Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 86
Er mikill kví›i, depur› e›a flunglyndi a› hrjá flig
e›a flína? Leita›u a›sto›ar. Lei›in út úr svart-
nættinu er styttri en flú heldur. Haf›u samband
vi› heilsugæsluna, hringdu í Hjálparsímann 1717
e›a leita›u til Ge›svi›s LSH e›a FSA.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sænska söngkonan Lisa Ekdahl
heldur tónleika í Háskólabíói föstu-
daginn 24. mars næstkomandi.
Ekdahl hélt tvenna tónleika hér á
landi fyrir troðfullu húsi í Austur-
bæ fyrir einu og hálfu ári og er því
mörgum kunn hér á landi.
Tónleikarnir í mars eru hluti af
tónleikaferð Ekdahl um Norður-
löndin sem hefst í Danmörku þann
10. febrúar. Tilefnið er útkoma plöt-
unnar Pärlor av glas sem kemur út
18. janúar. Fyrsta smáskífan með
laginu Vraket af þeirri plötu er
væntanleg nú fyrir jólin. Á Pärlor
av glas heldur Ekdahl áfram sam-
starfi sínu og Lars Winnerbäcks,
en hann stjórnaði upptökum á
síðastu plötu hennar, Olyckssyst-
er, sem hlaut frábærar viðtökur
almennings og gagnrýnenda þegar
hún kom út fyrir tæpum tveimur
árum.
Miðasala á tónleikana í
Háskólabíói hefst þriðjudaginn 27.
desember klukkan 10.00 á midi.is
og í verslunum Skífunnar og BT
um allt land. ■
Lisa Ekdahl til Íslands
LISA EKDAHL Sænska söngkonan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár.
KVIKMYNDIR
[UMFJÖLLUN]
Hvernig getur Hollywood ætlast
til þess að við nennum að horfa á
þriggja tíma kvikmynd um vonlausa
ást risavaxinnar górillu til ljós-
hærðrar leikkonu? Jú, ef leikstjór-
inn heitir Peter Jackson og hann
fær algjörlega frjálsar hendur.
Kvikmyndaleikstjórinn Carl Den-
ham neyðist til að beita heldur
óhefðbundnum og ólöglegum
aðferðum ef nýjasta mynd hans
á einhvern tímann að líta dagsins
ljós. Hann hefur komist yfir kort
sem vísar veginn til Hauskúpueyju
en hún er síðasta ókannaða svæðið
í heiminum. Föruneytið er skipað
hinni ungu og fátæku leikkonu Ann
Darrow, leikskáldinu Jack Driscoll
og harðskeyttri áhöfn undir stjórn
skipstjórans Englehorn. Hauskúp-
ueyja reynist auðvitað háskalegur
staður með mannætum, risaeðlum
og skrímslinu Kong. Upphafleg
áætlun frumbyggjanna, að fórna
Ann, fer öll úr skorðum því górillan
fellur fyrir hinu ljósa mani og flýr
með það inn í skóg. Eftir æsilegan
eltingarleik og töluvert mann-
fall tekst björgunarsveitinni að
„frelsa“ leikkonuna en græðgi Den-
ham verður til þess að skrímslið er
klófest og flutt til New York . Eft-
irleikurinn er síðan flestum kunn-
ur: Kong sleppur, leggur nokkrar
byggingar í rúst og flýr upp á Emp-
ire State bygginguna þar sem Ann
reynir að bjarga lífi hans.
Uppbygging King Kong er góð.
Fyrri hluti myndarinnar fer í að
kynna helstu sögupersónur og ná
tengingu við þær en annars hefði
okkur verið slétt sama um örlög
þeirra. Umhverfið er allt að því
fullkomið; New York á kreppuár-
unum er stórkostlega útfærð og
eyjan sannkallaður ævintýraheim-
ur með allskyns kynjaverum. Það
þarf ekki að fara mörgum orðum
um tæknibrellurnar og King Kong
hefur aldrei litið betur út.
Jackson hefur hins vegar vaðið
fyrir neðan sig og setur ekki allt
sitt traust á tæknibrellurnar held-
ur fær til liðs við sig nokkra úrvals-
leikara sem skyggja þó ekki á hina
loðnu stjörnu myndarinnar. Jack
Black er skemmtilega geðveik-
ur sem leikstjórinn Denham og
fegurðin geislar af Naomi Watts
sem Ann Darrow. Þá tekst fáum
jafn vel upp að leika gáfumenni og
Adrien Brody sem er mjög góður í
hlutverki leikskáldsins Driscoll.
Peter Jackson hefur fengið heims-
byggðina til flykkjast í bíó áður og
honum tekst það aftur með King
Kong. Hann nýtir sér allt það besta
sem kvikmyndirnar hafa upp á að
bjóða og býr til þriggja tíma trúverð-
uga skemmtun um ástarmál górillu
og þar liggur helsti töframáttur King
Kong. Freyr Gígja Gunnarsson
KING KONG
LEIKSTJÓRI: PETER JACKSON
Aðalhlutverk: Jack Black, Naomi Watts, Adri-
en Brody og Andy Serkis.
Niðurstaða: King Kong er trúverðug þriggja
tíma skemmtun um ástarmál górillu og þar
liggur helsti töframáttur myndarinnar.
Aftur tekst Jackson það