Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 73
20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR38
Novator Telecom Poland, fyrir-
tæki undir stjórn Björgólfs Thors
Björgólfssonar, hefur gert tilboð
í þrettán prósenta hlut í pólska
símafyrirtækinu Netia. Fyrir á
Novator tíu prósenta eignarhlut
í Netia en stefnir á að eignast
fjórðungshlut í félaginu segir í
fréttatilkynningu félagsins. Til-
boð Novator er um átta prósent-
um hærra en gengi Netia var við
lokun markaða á föstudag sem þá
var 6,15 pólsk Zloty en Netia er
skráð í kauphöllinni í Varsjá. Til-
boðið mun taka gildi 29. desember
og renna út þann 13. janúar.
Um ástæður tilboðsins segir
Björgólfur að honum litist vel
á pólska fjarskiptamarkaðinn.
„Pólverjar eru ein af stórþjóð-
um Evrópu. Hagkerfið er í örum
vexti og notkun farsímaþjónustu
eykst þar hröðum skrefum.“
Björgólfur vill styrkja tengsl
Netia við hið nýja fyrirtæki P.4.
sem er sjötíu prósent í eigu Novat-
or en Netia á þrjátíu prósent. P.4.
fékk á árinu leyfi til reksturs
þriðju kynslóðar farsímakerfa.
Netia hóf starfsemi á pólsk-
um fjarskiptamarkaði árið 1994
og er í dag með um 30 prósenta
markaðshlutdeild í Póllandi.
Stærstu eigendur félagsins í dag
eru breskir fjárfestingasjóðir.
Björgólfur Thor og Novator
eiga í dag hluti í fjarskiptafyrir-
tækjum í Finnlandi, Tékklandi,
Búlgaríu, Grikklandi og Pól-
landi.
Dagsbrún, móðurfélag
365 miðla og Og Vod-
afone, skoðar kaup á
fjölmiðlafélaginu Orkla
Media, sem gefur með-
al annars út Berlingske
Tidende, síðdegisblaðið
BT og fjölda tímarita og
dagblaða á Norðurlönd-
um.
Fyrirtækið er í eigu norsku fyr-
irtækjasamsteypunnar Orkla,
sem á Elkem móðurfélag Íslenska
járnblendifélagsins.
Dagsbrún hefur haft það á
stefnuskrá sinni að vaxa út á við
og er þetta liður í þeirri stefnu.
Þórdís Sigurðardóttir, stjórnar-
formaður Dagsbrúnar, segir að
félagið hafi til skoðunar Orkla
Meda í heild sinni sem og hluta
þess en engar ákvarðanir liggi
fyrir um kaup.
Danska blaðið Beringske Tid-
ende fjallar um þessa hugsan-
legu fjárfestingu Dagsbrúnar og
telur að stjórnendur og eigendur
þess horfi á kaupin á Berlingske
sem stökkpall til frekari vaxtar í
Danmörku. Í greininni er sagt að
Baugur, stærsti eigandinn í Dags-
brún, sækist eftir illa reknum fyr-
irtækjum með mikið sjóðsstreymi
og líkist því ekki alvöru fyrirtæki
heldur meira áhættufjárfesting-
arsjóði. Berlingske Tidende hefur
verið rekið með tapi í mörg ár og
verður það skoðað hvaða kost-
ir eru í stöðunni að snúa blaðinu
við.
Berlingske hefur það eftir
Skarphéðni Berg Steinarssyni,
framkvæmdastjóra hjá Baugi,
að Orka Media sé það stórt félag
að stærstu hluthafar Dagsbrúnar
þyrftu að leggja fram aukið hluta-
fé. Markaðsvirði Dagsbrúnar er
um 24 milljarðar króna en talið
er að verðmæti Orkla Media sé á
bilinu 80-90 milljarðar króna eða
meira en þrisvar sinnum verð-
mætara en Dagsbrún.
Velta Dagsbrúnar nam ellefu
milljörðum króna á fyrstu níu
mánuðum ársins og var hagnaður
félagsins um 550 milljónir króna.
eggert@frettabladid.is
EÐLILEG VIÐBRÖGÐ Orkuveitan mun leita eftir tilboðum í hlut sinn í Jarðborunum. Forstjóri
Atorku telur að um eðlileg vinnubrögð sé að ræða.
Eins og greint var frá í Fréttablað-
inu á laugardaginn hefur stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur ákveðið að
leita eftir tilboðum frá fjárfestum
í þrettán prósenta hlut sinn í Jarð-
borunum.
Atorka Group, sem hefur lagt
fram yfirtökutilboð í Jarðboranir,
sem rennur út um miðbik janúnar,
hyggst halda sínu striki og ætlar
ekki að breyta skilmálum tilboðs-
ins. Magnús Jónsson, forstjóri
Atorku, segir að það hafi verið hið
eðlilegasta mál hjá stjórn Orku-
veitunnar að leita eftir tilboðum.
Hluthafar Jarðborana fá 25
krónur fyrir hvern hlut sinn í
skiptum fyrir bréf í Atorku á
genginu 6. Tilboðsverðið hefur
verið gagnrýnt af greiningar-
deild KB banka sem finnst það of
lágt. - eþa
Atorka heldur sínu striki
Kartöflur í skóinn
Eins og flestum er kunnugt er jólasveinninn til
þótt einstaka prestur reyni að draga í efa tilvist
hans. Það sem meira er, jólasveinninn er
réttlátur og verðlaunar og refsar í sam-
ræmi við ströngustu staðla í codex
eticus jólasveinanna. Þannig fá góðu
börnin góðgæti og nytjahluti í
skóinn en þau óþekku fá kartöflu.
Jólasveinarnir sem fylgjast með
fjármálafyrirtækjum eru lítið fyrir
að gefa eitthvað gott í skóinn en
því viljugri að skella einni og einni
kartöflu í skóinn hjá þeim sem
þeir fylgjast með. Fyrir þessi jól eru
komnar tvær kartöflur í skó fjármálafyrirtækja:
Íslandsbanki fékk eina frá íslenskum kauphall-
arjólasveini og KB banki fékk eina frá norskum
eftirlitsjólasveini. Til gamans má geta þess að
Norðmenn eru miklar kartöfluætur.
Danska á sunnudögum
Fréttir af áhuga Dagsbrúnar á eignum
norska fyrirtækisins Orcla. Meðal þeirra eigna
sem Danir í það minnsta búast við að áhugi
sé á eru Berlingske Tidende, síðdegisblað-
ið BT og fríblaðið Urban. Dagsbrún er
móðurfélag 365 fjölmiðla og hér
á bæ ýmist dusta menn rykið
af dönskunni sinni eða harma
slugs í skóla við nám á því ágæta
tungumáli. Ein er sú hugmynd
að taka upp þann gamla sið að
tala dönsku á sunnudögum
en tvö bæjarfélög héldu þeim
sið hvað lengst, Akureyri og
Stykkishólmur, og hafa þeir
löngum þótt danskir bæir. Frá Stykkishólmi er
einmitt stjórnarformaður Dagsbrúnar, Þórdís J.
Sigurðardóttir
Peningskápurinn...
BJÖRGÓLFUR THOR
Novator býður í pólskt síma-
fyrirtæki
Japanski seðlabankinn hefur enn
ekki tekið ávörðun um framtíðar-
stefnu í peningamálum. Stefna
bankans í dag er að halda skamm-
tímavöxtum nálægt núll prósent-
um til að vinna á verðhjöðnun.
Seðlbankinn hefur staðfest að
hann muni halda sig við núver-
andi stefnu þar til neysluverðs-
vísitalan fer að sýna stöðugan
stíganda.
Óbreytt stefna Seðlabanka
FJÁRFESTINGAR ERLENDRA AÐILA, JAPANI,
AOL dóttufyrirtæki Time Warner
hefur náð samkomulagi að Goog-
le muni áfram sjá notendum AOL
fyrir netvafra eins og þeir hafa
gert síðastliðin þrjú ár. Samning-
urinn er metinn á um sex millj-
arða íslenskra króna.
Microsoft var talið líklegast
til að hreppa hnossið en upp úr
samningum milli AOL og Micros-
oft slitnaði.
Fyrir níu árum komst Nets-
cape að samkomulagi við AOL um
vafraþjónustu en Microsoft tókst
að stela þeim viðskiptum á síð-
ustu stundu. Aðstæður Microsoft
minna um margt á Netscape fyrir
níu árum.
Google hefur í hyggju að fjár-
festa fyrir um milljarð dollara í
AOL og eignast við það fimm pró-
sent í fyrirtækinu.
Google 1 - Gates 0
BILL GATES Aðaleigandi Microsoft.
SKARPHÉÐINN BERG STEINARSSON OG ÞÓRDÍS J. SIGURÐARDÓTTIR Orkla Media er til
sölu í heild sinni eða að hluta. Dagsbrún skoðar fyrirtækið en eitt af markmiðum íslenska
félagsins er útrás.
Dagsbrún hyggur fjöl-
miðlakaup í Skandinavíu
MARKAÐSPUNKTAR
íslenska krónan hafði veikst töluvert um
hádegi í gær eða um rúmt eitt prósent.
Greining Íslandsbanka spáir veikingu
krónunnar en hún muni svo styrkjast á
fyrstu mánuðum nýs árs.
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
hækkaði verulega í nóvember eða um
3,1% samkvæmt vísitölu fasteignamats
ríkisins. Verð á fjölbýli hækkaði um 2,5
prósent í mánuðinum en verð á sérbýli
hækkaði meira eða um 5 prósent að því
er fram kemur í fréttum Íslandsbanka.
Gengi í bréfum Dagsbrúnar, móður-
félags 365 miðla, hækkaði við opnun
Kauphallar Íslands í gær. Nam hækkun-
in tæpum tveimur prósentum, en um
helgina bárust fréttir af því að félagið
hyggðist gera tilboð í fjölmiðlafyrirtæki
sem meðal annars gefur út Berlinske
Tidende. Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.323 +0,26% Fjöldi viðskipta: 171
Velta: 1.810 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 48,90 -0,60% ... Bakkavör
51,50 +0,60% ... FL Group 17,30 -0,60% ... Flaga 4,90 +0,00% ...
HB Grandi 9,55 +0,50% ... Íslandsbanki 17,10 +0,00% ... Jarðbor-
anir 24,30 +0,00% ... KB banki 698,00 +0,40% ... Kögun 59,80
-0,30% ... Landsbankinn 24,40 +0,80% ... Marel 65,00 +0,00%
... SÍF 4,18 +0,00% ... Straumur-Burðarás 15,60 +0,00% ... Össur
114,50 +0,00% (tölur samkvæmt Kauphöll Íslands kl. 14.45)
MESTA HÆKKUN
Dagsbrún +1,64%
Mosaic Fashions +1,13%
Landsbankinn +0,83%
MESTA LÆKKUN
Atorka Group -0,83%
Actavis -0,61%
FL Group -0,58%