Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 89
20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR54
FÓTBOLTI Framherjinn Hörður
Sveinsson hjá Keflavík kom
aftur til landsins í fyrradag eftir
að hafa verið til reynslu hjá hol-
lenska úrvalsdeildarliðinu RKC
Walwijk í fimm daga. Hörður seg-
ist hafa gengið hreint ágætlega á
þeim æfingum sem hann tók þátt í
á þessum tíma og eru miklar líkur
á því að hann fari aftur til Hol-
lands í janúar og leiki þá æfinga-
leik með liðinu.
„Þetta var eini tíminn sem ég
gat farið út vegna skólans hér
heima en þetta hitti þannig á að
aðal- og varaliðið voru að spila í
þessari viku og ég má ekki spila
með varaliðinu nema að vera
skráður í félagið,“ segir Hörður.
„Þjálfari liðsins sagði mér að
hann hefði verið mjög ánægður
með það sem hann sá til mín á
æfingum en hann vill fá mig aftur
og sjá mig spila í alvöru leik,“
segir Hörður, en hann er með
samning við Keflavík út næsta ár
sem þýðir að erlend félög munu
þurfa að greiða Keflavík til að fá
hann í sínar raðir.
Hörður sló fyrst í gegn í Lands-
bankadeildinni í sumar þar sem
hann skoraði níu mörk í 17 leikj-
um, var valinn efnilegasti leik-
maðurinn í lok móts og vakti auk
þess athygli fyrir góða frammi-
stöðu með U-21 árs landsliðinu
í undankeppni HM. Hann hefur
nú verið til reynslu hjá alls fjór-
um liðum eftir að Íslandsmótinu
hér heima lauk í haust og öll eru
þau í mismunandi löndum. Liðin
sem um ræðir eru AIK í Svíþjóð,
Brann í Noregi, FC Mydjylland
í Danmörku og nú síðast RKC
Walwijk í Hollandi. Hörður segir
mjög gott að hafa fengið að kynn-
ast fótboltanum í þessum löndum
sem er mjög mismunandi.
„Þetta er mjög fínt og með
þessu sé ég hvaða land ég tel
henta mér best og ég get ekki
sagt annað en að mér líki best við
Danmörku og Holland. Boltinn í
þessum deildum er skemmtilegri
en í Noregi og Svíþjóð. Það er
meiri fótbolti, bæði á æfingum og
í leikjum, og það finnst mér miklu
skemmtilegra,“ segir Hörður sem
æfir á fullu með Keflavík á milli
reynsluferða til Evrópu. - vig
Danmörk og Holland heilla mest
Knattspyrnumaðurinn Hörður Sveinsson er eftirsóttur af félögum úti um alla Evrópu en sjálfur er hann
hrifnastur af Danmörku og Hollandi. RKC Walwijk í Hollandi ætlar að skoða Hörð betur í næsta mánuði.
HÖRÐUR SVEINSSON Hefur verið í hálfgerðri Evrópureisu í vetur og farið til reynslu til
fjögurra félaga í fjórum löndum.
FÓTBOLTI Johan Boskamp, stjóri
Íslendingaliðsins Stoke City í
ensku 1. deildinni, reynir nú allt
sem í sínu valdi stendur til að
festa kaup á framherjanum Paul
Gallagher, sem er í láni hjá Stoke
á tímabilinu frá Blackburn. Gal-
lagher hefur spilað stórkostlega
fyrir Stoke þann tíma sem hann
hefur verið hjá liðinu og borið uppi
sóknarleik liðsins ásamt fram-
herjanum Simbegou Bangoura, en
saman hafa þeir skorað 15 mörk í
deildinni á tímabilinu. Stoke hefur
komið mjög mikið á óvart í ár og
er í 5. sæti deildarinnar – árangur
sem að má að stórum hluta þakka
Gallagher.
„Hann verður hjá okkur út
tímabilið en það verður erfitt
fyrir okkur að reiða fram pening-
inn sem þarf til að halda honum
áfram. Við erum Stoke en ekki
Chelsea,“ sagði Boskamp í gær.
„Blackburn borgar hluta af laun-
um hans ennþá en þau eru há og
það er ljóst að þau þurfa að lækka
til að við getum boðið honum að
vera áfram. Hann vill vera áfram
og allir hjá félaginu vilja ólmir
halda honum en það er Blackburn
sem stjórnar leiknum. Við getum
ekki annað en vonað að þeir setji
sanngjarnan verðmiða á hann,“
segir Boskamp. - vig
Johan Boskamp, knattspyrnustjóri Stoke City:
Vill ólmur kaupa Gallagher
JOHAN BOSKAMP Gerir allt til að halda
stjörnuleikmönnunum sínum.
BLAK Stjörnumaðurinn Emil
Gunnarsson og Jóna Guðlaug
Vigfúsdóttir, leikmaður Þróttar
í Neskaupstað, hafa verið valin
blakmenn ársins.
Í tilkynningu frá blaksamband-
inu kemur fram að Emil hafi verið
fyrirliði íslenska A-landsliðsins
í Andorra en Jóna Guðlaug er
aðeins 16 ára gömul en var þrátt
fyrir það þriðja stigahæst leik-
manna í 1. deildinni. og lék sína
fyrstu landsleiki á árinu. - hbg
Blakmenn ársins valdir:
Jóna Guðlaug
og Emil best
FÓTBOLTI Harry Redknapp, nýráð-
inn knattspyrnustjóri Portsmouth,
greindi frá því í gær að Robbie
Fowler væri ekki á meðal þeirra
leikmanna sem eru á óskalista
hans. Redknapp er sagður fá fimm
milljónir punda til ráðstöfunar
þegar leikmannaglugginn opnast
að nýju í janúar og hafði Fowler
verið nefndur sem maðurinn til
að leysa vandamálin sem fylgja
markaþurrð framherja liðsins.
„Hans nafn var ekki nefnt til
sögunnar af mér. Ég veit ekki
einu sinni hvernig formi hann er
í,“ segir Redknapp. - vig
Harry Redknapp:
Hefur ekki
áhuga á Fowler
ROBBIE FOWLER Hefur aldrei náð sér á
strik með Man. City.
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í handknattleik mun mæta
Makedóníu í umspili um laust sæti
á EM. Fyrri leikur þjóðanna fer
fram hér á landi 27. eða 28. maí en
síðari leikurinn ytra viku síðar.
Sigurliðið fer síðan á EM sem
fram fer í Svíþjóð í desember. - hbg
Evrópumót kvenna:
Ísland mætir
Makedóníu