga sigri að halda, til að vinna upp 19 stiga forskot Lettanna frá því í fyrri leiknum. Sverrir Þór Sverrisson, bakvörður Kefla- víkur, sagði við Fréttablaðið í gær að svo stór sigur væri alls ekki ómögulegur en að jafnframt þyrfti allt að ganga upp hjá liðinu. „Þetta er vel hægt en við þurfum að eiga okkar besta dag, með troðfullt hús á bak við okkur og hittnina í lagi. Ef allt helst í hendur getur allt gerst,“ segir Sverrir, en með liði Riga koma um 100 stuðningsmenn. Sá fjöldi er hins vegar eitthvað sem ber ekki að óttast því að sögn þeirra sem voru á staðnum í fyrri leiknum hefði mátt heyra saumnál detta í íþróttahöllinni á meðan leikurinn fór fram - svo lítil var stemningin á áhorf- endapöllunum. „Það var engin stemning og ég er sannfærður um að áhorfend- urnir geti orðið okkar sjötti maður í kvöld. Riga hefur mjög öflugan miðherja sem náði fullt af sóknar- fráköstum í fyrri hálfleiknum og svo eru þeir með mjög góðan bakvörð frá Bandaríkjun- um sem stjórnar sókn- arleiknum. Við þurfum að stöðva þessa tvo leikmenn.“ K v e n n a l i ð Hauka verður einnig í eldlínunni í Evrópukeppninni í kvöld þegar það tekur á móti franska liðinu Pays D´Aix, sem óhætt er að fullyrða að sé líklega sterkasta félagslið sem komið hefur hingað til lands. Ljóst er að Haukastúlkur munu eiga við ramman reip að draga, en þær töpuðu með 40 stigum ytra fyrir þessu topp- liði riðilsins sem varð einmitt Evrópumeistari árið 2003. Í Pays D´Aix er að finna fjölda landsliðs- kvenna og búast sérfræðingar við því að liðið nái mjög langt í keppn- inni í ár. Það er því um að gera fyrir þá sem hafa áhuga á því að sjá kvennalið í allra fremstu röð að skella sér á Ásvelli í kvöld. EVRÓPUKEPPNIN Í KÖRFUBOLTA: KARLALIÐ KEFLAVÍKUR OG KVENNALIÐ HAUKA VERÐA Í ELDLÍNUNNI Í KVÖLD Getum vel unnið þá með 20 stiga mun Áfall fyrir KA Handknattleikslið KA varð fyrir enn einu áfallinu þegar í ljós kom að skyttan Ragnar Snær Njálsson verður frá keppni í að minnsta kosti þrjár vikur en hann er illa meiddur á hné. Séu meiðslin mjög slæm gæti hann verið frá í 6-8 vikur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.