Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 12
12 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Glænýr Saab
Engar áhyggjur,
þetta er ennþá Saab.
Það er erfitt að trúa því að jafn sprækur bíll sé einn sá öruggasti á
götunni. Saab er hannaður fyrir skandinavískar aðstæður og því stendur
hann sig best þegar íslenski veturinn er hvað harðastur. Við kynnum
nýjan og stærri Saab 9-5. Rétti bíllinn fyrir veturinn í norðri.
Verð 2.980.000,-
Reynsluaktu nýjum SAAB 9-5. Hann er margverðlaunaður fyrir öryggi og hannaður fyrir akstur á norðurslóðum.
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00
XLV Soft Shell
vindheld og vatnsfráhryndandi
til í þremur litum
Jólatilboð kr. 9.990.-
verð áður kr. 11.990.-
JAKARTA, AP Óttast er að fuglaflensa
hafi dregið átta ára dreng til dauða í
Jakarta, höfuðborg Indónesíu, í síð-
ustu viku.
Niðurstöður indónesískra heil-
brigðisyfirvalda benda til þess að
fuglaflensa hafi verið dánarorsök
drengsins en Alþjóðaheilbrigðs-
stofnunin á eftir að staðfesta að
svo sé. Úrskurðar stofnunarinnar
um dánarorsök 39 ára manns, sem
einnig lést í síðustu viku, að því er
talið er úr fuglaflensu, er einnig
beðið.
Ekki er vitað hvort drengurinn
hafi komist í návígi við sjúka fugla,
en dýralæknar hafa bent á að fuglaf-
lensa hafi greinst í nokkrum fuglum
í þéttbýlu íbúahverfi þar sem dreng-
urinn átti heima. Fuglaflensa hefur
drepið hundruð milljóna kjúklinga
og anda og nú dregið að minnsta
kosti 71 mann til dauða, flesta í
Víetnam og Taílandi. Staðfest hefur
verið að níu Indónesar hafi látist úr
sjúkdómnum.
Sumir sérfræðingar óttast að
fuglaflensuveiran stökkbreytist á
þann veg að hún geti auðveldlega
borist milli manna, og leiði þannig
til faraldurs. - ht
FUGLAFLENSA Talið er að tveir Indónesar
hafi látist úr fuglaflensu í síðustu viku. Annar
hinna látnu var átta ára drengur, en ekki er
vitað hvernig hann smitaðist af flensunni.
Talið er að fuglaflensa hafi dregið átta ára dreng til dauða:
Tilfellum fjölgar í Indónesíu
SAMGÖNGUR Siglingastofnun
Íslands kynnti í gær rannsóknar-
líkan af aðstæðum í Bakkafjöru.
Stofnunin telur ferjulægi í fjör-
unni raunhæfan valmöguleika.
Líkanið er gert eftir nákvæm-
um mælingum sem vísindamenn
Siglingastofnunnar hafa unnið
á svæðinu í og við Bakkafjöru
að undanförnu. Siglingastofnun
telur þennan kost vel raunhæf-
an ef ákveðið verður á annað
borð að ráðast í ferjuaðstöðu í
Bakkafjöru. Ef af verður myndi
þessi ferjuaðstaða stytta sigl-
ingatímann á milli lands og eyja
úr tæpum þrem tímum í um 30
mínútur.
Tilgangur líkansins hefur
verið að sögn Gísla Viggósonar,
forstöðumanns rannsóknar- og
þróunarsviðs Siglingastofnunnar
Íslands, að rannsaka öryggis- og
viðmiðunarmörk fyrir siglingu
ferju inn í ferjulægið. Hann segir
nauðsynlegt að kanna lægið við
mismunandi ölduhæð við flóð og
fjöru sem þetta líkan getur líkt
eftir. „Við notum sömu öldugerð
hér og við notuðum í Grindavík
þegar við vorum að þróa innsigl-
inguna þar, þetta er endurtekn-
ing á því tilraunaferli“, segir
Gísli. Hann segir jafnframt að
einungis séu eftir lítilsháttar fín-
stillingar á útfærslunni en að hún
sé í grófum dráttum tilbúin.
Árið 2000 var stofnuð nefnd,
í framhaldi af þingsályktunar-
tillögu, um framtíðarsamgöngur
til Vestmannaeyja og er hlutverk
hennar að skila til samgönguráð-
herra áliti sínu um hvaða kostur
skuli valin. Páll Sigurjónsson
formaður nefndarinnar segir
nefndina að störfum og hún skoði
nú þennan valmöguleika ásamt
jarðgangagerð og endurnýjun
Herjólfs.
Gísli Viggóson segir að Sigl-
ingastofnun muni skila endan-
legri útfærslu á ferjulæginu til
nefndarinnar á næsta ári. - æþe
Siglt til Eyja
á hálftíma
Siglingastofnun hefur kynnt nýtt líkan sem sýnir
aðstæður í Bakkafjöru með tilliti til ferjusiglinga.
SAMGÖNGURÁÐHERRA SIGLIR ÚR VÖR
Sturla Böðvarsson virtist ánægður með
útfærsluna.
FINNLAND Eistar hafa áhyggjur af
þeirri fyrirætlan Finna að refsa
þeim sem greiða fyrir þjónustu
vændiskvenna. Þeir óttast að
lagabreytingin muni hafa þau
áhrif að heimsóknum Finna til
eistneskra vændiskvenna muni
fjölga.
Finnska blaðið Hufvudstads-
bladet hefur eftir eistnesku blaði
að meirihlutinn af ferðalöngum,
sem koma til Eistlands til að
kaupa kynlíf, komi frá Finnlandi
og Svíþjóð. Margir koma líka frá
Þýskalandi og Danmörku.
Með lagabreytingunni feta
Finnar í spor Svía, sem gera
kaupendur vændis ábyrga. - ghs
Kynlífsmarkaðurinn í Eistlandi:
Heimsóknum
Finna fjölgar
VATNSELGUR Í HAD YAI Tuttugu manns eru
taldir af eftir flóð í Taílandi og í Víetnam
hafa um fimmtíu farist. Flóðin eru einhver
þau verstu í Suðaustur-Asíu í 40 ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP