Réttur


Réttur - 01.01.1950, Page 28

Réttur - 01.01.1950, Page 28
28 R É T T U R hefur stolizt út frá okkur, og við getum hvergi fundið hana. Hvert heldurðu, að hún hafi getað farið?“ Sigga náfölnaði, og henni fannst hún vera að hníga niður. í næsta svipan hljóðaði hún upp yfir sig. ,,Þú þarft ekki að vera svona hrædd, Sigga. Við erum sko ekki búin að leita mjög mikið, enda getur verið, að Kata sé búin að finna hana núna. Heldurðu, að það geti skeð, að hún hafi farið alla leið heim, upp á Þórsgötu? Ég er með bíl, svo að við erum ekki lengi að bregða okkur þangað.“ Þau fundu hana sitjandi í krapablautum tröppunum að eldhús- innganginum, þar sem hún var vönust að ganga út og inn með móður sinni. Hún virtist hvorki geta talað né grátið fyrir kulda. Það var ekki fyrr en þau voru komin með hana inn og móðirin hafði haldið á henni um stund í faðmi sínum, að hún lét nokkuð til sín heyra nema vesaldarlegar stunur. „Mamma ekki fa-a fá Dísu,“ stundi hún að lokum með lágri barnsrödd sinni. Þau vissu ekki, hve lengi hún hefði setið þarna fyrir utan lok- aðar dyrnar. Gamla húsmóðirin, sem var ein heirna, hafði víst ekki heyrt til hennar, kannske verið sofandi. Bróðirinn og mágkonan sögðu, að þetta hefði ekki getað verið langur tími. Telpan hefði verið með einhverja óþekkt og ekki viljað sofa á legubekknum, þar sem þau höfðu lagt hana og breitt yfir hana sæng. Svo höfðu komið tveir gestir, og líklega skilið eftir opnar dyrnar, því að nokkru seifina var telpan horfin. Þau minntust hins vegar ekkert á, að það hafði verið hafinn söngur skömmu eftir komu þeirra, og síðan orðið all-háværar deilur milli þessara gesta um það, hvor þeirra hefði lent út af laginu. • Síðan var sent eftir næturlækninum. Hann gaf þann úrskurð, að barnið hefði ofkælzt alvarlega, skrifaði lyfseðil og fór. Þegar bróðirinn og mágkonan voru farin, kom gamla konan til

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.