Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 36
[ ]
Jóladagur á blettatígrabúgarði
í Namibíu.
Eva Lind Óliversdóttir hefur ferð-
ast víðar en margar jafnöldrur
henar. Fyrir fjórum árum fór hún í
sex mánaða ferðalag með vinkonu
sinni og eyddi aðfangadegi í nami-
bískri eyðimörk.
„Auk okkar voru í hópnum 20
aðrir sem komu frá öllum heims-
hornum,“ segir Eva Lind. „Við
ferðuðumst um Mið-Austurlönd
og Afríku á trukk og vorum á mik-
illi hraðferð. Rétt fyrir jól fékk ég
ígerð í tvö köngulóarbit á löppinni
en við máttum ekki vera að því að
stoppa og fá almennileg lyf svo ég
var sárkvalin á aðfangadag.“
24. desember var hópurinn í
þjóðgarði í eyðimörk. Eva Lind
segir að nokkrir úr hópnum hafi
höggvið niður hríslu til að gleðja
íslensku stelpurnar sem söknuðu
jólanna heima. „Við gerðum músa-
stiga og settum á hrísluna. Svo
fóru undir hana tveir pakkar, einn
frá mér og einn frá Júllu vinkonu
minni sem gaf mér bók með mynd-
um af afrískum dýrum. Við reynd-
um að syngja íslensk jólalög en það
gekk ekki nógu vel, við kunnum
svo fáa texta. Seinna um kvöldið
fórum við með svefnpokana okkar
að upplýstu vatnsbóli og ætluðum
að sjá villt dýr en þau létu ekki
sjá sig þetta kvöld. Ég skrifaði því
bara bréf heim og sagðist sakna
þess að komast ekki á skíði,“ segir
Eva Lind.
Flestir aðrir í hópnum voru
óvanir því að fagna aðfangadegi
sérstaklega og miðuðu upphaf
jóla við jóladagsmorgun. „Jóla-
hald hinna einkenndist aðallega af
fylleríi. Kanadamennirnir tóku þó
þátt í að skreyta tréð og Bretarnir
keyptu slúðurblöð. Það virtist duga
til að koma þeim í jólaskap. Á jóla-
dag fórum við svo í blettatígrabú-
garð. Þangað er farið með bletta-
tígra sem ráðast á búfé, frekar en
að skjóta þá. Sá sem rak búgarðinn
var af áströlskum ættum svo hann
hélt smá jól með okkur, sem enn og
aftur snerust aðallega um drykkju,
en það var enginn annar að halda
jól í nágrenninu svo það var betra
en ekkert.“
Þrátt fyrir þessa upplifun seg-
ist Eva Lind aldrei ætla að halda
jól í útlöndum aftur. „Fyrir mér
eru jólin fjölskylduhátíð. Ég vil
ekki vera í burtu frá litlu systkin-
unum mínum aftur, maður er
svo hræddur um að missa af ein-
hverju. Svo saknar maður þess
svo mikið ef maður sér hvergi
snjó,“ segir Eva Lind að lokum.
Jólakúlur eru ómissandi á jólatréð. Þeir
sem skreyta tréð seint ættu samt að fara yfir
jólakúlurnar svo hægt sé að kaupa fleiri í tíma ef
einhverjar vantar.
Aðfangadagur í eyðimörkinni í Namibíu.
Eva Lind og Júlla vinkona hennar við
runnann sem var breytt í jólatré.Á blettatígrabúgarðinum á jóladag. Eva Lind og eigandi búgarðsins klappa blettatígur.
Eva Lind Óliversdóttir segist ekki ætla að vera að heiman aftur um jól, þótt hún hafi lent í
miklu ævintýri í Afríku fyrir fjórum árum.
Aðfangadagur í eyðimörk