Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 87

Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 87
���������������� �������������������������������� ����������������������������������������������� ������������������������������������������������������������� �������������������� ��������������������������������� � �� �� � ��� �� �� �� �� C M Y CM MY CY CMY K Kokk2x10DAGBLAUGL011205.pdf 6.12.2005 23:07:45 Landsliðsmennirnir Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson og félagar þeirra í þýska liðinu Gummersbach töp- uðu stórt fyrir Magdeburg, 38-28, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta um helgina. Tapið hafði einkum tvennt í för með sér: annars vegar missti Gummersbach toppsæti deildarinnar í hendur Flensburg og hins vegar fékk hið skrautlega skegg sem Róbert hafði verið að safna frá upphafi tímabilsins að fjúka. „Skeggið er farið. Þetta tók á tilfinn- ingarnar og var erfiðara en ég hélt,“ sagði Róbert glettinn við Fréttablað- ið í gær. „Við Gaui gerðum þetta saman daginn eftir tapið og menn segja að ég hafi yngst um 20 ár,“ sagði Róbert jafn- framt, en hann var kominn með hálfgert villimannsútlit eftir að hafa verið að safna í margar vikur. „Ég tók mér góðan tíma í að raka skeggið af og notaði til þess rak- vél sem ég átti. Þetta tók rúman hálftíma en það þurfti engin skæri. Og skeggið er ennþá til, það er í glasi inni á baði hjá mér,“ segir Róbert, sem á greinilega ekki auðvelt með að sleppa hendinni af skegginu og segir líklegt að hann geymi einhverja lokka til frambúðar. Það hefur ávallt loðað við Róbert að vera ævintýramaður og segja þeir sem til hans þekkja að ekki sé erfitt að plata hann í að prófa hina ýmsu hluti, eins og til dæmis að safna villimannaskeggi. Spurður um hvort hann ætli að taka upp á einhverju svipuðu fyrir Evrópukeppnina í Sviss í lok janúar segir Róbert að það sé aldrei að vita. „ Nú er komið nóg af svona vitleysu í bili og það eru allavega engar hugmyndir í bankanum þessa stundina. Svona hlutir byrja yfirleitt sem hálfgert grín sem gengur síðan lengra en maður átti von á. Þannig að þótt ég sé ekki með neitt ákveðið núna er aldrei að vita hvað ger- ist.“ RÓBERT GUNNARSSON: TAPAÐI SÍNUM FYRSTA LEIK MEÐ GUMMERSBACH UM HELGINA Geymir skeggið í glasi í baðherberginu HEIÐAR HELGUSON Bíður rólegur eftir sínu tækifæri, enda fær hann ekki að fara frá félaginu eftir áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn Jóhann Birnir Guðmundsson hefur mætt á æfingar hjá Keflavík og Fylki frá þeim tíma að hann kom heim til Íslands í haust frá sænska liðinu Örgryte, en þar varð hann einn af þeim leikmönnum sem urðu fórnarlömb mikilla fjárhags- örðugleika félagsins. Í samtali við Fréttablaðið í gær sagðist Jóhann hafa mætt á æfingu í Árbænum fyrir tilstuðlan félaga síns Hauks Inga Guðnasonar en sjálfur lék Jóhann með Keflavík áður en hann hélt í atvinnumennsku og er vitað að þar á bæ hafa menn mik- inn hug á því að fá leikmanninn aftur í sínar raðir. „Þeir hjá Fylki hafa rætt aðeins við mig en fyrst um sinn ætla ég að einbeita mér að því að koma mér að hjá liði erlendis. Ég er alveg opinn fyrir því að spila á Íslandi en ef svo fer þá veit ég ekkert með hvaða liði. En það er ekkert sjálf- gefið að það verði Keflavík,“ segir hinn 28 ára gamli Jóhann sem fór til Watford á Englandi árið 1998 og hefur síðan þá leikið með Lyn í Noregi og nú síðast Örgryte. „Það er í raun allt í biðstöðu hjá mér ennþá og held að það muni ekkert gerast fyrr en í janúar eða febrúar. En það er ekkert laun- ungarmál að ég stefni að því að komast að hjá liði erlendis,“ segir Jóhann og útilokar ekki neitt. „Það skiptir mig í raun engu máli hvar ég spila, svo lengi sem það er áhugavert, mun ég skoða það,“ segir hann. - vig Knattspyrnumaðurinn Jóhann Birnir Guðmundsson er ennþá án félags: Hefur mætt á æfingar hjá Fylki JÓHANN BIRNIR GUÐMUNDSSON Er opinn fyrir því að spila á Íslandi næsta sumar en stefnir að því að komast út. FÓTBOLTI Chris Coleman, knatt- spyrnustjóri Fulham, segir að það sé ekki á dagskránni hjá félag- inu að selja leikmenn þegar leik- mannaglugginn opnast á ný eftir tvær vikur. Nokkrir leikmanna hans eru nokkuð eftirsóttir hjá stærri liðum, meðal annars Luis Boa Morte og Papa Bouba Diop, og þá hefur Heiðar Helguson verið sterklega orðaður við að fara frá Fulham á láni. En Coleman segir að hann ætli ekki að missa neinn af sínum leikmönnum. „Ég hata leikmannagluggann,“ sagði Coleman við breska fjöl- miðla í gær. „Það erum við sem erum að líta í kringum okkur eftir liðsstyrk en samt þurfum við að vera á varðbergi til að halda í þá leikmenn sem við höfum fyrir. En við erum lítið lið með lítinn pen- ing, auðvitað vill ég halda öllum mínum mönnum,“ sagði Coleman og bætti við að það þyrfti mikinn pening til að þeir samþykktu að selja sína eftirsóttustu leikmenn. „Ég tel óhugsandi að nokkur leggi í að bjóða það sem við myndum vilja fá,“ segir Coleman. - vig Chris Coleman er ekki að selja: Heiðar er ekki á leið frá Fulham KÖRFUBOLTI Það er óhætt að segja að það hafi orðið tímamót í sögu íslensks körfuknattleiks um helg- ina þegar körfuboltakonan Anna María Sveinsdóttir ákvað að leggja skóna á hilluna eftir 21 ár í meistaraflokki. Á þessum rúmu 20 árum hefur Anna María leikið yfir 500 leiki og unnið Íslands- og bikarmeistaratitla í kippum. Anna hefur verið mjög heppinn á ferlinum og aldrei lent í erfiðum meiðslum. Það er því sorgleg stað- reynd að meiðsli hafi orðið þess valdandi að hún hafi lagt skóna á hilluna. „Ég nenni ekki að standa í ein- hverjum meiðslum á gamals aldri. Þá er komið að því að segja stopp,“ sagði Anna María við Fréttablaðið í gær en hún er orðin 36 ára gömul. Þegar hún fór í hnéspeglun á dög- unum komu í ljós brjóskskemmdir í lærlegg og Anna vildi ekki tefla á tvær hættur með slík meiðsli. „Það er leiðinlegt að hætta svona en ég er engu að síður sátt með ákvörðunina þó að hún hafi vissulega verið erfið. Ég get held- ur ekki verið annað en sátt við ferilinn,“ sagði Anna María sem ætlar að vera Keflavíkurliðinu innan handar út veturinn en hvað tekur við í kjölfarið veit hún ekki. Hún gerir sér þó grein fyrir því að það verði erfitt að slíta sig frá körfuboltanum sem hefur skipað svo stóran sess í lífi hennar. Eins og áður segir hefur Anna María unnið marga glæsta sigra á körfu- boltavellinum en ætli eitthvað eitt standi upp úr á ferlinum? „Mér þótti mjög vænt um við- urkenningu sem ég fékk, áður en valið var körfuboltamaður og körfuboltakona ársins, en það var einfaldlega körfuknattleiksmaður ársins yfir heildina en mig minn- ir að það hafi verið árið 1994. Það fannst mér mjög mikil viðurkenn- ing. Annars voru allir þessir titlar mjög ljúfir,“ sagði Anna María en ætli hún hefði verið svona lengi í boltanum ef hún hefði ekki leikið með svona sigursælu liði? „Ég efast um það. Það er erf- itt að segja en ég hef fundið fyrir pirringi þegar við unnum ekki titla þannig að ég efast um að ég hefði verið svona lengi ef ég hefði aldrei unnið neina titla. Þetta er eins og fíkn. Þetta togar alltaf í mann aftur og ég held að það sé þessi sigurvíma sem togar í mann því maður vill upplifa hana aftur og aftur.“ Það hefur margt breyst í íslensku íþróttalífi á þeim tíma sem Anna María hefur verið að spila með meistaraflokki. Hver er stærsta breytingin að hennar mati? „Það eru fleiri góðar körfu- boltakonar í dag en áður en mér finnst samt vanta í margar þess- ar stelpur að þær séu tilbúnar að fórna sér fyrir íþróttina. Það hætta allt of margar stelpur fyrir þrítugt sem er allt of snemmt. Ef stelpur ætla að vera í þessu af alvöru þá verður að fórna öllu. Ég veit að það er erfitt enda ekkert borgað fyrir að spila en þetta snýst líka um metnað hvers og eins. Mér finnst persónulega oft vanta meiri metnað,“ sagði Anna María og máli sínu til stuðnings benti hún á að ef hún færi að spila með B-liði Keflavíkur þá væri hún örugglega elsti leikmaðurinn en í því liði eru fyrrum leikmenn Keflavíkur sem hættu of snemma. henry@frettabladid.is Sigurvíman togaði alltaf í mig Sigursælasta körfuknattleikskona landsins, Anna María Sveinsdóttir, hefur lagt skóna á hilluna eftir ein- stakan feril þar sem hún vann allt sem hægt var að vinna í körfuboltanum á Íslandi. Hún segir velgengn- ina eiga þátt í því hversu lengi hún spilaði. Hún gagnrýnir metnaðarleysi íslenskra körfuboltakvenna. DROTTNINGIN OG PRINSESSAN Anna María sést hér í leik gegn Haukum á dögunum. Haukar hafa tekið við af Keflavík sem besta lið lands- ins og Helena Sverrisdóttir, sem reynir að ná boltanum af Önnu Maríu, hefur tekið við af Önnu Maríu sem besta körfuboltakona landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SIGURVEGARI Anna María vann marga sæta sigra á ferlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. > Tímamót í kvennakörfunni Íslenskur kvennakörfuknattleikur varð fátækari um helgina þegar Anna María Sveinsdóttir ákvað að leggja skóna á hilluna. Anna María hefur verið hold- gervingur kvennakörfunnar um árabil og ávallt farið fram með góðu for- dæmi. Hún hefur verið frábær fyrirmynd sem ungar stúlkur hafa litið upp til og þarf því ekki að undra að Keflavík hafi framleitt körfuboltakon- ur á færibandi. Fréttablaðið þakkar Önnu Maríu fyrir sitt framlag til körfuboltans á Íslandi en það er ómetanlegt. 52 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is Bo til Eyja Daninn Bo Henriksen hefur náð samkomulagi við ÍBV um að leika með félaginu næsta sumar og aðeins á eftir að ganga frá nokkrum atriðum. Bo gekk upphaflega í raðir Vals síð- asta sumar en fékk ekki tækifæri þar og fór því til Fram þar sem hann stóð sig ágætlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.