Réttur - 01.01.1946, Qupperneq 74
74
RÉTTUR
öldinni. í því sambandi spáði hann endurkomu nazismans.
Það er mjög mikilvægt að hafa í huga þessar bendingar um
fyrirætlanir nazista eftir stríð, ef vér eigum að skilja mikil-
vægi þeirrar afturhaldsherferðar, sem nú er hafin víða um
lönd og fylgir svo trúlega fyrirsögn nazistanna. Þessi við-
leitni gerði þegar vart við sig í hinum dularfullu atvikum
að stríðslokunum, þegar heilir þýzkir herir gáfust upp bar-
dagalaust á vesturvígstöðvunum, jafnframt því sem Þjóð-
verjar börðust örvæntingarbaráttu á austunu'gstöðvunum,
í afstöðunni til Dönitz-stjórnarinnar, í framhaldandi viður-
kenningu á þýzkum hereiningum þvert ofan í Potsdam-
samþykktirnar o. s. frv.
Ræða Churchills
í þessu ljósi þurfum vér að meta mikilvægi ræðu Churc-
hills í Fulton og áróðurs hans síðan. Hin fallna, blóði drifna
skikkja Andkonnnúnistabandalagsins hefur verið tekin upp
aftur og lögð yfir nýjar herðar. Hið brostna básúnukall um
„krossferð hinnar kristnu siðmenningar“ gegn „kommún-
istahættunni" og „útþenslu“ Ráðstjórnarríkjanna hljómar
nú af nýjum vörum. Hinar hrörlegu afturgöngur Hitlers,
Ribbentrops og Göbbels, sem um svo mörg ár höfðu staðið
að sérhverri kaldrifjaðri og glæpsamlegri árásarfyrirætlun,
eru aftur komnar á kreik. Og glottandi draugur Göbbels
getur núið hendurnar af ánægju yfir liinum nýja lærisveini
sínum.
Síðasta tilraun glæfraspilarans
Það er ekki erfitt að skilja heiftina að baki þessari síðustu
örvæntingarfullu krossferð hins sigraða Churchills, manns-
ins, sem beið svo herfilegan ósigur, er hann reyndi að kæfa
hin ungu Ráðstjórnarríki í blóði, mannsins, sem hjálpaði
til að ryðja styrjöldinni braut með lofræðum sínum um jap-