Réttur - 01.06.1943, Side 26
102
RÉTTUR
um leysti hann upp Fyrsta alþjóðasambandið, þar sem það skipu-
lagsform var ekki lengur í samræmi við kröfur tímans.
Með tilliti til þess, sem að framan getur, og til vaxtar og stjórn-
málaþroska kommúnistaflokkanna og foringjaliðs þeirra í einstök-
um löndum, og þar sem sumar deildir sambandsins hafa síðan
stríðið skall á ymprað á að leggja skyldi Alþjóðasamband komm-
únista niður sem stjórnarmiðstöð hinnar alþjóðlegu verkalýðs-
breyfingar, þá hefur stjórn framkvæmdanefndar Alþjóðasambands-
ins ákveðið, að leggja fram eftirfarandi tillögu fyrir deildir þess,
þar sem ekki er hægt að kveðja saman sambandsþing vegna styrj-
aldarinnar:
Alþjóðasamband kommúnista, sem stjórnarmiðstöð hinnar al-
þjóðlegu verkalýðshreyjingar, skal verða lagt niður, og eru því
deildir þess lausar við þœr skyldur, sem lög og samþykktir sam-
bandsþinga haja lagl á þœr.
Stjórn jramkvœmdanejndar Alþjóðasambands kommúnista skor-
ar á alla stuðningsmenn Alþjóðasambandsins, að einbeita öllum
kröftum sínum á einlœgan stuðning og virka þátttöku í frelsis-
stríði þeirra þjóða og ríkja, sem eru meðlimir bandalagsins gegn
Hitler, svo að s/cjótur sigur verði unninn á erkióvini verltalýðsins
og allra vinnandi manna — hinum þýzka nazisma, bandamönnum
lians og leppum.
STJÓRN
FRAMKVÆMDANEFNDAR ALÞJÓÐASAMBANDS KOMMÚNISTA
G. Dimitrojf. M. Ercoli. IV. Florin. K. Gottwald.
V. Kolarofj. J. Koplenig. O. Kuusinen. D. Manúilski.
A. Marty. W. Pieck. M. Thorez. A. Sdanoff.
Eftirfarandi fulltrúar kommúnistaflokka skrifuðu einnig nöfn sín
undir þessa ályktun:
Bianco (ltalía). Dolores lbarurri (Spánn).
Lekhitinin (Finnland). Anna Pauker (Rúmenía).
Matthias Rakosi (Ungverjaland).