Réttur


Réttur - 01.01.1950, Side 12

Réttur - 01.01.1950, Side 12
12 RÉTTUR framgjarnir menn töldu mikla vöntun á viðskiptafróðum mönnum í hinu nýja lýðveldi. Og að þessu sinni var faðir hans ánægður og veitti honum nokkurn styrk, því að hann þóttist nú sjá að Mao væri búinn að hlaupa af sér hornin og ætlaði að gerast nýtur kaup- maður. En það átti ekki fyrir Mao að liggja að verða lærður kaup- sýslumaður. Honum féll illa skólavistin, sérstaklega vegna þess að mest af kennslunni fór fram á ensku, en hann og fleiri nem- endur skildu lítið í því tungumáli. Þá fór hann í nýjan gagnfræða- skóla, en geðjaðist ekki að kennslunni og ákvað að mennta sig eftir eigin aðferðum. Hann íór á morgnana í bókasafnið og sat þar við lestur mest- allan daginn. Einkum las hann landafræði og veraldarsögu og fræðibækur eftir ýmsa erlenda höfunda svo sem Adam Smith, Darwin, Stuart Mill, Rousseau og Montesquieu. En það var ekki ætlun föðlir hans að fleygja út peningum til þess að Mao gæti velt sér í alls konar gagnslausum og bráðhættulegum bókmenntum. Hann tók af honum styrkinn. Þegar Mao hafði um skeið lifað sönnu sultar- og bókaormslífi fór hann að hugsa um hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur seinna í lífinu. Ýmsir kunningjar hans höfðu sagt honum frá ný- stofnuðum skóla sem kallaður var Normalskóli. Tveir þeirra höfðu hug á að komast í hann og fengu Mao til að semja fyrir sig rit- gerðir sem heimtaðar voru við inntökupróf. Hann lét sig þá ekki muna um að semja þá þriðju fyrir sjálfan sig og stóðst þannig þrisvar inntökuprófið, því að allar voru ritgerðirnar teknar gildar. í þessum skóla var hann í fimm ár og útskrifaðist sem stúdent frá honum. Á þessum árum kynntist Mao allmikið stjórnmálum, bæði af lestri bóka og samneyti við ýmsa menn. í skólanum las hann þjóð- félagsfræði af mestum áhuga. Sumarið eftir að hann brautskráðist úr skólanum fór Mao ásamt einum skólabróður sínum í langt ferðalag fótgangandi um fimm sýslur þar í grenndinni. Bændurnir tóku þeim hvarvetna með mestu gestrisni. Upp úr þessu fór Mao að hugsa um að stofna eins konar ungmennafélag. Hann auglýsti eftir ungum mönnum sem

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.