Fréttablaðið - 20.12.2005, Side 2

Fréttablaðið - 20.12.2005, Side 2
��������������� ���������� ����������� ��������� ��������������� ��������������� ����������������� ���������������� ������������� ������������������������ ���������������������� ����������� ������������� ��� ��������������� ������ ��� ������������� �������������� �������� �� ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� 2 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR UPPLÝSINGATÆKNI Lagðar hafa verið fyrir ríkisstjórn tillögur nefndar iðnaðarráðuneytisins um fjármögn- un nýsköpunarfyrirtækja. Búast má við að tæknifyrirtæki, sem erlend ríki hafa reynt að fá til sín, geri upp hug sinn varðandi flutn- ing af landi brott þegar ljós verða viðbrögð stjórnvalda við tillögum nefndarinnar. „Málið var rætt í ríkisstjórn og verður áfram til skoðunar í þeim ráðuneytum sem málið varðar, forsætis-, iðnaðar- og viðskipta- ráðuneyti,“ segir Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, en tillögur nefndarinnar verða ekki gerðar opinberar meðan þær eru í þeirri vinnslu. Í ráðu- neytinu segjast menn þó átta sig á að málið sé brýnt. Búist er við að tillögur nefnd- arinnar, sem Sveinn Þorgrímsson skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneyt- inu fór fyrir, gangi út á að leiða hér inn endurgreiðslufyrirkom- ulag þróunarkostnaðar tæknifyr- irtækja að norskri fyrirmynd. Sveinn átti líka sæti í nefnd um ytri skilyrði hugbúnaðariðnað- arins sem skilaði tillögum í mars árið 1998. Í þeim er lagt til að fyrirtækjum verði „að danskri fyrirmynd, heimilaður sérstakur auka frádráttur sem geti numið allt að helmingi þess kostnaðar sem þau hafa haft af rannsókna- og þróunarstarfi.“ Þessar tillögur komu ekki til framkvæmda, en þá var gert ráð fyrir að RANNÍS héldi utan um verkefni og endur- greiðslur. „Ef við sjáum fram á stórkostlega hugarfarsbreytingu hjá stjórnvöldum, þá erum við ekki farnir,“ segir Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikja- fyrirtækisins CCP. Fyrirtækið hyggur annars á flutning til Kan- ada og hefur gert könnun meðal starfsmanna sem sýnir að um helmingur þeirra vill flytja. Geng- isþróun hefur hefur dregið úr tekj- um fyrirtækisins, en þær koma að mestu erlendis frá. Guðmar Guðmundsson hjá TM Software, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, segist vongóður um að stjórnvöld taki við sér. „En hættan á því að menn fari er raunveruleg,“ segir hann og bíður ekki einvörðungu viðbragða við tillögum nefndar iðnaðarráð- herra, heldur einnig við tilboði Samtaka upplýsingatæknifyr- irtækja til stjórnvalda um þriðju stoðina frá því í mars. Á móti því að ríkið lagaði þætti sem fyrirtæk- in telja ábótavant í starfsumhverfi þeirra buðust þau til að tífalda tekjur af útflutningi á íslenskum hugbúnaði. „Við höfum verið að reyna að fá ríkið til að vinna með okkur að þessum málum, en gengið ósköp hægt,“ segir Guðmar. Enn hafa ekki komið viðbrögð frá stjórnvöldum við tilboðinu um þriðju stoðina. olikr@frettabladid.is Tæknifyrirtæki bíða aðgerða stjórnvalda Verði ekki hugarfarsbreyting hjá stjórnvöldum flytur tæknifyrirtækið CCP til Kanada. Ríkisstjórnin hefur til skoðunar tillögur nefndar um fjármögnun ný- sköpunarfyrirtækja. Árið 1998 skilaði sambærileg nefnd svipuðum tillögum. FUNDAÐ UM HÁTÆKNI Samtök iðnaðarins stóðu fyrir fjölmennum fundi á Hótel Nordica 18. nóvember síðastliðinn þar sem niðurstaðan var sú að hátækniiðnaður væri í hættu og myndi standa í stað eða dragast saman yrði ekkert að gert. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KABÚL, AP Tímamót urðu í stjórn- málasögu Afganistans í gær þegar þjóðkjörið löggjafarþing kom saman í fyrsta sinn í 32 ár. Hins vegar er ekki víst að allir þingmennirnir séu sérstakir vinir lýðræðisins. Mikil gleði ríkti í Kabúl í gær við setningarathöfnina. Þing- mennirnir sóru embættiseið og hlýddu á tárvotan forseta lands- ins, Hamid Karzai, flytja setning- arræðu sína. „Afganistan stendur loks aftur á eigin fótum eftir ára- tuga stríðsátök og hernám.“ Dick Cheney, varaforseti Bandaríkj- anna, var á meðal áheyrenda og sagði hann það forréttindi. Með setningu þingins er form- legri stjórnmálauppbyggingu landsins eftir innrásina 2001 lokið. Kálið er þó ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Helmingur þing- mannanna 249 eru sagðir stríðs- herrar og nokkrir fyrrum fram- ámenn í talibanastjórninni taka jafnframt sæti á þinginu, meðal annars sá sem stýrði frægu nið- urrifi á 1.500 ára gömlum búdd- alíkneskjum. „Alþjóðasamfélagið mun reyna að láta þingsetninguna líta út fyrir að vera sigur,“ segir Sam Zia-Zarifi, yfirmaður Asíu- deildar mannréttindasamtakanna Human Rights Watch. „Margir Afganar eru hins vegar uggandi um að meirihluti þingmanna hefur brotið mannréttindi.“ - shg Fyrsta lýðræðislega kjörna þing Afganistans í rúm þrjátíu ár kemur saman: Sumir þingmannanna vekja ugg ÞINGHEIMUR Engin formleg þingstörf fóru fram í gær, utan þess að þingmenn sóru embættiseið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP JERÚSALEM, AP Aríel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, varð ekki fyrir varanlegu heilsutjóni eftir vægt heilablóðfall sem hann hlaut á sunnudag. Sharon lá á sjúkrahúsi í gær en búist var við að hann fengi að fara heim í dag. Þrátt fyrir að búist sé við því að Sharon nái fullum bata hafa komið upp spurningar um getu hans til að stjórna landinu fari svo að flokkur hans vinni sigur í kosningum í landinu í mars. Jafnframt hefur því verið velt upp að veikindi Sharons gætu komið gamla flokknum hans, Likud-bandalaginu, til góða. ■ Forsætisráðherra Ísraels: Sharon mun ná sér að fullu ÖRYGGISGÆSLA Talsverðri öryggisgæslu er haldið úti fyrir utan sjúkrahúsið þar sem Aríel Sharon liggur. Tveir vilja í Hallgrímskirkju Tveir umsækjendur sækja um embætti sóknarprests í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík. Umsækjendurnir eru séra Jón Dalbú Hróbjartsson og séra Pjetur Þorsteinn Maack. Kirkjumálaráðherra skipar í embætti sóknarpresta til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar sem í eru fimm fulltrúar úr prestakallinu auk vígslubiskups Skálholtsbiskupsdæmis. ÞJÓÐKIRKJAN Skipreika í ellefu daga Víetnamsk- ur fiskimaður kom á laugardaginn auga á björgunarbát með tvo menn innanborðs. Þeir höfðu verið að flytja lystisnekkju til Ástralíu en hún sökk á leiðinni. Þeir hírðust í björgunarbátnum í ellefu daga án matar en komust af með því að drekka regnvatn og þvag. VÍETNAM DÓMSMÁL Maður sem framvísaði fölsuðum lyfseðli í verslun Lyfju við Smáratorg í Kópavogi í vor var í gær dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. Dómurinn er skilorðsbundinn í tvö ár. Með broti sínu nú rauf maður- inn skilorð fyrri dóms, en þá var hann dæmdur fyrir að hafa brotist inn í átta bíla og stolið úr þremur þeirra. Fram kom að maðurinn hafi í hálft ár, frá því í byrjun maí, verið í meðferð á vegum Byrgisins vegna vímuefnafíknar og svo hafi tekið við meðferð í Krýsuvík, þaðan sem hann á að útskrifast í byrjun febrúar. - óká Þriggja mánaða dómur: Falsaði lyfseðla og rauf skilorð MENNTAMÁL Leikskólinn Dalur í Kópavogi hefur tilkynnt foreldr- um barna í skólanum að vegna manneklu í starfsmannamálum loki deildum í leikskólanum eftir áramót. Að sögn Hönnu Maríu Ásgríms- dóttur aðstoðarleikskólastjóra verður ein deild lokuð á hverj- um degi, en það þýðir að 20 til 27 börn geta ekki mætt í skólann dag hvern. Einhver börn þurfa að vera heima tvo daga í viku vegna manneklunnar en ekki er búið að ákveða hvernig að því verður staðið. Fundur um málið verður hald- inn með foreldrum á morgun þar sem skýrt verður frá stöðu mála. Hanna María segir að við- brögð frá foreldrum hafi enn sem komið er ekki verið mjög mikil en að þau ættu örugglega eftir að aukast næstu daga. „Það sagði reyndar ein móðirin við mig að hún ætti kannski bara að gleðjast yfir því að þetta hefði ekki gerst fyrr,“ segir Hanna María. Töluvert hefur verið um lok- anir hjá leikskólum í Kópavogi og þegar lokanirnar hjá Dal voru bornar undir Gunnar Birgisson, bæjarstjóra í Kópavogi, kannaðist hann ekki við málið. „Ég bara veit ekkert um þetta,“ sagði Gunnar í samtali við blaðamann. - sk Leikskólinn Dalur í Kópavogi lokar deildum eftir áramót vegna manneklu: Ríflega 20 börn heima í einu GUNNAR BIRGISSON Loka þarf deildum á leikskólanum Dal en bæjarstjórinn í Kópavogi, Gunnar Birgisson, hafði ekki frétt af því þegar málið var borið undir hann. SPURNING DAGSINS Guðmundur, er ekki nóg að opna dyr og glugga upp á gátt? „Það þarf náttúrlega ýmislegt að gera til að losa út slæmt loft.“ Guðmundur Gíslason, forstöðumaður fangelsa á höfuðborgarsvæðinu, er andvígur því að Hegningarhúsinu verði lokað vegna ólofts. GUÐMAR GUÐMUNDSSON Guðmar tók við sem formaður Samtaka upplýsingatæknifyrir- tækja núna í haust. HILMAR V. PÉTURSSON Hilmar er framkvæmdastjóri CCP sem hugleiðir að flytja starfsemi sína til Kanada verði ekki hugarfarsbreyting hjá stjórnvöldum. JÁTUÐUST HVOR ANNARRI Grainne Close og Shannon Sickles voru fyrstar til þess að staðfesta samvist sína. BELFAST, AP Fyrstu samkynhneigðu pörin á Bretlandseyjum til að staðfesta samvist sína voru gefin saman á Norður-Írlandi í gær þegar þrjú samkynhneigð pör létu gefa sig saman í Ráðhúsinu í Belfast. Ný löggjöf, sem veitir samkyn- hneigðum sama eigna- og erfða- rétt og giftum, gagnkynhneigðum pörum, tók gildi á Norður-Írlandi í gær. Í dag tekur löggjöfin gildi í Skotlandi og á morgun fylgja England og Wales í kjölfarið, þar sem meira en sex hundruð sam- kynhneigð pör bíða þess að geta staðfest samvist sína.  Samkynhneigðir í Bretlandi: Geta staðfest samvist sína

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.