Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 68
ÞRIÐJUDAGUR 20. desember 2005 33
Bankastræti 14
FA L L E G H Ö N N U N
F R U M L E G H U G S U N
Svanasöngur
Það mætti hreinlega halda að Framsókn-
arflokkurinn væri að syngja sitt síðasta
þegar litið er yfir svið stjórnmálanna árið
2005. Flokkurinn með forsætisráðuneyt-
ið mælist nánast án undantekninga vel
undir tveggja stafa tölunni tíu í könn-
unum og varla á höfuðborgarsvæðinu. Í
kjördæmi formanns Framsóknar og for-
sætisráðherra landsins! Makalaus staða
við fyrstu sýn en vel skiljanleg þegar rýnt
er í atburði síðustu missera.
Björgvin G. Sigurðsson á bjorgvin.is
Mogginn blífur
Morgunblaðið er eini prentmiðillinn,
sem stendur undir nafni, hinir eru að raða
efni í kringum auglýsingar, fyrir utan DV,
sem verður daglegra verra (DV) eins og
einhver sagði einhvers staðar og á hann
örugglega eftir að fá í staðinn títuprjóns-
tungu frá ritstjórn DV. Reynsla mín er sú,
að alltaf þegar ég nefni DV og gagnrýni
hér á síðunni, er fundið að mér á einn
eða annan veg í blaðinu. Vegsaukinn
kemur úr ólíklegustu áttum.
Björn Bjarnason á bjorn.is
Samkoma andans manna
Egill [Helgason] bað mig taugastrekktur
að koma með bókastafla til sín inn í stúd-
íóið. Þrátt fyrir stressið gekk allt snuðru-
laust fyrir sig. Hannes Hólmsteinn heils-
aði mér afar vinsamlega að fyrra bragði,
ég hef ekki hitt hann áður, merkilegt
nokk; hann sagðist hafa lesið eftir mig.
Augljóslega hef ég einhvern tíma blogg-
að mig í mjúkinn hjá honum. [...] Halldór
Guðmundsson bauð mér far eftir útsend-
ingu niður á Laufásveg, líklega var hann
á sama jeppanum og ég stakk mér upp í
gleraugnalaus árið 2001, þegar ég hélt að
hann væri Páll Þorsteinsson.
Ágúst Borgþór Sverrisson á agustborgthor.
blogspot.com
Hinn nýi níhilismi
Ein helsta ástæða þess að börn trúa þó
þetta lengi á jólasveininn er sú staðreynd
að foreldrarnir bakka upp lygina. Börn
trúa foreldrum sínum og eru því til í að
horfa fram hjá vísbendingum um hið
gagnstæða. Það er því mikil opinberun
þegar barnið kemst með eigin rökhugsun
að þeirri niðurstöðu að foreldrarnir hafi
logið að því. Oftar en ekki svara börnin
fyrir sig með því að ljúga á móti. Þau sjá
í gegnum sveinka-sögurnar, en þykjast
trúa til að fá gotterí og leikföng.
Stefán Pálsson á kaninka.net/stefan
Öll athygli er góð athygli
Frægasti maður í heimi sem hefur fengið
afar lofsamlega dóma svo ekki sé kveðið
fastar að orði fékk verðlaun í Fréttablað-
inu í dag. Tvær stúlkur völdu kápuna á
lista yfir verstu kápur og var bókin sú eina
sem fékk tvær tilnefningar. Ég tel því eðli-
legt að ég standi uppi sem sigurvegari.
Er þetta ágætis sárabót eftir að horft var
fram hjá bókinni í vali til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna sem og verðlaun
bókabúða.
Kristjón Kormákur Guðjónsson á
kristjon.blogspot.com
AF NETINU