Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 80
20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR45
Hljómsveitin Mezzoforte kom
fram í Langholtskirkju fyrr á
árinu á sögulegum tónleikum
þar sem hljómsveitin frumflutti
ásamt Kór Langholtskirkju viða-
mikið djassverk, Kaleidoscope,
eftir Árna Egilsson bassaleikara,
sem á um þrjátíu ára feril að baki
sem einn eftirsóttasti bassaleikari
í hljóðverum stóru kvikmynda-
veranna í Hollywood.
Verkið heitir Kaleidoscope og
er samið í tilefni af 40 ára starfs-
afmæli Jóns Stefánssonar, organ-
ista í Langholtskirkju og stjórn-
anda kórsins.
Tónleikarnir voru teknir upp
og hafa nú verið gefnir út í tilefni
af þrjátíu ára afmæli Jazzvakn-
ingar, sem einnig er á þessu ári.
Diskurinn er óvenjulegur að því
leyti að öðru megin er hann venju-
legur geisladiskur með hljóðritun
af tónleikunum en hinu megin er
hann dvd-diskur með kvikmynda-
upptöku af tónleikunum. Þetta er
í fyrsta sinn sem „tvöfaldur disk-
ur“ af þessu tagi kemur út hér á
landi. ■
Tvíhliða
afmælisdiskur
ÓSKAR GUÐJÓNSSON Í HAM Flutningur
Mezzoforte og Kórs Langholtskirkju á verki
Árna Egilssonar er kominn út á tvöföldum
disk. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
DESEMBER
17 18 19 20 21 22 23
Þriðjudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Jólastjörnurnar Ardís Ólöf
Víkingsdóttir, Rósalind Gísladóttir
og Valgerður Guðnadóttir halda
tónleika í Neskirkju. Á efnisskránni
eru eingöngu jólalög. Á píanó leikur
Vignir Þór Stefánsson.
21.00 Hljómsveitin Moskvitch og
Hljómsveit Hafdísar Bjarnadóttur
koma fram á tónleikum á Kaffi
Kúltúra við Hverfisgötu. Á efnis-
skránni er ný frumsamin tónlist auk
þjóðlagatónlistar frá ýmsum heims-
hornum.
21.00 Graduale Nobili held-
ur jólatónleika við kertaljós í
Langholtskirkju. Á efnisskránni eru
tvö verk fyrir kvennakór og hörpu,
eftir John Rutter og Benjamin
Britten. Elísabet Waage leikur á
hörpu og sex kórfélagar syngja ein-
söng. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
21.00 Tónlistarhópurinn
Camerarctica heldur sína árlegu
jólatónleika í Hafnarfjarðarkirkju.
■ ■ OPNANIR
Sýningin „Eplið og eikin” verður
opnuð í Hönnunarsafni Íslands við
Garðatorg. Tilefni sýningarinnar er
85 ára afmæli Óskars Lárusar
Ágústssonar húsgagnasmiðs, en
með Óskari sýnir dóttir hans, Erla
Sólveig Óskarsdóttir iðnhönnuður.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.10 Skúli Sigurðsson og Stefán
Pálsson flytja erindi, sem þeir nefna
“Á knattspyrnuvelli framfaranna”, á
hádegisfundi Sagnfræðingafélags Íslands
í Fundasal Þjóðminjasafns Íslands.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
■ ■ BÆKUR
20.00 Kristján Þórður Hrafnsson
og Sigríður Jónsdóttir lesa upp á
fimmtugasta Skáldaspírukvöldinu,
sem haldið verður í bókaversluninni
Iðu við Lækjargötu.
hvar@frettabladid.is
...skemmtir þér ; )
EIN VINSÆLASTA
PLATA ÁRSINS!
DÓMAR UM PLÖTUNA
Úrvalið er í Skífunni!
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Póstkröfusími 591-5310 · www.skifan.is
„Virkilega sprækt popp rokk þar sem spilagleðin er í
fyrirrúmi.....besta Írafárs platan til þessa“
Andrea Jónsdóttir - í Popplandi
„Afraksturinn er vel unnin poppplata þar sem feilnótur
eru ekki slegnar... ...Það er gaman að hlusta á
poppsveit sem kann sitt fag“
Helga Þórey Jónsdóttir, Morgunblaðið
„...stútfull af skemmtilegum lögum sem grípa
hlustandann strax... Írafár hefur sig upp fyrir
meðalmennskuna og er með þessari plötu að sanna
sig sem ein af okkar allra bestu poppsveitum“.
Freyr Gígja Gunnarsson, Fréttablaðið.
1.599 kr.
CD
1.999 kr.
CD+DVD
„Það er svo heimilislegt að koma
inn í þessar kirkjur, þær hafa
allar sinn sjarma. Þær hafa líka
allar sinn sérstæða hljóm,“ segir
Ármann Helgason klarinettuleik-
ari og meðlimur í tónlistarhópn-
um Camerarctica sem heldur sína
árlegu kertaljósatónleika í þrem-
ur kirkjum á höfuðborgarsvæðinu
nú í vikunni.
Fyrstu tónleikarnir verða í
Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefj-
ast klukkan 21. Næstu tónleikar
eru annað kvöld í Kópavogskirkju
en þeir síðustu í Dómkirkjunni
í Reykjavík á fimmtudagskvöld.
Tónleikarnir eru klukkustund-
arlangir og hefjast allir klukkan
21.00.
Kertaljósatónleikar Camerarc-
tica hafa verið fastur liður í
aðventuhátíðinni í yfir áratug og
þykir mörgum ómissandi að fá að
setjast inn í kyrrðina og kertaljós-
ið. Enn sem fyrr leikur Camerarc-
tica ljúfa tónlist eftir W.A.Mozart
en hefur að þessu sinni fengið
til liðs við sig ungan hornvirtú-
ós og verðlaunahafa, Stefán Jón
Bernharðsson.
„Það er gaman að hafa hann
meðferðis. Hann ætlar að leika fal-
legan hornkvintett eftir Mozart,“
segir Ármann.
Auk Ármanns skipa Camerarc-
tica þau Hallfríður Ólafsdóttir
flautuleikari, Hildigunnur Hall-
dórsdóttir fiðluleikari, Guðmund-
ur Kristmundsson lágfiðluleikari,
Guðrún Þórarinsdóttir lágfiðlu-
leikari og Sigurgeir Agnarsson
sellóleikari.
„Í ár flytjum við eitt verk sem
ekki er eftir Mozart. Það er kvart-
ett fyrir klarinett og strengi eftir
Bernhard Crusell, heiðklassískt
verk svolítið í anda Mozarts. Þessi
maður er sænskur Finni, fæddur í
Finnlandi en bjó í Svíþjóð,“ segir
Ármann og lýsir tónverki hans
sem Mozart með skandinavískum
blæ. ■
Mozart við kertaljós
CAMERARCTICA Tónlist eftir Mozart verður flutt í þremur kirkjum á höfuðborgarsvæðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA