Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 34
[ ]
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
Náttúrulegar
hágæða baðvörur
Upplifðu lúxus spa stemningu í þínu eigin
baðherbergi með baðvörum sem Kolbrún
grasalæknir hefur skapað fyrir Íslenskar konur.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
Jóhanna Þórhallsdóttir kór-
stjóri lætur ekki jólastressið ná
tökum á sér þrátt fyrir mikið
annríki.
Jóhanna Þórhallsdóttir, söngkona
og kórstjóri, er heldur betur á
þönum þessa dagana eins og flest-
ir þeir sem koma nálægt kórum
og söng á aðventunni. Þetta er
mikill álagstími hjá henni og
algert lykilatriði að vera við góða
heilsu. En hvernig skyldi hún
fara að því? „Ég er ekki í neinu
föstu prógrammi en í haust hef
ég að mestu leyti stundað göngu-
túra í Elliðaárdalnum og hef líka
farið í leikfimitíma í Hreyingu.
Svo reyni ég að fá góðan svefn
og hvíla mig og slaka á,“ segir
Jóhanna. Hún hefur líka lært af
reynslunni með árunum. „Ég hef
lært að vera ekkert að stressa mig
yfir jólunum og það reynist mér
best til að halda heilsu á þessum
árstíma. Það er mjög mikilvægt.
Ég hef lagt áherslu á að hvílast vel
og ef ég fæ flensu þá tek ég á því
strax því aðalatriðið er að ganga
ekki á orkuna sína. Þessi árstími
er mikill álagstími fyrir kórstjóra
og þá er aðalatriðið er að vera ekk-
ert að fara í neitt jólageim, hvorki
stressið, skemmtanirnar né inn-
kaupin heldur bara að einbeita sér
að verkefnunum sem framundan
eru.“ Jóhanna reynir að passa sig
á að detta ekki í óhollustuna og fá
sér of mikið af sykri eða koffíni
auk þess sem henni passar ekki að
sulla mikið í rauðvíni.
Hún viðurkennir þó að engin sé
reglan án undantekninga. „Það
er fastur liður hjá mér að hitta
vinkonurnar á Jómfrúnni á jóla-
föstunni og þá læt ég allt aðhald
lönd og leið.“ Það verður mikið
að gera hjá Jóhönnu fram yfir
jól. „Léttsveitin klárar reyndar
sína jóladagskrá á Þorláksmessu
með því að syngja jólamessu með
séra Jónu Hrönn Bolladóttur fyrir
framan Hegningarhúsið, en þá
tekur við kórastarfið í Bústaða-
kirkju. Þar stjórna ég barna- og
unglingakórnum og syng líka í
kirkjukórnum svo það verður nóg
að gera.“ Þegar öllu þessu er lokið
ætlar Jóhanna að slaka á í faðmi
fjölskyldunnar. „Ég set Bach á
fóninn, fæ vonandi einhverja góða
bók og tek jólunum fagnandi.“
Um að gera að slaka á
þegar færi gefst
Jóhanna Þórhallsdóttir notar hverja stund sem gefst til að slaka á og koma sér í alvöru jólaskap.
Jóga er góð heilsurækt. Auk þess að þjálfa líkamann er
það afslappandi. Það getur verið gott eftir allt jólastressið
að fara í jóga og slaka á.
STÆRSTA
HEILSUVÖRUVERSLUN
Á LANDSBYGGÐINNI
Póstsendum um land allt
Glerártorg Akureyri S: 462-1889
heilsuhorn@simnet.is
www.simnet.is/heilsuhorn