Réttur


Réttur - 01.01.1950, Síða 39

Réttur - 01.01.1950, Síða 39
RÉTTUR 39 fást fullgert sakir fjandskapar fjárníálavaldsins sýnir bezt við 'hve ramman reip er að draga, þegar knýja á fram atvinnulegar framfarir í landi voru. Af þessum atriðum hefur nýsköpun atvinnulífsins, hin mikla f járfesting í nýsköpunartogurunum og öðrum fram- leiðslutækjum 1945—’47, orðið mest deilumál.* M. a. hafa hagfræðingar þeir, sem útbjuggu gengislækkunarlögin 1949, Benjamín Eiríksson og Ólafur Björnsson, deilt á þá ráðstöfun að kaupa þessi tæki þá í stað þess að láta kaupa þau smámsaman eftir því hvað þjóðin fengist sjálf til þess að spara. Harðast deildu þeir á stofnlán þau, er Lands- bankinn var knúinn til að láta, til þess að hægt væri að kaupa nýsköpunartogarana o. fl. Framsókn greip þessa gagnrýni fegins hendi og Sjálfstæðisflokkurinn samsinnti henni. Þessi gagnrýni hagfræðinganna er bezta sönnunin fyrir því hve hringavitlausar hugmyndir þeirra eru um mögu- leikana á þróun íslenzks atvinnulífs og hve hrapalega ís- lenzku þjóðinni hefði farnast 1944—’47, ef hún hefði farið eftir þeirra kenningu og hve illa muni fara fyrir 'henni nú, ef hún trúir þeim. Hver 'hefði orðið afleiðingin 1944, ef sparnaður einstakl- inganna og vilji bankanna hefði verið látinn ráða um kaup nýsköpunartogaranna t. d. ? 1944 og 1945 trúðu togaraeigendur ekki á það að ráðlegt væri að semja um smíði á togurunum í Bretlandi. Þeir sögðu að brezkir útgerðarmenn ætluðu að bíða, þar til hálfu öðru ári eftir stríð (þ. e. til 1947—’48), þá yrði ódýrara að kaupa togara. Þessir íslenzku stórútgerðar- menn áttu að vísu peninga til þess að geta keypt togara, margar milljónir í nýbyggingarsjóðum, en þeir hefðu ekki keypt þá fyrr en. máske 1947—’48 og þá fengið togarana * Ég hef í Rétti 1948 skrifað það mikið um „nýsköpunina“ að ég endurtek það ekki hér.

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.