Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 20. desember 2005
Vertu fallega
sólbrún(n)
- innan frá
Vísindalega staðfest. Imedeen Tan
Optimizer - hylki verka innan frá og
veita gylltan húðlit, sem helst lengur en
þig hefur nokkurn tímann dreymt um.
Hylkin undirbúa húðina fyrir
sólina, minnka roða og viðkvæmni fyrir
sól, verja húðina gegn öldrun af
völdum sólar og örva myndun á fallegri
sólbrúnku.
Matarvenjur jólanna teljast
seint heilsubætandi. Smákökur
og súkkulaði, malt og appelsín,
laufabrauð og karamellur fylla
munna víðs vegar um landið
og ógrynni af söltu og reyktu
kjöti rata upp í munn og ofan
í maga.
„Jólamaturinn þarf alls ekki að
vera slæmur,“ segir Fríða Rún
Þórðardóttir næringarfræðingur.
„Það fer bara eftir hversu mikið
maður borðar af honum.“ Saltur
og reyktur matur getur farið illa
í fólk sé ekki gætt hófs. „Fólk
getur safnað á sig vökva og sé
undirliggjandi sjúkdómur fyrir er
hætta á hjartaáfalli,“ segir Fríða.
Fríða mælir með því að jóla-
kjötið sé hvílt við og við og það sé
ekki á diskinum í öll mál. Gott er
að fá ferskt kjöt inn á milli og fisk-
ur er alltaf hollur og góður. Svo er
líka mikilvægt að innbyrða nóg af
vatni til mótvægis við allt saltið.
„Það þarf að passa það að drekka
ekki bara gos heldur nóg af vatni
með og milli mála,“ segir Fríða.
Áður fyrr voru ferskir ávext-
ir fylgifiskur jólanna. Þeir þóttu
herramanns matur og Fríða mælir
með því að þessum sið verði við-
haldið. „Ég mæli með því að fólk
borði spariávexti, það er ávexti
sem það fær ekki á hverjum degi.
Þetta geta verið vínber, plómur,
ástaraldin eða hvaða framandi
ávöxtur sem er,“ segir Fríða.
Fríða vill minna fólk á mikil-
vægi þess að hreyfa sig yfir jólin.
Enginn ætti að sitja inni yfir sjón-
varpinu heldur fara út að ganga
og þeir sem eiga líkamsræktar-
kort nýti sér þau.
Fríða vinnur í eldhúsi Land-
spítalans þar sem hún raðar
saman matseðli sjúklinga eftir
kúnstarinnar reglum. Að sögn
Fríðu eru miklar jólamanneskj-
ur að störfum í eldhúsinu. „Við
reynum að hafa þetta eins jóla-
legt og hægt er,“ segir Fríða. Það
kemur bersýnilega í ljós ef litið
er á matseðilinn yfir hátíðarnar.
Á aðfangadag verður óreyktur
svínahryggvöðvi og á jóladag
hangikjöt og lambalæri. Auk þess
geta sjúklingar valið um fiskrétt
eða grænmetisrétt í öll mál kjósi
þeir að sleppa jólasteikinni.
tryggvi@frettabladid.is
Hangikjöt ratar án efa á borð flestra lands-
mann um jólin. FRETTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Jólamatur bestur í hófi
Út er komin bók eftir Dr.
Eduard Estivill um svefnvenjur
barna og hvernig má bæta
þær. Þýðandi bókarinnar er
Guðrún H. Túliníus.
Bókin heitir Sofðu barnið blíða
en útgefandi er Proxima. Dr.
Estivill er svefnsérfræðingur og
hefur hann rannsakað svefnvenj-
ur barna og fullorðinna í áratugi.
Í rúm 11 ár hefur hann hjálpað
yfir 3000 börnum að bæta svefn
sinn og í leiðinni hefur hann þróað
með sér kerfi sem á að bæta svefn
barna og og koma reglu á hann.
Samkvæmt Dr. Estivill er hægt að
kenna börnum að sofa vært í 96%
tilfella og til þess að ná árangri
þurfa foreldrar einungis að fylgja
nokkrum einföldum reglum. Í bók-
inni er farið yfir þessar reglur og
foreldrum gefin góð ráð svo barn-
ið þeirra sofi sem værast. ■
Bók um
svefn barna
Góður nætursvefn er mikilvægur ungum
sem öldnum.